Morgunblaðið - 12.08.1990, Side 6

Morgunblaðið - 12.08.1990, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1990 6 FRÉTTIR/INNLENT Morgunblaðið/Frímann Ólafsson Nauðsynlegt er að fólk komi til skráningar í skólanum. Grindavík: Almannavarnir gera mynd um viðbrögð við vá Grindavík. ALMANNAVARNIR ríkisins vinna að gerð fræðslumyndar fyrir al- menning um viðbrögð gegn vá og er hluti myndarinnar tekinn í Grindavík. Myndbær sér um framkvæmd verksins fyrir Almanna- varnir ríkisins. Myndin byggir að nokkru leyti á leiðbeiningum til almennings sem eru aftast í símaskránni og eru færðar í myndrænan búning. Hlut- inn sem tekinn var í Grindavík fjall- ar um viðbrögð almennings við vá og er fjölskylda tekin sem dæmi. Einnig fóru fram upptökur í grunn- skólanum en skólar landsins gegna víða hlutverki fjölda hjálparstöðva þegar varúðarástand ríkir. Lilja Laxdal fulltrúi hjá Al- mannavörnum ríkisins sagði við Morgunblaðið að fyrirhugað sé að sýna myndina í heild þann 10. októ- ber næstkomandi en sá dagur hefut verið valinn sem alþjóðlegur dagui náttúruhamfaravarna. Hún sagð að myndin væri þannig uppbyggt að hægt væri að sýna hana í heild og einnig sem stutta þætti þar sem hver þáttur fjallaði um eina tegund náttúruhamfara, s.s. jarðskjálfta, snjóflóð og viðbrögð við þeim. Lilja sagði að valin hefði verið sú leið að fá venjulegt fólk í heimahúsi til að vera í myndinni. Þá verður einnig fjallað um áhættusvæði á landinu og sýndar myijdir af náttúruhamförum sem hafa orðið bæði erlendis og hér á landi. Lilja sagði að lokum að þessi mynd væri hugsuð sem framlag íslands til alþjóðadags náttúruham- faravarna og ef vel tækist til er hugsanlegt að texta hana til sýn- inga erlendis. Sæbrautin o g hiti í götur breyta mestu í Kvosinni - segir Þorvaldur S. Þorvaldsson, forstöðumaður borgarskipulags ÞORVALDUR S. Þorvaldsson, forstöðumaður borgarskipulags Reykjavíkur, segir að tvennt eigi eftir að breyta mestu fyrir miðbæ Reykjavíkur á næstu tveimur til þremur árum. Annars vegar muni Sæbraut létta heilmikið á bílaumferð í Tryggvagötu og Hafnarstræti og hins vegar verði götur og torg i miðbænum tekin upp og snjóbræðslukerfi Iagt þar. Jafnframt stækki mjög svæði sem aðeins séu ætluð gangandi vegfarendum. Hann segir að fyrirhugað sé að hleypa lífi í hafnarbakkann með mörkuðum og veitingahúsum, auk fyrirætlana um að búa til borgartorg, stækka Tjörnina og byggja við Hótel Borg. Aformað er, að ljúka við að leggja Sæbraut að Seðla- bankahúsinu við Kalkofnsveg í sumar. Framkvæmdirnar á þessu ári kosta 70 milljónir. Næstu tvö ár verður gatan lögð áfram niður í Kvosina, meðfram gömlu höfn- inni, þar sem heitir Miðbakki. Þorvaldur S. Þorvaldsson segir hugsanlegt, að þessi hluti Sæ- brautar verði í 300-500 metra löngum göngum neðanjarðar. „Með því móti myndi umferðin ekki trufla mannlífið við höfnina, sem við vonum að verði líflegt og skemmtilegt." Um leið og Sæbrautin verður lögð er gert ráð fyrir að starfsemi á neðstu hæð Hafnarhússins verði breytt. „Þar er ætlunin að hafa markað með svipuðu sniði og í Kolaportinu og byggja yfir inn- garð hússins," segir Þorvaldur. „Markaðurinn á að opnast út að höfninni og vel er hugsanlegt að nýta Tollhúsið fyrir smáverslanir eða veitingastaði. Þar er gríðar- stór tveggja hæða kjallari, þar sem geyma mætti bíla í staðinn fyrir að taka þakið undir stæði. Á því væri í staðinn hægt að hafa veitingahús eða eitthvað skemmtilegt í þeim dúr.