Morgunblaðið - 12.08.1990, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.08.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÚTVARP/SJÓNVARP SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1990 39 Fjallað verður um tímaskyn hinna ýmsu dýrategunda. Sjónvarpið: Töfrar tímans ■■■■ Töfrar timans er undir- QA 40 titill fimmta þáttarins í fræðsluflokknum Ofur- skyn sem Sjónvarpið sýnir í kvöld. Kannaður er ólíkur lífstaktur mis- munandi dýrategunda. Dýr skynja tímann á mismunandi hátt og sú skynjun er háð hjartslætti þeirra. Því má segja að iífshrynjandi hjá snjáldurmús sé um 30 sinnum örari en hjá fíl. Vegna miklu ör- ari efnaskipta sem koma m.a. fram í örum hjartslætti virðist músinni því tíminn líða hægar. I þættinum verður m.a. fylgst með þeim sið ákveðinnar fiskitegundar að verða strandaglópur á hveiju vori þegar fellur frá til að verpa eggjum sinum í sandinn áður en hann heldur aftur á haf út. arvið Ragnheiði Davíðsdóttur ritstjóra. Endurtek- inn þáttur frá þriðjudegi. 3.00 I dagsins önn - Hellarannsóknafélag Is- landsUmsjón: Pétur Eggerz. (Endurtekinn þáttur frá deginum áður á Rás 1.) 3.30 Glefsur. Úrdaegurmálaútvarpimánudagsins. 4.00 Fréttir. 4.03 Vélmennið leikur næturlög. 4.30 Veðurfregnir. — Vélmennið heldur áfram. 5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 5.01 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson (Endurtekið úrval frá kvöldinu áður.) 6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 6.01 Áfram ísland. íslenskir tónlistarmenn. LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2 Útvarp Norðurland kl. 8.10-8.30 og 18.35-19.00. AÐALSTÖÐIN FM 90,9 / 103,2 7.00 f morgunkaffi. Umsjón Steingrimur Ólafsson og Eiríkur Hjálmarsson. Með morgunkaffinu eru viðtöl, kvikmyndayfirlit teprófun, neytendamál, fjármálahugtök útskýrð, kaffisimtal og viðtöl i hljóðstofu. Kl. 7.00 Morgunandakt Sr. Cecil Haraldsson. Kl. 7.10 Orð dagsins. Kl. 7.15 Veð- rið. Kl. 7.30 Litið yfir morgunblöðin. Kl. 7.40 Fyrra morgunviðtal. Kl. 8.15 Heiðar, heilsan og hamingjan. Kl. 8.30 Hugleiðing á mánudegi. Kl. 8.40 Viðtal dagsins. 9.00 Á nýjum degi. Umsjón Bjarni Dagur Jónsson. ' Kl. 9.30 tónlistargetraun. 12.00 Hádegisspjall. Umsjón Steingrimur Ólafsson og Eiríkur Hjálmarsson. 13.00 Með bros á vör. Umsjón: Margrét Hrafnsdótt- ir. 13.30 Fyrirtæki dagsins. 14.00 Brugðið á leik í dagsins önn. 14.30 Rómantiska hornið. 15.00 Rós í hnappagatið. 15.30 Simtal dagsins. 16.00 i dag I kvöld. Umsjón: Ásgeir Tómasson. 16.05 Veðrið. Fréttir og fróðleikur. 16.15 Saga dagsins. 16.20 Ertilefni til. 17.45 Heiðar, heilsan og hamingjan. Endurtekið. 18.00 Úti i garði. 19.00 Við kvöldverðarborðið. Umsjón: Randver Jensson. 20.00 Á yfirborðinu. Umsjón: Kolbeinn Gíslason. 24.00 Næturtónar Aðalstöðvarinnar. Umsjón: Randver Jensson, BYLGJAN FM 98,9 7.00 Eiríkur Jónsson og morgunvakt Bylgjunnar. Nýjustu fréttirnar o.g gluggað í morgunblöðin þegar ný vinnuvika er að hefjast. 