Morgunblaðið - 12.08.1990, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.08.1990, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1990 j jj » ei' sunnudagur 12. ágúst. Hólahátíð; 9. sd. eftir 1 UxVljrTrínitatis. 224. dagurársins 1990. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 9.57 og síðdegisflóð kl. 22.21. Sólarupprás í Rvík kl. 5.08 og sólarlag kl. 21.55. Myrkur kl. 23.03. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.33 og tunglið er í suðri kl. 5.52. (Almanak Háskóla íslands.) FRÉTTIR/ MANNAMÓT REYKJAVÍKURLÆKNIS- ára afmæli. í dag, 12. OU þ.m., er sextugur Leif- ur Blumenstein, bygginga- fræðingur, Brekkustíg 10, Rvík. Hann er fyrrv. tækni- deildarstjóri byggingadeildar borgarverkfræðings. Hann tekur á móti gestum í Bað- stofu iðnaðarmanna í gamla Iðnskólanum, Lækjargötu 14a, í dag, afmælisdaginn, kl. 16-19,. Q A ára afmæli. Á morg- 0\/ un, 13. ágúst, er átt- ræð frú Þyrí Marta Magnús- dóttir, Tjarnargötu 16, Rvík. Hún tekur á móti gest- um í dag, sunnudag, í Kiwan- ishúsinu, Smiðjuvegi 13A, Kópavogi, kl. 15-19. LÁRÉTT: — 1 eyðslusam- ur, 5 hætta, 8 þrætir, 9 blaut- ar, 11 rýju, 14 flýtir, 15 málmpinnar, 16 líkamshlutar, 17 elska, 19 kvendýr, 21 bú- seta, 22 ungt lamb, 25 tann- stæði, 26 huidumann, 27 for. LÓÐRÉTT: — 2 þannig, 3 keyra, 4 lítilfjörlegra, 5 varm- inn, 6 geislahjúps, 7 fúsk, 9 von, 10 kjaftinum, 12 bursta, 13 ýlfraðir, 18 tölustafur, 20 flan, 21 kindum, 23 aðgæta, 24 burt. KEFLAVÍK. Norski Æsku- lýðskórinn sem hér er í heim- sókn á vegum Hjálpræðis- hersins, rúmlega 20 manna kór, syngur í Keflavíkurkirkju mánudagskvöld kl. 20.30 á samkomu sem Óskar Óskarsson stjórnar. Hann er fararstjóri hópsins. HÉRAÐ: í tilk. í nýju Lög- birtingablaði tilk. heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið að það hafi hinn 19. júní skip- að Skúla G. Johnsen borg- arlækni til þess að vera hér- aðslækni í Reykjavíkuriækn- ishéraði samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, „með síðari breytingum, frá 1. júlí til 31. desember 1990 að telja". NESKIRKJA. Nk. þriðju- dagsmorgun er mömmu- morgunn, opið hús fyrir mæð- ur og börn þeirra kl. 10-12. FURUGERÐI 1. Félagsstarf aldraðra. Á þriðjudaginn kl. 13 verður opið hús. Spiluð vistogbrids. Kaffitími kl. 15. TRÚFÉLAGIÐ Veginn, kristið samfélag, hefur dóms- og kirkjumálaráðuneytið við- urkennt til skráningar sam- kvæmt lögum um trúfélög, segir í tilk. frá ráðuneytinu í Lögbirtingi. QA ára afmæli. í dag, 12. t/U ágúst, er níræður Eyj- ólfur Gíslason frá Vötnum í Ölfusi, Njálsgötu 82, Rvík. Hann var um langt árabil starfsmaður Togaraafgreiðsl- unar við Reykjavíkurhöfn sem annaðist aflalöndun úr togurunum m.m. Kona hans var Sigríður Guðmundsdóttir frá Grímsstöðum á Eyrar- bakka. Hún lést árið 1984. Hann er að heiman í dag. Q A ára afmæli. í dag, 12. ÖU ágúst, er áttræð frú Inga P. Sólnes, Aðalstræti 65, Akureyri. Maður hennar var Jón G. Sólnes, banka- stjóri og alþingismaður. Hún er í dag stödd í Rvík og tekur á móti gestum í félagsheimili tannlækna, Síðumúla 35, kl. 17-19 í dag, afmælisdaginn. SÉRFRÆÐINGAR. í tilk. frá heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu í Lögbirt- ingablaðinu segir að það hafi veitt Sigurlaugu Margréti Karlsdóttur lækni leyfi til að starfa sem sérfræðingur í geðlækningum hérlendis. Þá hafi Þórólfi Guðnasyni lækni verið