“ Þorvaldur segir að næstu stór- framkvæmdir sem breyti öllum aðstæðum í Kvosinni séu hita- lagnir í götur og torg. „Það verð- ur farið í fyrsta áfanga af þremur nú í haust og líklega byijað syðst á svæðinu, nálægt Alþingishús- inu. Gert er ráð fyrir að verkið kosti um 70 milljónir króna á ári. Þetta er heilmikið mál, því að taka þarf upp allt miðbæjargólfið ef svo má segja. Það verður mikið hellulagt eftir þetta og stór svæði í hjarta mið- bæjarins eingöngu ætluð gang- andi vegfarendum. Austurstrætið allt verður göngugata og Hallæ- risplanið gert að borgartorgi. Þá verður engum bílum hleypt með Dómkirkjunni að Alþingishúsinu nema þar fári þingmenn eða ann- að starfsfólk." Hann segir að þessar breyting- ar kalli á fleiri bílastæði við mið- borgina. Áhersla verði lögð á bíla- geymsluhús á jaðri Kvosarinnar og fólk verði að venja sig á að nota þau, en það virðist taka dálít- inn tíma. „Fyrir haustið verður gengið frá um hundrað bíla stæði á Alþingisreitnum og á næsta eða þarnæsta ári verður bílageymsla í kjallara ráðhússins tekin í notk- un. Nýlega opnaði bílageymsluhús á horni Vesturgötu og stórt hús verður byggt við Tryggvagötu 13. Þar eiga að rúmast-um 400 bif- reiðar. Auk þess eiga 300 bílar að komast fyrir í húsi sem byijað verður á í haust á horni Hverfis- götu og Smiðjustígs. Það verður unnt að byggja bílageymsluhúsið við Tryggvagötu, þar sem stæði Akraborgar eru nú, vegna þess Þorvaldur S. Þorvaldsson, for- stöðumaður borgarskipulags Reykjavíkur. að skipið verður flutt að Faxa- garði næsta vor.“ Á milli Faxagarðs og Ingólfs- garðs eiga aðeins að vera segl- skútur í framtíðinni, auk Akra- borgarinnar. „Þarna verður útbú- in skemmtileg skútuhöfn á tveim næstu árum,“ segir Þorvaldur. „Fleiri flotbryggjur verða út- búnar fyrir seglskútur, auk þeirr- ar aðstöðu í landi, sem þörf er á. Komið verður upp fiskmarkaði fyrir smásölu suður undan gafli Faxaskála innan tveggja ára og verslun og viðskipti mun víðar glæðast í gamla miðbænum. Til dæmis á að byggja hús við Lækj- argötu 4 með búðum og þjónustu ýmis konar á jarðhæð og fyrstu hæð. Bílastæði verða í kjallara hússins en íbúðir á þremur efstu hæðum. Og eftir að byggt verður yfir gangstéttir við Austurstræti verður væntanlega fýsilegra að versla þar í slæmu veðri. Raunar stendur einnig til að byggja yfir gangstéttir við Laugaveginn'," segir Þorvaldur S. Þorvaldsson. Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson Efstir í A-fiokki gæðinga. Á myndinni eru f.h.: Ingimar Ingi- marsson á Létti, Eiríkur Guð- mundsson á Blæ og Páll Bjarki Pálsson á Leisti. Vinur, Ingólfur Helgason 8,43 Draumur, Árni Friðriksson 8,39 llnglingakeppni, yngri flokkur: Friðgeir Jóhannsson áGlóbiesa 8,54 Steinbjörn Skaftason á Mána 8,50 Sveinn B. Friðriksson á Glóblesa 8,33 Unglingakeppni, eldri flokkur: Sonja Sif Jóhannsdóttir á Lykli 8,36 Anna Sif Ingimarsdóttir á Glampa 8,42 HilmarSímonarson áGjafari 8,45 Fjórgangur, fullorðnir: Drangur, Sigurbjörn Bárðars. 