Morgunblaðið - 12.08.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1990
27
ATVINNUAÍ JCSI Y^II\ICAR
- JPm ■ W ■■WKWWi/lL/vJ/L i vJi/ NV-7/v/\
Bakari
óskast fljótlega í bakarí í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 27743 frá kl. 18.00 til
20.00 næstu daga.
Framleiðslustörf
Duglegur og ábyggilegur starfsmaður óskast
til framtíðarstarfa í framleiðslustörf.
Umsóknir er greini aldur og fyrri störf sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 19. ágúst merktar:
„BB - 1300“.
Barnagæsla
Kona óskast til að koma heim og gæta
tveggja barna, 6 og 8 ára, tvo morgna í viku
í Norðurbæ Hafnarfjarðar.
Upplýsingar í síma 50328.
Ráðskona
óskast á sveitaheimili á Suðurlandi. Má
hafa börn.
Áhugasamir leggi inn upplýsingar ásamt síma-
númer inn á auglýsingadeild Mbl. merktar:
„Ráðskona - 9188“ sem fyrst.
ÍSLANDSBANKI
Forstöðumaður
lögfræðideildar
Hér með er auglýst til umsóknar starf for-
stöðumanns lögfræðideildar íslandsbanka.
Hlutverk deildarinnar er m.a. að vera stjórn-
endum bankans til ráðuneytis varðandi lög-
fræðileg málefni og hafa umsjón með inn-
heimtu vanskila við bankann.
Umsóknarfrestur er til 16. ágúst 1990.
Frekari upplýsingar veitir Guðmundur Hauks-
son, framkvæmdastjóri, Kringlunni 7,
Reykjavík.
Umsóknir sendist Guðmundi Eiríkssyni,
starfsmannahaldi íslandsbanka, Ármúla 7,
Reykjavík.
Reykjavík, 26.júlí 1990.
íslandsbanki hf.,
bankastjórn.
Störf hjá þjónustu-
fyrirtæki
Óskum eftir að ráða í eftirfarandi störf hjá
öflugu þjónustufyrirtæki í Reykjavík.
í söludeild: Sölu- og skrifstofumenn til sér-
hæfðra starfa. Æskileg stúdentsmenntun af
viðskiptasviði.
í viðskiptaþjónustu: Markaðsmann til sér-
hæfðra þjónustustarfa. Æskileg menntun
markaðs- eða viðskiptafræði.
í þjónustudeild: Alhliða skrifstofumenn.
Haldgóð þekking og reynsla af skrifstofu-
störfum nauðsynleg.
Leitað er að körlum eða konum að aldrinum
20-40 ára.
. Umsóknarfrestur vegna ofangreindra starfa
er til og með 17. ágúst nk. Ráðnið verður
sem fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysmga- og rádnmgaþjonusta
Liósauki hf. W
Skólavörðustig la - 101 Reykiavik - Simi 621355
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Hvammstanga óskar eftir hjúkr-
unarfræðingi til starfa sem fyrst eða eftir
nánara samkomulagi. Gott húsnæði í boði.
Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra í síma
95-12329.
Matráðskona
óskast til sumarafleysinga. Upplýsingar í
síma 52850, mánudag og þriðjudag.
Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar hf.
Lausar stöður
Skálatúnsheimilið í
Mosfellsbæ
Deildarstjóri viðhaldsdeildar. Starfið er fjöl-
breytilegt og krefst stundvísi og reglusemi.
Þroskaþjálfa vantar til ýmissa starfa.
Laun samkv. kjarasamningi ríkisins. Æskilegt
er að hægt sé að hefja störf 1. sept. nk.
Upplýsingsar á staðnum og í símum 666946
og 666248 á skrifstofutíma.
Kennarar
Látið landsbyggðardrauminn rætast. Við
grunnskólann í Grundarfirði, Snæfellsnesi,
eru enn lausar u.þ.b. þrjár stöður. Meðal
kennslugreina: Líffræði, eðlis- og efnafræði,
íslenska í 8.-10. bekk, almenn kennsla í 7.
bekk, sérkennsla og umsjón skólasafns.
Húsnæðisfríðindi í boði.
