Morgunblaðið - 23.08.1990, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.08.1990, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990 STRIÐSASTAND VIÐ PERSAFLOA Saudi-Arabar ætla að sjá Jórdömun fyrir olíu Amman. Reuter. SAUDI-Arabar ætla að sjá Jórdönum fyrir milijón fata af olíu í septem- ber, að því er olíumálaráðherra Saudi-Arabíu, Thabet al-Taher, skýrði frá í gær. Taher sagði Saudi-Arabar hygð- ust dæla 33.000 fötum af olíu til Jórdaníu í olíuleiðslu, sem hefur ekki verið notuð á undanförnum árum. Jórdanir fengju þannig milljón fata í september en síðan yrði ákveðið mánaðarlega hvert framhaidið yrði. Jórdanir þurfa tvær milljónir fata á mánuði og fá nú 85 af hundraði olíunnar frá írak. Taher sagði að- spurður að ekki væri ljóst enn hvort Jórdanir fengju einnig olíu frá Irak í september. Arabískur stjórnarerindreki sagði að Jórdanir hefðu boðið greiðslu fyr- ir olíuna en óljóst var í gær hvort Saudi-Arabar myndu þiggja hana. Efnahagur Jórdana er slæmur og hafa Saudi-Arabar veitt þeim mikla efnahagsaðstoð á undanförnum árum. Samskipti ríkjanna hafa hins Reuter Verðfall í Tókíó Persaflóadeilan og ótti við vaxtahækkun olli miklu verð- falli á verðbréfamörkuðum í Tókíó í gær. Lækkunin var sú níunda mesta sem mælst hefur á einum sólarhring í kauphöll- inni. Nokkur lækkun varð einn- ig í New York vegna vaxandi hættu á átökum milli Banda- ríkjamanna og íraka en á hinn bóginn réttu verðbréf á Evrópu- mörkuðum heldur úr kútnum eftir skyndilega lækkun á mánudag og þriðjudag. Á myndinni sjást áhyggjufullir verðbréfasalar í Tókíó. vegar verið stirð að undanförnu vegna stríðsástandsins við Persaflóa. Jórdönsk stjórnvöld hafa ekki enn fyrirskipað yfirvöldum í hafnarborg- inni Aqaba við Rauðahaf að_ vísa burt skipum með varning til Iraks. Þá hafa olíubílar haldið áfram að flytja olíu frá írak til Jórdaníu, auk þess matvæli eru enn flutt yfir landa- mærin til íraks, sem er helsta við- skiptaland Jórdana. Taro Nakayama, utanríkisráð- herra Japans, heimsótti Jórdaníu á þriðjudag og sagði að stjórn sín væri reiðubúin að veita Jórdönum efnahagsaðstoð þegar refsiaðgerðir gegn írak færu að hafa áhrif á efna- hag þeirra. Liðsmenn öryggissveita Jórdaníu við sendiráð Bandaríkjanna í Amman. Reuter Vestræn ríki neita að loka sendiráðum sínum í Kúvæt írakar afturkalla brottfararleyfi Evrópubúa Washingfton, Lundúnum, Brussel, Berne, París. Reuter. TALSMAÐUR bandaríska utanríkisráðuneytisins, Richard Boucher, sagði í gær að sendiráði Bandaríkjanna í Kúvæt yrði ekki lokað. Ríkis- stjórnir fjölmargra annarra vestrænna ríkja höfðu áður birt sams konar yfírlýsingar en Irakar hafa gefíð erlendum ríkjum frest þangað til á morgun, föstudag, til að loka sendiráðum í Kúvæt, sem írakar hafa nú innlimað. Stjórnvöld í írak hyggjast ekki heimila um 650 Vestur- Evrópubúum að halda til síns heima frá Kúvæt. Talsmaður belgíska utanríkis- ráðuneytisins skýrði frá þessu í gær en á þriðjudagskvöld höfðu yfirmenn íraska heraflans í Kúvæt sagt að belgískum, dönskum, írskum, grískum, hollenskum