9.00 Páll Porsteinsson. Vinir og vandamenn kl. 9.30 og tónlist. 11.00 Ágúst Héðinsson. Afmæliskveðjur og óska- lögin. 12.00 Hádegisfréttir. 14.00 Helgi Rúnar Óskarsson með vinsældarlista- popp i bland við gamla tónlist. Farið i sumarleiki. 17.00 Reykjavik siðdegis. Haukur Hólm. Viðtöl og símatimar hlustenda. 18.30 Snorri Sturluson og kvöldmatartónlistin. 22.00 Haraldur Gislason. 2.00 Freymóður T. Sigurðsson á nætun/appinu. Fréttir á klukkutfmafresti kl. 10, 12, 14 og 16. EFF EMM FM 95,7 7.30 Til i tuskið. Jón Axel Ólafsson og Gunnlaug- ur Helgason. 7.45 Út um gluggan. Farið yfir veðurskeyti. 8.00 Fréttayfirlit. Gluggað i morgunblöðin. 8.15 Stjörnuspeki. 8.45 Lögbrotið. Lagabútar leiknir og kynntir. 9.00 Fréttir. 9.20 Kvikmyndagetraun. 9.40 Lögbrotið. Nú er komið að þvi að svara. 9.50 Stjörnuspá. Spáð i stjörnurnar. 10.00 Fréttir. Morgunfréttayfirlit. 10.05 Anna Björk Birgisdóttir. 10.30 Kaupmaður á horninu. Skemmtiþættir Griniðjunnar. 10.45 Óskastundin. 11.00 Leikur dagsíns. 11.30 Úrslit. 12.00 Fréttayfirlit á hádegi. 12.15 Komdu i Ijós. 13.00 Klemens Arnarson, 14.00 Fréttir. 14.30 Uppákoma dagsins. Hvað gerist? 15.30 Spilun eða bilun. 16.00 Fréttir. 16.05 ivar Guðmundsson. 16.45 Gullmoli dagsins. Rykið dustað af gömlu lagi. 17.00 Afmæliskveðjur. ívar sendir út kveðjur. 17.30 Kaupmaðurinn á hominu. Endurtekið, 18.00 Fréttafyrirsagnir dagsins. 18.30 „Kikt i bió" Ivar upplýsir hlustendur um það hvaða myndir eru til sýninga i borginni. 19.00 Kvölddagskrá hefst. 19.00 Breski og bandariski listinn. Valgeir Vilhjálms- son kynnir. 22.00 Páll Sævar Guðjónsson. ÚTVARP RÓT FM 106,8 9.00 Fjör við fóninn. Bl. morguntónlist umsj.: Kristján. 12.00 Framhaldssagan. Gunnar Helgason les drengjasöguna Jón miðskipsmaður. 12.30 Tónlist. 13-OOMilli eitt og tvö. Country, bluegrass og hill- billy tónlist. Lárus Óskar velur lög. 14.00 Tónlist. 17.00 Tónlist. 17.30 Fréttir frá Sovét. 18.00 Tónlist. 19.00Skeggrót. Umsj.: Bragi & Þorgeir. 21.00 Heimsljós. Kristileg tónlist umsj.: Ágúst Magnússon. 22.00 Kiddi í Geisla. Pungarokk m. fróðlegu ívafi. 24.00 Útgeislun. Valið efni frá hljómplötuversl. Geisla. STJARNAN FM 102/104 7.00 Dýragarðurinn. Ólöf Marin Úlfarsdóttir. 9.00 Á bakinu með Bjarna. Bjarni Haukur. 12.00 Hörður Arnarsson. 15.00 Kristófer Helgason og kjaftaklúbburinn. 18.00 Darri Ólason. 22.00 Ölöf Marín Úlfarsdóttir. 1.00 Björn Þórir Sigurðsson. Næturvakt. Margrét Hrafnsdóttir er á Að- alstöðinni alla virka daga frá kl. 13 til kl. 16. Aðalstöðin: Með bros á vör ■■i^H Margrét Hrafns- 1 Q 00 dóttir stýrir dagskrá lo ““ á Aðalstöðinni alla virka daga sem hún nefnir Með bros á vör. í þessari dag- skrá kennir ýmissa grasa. Kl. 13.30 velur hún fyrirtæki dagsins, hálftíma síðar þá bregður Margrét á leik með hlustendum, Rómantíska hornið er kl. 14.30 en þá eru leikin þrjú dægurlög sem fjalla um ástina. Kl. 15 er einstakl- ingur útnefndur fyrir að láta gott af sér leiða eða vegna einstaks árangurs á sínu sviði og fær hann rós í hnappagatið af því tilefni. Kl. 15.30 finnur Margrét sér einhvern skemmtilegan viðmælanda, íslenskan eða erlendan, og ræðir við hann í gegnum síma. Auk þessa leikur hún svo létt lög inn á milli fyrir hlustendur. Hundasýning Hundaræktarfélags íslands haldin í Laugardagshöll sunnudaginn 12. ágúst 1990 Dagskrá Hringur 1. 