Morgunblaðið - 23.08.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.08.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990 Félag íslenskra náttúrufræðinga: Nyja gifsið sett á Blakk. Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Blakkur settur í nýtt gifs STÓÐHESTURINN Blakkur frá Reykjum varð fyrir bíl fyrr í sumar og við það brotnuðu þijú bein í hné á hægra fram- fæti. Blakkur hefur verið í gifsi síðan. Um síðustu helgi var fót- urinn settur í nýtt gifs og var myndin tekin þegar dýralækn- ar og aðstoðarmenn voru að styðja hann fyrstu sporin. Hest- urinn var enn svolítið vankaður eftir svæfinguna. Blakkur hefur dvalið í góðu yfirlæti hjá heimilisfólkinu á Syðstu-Fossum í Andakílshreppi í Borgarfirði. Þar er hann í góðri stíu og nokkur hross höfð með honum á húsi. Að sögn Gunnars Gauta Gunnarssonar dýralæknis er erfitt að segja til um hvernig brotið lítur út fyrr en fóturinn hefur verið myndaður á ný. Það verður gert næst þegar skipt verð- ur um gifs. Skorað á félaga að semja ekki um stunda- kennslu án samráðs FÉLAG íslenskra náttúrufræðinga hefur skorað á félaga sína að semja ekki um stundakennslu án samráðs við stjórn og kjararáð félagsins. Segist Auður Antonsdóttir, formaður félagsins, eiga von á því að flestir félagsmanna verði við áskoruninni enda megn óán- ægja í þeirra röðum með greiðslur fyrir stundakennslu. Á almennum fundi FÍN á þriðju- dag var auk þess samþykkt að senda forstöðumönnum mennta- stofnana ábyrgðarbréf til áréttingar á kröfum félagsins vegna kjara fyr- ir stundakennslu og með áherslu á Stöð 2 óskar eftir yiðræð- um við D V „STÖÐ 2 hefur óskað eftir við- ræðum við okkur, og við tókum þeim umleitunum vel,“ sagði Jón- as Kristjánsson, ritstjóri DV, í samtali við Morgunblaðið, en Fijáls fjölmiðlun, útgáfufélag DV, er minnihlutaeigandi í Sýn, sem Stöð 2 keypti meirihluta í á dögunum. Jónas sagðist ekki vita hvort Stöð 2 hygðist bjóða í hlut Fijálsrar fjölmiðlunar í Sýn. „Við tókum vel í óskir þeirra um viðræður, því í þessu máli er ýmislegt sem þarf að ræða,“ sagði Jónas. Fulltrúar Fijálsrar fjölmiðlunar hafa sett út á stjórnarhætti fyrri meirihlutaeig- enda í Sýn, og meðal annars íhugað málsókn vegna þessa. „Þetta þarf meðal annars að ræða við nýja eig- endur, en það er búið að eyðileggja þetta fyrirtæki, og því spuming hvort eftir nokkru sé að falast með málarekstri,“ sagði Jónas ennfrem- ur. BHMR-félagar taka ekki þátt í nefndarstörfum; Fulltrúar ríkisins í minni- hluta í stjórn Lánasjóðsins frágang mála fyrir upphaf kennslu á komandi misseri. „Við höfum ver- ið að leita eftir bættum kjörum fyr- ir þessa stundakennslu fyrir félags- menn undanfarið ár en launadeildin telur að ekkert stéttarfélag hafi umboð til að semja um laun fyrir stundakennslu,“ sagði Auður. Hún sagði náttúrufræðinga aðallega kenna stundakennslu á háskólastigi og væm flestir við líffræðiskor Háskóla íslands. Taldi hún að þijátíu til fimmtíu félagar í FÍN sinntu að meðaltali stundakennslu við Háskóla íslands. Hún sagði bráðabirgðalög ríkis- stjómarinna