og spænskum ríkisborgurum yrði leyft að fara úr landi. Belgísk stjómvöld ákváðu að rannsaka málið eftir að fregnir höfðu borist frá Ítalíu þess efnis að yfir- menn herafla íraks í landinu hefðu skýrt sendiherrum ríkjanna sjö frá því að 658 Evrópubúum yrði Jeyft að halda yfír landamærin til íraks og þaðan til Tyrklands og Jórdaníu. Þótti sýnt að írakar hygðust með þessum hætti freista þess að ijúfa samstöðu ríkja Vestur-Evrópu og refsa þeim ríkjum sem tekið hefðu eindregna afstöðu í Persaflóadeil- unni. Þannig benti talsmaður ítalska utanríkisráðuneytisins á að Irakar ætluðu sýnilega að undanskilja breska og franska ríkisborgara. írakar hafa á hinn bóginn veitt portúgölskum, svissneskum, sænsk- um og finnskum ríkisborgurum heimild til að fara frá Kúvæt og var ástæðan sögð sú að ríki þessi hefðu ekki sent herafla til Persaflóa. Á skyndifundi sem boðað var til í París á þriðjudag samþykktu ut- anríkis- og varnarmálaráðherrar aðildarríkja Evrópubandalagsins og Vestur-Evrópusambandsins að sam- ræma viðbúnað herafla ríkjanna vegna ástandsins við Persaflóa. Að auki ákváðu utanríkisráðherrar Evr- ópubandalagsins að hundsa með öllu þá kröfu íraka að sendiráðum er- lendra ríkja í Kúvæt verði lokað á morgun, föstudag. írakar hafa lýst yfir því að eftir þann tíma verði frið- helgi erlendra sendimanna ekki virt. Talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins skýrði frá því á frétta- mannafundi í Washington í gær að sendiráði Bandaríkjamanna í Kú- væt-borg yrði ekki lokað. Yrði þess krafíst að írakar virtu alþjóðalög og tryggðu öryggi bandarískra embætt- ismanna og óbreyttra borgara í Kúvæt. Douglas Hurd, utanríkisráð- herra Bretlands, sagði í útvarpsvið- tali í gær að þess yrði freistað í hvívetna að halda sendiráði Bret- lands opnu á meðan írakar héldu breskum ríkisborgurum í gíslingu. Auk þessara ríkja hafa stjórnvöld í Sovétríkjunum, Áusturríki, Póllandi, Tékkóslóvakiu, Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Kánada, Japan, Bangladesh, Búlgaríu og á Filippseyjum andmælt tilskipun íraka. Stjórnvöld í Sviss skýrðu hins vegar frá því í gær að ákveðið hefði verið að loka sendiráðinu í Kúvæt- borg þó svo enn hefði ekki fengist fullnægjandi trygging fyrir því af hálfu Iraka að svissneskum ríkis- borgurum yrði leyft að halda til síns heima. Indveijar hafa einnig afráðið að flytja sendiráðið í Kúvæt til Iraks og yfirvöld í Malasíu hafa þegar kallað sendimenn sína heim frá Kú- væt írakar flytja sovéskar eldflaugar til Kúvæts: Geta borið eiturhleðsl- ur en þykja úrelt vopn Lundúnum. The Daily Telegraph. GREINT var frá því í Lundúnum á þriðjudag að írakar hefðu flutt sovéskar eldflaugar af gerðinni Scud-B til Kúvæt. Háttsettur saudi- arabískur hershöfðingi staðfesti síðar um daginn að eldflaugarnar hefðu verið fluttar frá írak og væri tilgangur með þessu að öllum líkindum sá að undirbúa eiturefnahernað. Margir vestrænir hemað- arsérfræðingar telja þó líklegra að flaugamar séu búnar hefð- bundnum sprengjuhleðslum. Paul