veitt starfsleyfi sem sérfræðingur í barna- Hver mun gjöra oss viðskila við kærleika Krists? Mun þjáning geta það eða þrenging, ofsókn, hundur eða nekt, háski eða sverð? (Róm. 8,35.) ÁRNAÐ HEILLA HJÓNA- BAND. í Eski- fjarðarkirkju voru gefin saman í hjóna- band af sr. Davíð Baldurs- syni Dagmar Sigurðardótt- ir og Viðar Hreggviðs- son. Heimili þeirra er í Víði- mýri 1, Nes- kaupstað. KROSSGÁTAN □ T“" n n □ pfi 1 ■ 10 11 12 13 14 15 le ■ 18 ■ 19 n 20 ■ 22 23 24 25 □ 26 27 u MORGUNBLAÐIÐ FYRIR 25 ÁRUM Lausafregnir bárust um það i gær að enn væru líkur á því að 230 íslend- ingar sem nú eru í Dan- mörku og Noregi komist heim um næstu mánaða- mót. Muni þeir koma heim um finnsku hafnar- borgina Petsamo. Hefur verið um það talað að Esja færi þangað til að sækja fólkið, en um það verður þó ekki fullyrt á þessu stigi. Hafði verið sagt frá því í útvarpinu í Danmörku í gær að þeir íslendingar sem sótt hefðu um leyfi til að fara til íslands, um Petsamo, myndu leggja af stað frá Kaupmannahöfn eftir svo sem 10 daga. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: MINNINGARKORT MINNINGARKORT Líknarsjóðs Dómkirkjunn- ar eru til sölu hjá kirkjuverði Dómkirkjunnar. LÁRÉTT: — 1 sterk, 5 sárna, 8 íraks, 9 hugga, 11 áttan, 13 ull, 15 nefum, 16 doppu, 17 agi, 19 iðan,'21 iðja, 22 sálmana, 25 get, 26 áma, 27 rói. LÓÐRÉTT: - 2 tíu, 3 ríg, 4 krauma, 5 skáldi, 6 ást, 7 nóa, 9 hending, 10 giftast, 12 tapaðar, 13 nauðaði, 18 gamm, Morgunblaðið/Sverrir Þetta gamla timburhús, sem stóð í yfir 100 ár á baklóðinni Tjarnargötu 3 C í miðbæn- um, er nú komið á nýjan kjallara á öndvegislóð; á horni Bröttugötu og Garðastrætis. Húsið var éign Indriða Einarssonar um langt árabil. Hann eignaðist það árið 1887. Keypti það þá af þeim sem lét smiða það árið 1880, L. Knudsen. Það virðist ekki í fijótu bragði vera hægt að upplýsa hver hafi teiknað húsið og smíðað það fyrir Knud- sen. Það er ekki samkvæmt upphaflegu útliti á hinum nýja stað. Árið 1917 var Ind- riða leyft að setja kvist á húsið, austurhlið þess. Hún er nú bakhlið. Þetta er framhliðin og snýr í suður. Næst gerðist það í byggingarsögu þessa gamla húss að árið 1940 leyfð- ist þáverandi eiganda, Þorsteini Sigurðssyni, Hringbraut 159, að setja reykháf á hús- ið. Þegar húsið kvaddi sinn gamla stað í Tjarnargötunni hafði það verið í eigu ríkisins um langt árabil og tilheyrði húsum Alþingis. í húsinu voru haldnir fundir á vegum AA-samtakanna hin síðari ár. Þegar húsið var auglýst til sölu fylgdi því sú kvöð að það skyldi flutt þangað sem það nú stendur. Borgaryfirvöld höfðu ákveðið það all- löngu áður. Það var Finnur Guðsteinsson, Laufásvegi 5, Rvík, sem keypti húsið. Um- sækjendur voru 6. lækningum hér. Og Kristínu J. Geirmundsdóttur veitt tímabundið leyfi til tannlækn- inga, til 30. september nk. HAFNARFJÖRÐUR. í tilk. frá skipulagsstjóra ríkisins og bæjarstjóra Hafnarfjarðar í Lögbirtingi segir að í afgr. bæjarverkfræðings liggi frammi tillaga að nýju deili- skipulagi á svæðum hesta- manna við Kaldárselsveg: Gert er ráð fyrir fleiri hest- húsum en nú eru á svæðinu, keppnissvæði, reiðvegum og nýju félagsheimili. Lýst er eftir athugasemdum við upp- dráttinn fyrir 7. sept. nk. FRÍMERKI. Næsta frí- merkjaútgáfa verður 6. sept- ember. Koma þá út þijú frímerki. Eitt þeirra er tileink- að „Ferðamálaári Evrópu 1990“. ísland gerðist aðili að