herða fólk í þeirri af- stöðu sinni að sinna stundakennsl- unni ekki. „Ég reikna með að al- mennt verði farið eftir þessu. Það hefur verið megn óánægja með launakjör rrieðal þess fólks sem hefur tekið þetta að sér og ég reikna fastlega með að félagsmenn fari ekki til kennslu," sagði Auður. Námsmenn: Leiga fyrir her- bergi 15.000 - lánið 8.000 kr. HÚSALEIGA, sem námsmönnum er gert að greiða fyrir 15 fer- metra hcrbergi, er 15.000 krónur á mánuði að meðaltali og fyrir 60 fermetra íbúð 30.000 kr. á mán- uði. Þetta er niðurstaðan úr út- reikningum Húsnæðismiðlunar stúdenta á meðalleigu fyrir íbúðir, sem eru á skrá hjá miðluninni. Herbergi eru að meðaltali dýrari en íbúðir; leigusalar setja upp leigu að upphæð tæplega 1.000 krónur á fermetra. Leiga fyrir íbúðir allt að 60 fermetrum að stærð er um 500 kr. á fermetrann. í núverandi framfærslugrunni námslána er gert ráð fyrir að stúd- ent í leiguhúsnæði borgi rúmar 8.000 kr. i leigu á mánuði. I nýrri könnun Hagstofunnar á eyðslu námsmanna kemur fram að húsnæðiskostnaður stúdents í leiguhúsnæði sé að meðal- tali 15.000 krónur á mánuði. VEGNA tilmæla Bandalags há- skólamenntaðra ríkisstarfs- manna um að félagar í bandalag- inu taki ekki þátt í störfum opin- berra nefnda eða ráða, hafa tveir fulltrúar ríkisins í stjórn Lána- sjóðs íslenzkra námsmanna beðizt lausnar frá stjórnarstörf- um. Af þessum sökum kom upp sú staða á stjórnarfundi LIN í gærmorgun að fulltrúar ríkis- valdsins voru í minnihluta gagn- vart fulltrúum námsmanna. Samkvæmt lögum skipar menntamálaráðherra tvo menn í stjórn LIN, fjármálaráðherra einn og námsmenn þijá. Ríkisfulltrúarn- ir hafa þó yfirleitt betur í atkvæða- greiðslum í stjórninni, þar sem at- kvæði formanns ræður úrslitum. Guðrún Siguijónsdóttir sjúkraþjálf- ari, annar af aðalfulltrúum mennta- málaráðuneytisins í stjóm Lána- sjóðs íslenzkra námsmanna, hefur verið leyst frá störfum í stjóminni, og Einar Birgir Steinþórsson kenn- ari, sem er varafulltrúi skipaður af menntamálaráðuneytinu, hefur einnig óskað lausnar. Þau eru bæði í BHMR. í gærmorgun mættu aðeins tveir af fulltrúum ríkisins á stjómarfund í_ LÍN, og vom því í minnihluta. Árni Þór Sigurðsson, formaður stjórnarinnar, sagði að þetta hefði ekki komið að sök, þar sem engar atkvæðagreiðslur hefðu verið á döf- inni og gott samstarf væri í stjóm- inni. Hann sagðist hins vegar telja afar bagalegt að missa Guðrúnu og Einar Birgi úr stjóm LÍN, þar sem þau væm bæði mjög hæf. STJÓRNVÖLD í írak breyttu í gær fyrri ákvörðun og neituðu að leyfa fyrri hópi Norðurlandabúa, aðallega Svía og Finna, sem kom- Hann sagði að menntamálaráðherra myndi skipa nýtt fólk í stjómina, en ekki hefði verið gengið frá þeirri skipun. Ékki náðist í Svavar Gestsson menntamálaráðherra í gær. Knútur Hallsson, ráðuneytisstjóri í mennta- málaráðuneytinu, sagðist ekki hafa frétt af því að svipað væri ástatt um fleiri nefndir eða stjómir á veg- um ráðuneytisins. Ólafur Karvel inn var að tyrknesku landamær- unum, að yfírgefa landið, að sögn iíeuíers-fréttastofunnar. íslend- ingarnir