Morgunblaðið - 23.08.1990, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 23.08.1990, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990 49 IÞROTTIR UNGLINGA Ofl málti sjá snilldar- takta hjá unglingunum skrifarfrá Keflavík Snilldartakta mátti oft sjá hjá ijölda keppenda á Unglinga- meistaramótinu í Golfi sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru um síðustu helgi. Mesta athygli Björn vakti keppnin í Blöndal flokki pilta 15-18 ára, en þar sigraði Örn Arnarson frá Akureyri sem lék feyknagott golf eftir frekar slæma byrjun. Karen Sævarsdóttir, GS, nýbakaður ís- landsmeistari sigraði með fádæma yfirburðum í sama flokki stúlkna, var heilum 42 höggum á undan næstu keppendum. Keppendur á mótinu voru 131 frá 14 klúbbum. Flestir í eldri flokki pilta 15-18 ára, 77. Þar var keppnin einnig mest spennandi um sigurinn eða allt þar til að 18 holur voru eftir. Þá voru þeir Örn Arnarson GA og Rúnar Geir Gunnarsson NK efstir og jafn- ir eftir 54 holur á 223 höggum. Þá fataðist Rúnari Geir flugið á meðan Örn lék eins og sannur meistari og tryggði sér glæsilegan sigur, lék á 296 höggum — 6 höggum betur en Rúnar Geir sem varð í öðru sæti. Öm bytjaði ekki vel og fátt benti til að þess hann yrði sigurvegari að loknum 18 holum. Þá var Örn í 10-11. sæti á 79 höggum. En Rúnar Geir var með forystuna — lék á 72 höggum. Að loknum 36 holum var Örn kominn í 3. sæti á 151 höggi, 3 höggum á eftir Ástráði Sigurðs- syni GR sem þá var kominn með forystuna og 2 höggum á eftir Rúnari Geir Gunnarssyni NK sem var í öðru sæti. Þeir Örn og Rúnar Geir komu síðan jafnir inn eftir 54 holur og úrslitin réðust svo á síðasta hringnum eins og áður sagði. „Örn lék feykna vel og hvaða meistara- flokksmaður gæti verið ánægður með að ná skori sem þessu,“ sagði Sigurður Sigurðsson liðsstjóri GS sveitarinnar um árangur Arnar. Karen Sævarsdóttir GS kom sá og sigraði í stúlknaflokki 15-18 ára eins og vænta mátti og var í sér- flokki. Karen gerði sér lítið fyrir og setti nýtt vallarmet á 18 holum sem hún lék á 73 höggum og bætti eigið vallarmet um eitt högg. Karen lék 72 holur á 305 höggum. Jafnar í öðru til þriðja sæti urðu svo þær Herborg Árnarsdóttir GR og Rakel Þorsteinsdóttir sem léku báðar á 347 höggum og í þriggja holu um- spiji um 2. sætið sigraði Herborg. í flokki drengja 14 ára og yngri sigraði Davíð Jónsson GS nokkuð örugglega. Davíð tók strax foryst- una á fyrsta hring og lét hana ekki af hendi eftir það. Hann lék á 315 höggum. Birgir Leifur Hafþórsson GL tryggði sér annað sætið með góðum árangri á síðustu 18 holun- um sem hann lék á 73 höggum og kom inn á 319 höggum. 1 þriðja sæti varð Gunnar Örvar Helgason einnig í GL — hann lék á 327 högg- um. Ölöf María Jónsdóttir GK sigr- aði af miklu öryggi í flokki telpna 14 ára og yngri. Ölöf lék holurnar 72 á 424 höggum. í öðru sæti varð Ásthildur M Jóhannesdóttir GR 450 höggum og í þriðja sæti varð Rut Þorsteinsdóttir GS á 495 högg- um. URSUT Morgunblaðið/Björn Blöndal Örn Arnarson úr Goifklúbbi Akureyrar þótti leika sérstaklega vel í 15-18 ára flokki og sigraði. Meistaramót ungiinga í golfi á Hólmsvelli Úrslit í flokki pilta 15-18 ára: Öm Arnarson GA.......79 72 73 72 296 Rúnar G. Gunnarss. NK .72 77 75 78 302 Kjartan Gunnai'ss. GOS..80 72 77 76 305 TryggviPétui'SsonGR....78 79 75 73 305 Ástráðui'Sigurðsson GR 73 75 78 79 305 Tómas Jónsson GKJ....77 78 76 75 306 Hjalti Nielsen GL....76 78 78 77 309 Arnar Ástþóreson GS..81 83 72 75 311 Helgi Þórisson GS....81 77 72 81 311 Sigurpáll G. Sveinss. GA 74 78 82 78 312 Úrslit í flokki stúlkna 15-18 ára: KarenSævarsdóttirGS.,80 76 73 76 305 Herborg Arnarsd. GR..86 91 84 86 347 RakelÞorsteinsdóttirGS87 87 81 92 347 Andrea Ásgi'ímsd. GA ....89 97 87 83 356 Halla Arnarsdóttir GA..95 91 100 99 385 Bergljót Borg GA..102 100 104 96 402 Úrslit í flokki drengja 14 ára og yugri: Davíð Jónsson GS.....76 80 80 79 315 Birgir L. Hafþórsson GL.83 82 81 73 319 GunnarÖ. Helgasson GL81 83 80 83 327 Ólafur Siguijónsson GR .86 83 80 79 328 Guðni Rúnar Heigas. GH79 87 84 81 831 Helgi Dan Steinsson GL .80 91 84 81 336 Jónas Stefánsson GK...81 85 86 86 338 Sveinn Bjarnason GH..86 84 88 81 339 Örn ÆvarHjartars. GS..83 81 92 83 339 SlefánGuðjónssonGS....89 88 85 90 352 Úrslit í flokki telpna 14 ára og yngri: Ólöf M. Jónsd. GK ....98 110 110 106 424 Ásthildur M. Jóhannesd. GR........ .............112 114 117 107 450 Rut Þorsteinsd. GS. 118 112 138 127 495 ■ FJÓRIR ungir kylfingar eru á förum til Köln í V-Þýskalandi, þar sem þeir keppa í Evrópumóti ungl- inga 28. til 30. september. Það er fyrirtækið Sony sem býður kepp- endunum til V-Þýskalands og far- arstjóra þeim að kostnaðalausu. ■ RAGNHILDUR Sigurðardótt- ir, GR og Björn Knútsson, GK, keppa í flokki unglinga sem eru fæddir 1970-71, en Karen Sæ- mundsdóttir, GS og Örn Arnar- son, GA, keppa í flokki ynglinga fæddum 1972 og yngri. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Ólöf M. Jónsdóttir úr Gk slær af teig. Hún sigraði örugglega í flokki stelpna 14 ára og yngri. Morgunblaðið/Björn Blöndal Karen Sævardóttir sigraði með miklum yfirburðum í flokki 15-18 ára. Morgunblaöið/Bjöm Blöndal Til hamingju. Unnur Steinþórsdóttir óskar syni sínum, Davíð Jónssyni úr GS til hamingju með sigurinn í flokki 14 ára og yngri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.