Beaver, útgefandi her- fræðitímaritsins, Jane’s Defence Weekly kvaðst á þriðjudag hafa fengið það staðfest að írakar hefðu komið fyrir í Kúvæt 36 skotpöllum fyrir Scud-eldflaugar. Er talið að írakar eigi ekki fleiri slíka skot- palla. Scud-B eldflaugar eru sovésk smíð og er drægi þeirra um 300 kílómetrar beri þær eins tonns sprengjuhleðslu. Irakar hafa hins vegar breytt hluta eldflauga sinna og er drægi þeirra tæpir 500 kíló- metrar. Talið er að írakar hafi skotið um 190 slíkum á borgir í íran árið 1988 sama ár og samið var um vopnahlé í Persaflóastríð- inu. Ekki er vitað hversu margar Scud-eldflaugar eru í vopnabúrum íraka en á hinn bóginn fullyrða sérfræðingar að þeir geti ekki fjöidaframleitt slík vopn. Sovétmenn tóku Scud-eldflaug- ar í notkun árið 1965 og þykja þær í flestu tilliti úrelt vopn. Þær eru hreyfanlegar en erfítt mun vera að koma þeim í skotstöðu utan vega. Þá er ónákvæmin slík að ekki er unnt að reiða sig á að þær geti grandað hemaðarlega mikil- vægum skotmörkum. Hermt er að hermálafulltrúi sov- éska sendiráðsins í Washington hafi í síðustu viku afhent embætt- ismönnum í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna nákvæmar teikn- ingar af miðunarbúnaði Scud-eld- fiaugarinnar. Þetta þykir út af fyrir sig sögulegur atburður og upplýsingarnar kunna að reynast Bandaríkjamönnum vel. Segja heimildarmenn að bandarískir sér- fræðingar hafi þegar tekið að kanna hvemig trafla megi miðun- arkerfíð með rafeindabúnaði. Á þann hátt kann að reynast unnt að beina eldflaugunum frá skot- markinu og jafnvel koma í veg fyrir að flugtak heppnist. Unnt er að koma eiturefna- hleðslum, sem írakar framleiða, fyrir í eldflaugum þessarar gerðar. írakar beittu sinnepsgasi gegn hersveitum írana í Persaflóastríð- inu og talið er að taugagasi hafi verið beitt í viðurstyggilegri árás á þorp Kúrda í norðurhluta lands- ins, sem vakti hrylling víða um heim. Sérfræðingar telja hins vegar að eldflaugar þessar myndu ekki reynast sérlega áhrifarík vopn í hugsanlegum átökum við herafla Vesturlanda. Bent er á að írakar verði að dreifa sinnepsgasi yfir mjög stórt landssvæði ætli þeir sér ÍRASKAR ELDFLAUGAR Á LANDAMÆRUNUM AÐ SAUDI-ARABÍU Lance Bell / Ciaran Hughes / REUTER —— SOVÉT- RÍKIN -r -\ SOVÉT- **___ RlKIN írösk útgáfa af Scud-eld- flaugum getur boriö efnavopn* •Heimild: Jane's Battlefield Support ÍRAN írakar flytja 36 skotpalla fyrir Scud-eldflaugar til Kúvæt Hormuz- Miðjardar- hef EGYPTA- LAND Arablu- flól SAUDI- QATAR ARABÍA--------- ÓMAN að koma í veg fyrir framrás vest- rænna hersveita eða hindra liðs- flutninga. Taugagas mun gufa mjög hratt upp í þeim mikla hita sem. ríkir á þessum slóðum og er talið að hersveitum, sem búnar era sérstökum skjólfatnaði gegn slíkum efnum, stafí lítil hætta af þeim. Segja fræðimenn að Scud- eldflaugin sé, líkt og fyrirrennari hennar, þýska V-2 flugskeytið, fyrst og fremist hönnuð til árása á borgir í þeim tilgangi að valda þar ofsahræðslu og eyðileggingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.