í Kúvæt-borg, sem talið er að séu þar enn, áttu að fara með seinni hóp Norðurlandabú- anna um Bagdad til tyrknesku landamæranna en hópurinn var ekki lagður af stað frá Kúvæt- borg er síðast fréttist. „írakar hafa breytt stefnu sinni í málinu. Þeir halda því fram að Svíamir hafi ekki vegabréfsáritun til að yfírgefa landið," sagði Ingalil Jonsson, fulltrúi sænska utanríkis- ráðuneytisins í tyrkneska landa- mærabænum Habur. „Þeir segjast kannski leyfa konum og börnum að fara yfir,“ bætti hún við. Austurríska sjónvarpið sagði í gærkvöldi að hóp- ur Evrópumanna, þ. á m. nokkrir Austurríkismenn, sem kominn hefðu verið að tyrknesku landamæmnum, hefði verið fmttir aftur til Bagdad og virðist hafa verið átt við hóp Norðurlandabúanna. Talsmaður sænskra yfirvalda seg- ir að seinni hópurinn muni leggja Pálsson, formaður aðgerðanefndar BHMR, sagði að þeim tilmælum hefði verið beint til félagsmanna að þeir frestuðu störfum sínum í nefndum og ráðum, en eftir setn- ingu bráðabirgðalaga ríkisstjórnar- innar á launahækkanir BHMR væri ef til vill ekki undarlegt að félags- menn bæðust lausnar frá slíkum störfum. Hann hafði heldur ekki á takteinum fjölda slíkra tilfella. upp frá Kúvæt-borg jafnskjótt og hinn fyrri sé kominn heilu og höldnu til Tyrklands. í hópnum verða sæn- skir stjómarerindrekar í Kúvæt en talsmaðurinn tók fram að með þessu væri ekki verið að láta undan kröfum íraka um að erlendum sendiráðum í Kúvæt yrði lokað. Sendiráðið yrði að vísu mannlaust „en við erum ekki að loka því“. Framboð í Dagsbrún? NOKKUR hreyfing er á framboði gegn stjórn Dagsbrúnar næst þegar kjósa á, en það er í lok janúar á næsta ári. Til að framboð sé löglegt þarf að stilla upp 120-25 mönnum, með- al annars í fjölmennt trúnaðarráð félagsins, en hátt á fimmta þúsund manns eru í Dagsbrún, sem er fjöl- mennasta verkamannafélag lands- ins. Framboð gegn stjóm Dags- brúnar kom síðast fram 1972. Kristinn syngnr Comm- endatore á geisladisk Geisladiskur með upptöku á Don Giovanni, þar sem Kristinn Sigmundsson óperusöngvari fer með hlutverk Cornmendatore, kemur út hjá breska hljómplötufyrirtækinu Decca í september. Óperan var tekin upp í Drottningholm-leikhúsinu í Stokkhólmi í fyrrasumar. í samtali við Kristin kom fram að settar eru upp þijár til fjórar óperur í Drottningholm-leikhús- inu á hveiju sumri. Hann sagðist hafa tekið þátt í uppfærslum í leikhúsinu tvö sumur í röð en í næsta mánuði mun hann syngja í fimm sýningum á Íþígeníu og nautinu í Drottningholm-leikhús- inu. í október syngur Kristinn tit- ilhlutverkið í Jevgeníj Onegín við óperuna í Dusseldorf. Auk samninga við óperuna í Svíþjóð og Dusseldorf hefur Krist- inn gert gestasamninga við óper- una í Genf. Kristinn prufusöng í óperunni í Hamborg í vor með gestasamning í huga en ekki hef- ur verið gengið frá neinum samn- ingum. Hann segist munu hafa aðalaðsetur í Wiesbaden áfram. Norðurlandabúar í Kúvæt: Irösk y firvöld neita fyrri hópnum um fararleyfi fslendingarnir eru enn í Kúvæt-borg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.