09.00-09.45 Enskur Cocker Spaniel 09.45-10.10 Enskur Springer Spaniel 10.10-14.40 Labrator Retriever 14.40-16.50 Golden Retriever 16.50-17.00 Schafer Hringur 2. - 09.00-09.25 Sankti Bernard 09.25-11.40 írskur Setter 11.40-13.10 Poodle 13.10-13.25 Dachshund 13.25-13.40 Maltese 13.40-13.50 Papillon 13.50-16.40 íslcnskur íjárhundur Dómarar: Jean Lanning frá Englandi og Carl-Johan Adlercreutz frá Svíþjóð. Úrslit sýningar eru áætlud um kl. 17.30 Hlýánisýning og hundafimi á undan úrslitum kðgangseyrir: Fullorðnir 400 kr. lörn 6-12 ára 200 kr. Jörn yngri en 6 ára ókeypis í fylgd með fullorðnum fritt fyrir ellilífeyrisþega Hundaræktarfélag íslands Gárur eftir E/ínu Pálmadóttur Þeir sem kaupa köttinn Það var einhvern tíma fyrir verslunarmannahelgina — helgina þegar verslunarmennirn- ir vinna — að gára tók í sinni. Mikið hafði verið talað um stór- kostlega hljómleika í Berlín með frægustu popphljómsveitum, til að afla fjár handa fórnarlömbum náttúruhamfara. Þau er öllum ofarlega í huga eftir jarðskjálft- ana miklu í Armeníu, íran og nú siðast á Filippseyjum. Fólkið sem lent hefur í þessum hremmingum hefur verið inni á gafli í hverri stofu um víða veröld og átt allra samúð. Nú skyldi reyna að létta eitthvað, með einu heljarins miklu átaki, hörmungar þessa fólks, að svo miklu leyti sem hægt er að létta mannfall og slys. íburðarmiklir hljóm- leikar í Berlín skyldu sendir í beinni útsend- ingu til sjónvarps- stöðva um allan heim. Var mikið auglýst fyr- irfram hvílíkt húllum- hæ þarna yrði. Og það varð! Það sáu íslend- ingar í beinni útsend- ingu síðdegis á laug- ardegi. Plastmúrinn mikli, sem búið var að auglýsa svo mikið, var byggður með ærn- um kostnaði og sprengdur með helj- armiklu búmmsarab- úmsi á fáum mínút- um. Flugeldar spýtt- ust og hljómsveitirnar frægu léku og náðu til alls heimsins í einu. Svo kom fréttin. Lítt áberandi. Líklega bara sagt frá henni einu sinni. Svo miklu hafði verið kostað til að það var bara ekkert eftir handa fórn- arlömbum náttúruhamfara. Sorrý! Áheyrendur höfðu þó ekki látið sig vanta og ekki höfðu sjón- varpsstöðvarnar brugðist í að kaupa þessa góðgerðartónleika í beinni útsendingu. Þetta voru semsagt eins vel heppnaðir tón- leikar og gert hafði verið ráð fyrir. Það var bara búið að eyða hálfum milljarði í tilkostnað. Þetta gátu skipuleggjendur eflaust séð fyrir. Ef ekki þá vita þeir varla hvað þeir eru að gera og eru tæplega í stakk búnir til að hjálpa meðbræðrum í nauð. Kannski var það ekki málið, svo notað sé vinsælt orðatiltæki. Til- ganginum var líklega eftir allt saman náð. Hvernig er svosem hægt að fá betri og víðtækari