Upplýsingar veitir skólastjóri (Gunnar) í síma
93-86802.
Skólanefnd.
Starfsmaður
í mötuneyti
Mötuneyti Samvinnuháskólans á Bifröst
óskar að ráða starfsmann til að annast mat-
reiðslu og daglegan rekstur mötuneytis
skólans. Þarf að geta hafið störf 25. ágúst nk.
Ódýrt húsnæði á staðnum.
Nánari upplýsingar í síma 93-50012 virka
daga eftir kl. 17.00.
Auglýsingablaðið
sfmi 625-444
Óskum eftir að ráða starfskraft. Viðkomandi
þarf að hafa gott vald á vélritun, ensku, bók-
haldi og einfaldri tölvuvinnu.
Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða og
útsjónarsemi.
Umsóknir merktar: „N - 625-444“ skilist
auglýsingadeild Mbl.
Vel menntaður
Vel menntaður maður óskar eftir góðu starfi
í Reykjavík. Hef mikla reynslu sem íslensku-
kennari. Er vanur textavinnu og útgáfu.
Margt kemur til greina, t.d. ritstjórn, auglýs-
inga- og kynningarstörf eða góð skrifstofu-
vinna.
Þeir, sem hafa áhuga, eru beðnir að senda
upplýsingar um heiti fyrirtækis, hugsanlegt
starf og launakjör á auglýsingadeild Mbl.
fyrir 20. ágúst nk. merktar: „Miðlun - 9451 “.
MIÐNESHREPPUR
Sandgerði
Kennarar
Kennara vantar við Grunnskólann í Sand-
gerði. Kennslugreinar: Almenn kennsla, sér-
kennsla, danska og skólasafn. Ódýrt hús-
næði fyrir hendi og dagvistun.
Kjörið fyrir fjölskyldufólk.
Upplýsingar veita Guðjón Þ. Kristjánsson,
skólastjóri í símum 92-37439 og 92-37436
og Þórunn B. Tryggvadóttir, yfirkennari í
símum 92-37439 og 92-37730.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
Austurlandi
Deildarþroskaþjálfar
Svæðisstjórn málefna fatlaðra, Austurlandi,
auglýsir stöðu deildarþroskaþjálfa við þjón-
ustumiðstöðina Vonarland, Egilsstöðum,
lausa til umsóknar frá og með 1. sept. 1990
eða eftir nánara samkomulagi. Aðstoð við
útvegun húsnæðis. '
Upplýsingar veitir forstöðumaður Vonar-
lands í síma 97-11577 frá kl. 9.00 til 17.00
alla virka daga.
Morgunverður
Starfsfólk óskast til þess að sjá um morgun-
verð. Vinnutími frá því snemma á morgnana
til hádegis. Vaktavinna. Eingöngu er um
framtíðarstarf að ræða.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í
síðasta lagi 1. sept. og vera eldri en 25 ára.
Nánari upplýsingar á staðnum næstu daga.
Ekki í síma.
Skrifstofustarf
- útflutningur
Vanur starfskraftur óskast sem fyrst á skrif-
stofu útflutningsfyrirtækis í Reykjavík.
Starfssvið: Samskipti og uppgjör við fram-
leiðendur, gerð útflutningsskjala, sölumál,
bankaviðskipti, alm. skrifstofustörf.
Menntun: Verzlunarskólapróf eða sambæri-
leg menntun - góð enskukunnátta.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
16. ágúst, merktar: „Export - 8722“.
Skrifstofustarf
Sérverslun með lampabúnað óskar eftir að
ráða, sem fyrst, heilsdags starfskraft á skrif-
stofu.
Starfið felst í vinnslu tölvubókhalds, gjald-
kerastarfi og innheimtu.
Viðkomandi þarf að hafa lokið stúdentsprófi
í verslunargreinum.
Umsóknum, sem tilgreina aldur, menntun
og fyrri störf, skal skila skriflega til auglýs-
ingadeildar Mbl., merktar: „L - 8717“, eigi
síðar en 20. ágúst nk. _
VmWH-MF\’ORUR-TElKNiSTUFí
SiðiMÚlal2-simi91-688388-108Reykjavik