Morgunblaðið - 23.08.1990, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 23.08.1990, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990 35 framandiegan stóriðnað, þegar þið hugleidduð áðurnefnda spurningu. Það er hugsanlegt og einungis hugs- anlegt. Það er mikill munur á raun- verulegum lífsgæðum og þar með hagsmunum og hugsanlegum. Eru ekki hinir fyrrnefndu sjálf tilvist okkar, við sjálf? Og sveija hinir síðarnefndu sig ekki meira í ætt við það sem við köllum ímyndir, draum- óra og jafnvel tálsýnir? Ef einhver er lengur í vafa um hvaða hagsmuna sjálfskennd og sjálfsvirðing okkar býður okkur að gæta, okkar raunyerulega frelsi, þá leyfi ég mér að ráðleggja viðkom- andi að slaka aftur á, einbeita sér að andardrættinum (í gegnum nef og niður í kvið), gjarnan undir berum himni, þó ekki í nánd við álverið eða járnblendið eða . .. þar til hugurinn er fullkomlega kyrr. Ég lofa því upp á líf og æru að svarið mun ekki láta á sér standa. Tveir skuggar Á ferðalögum mínum um heims- byggðina síðastliðin tíu ár hef ég oft lent í þeirri aðstöðu að vera fyrsti íslendingurinn sem gistir til- tekinn stað og íbúar staðarins hitta. Það er ekkert merkilegt við það, og það hafa mörg okkar reynt, svo fá- menn og ferðaglöð sem við erum. Þegar beint hefur verið til mín spurn- ingum um land og þjóð, sem ég hef oftar en einu sinni reynt að svara á mynd- eða öðru orðsnauðu tákn- máli, með misgóðum árangri eins og gengur, þá er það tærleiki, fersk- leiki og hreinleiki íslenskrar náttúru sem hefur verið mér efstur í hjarta og huga. í rauninni það sama og landsmenn leggja áherslu á, þegar þeir kynna land og þjóð fyrir útlend- ingum í myndum og máli. En þegar viðmælendur mínir hafa kunnað meira og minna í mér skiljanlegu tungumáli og spurt um atvinnuvegi þjóðarinnar, og fiskurinn hefur feng- ið sinn sess í svarinu, minnist ég oft skugganna tveggja, álversins og jámblendisins, sem myrkra fram- andlegra aðskotahluta á landinu og myndin sortnar. Það er heldur ekki óalgengt að spyrjendur byrji að ef- ast um hreinleikann. Ekki að ástæðulausu, þar sem stóriðja í vit- und flestra er tákn mengunar og eyðileggingar. Hver trúir eða treyst- ir á hreina stóriðju? Engin hreinsun- artæki fá breytt þeirri mynd svo um munar. Máttur myndarinnar Það er ekkert vafamál, að sú mynd sem væntanlegir ferðamenn til Islands ekki síður en kaupendur og neytendur íslenskra afurða er- lendis, og einnig innanlands, hafa af landinu, ræður miklu um hvemig „varan smakkast". það eru þær til- finningar, sem myndin vekur, sem ráða miklu um afstöðuna og þar með gæðamatið. Með aukinni stór- iðju, óhreinsuðu skólpi í sjó, og öðm því sem er tákn mengunar og fólk hefur óbeit á, minnkar ekki aðeins aðdráttarafl landsins og möguleik- arnir til að selja íslenskar afurðir innanlands og erlendis, en einnig máttur okkar sjálfra til að telja öðr- um trú um það, sem við trúum ekki sjálf. Þótt ástæðulaust sé að nefna dæmi um mátt myndarinnar og hin tilfinningalegu viðbrögð við henni, svo máttug sem hún er í myndun skoðana, þá freistast ég þó til að nefna þá mynd, sem margir útlend- ingar fengu af íslendingum og íslenskum hvalveiðum vegna baráttu Grænfriðunga. Ef að það dæmi, svo ég tali máli sem margir skilja, væri gert upp fjárhagslega, þá er ekkert vafamál, að íslenska þjóðarbúið hef- ur tapað margfalt meiri fjármunum, en það hefði gert, ef kröfum Græn- friðunga hefði verið mætt á skiln- ingsríkan og framsýnan hátt. Það hefði í það minnsta verið kæn stjórn- mennska. En íslenskir ráðamenn vanmátu styrk og áhrifamátt Græn- friðunga. Og ekki síst mátt myndar- innar, sem er töluvert undarlegt, svo vel sem hún þjónar þeim. Og því fór sem fór, og því er ekki lokið enn. Ég leyfi mér að blása á þá afsökun íslenskra ráðamanna, að staða ís- lands í „hvalveiðimálinu“ sé svo erf- ið, vegna þess að í sendinefndum margra annarra þjóða séu Grænfrið- ungar meðal fulltrúa. Að þar sé að finna bæði menn og konur, sem eru meðvituð um kröfur samtímis í um- hverfismálum, efast ég ekki um. En þar eru einnig konur og menn, sem tilfinningalega bregðast við mynd- inni á sama hátt og flest