auglýsingu fyrir sig en svona, að ná um gervihnetti til alls heimsins? Og það inn í stofu til vel undirbúins fólks með samúð? í okkar auglýsingaheimi er ekk- ert jafn snjaílt og að nugga sér utan í Krist, þ.e. eitthvert gott málefni. Og er orðið býsna al- gengt. Nýjasta í skemmtana- bransanum úti í heimi er að safna í þágu umhverfismála. Þau eru mál málanna nú. Og þeir sem eiga mikið og allt sitt á þun-u, geta fengið auglýsingu út á þá sem misst hafa í náttúruhamför- um. Að eiga er líklega jafn fyrir- hafnarsamt og hann Piet Hein segir með íslenskum orðum Helga Hálfdanarsonar: Ég þarf að annast um ótal hluti sem eignast ég smátt og smátt. þó orðað gæti ég eignarhaldið á annan og réttari hátt; því einlægt sé ég þann sannleik vera á sjejmi f Kringum mig, að eigirðu meiia en átta hluti, þá eiga hlutirnir þig. Á einhvern hátt á þetta og annað ámóta að auka skilning og aðstoð milli jarðar barna, á sinn hátt eins og kraftaverkið með brauðið og fiskana. Þarf raunar ekki himnasendingar á heimsvísu. Eða hvað? Bólar kannski ekki á því hér líka að nauðsynlegt þyki að auglýsa með ænium kostnaði væntanlégt liðsinni við góð mál- efni? Og þá vaknar spurningin: Hve miklum hluta af söfnun til góðs málefnis er eðlilegt að eyða í til- kostnað? Þegar góðu málefnin eru orðin svona mörg — og mað- ur getur lengi á sig blómum bætt — þá kemur að því að þurfi að fara að velja úr og greina í sundur. Þá er að finna upp ein- hverja þumalputtaaðferð. Sjálf tók ég það ráð í fyrra eða hitteð- fyrra að sleppa stuðningi við átak eða kaup á happdrættismiðum þegar sýnilega er lítt sparað í tilkostnað fyrirfram. Til dæmis að kaupa ekki þegar bornir eru í hvert hús litprentaðir stórir glæsibæklingar eða birtast á skjánum tíðar auglýsingar gerð- ar af auglýsingastofum. Þann sem veit hvað slíkt kostar grunar að litla framlagið hans týnist eins og títuprjónn í heystakki í söfn- uninni. Sumir segja að verði að auglýsa vel og vekja nógu mikla athygli ef á að fást nokkur veru- leg fúlga. Kann að vera rétt! En til hvers er verið að safna? í sjóð eða auglýsingu og sjóð? Okkur til hagræðis, sem viljum heldur það fyrrnefnda, ætti að birta kostnaðaráætlun um fram- kvæmdina. Og í rauninni að setja reglur um að um leið og gefið er upp hve mikið safnaðist til hins góða málefnis, þá sé um leið gerð grein fyrir tilkostnaði. Manni sýnist vera orðin þörf á — stundum a.m.k. Að þetta er ekki gert er sjálfsagt okkur blaða- mönnum að kenna. Við auglýsum óspart með kynningu og texta- auglýsingum átak og söfnun til góðra verka, en göngum ekki eftir því að upplýsa hvemig með féð er farið. Oftast er því eflaust vel varið og lítið klipið af því í kostnað. Annars getur maður sjálfsagt sjálfum sér um kennt og sagt eins og Káinn, þegar hann í hálfkæringi orti um nýút- komið ljóðakver sitt: Þeir sem kaupa þetta kver, þeir geta heimsku kennt um, Aldrei hefur varið ver verið fimmtán sentum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.