Ferðamálaráði Evrópu, sem í eru 18 ríki. Frímerkið er í verðgildinu 30 kr., það teikn- aði Finnur Malmquist. Þar er teiknað merki Ferðamála- ráðs Evrópu og sýnir hluta af Evrópulandakorti. Hin frímerkin tvö tilheyra frímerkjaútgáfunni „lands- lagsfrímerki". Annað sýnir Hvítserk í V-Húnavatnssýslu, klettadranginn 15 m háa. Hitt sýnir mynd af Lóma- gnúpi í V-Skaftafellssýslu, sem rís 688 m yfir sjávar- mál, vestanvert við Skeiðar- ársand. Verðgildi þess er kr. 200, en Hvítserks-frímerkið er 35 króna merki. Þau teikn- aði Þröstur Magnússon. FRUMHUGMYNDIR. í tilk. í Lögbirtingablaðinu frá Fél. ísl. hugvitsmanna er tilk. um 6 frumhugmyndir hugvits- manna sem allir eru búsettir í Rvík. Meðal frumhugmynd- anna er ein sem Ijallar um baðklefa. Önnur um kúlu- tengibeislismél, um magnvið, um samlokueiningar húsa, um ostaumbúðir og um form- arningsvél. LÆKNADEILD Háskólans. Menntamálaráðuneytið augl. í Lögbirtingi lausa stöðu við námsbraut í lyfjafræði lyf- sala. Þetta er 37% staða í lyfja- og efnafræði og um- sóknarfrestur er settur til 27. þ.m. en lektorsstaðan verður veitt 1. janúar nk. SKIPIN REYKJAVÍKURHÖFN: Togarinn Snorri Sturlusson fór á veiðar í gærkvöldi. Tog- arinn Ögri kom úr söluferð og togarinn Haraldur Böðv- arsson kom úr slipp, en þar hefur hann verið um nokkurra vikna skeið. í dag er Kyndill væntanlegur af ströndinni og fer aftur á morgun. Þá er Laxfoss væntanlegur að utan ásamt leiguskipinu Weser Guid. Þá kemur togarinn Ottó N. Þorláksson af veið- um og landar. Á þriðjudag eru Jökulfell, Helgafell og Árfell væntanleg að utan. Þýska eftirlitsskipið Pos- eidon er væntanlegt í dag. HAFNARFJARÐAR- HÖFN: í fyrrakvöld hélt togarinn Víðir til veiða. Mánudagsmorgun kemur togarinn Rán inn til löndunar. ■, .................................................................‘ Þessir krakkar héldu hlutaveltu til ágóða fyrir Rauða kross Islands. Þeir eiga heima í vesturbæ Reykjavíkur og heita Elien Birna Loftsdóttir, Svanhvít Ásta Smith, Axel Ólafur Smith og Hólmfríður Drífa Jónsdóttir. Á hlutaveltunni söfnuðust 3.520 krónur. ORÐABOKIINl Rúta Þegar samgöngur fóru að aukast milli. landshluta fyrir og um miðja öldina með bættu vegakerfi, var farið að halda uppi ferðum milli staða með stærri bílum en áður höfðu þekkzt. Leið- in nefndist áætlunarleið og bílíinn áætlunarbíll eða áætlunarbifreið. Enda þótt þetta séu góð og gild íslenzk orð, mun flestum hafa þótt þau löng og óþjál í munni. I skandinavískum málum heitir ákveðin leið á milli staða rute, en þangað er orðið komið úr frönsku ro- ute og svo lengra að úr latínu. í dönsku er svo orð eins og rutebil, rutebád o.s.frv. Trúlega hefur ein- hver svo tekið upp no. rúta í íslenzku eftir þessum orð- um. í augum hreintungu- manna er þetta ekki ís- lenzka en orðið fer þægilega í munni og eins samsetning- ar með því. Ég man vel, að menn höfðu í öndverðu horn í síðu þess og þá ekki sízt að láta það tákna bæði leið- ina og svo farartækið sjálft, sem hana fór. I ágætri grein um ferðamál, sem birtist nýlega hér í blaðinu, er ein- mitt talað um rútur, rútu- eiganda og rútufyrirtæki. Enda þótt ég sé ekki hrifinn af no. rúta, er sennilega erfitt að komast hjá því, þar sem í því felst ákveðin merking. Auk þess verður því ekki heldur neitað; að það fer vel í samsetningum. - JAJ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.