okkar hinna. Af myndinni er hvorki bragð né lykt og m.a. í því liggur styrkur hennar. Ef íslenskir ráðamenn vanmeta vaxandi kröfur landsmanna og ann- arra um hreinan iðnað, hrein mat- væli, hreina ómengaða náttúru, ásamt kröfum um skynsamlega nýt- ingu landsgæða, þá held ég, að flest- ir geti verið sammála um, að lífsgæði og efnahagur þjóðarinnar mun versna til muna frá því sem nú er. Ég skora því eindregið á alla lands- menn, og ekki síst íslenska stjórn- málamenn, að endurskoða afstöðu sína og ákvörðun um að reisa nýtt álver, hvar sem er á landinu. Og ef þið eru enn að hugsa um atvinnu- ástandið og hallann á þjóðarbú- skapnum þá gleymið ei, að það er hvorki ál né annar mengandi stór- iðjuvarningur, sem markaðir nútíðar og framtíðar lífsnauðsynlega þarfn- ast. Aftur á móti er farið að gæta skorts á hinum hreinu afurðum sjáv- ar, lofts og lands. Þeirri eftirspum eigum við að mæta á hugvitssaman hátt. Efist ei, því við munum fá ríku- lega borgað fyrir. Skilaboð mín til þeirra sem vinna að ferðamálum eru: Því meðvitaðra sem fólk er um umhverfi sitt og heilsu, því meir sækist það eftir ómenguðu, ósnortnu og styrkjandi umhverfi til að njóta sumarfrísins í. Aðdráttarafl svonefndra sólarlanda fer stöðugt minnkandi af gildum en miður góðum ástæðum. Island er tvímælalaust eitt af ferðalöhdum framtíðarinnar, ef vel er haldið á máium og ekki síst umhverfismálum. Á íslandi er enn mögulegt að njóta náttúru og lífsgæða sem er orðið erfitt að finna annars staðar á þess- ari útpíndu jörðu. Því má vera ljóst að hlutverk okkar er fyrst og fremst að gæta þeirra gæða á kærleiksríkan og hugvitssaman hátt. ísland sem fyrirmynd annarra landa í umhverfismálum er ekki útópískur draumur, en möguleiki, sem við getum ekki leyft okkur að glata. Og það er ekki eftir neinu eða neinum að bíða. Við verðum að bregðast við í aðstæðunum hérna og núna og í samræmi við hveijar þær raunverulega eru. Veljum fram- sýnan egóisma í stað glórulausra draumóra. Höfundur er búsettur í Kaupmannahöfn. PHILIPS VR 6349 HQ myndband. Myndleitarí í báðar áttir með tvöföldum hraða. Ramma fyrírramma færsla. Hægurhraði. Leitarhnappur tengdur teljara. 365 daga upptökuminni. Fjarstýring sem stýrir öllum aðgerðum. PHILCO W85 RX Þvottavél. 800 snúninga vinduhraði. Tekur heitt og kalt eða eingöngu kalt vatn. Sjálfstæð hita- stilling. Tekur 5 kg. afþurrum þvotti. Flæðiöryggi og yfirhitunarvarí. segulband. Handhægt og létt. Sjálfvirk upptökustilling. 8 Watta magnari. Inn- byggður hljóðnemi. VERÐ KR: 27.980 OC950- OftrlKR. STGR. ...~ ' n.."1 PHILIPS ■ WHIRLPOOL AVM 611 örbylgjuofn. 750 Wött. 20 lítra. Pláss- mikill, engin snúningsdiskur. Hreinsun þægilegrí. 10 mismunandi stillingar. 60 mínútna klukka með hríngingu. Mál; H:38 x B:40 x D:34 cm. PHILIPS VKR6843upptökuvél og myndband. Vélina má tengja beint við sjónvarp. Veguraðeins 1,3 kg. Dagsetn- ing og klukka sjást við upptöku. Sjálfvirkur fókus- og birtustillir. Mjög Ijósnæm 10 lux. Ljósop 1,2. --sr PHILIPS AS 9500 hljómflutnings■ samstæða með geislaspilara og fjarstýringu.Hálfsjálfvirkurplötuspilarí. Stafrænt útvarp með minni og sjálfleitara. Magnarínn er2x40músík Wöttmeð tón- jafnara. Tvöfalt snældutæki með tvöföld- um upptökuhraða. Geislaspilarinn með 20 laga minni. Sjálfvirkur leitarí. Príggja- átta hátalarar. Fullkomin fjarstýring sem stýrír öllum aðgerðum. F1385 hljómtækjasamstæða án fjarstýringar. Verð kr. 44.400,- Stgr. kr. 39.450,- PHILIPS GR 1250 sjónvarp. 20 tommu hágæða litaskjár. Fullkomin þráðlaus fjarstýríng sem stýrír öllum aðgerðum. Sjálfleitarí. 40 stöðva minni. Frábær hljómgæði úr hátalara framan á tæki. Sjálfslökkvandi stillir. Heimilistæki hf SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNI SÍMI6915 20 PHILIPS AW 7791 fullkomið steríó útvarp og tvöfalt segul• band. Kraftmikill 16 Watta magnarí. FM og miðbylgja. 3ja banda tónjafnari. Sí- spilun á snældu. Tvöfaldurupptökuhraði. Tveggja átta hátalarar sem hægt er að losa frá samstæðunni. (/cd C sajtuunyutK, X* UTSALA - UTSALA Meiri háttar verðlækkun // SNORRABRAUT 56 SÍM113505 «14303

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.