Morgunblaðið - 23.08.1990, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 23.08.1990, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990 fclk í fréttum gardeur HAUSTVORUR Stakir jakkar Pils Buxnapils Buxur GARDEUR - dömufatnaður Gæðavara - Tískuvara Udumv HF verslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi Opið daglega frá kl. 9.00-18.00 laugardagafrá kl. 10.00-14.00 OSTÖÐUGLEIKI Fagurgali Griffíns reyndist innantómur Griffín O’Neil, 25 ára gamall son- ur leikarans kunna, Ryans O’Neils, hefur yfirgefið eiginkonu sína og átta mánaða gamla dóttur þeirra. Karl faðir hans er æfur út í piltinn og hefur boðið tengdadóttur- inni, hinni mexíkósku Rimu, að greiða allan málskostnað ef hún kjósi að skilja við drenginn og að hafa hana og barnið á sínu fram- færi. Griffín hefur verið til vandræða allt síðan hann náði fullorðinsaldri. Hann hefur misnotað áfengi og fíkni- lyf og sýnt sig vera skapofsamann og glæfrasegg. Þegar hann giftist Rimu bundu aðstandendur piltsins vonir við að hann myndi taka að róast og gekk það eftir, en einungis í fáa mánuði. í maí, er barnið var aðeins á fimmta mánuði, kom Griffin fram fyrir skjöldu í litskrúðugu viðtali við vikuritið Hello, sem kemur út í Bret- landi, Kanada og Bandaríkjunum, og lýsti fjálglega hversu yndislegt það væri að eiga konu og lítið barn, slíkt heimilislíf og öryggi væri greini- lega það sem hann hefði þurft á að halda. Svo lýsti hann öllum bestu kostum Rimu og sagði frá Dillon litlu, hve stórkostleg hún væri. En það vissu fáir eða engir, að á sama tíma hafði drengurinn þegar tekið saman við 18 ára gamla stúlku, Christinu Brasciu, og nú fyrir skömmu þoldi hann ekki lengur við sem heimilisfaðir og stakk af með nýju ástinni. Sem fyrr segir hefur Ryan O’Neil heitið Rimu fullum stuðningi og tryggð. Það hefur oft kastast í kekki milli þeirra feðga vegna óstöðugleika Griffins. Frægt var árið 1984 er Ryan sá sér þann kost einan að koma í veg fyrir að Griffin æki ofurölvi með því að kýla hann niður. Hafði hann þá reynt með öllum ráðum öðrum að hefta för sonarins, en án árangurs. í maí var hann síðan tek- inn ölvaður við akstur og vegna mýmargra fyrri brota af líku tagi á hann yfir höfði sér allt að 18 mán- aða fangelsisdóm auk svimandi fjár- sekta. 1986 komst hann einnig í heimspressuna er hann var valdur að bátsslysi þar sem náinn vinur hans, Giancarlo Coppola, sonur leik- stjórans Francis Ford Coppola, lét lífið. Var Griffin sakaður um mann- dráp af gáleysi. SAKAMAL Cheyenne Brando grunuð um aðild að morði Dags Drollet að á ekki af Marlon Brando að ganga, en sem kunnugt er, situr sonur leikarans, Christ- ian, undir ákæru um að hafa myrt að yfirlögðu ráði unnusta hálfsystur sinnar Cheyenne í vor fyrir þær sakir að hann hafi mis- þyrmt henni bamshafandi. Chey- enne flýði vettvanginn í júní og hélt til Tahiti, en fyrir skömmu fékk íöggjafinn á Tahiti beiðni frá Los Angeles um að handtaka Cheyenne vegna gruns um aðild hennar að málinu. í millitíðinni hefur Cheyenne orðið léttari, eign- ast sveinbarnið Tuki, og gengur nú til sálfræðings vegna þung- lyndis. Cheyenne er aðeins tvítug og óttast fjölskylda hennar um geðheilsu hennar. Ekki sat ungfrú Brando lengi í steininum, því henni var sleppt eftir að Marlon greiddi tryggingarféð. Hún er hins vegar í farbanni frá eyjunum sem stendur. Fjölskylda Dags Drollet, hins myrta unnusta er í „heilögu stríði" við Brandofjölskylduna vegna morðsins. Faðir Dags er upphafsmaðurinn að lögsókninni gegn Cheyenne á Tahiti og fyrrum sambýliskona Dags hefur stefnt Marlon Brando og ætlar sér háar skaðabætur vegna vígsins. Christ- ian gengur mí laus eftir að trygg- ing var greidd, en ekki sér fyrir endalok réttarhalda eða skaðabót- amála í bráð. Christian hefur aldr- ei neitað því að hafa skotið Dag, en ber að það hafi gerst af slysni og hann hafi einungis ætlað að skelfa manninn með því að munda byssu. Lögfróðir menn hafa tjáð sig um að vaxandi líkur séu á því að dómur Christians muni miðast við manndráp af gáleysi, en sak- sóknari og fjölskylda Dags telja að Cheyenne viti meira um málið en komið hefur fram og binda vonir við að hún leysi frá skjóð- unni. Griffin og Rima. Cheyenne Brando á Tahiti. Qi Námskeid í handritagerð Sjónvarpið, Stöð 1, efnir til námskeiðs í gerð handrita að heimildarmyndum vikuna 17.-21. sept. nk. Kennt verður fjóra tíma á dag, frá kl. 14.00-18.00 og verða kennarar erlendir og innlendir. Myndbönd verða notuð við kennsluna. Þátttökugjald er kr. 10.000.- Umsóknir skulu berast Sjónvarpinu fyrir 3. september næstkomandi, merktar „IDD- handritsgerð" Námskeiðið er ætlað sérfræðingum á ýms- um sviðum sem ekki hafa haft kynni af vinnu fyrir sjónvarp, bókmenntafræðingum, blaða- mönnum og kvikmyndagerðarmönnum, sem vilja sérhæfa sig í þessari gerð sjónvarps- þátta. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 15. í góóum félagsskap á Hard Rock Tommi, Tom Jones og Særún ÓDÝR HÁDEGISVERÐUR SÚPA FYLGIR Velkomin á Hard Rock Cafe, sími 689888

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.