47,- 77 Léttfeti, Bergur Gunnarsson 84,- 96 Skagafjörður: Glæsileg tilþrif á hestaþingi ^ Sauðárkróki. JL ^ J ÁRLEGT mót skagfirskra hestamanna fór fram á hinu glæsilega samko- musvæði félaganna á Vindheimamelum, um verslunarmannahelgina, 4. og 5. ágúst. Dagskráin hófst kl. 9 árdegis á laugardag, með keppni í B-flokki gæðinga og unglingakeppni, en vegna stórrigningar undir kvöldið, var nokkrum greinum frestað til síðari mótsdags. Á sunnudag- inn lék veðrið við mótsgesti og nutu Ijölmargir áhorfendur þess, í hvítalogni og sólskini, að horfa á glæsilega gæðinga sýna sín bestu tilþrif. Úrslit í einstökum greinum urðu: Skeið250m (2 riðlar) Eigandi, knapi Leistur, HörðurG. Albertss., Sigurbj. Bárðars. Hjálmar Guðjónss. Erling Sigurðss. Erling Sigurðsson eigandi Skeið 150 m (5 riðlar) Börkur Tómas Ragnarsson Eiríkur Guðmundss. Bragi Ásgeirsson, Hinrik Bragas. Sigurbjöm Bárðars. eigandi Brokk 300 m (1 riðill) Léttir, Helgi Ingimarsson, eigandi Skrattakoll- Amór Halldórs., eigandi Ámi & Arnór Halld. Ámi Halldórss. Þróttur, Vani, Eitill, Dropi, ur, Móses, Tí- mi 23.2 24.2 24,2 14,6 14,9 15,4 39,8 40,5 47,1 Börkur, Eiríkur Guðmundss., 102- ,0 101- ,0 Harpa, Páll B. Pálsson A-Ilokkur gæðinga Léttir, Ingimar Ingimarss. 8,42 Blær Eiríkur Guðmundss. 8,50 Leistur, Páll B. Pálsson 8,39 B-flokkur gæðinga Sýn, Skafti Steinbjörnss. 8,47 Stökk 250 m (2 riðlar) Fjöður, Magnús Magnússon, eigandi 19,8 Nói, Leifur Þórarinsson, Jóhann Skúlas. 20,2 Hjörtur, Eiríkur Jónsson, Lovísa H. Ragnarsd. 20,6 Gæðingaskeið Snarfari, Sigurbj. Bárðarson 104- Friðgeir Jóhannsson og Steinbjörn Skaftason sem urðu í 1. og 2. sæti í yngri fiokki unglinga. Kolbakur, Baldvin Guðlaugsson 46,- 92 Ljónasi, Berglind Ragnarsdótt- 44,- ir 03 Flosi Sigurbjörn Þorleifsson 46,- 24 Fimmgangfur, fullorðnir: Höfði, Sigurbjörn Bárðarson 57,- 00 Hængur, Hinrik Bragason 52,- 40 Prins, Jóhann Skúlason 51,- 80 Sindri, Hulda Gústafsdóttir 50,- 20 Sól, Jóhann G. Jóhannss. 48,- Fjórgangur, unglingar: 60 Ogri, Steinar Sigurbjörnss. 50,- 83 Prins, Gísli G. Gylfason 49,- 81 Rífandi gang- Berglind Árnad. 43,- ur 35 Öðlingur, Hilmar Símonai-son 39,- 95 Rauðskjóni Eyþór Einai-sson 44,- Tölt, fullorðnir: 20 Drangur, Sigurbjörn Bárðarson Kolbakur, Baldvin A. Guðlaugss. Rák, Sveinn Ragnarss. Vinur, Guðmundur Hanness. Glampi, Elvar Einarsson. Tölt, unglingar: Rífandi gangur, Berglind Árnad., Prins, Gísli G. Gylfason, Ögri, Steinar Sigurbjörnss., Rauðskjóni, Eyþór Einarsson, Öðlingur, Hilmar Símonarson. Hlýðnikeppni: Sigurbjörn Bárðarson, Jóliann G. Jóhannsson. Hindranastökk: Jóhann Skúlason, Jóhann G. Jóhannsson. Stigahæsti knapi fullorðinna varð Sigurbjörn Bárðarson, og hann sigr- aði einnig í íslenskri tvíkeppni. Stigahæsti knapi unglinga varð Gísli Geir Gylfason, og hann sigraði einnig í íslenskri tvíkeppni unglinga. í skeið-tvíkeppni sigraði Baldvin Ari Guðlaugsson, en í ólympískri- tvíkeppni sigraði Jóhann G. Jóhanns- son.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.