Morgunblaðið - 23.08.1990, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. AGUST 1990
Veðurfræðingar hafa
samið við sjónvarpið
VEÐURFRÆÐINGAR, sem
sinnt hafa spákynningnm i
fréttatímum sjónvarps, hafa
ísaQörður:
Töf á fram-
kvæmdum
við flugvöll
LAGNING bundins slitlags á Isa-
fjarðarflugvöll hefur reynst
tímafrekari en við var búist, en
Guðbjörn Hjörleifsson, umdæm-
issljóri Flugmálastjórnar á
Isafirði, segir að verkinu Ijúki
fyrir helgi, verði veður skaplegt.
Guðbjörn sagði, að tímaáætlanir
fyrir verkið hefðu verið mjög
strangar, en einkum hafi jarðvegs-
skipti reynst tímafrekari en búist
var við. Þá hafi veðurfar sett strik
í reikninginn. „Þetta er heilmikil
framkvæmd, skipt hefur verið um
30 þúsund rúmm'etra af jarðvegi á
tíu til tólf dögum,“ sagði Guðbjörn
í samtali við Morgunblaðið.
náð samningum við sjónvarpið
um framhald þessarar þjónustu.
Að sögn Boga Ágústssonar
fréttastjóra sjónvarpsins eiga
fulltrúar veðurfræðinganna að-
eins eftir að bera samkomulagið
undir félaga sína, og staðfesti
þeir það er von á þeim á skjáinn
að nýju þann 1. september næst-
komandi.
Bogi sagði, að samkomulagið
fælist í auknum greiðslum til veð-
urfræðinganna, gegn auknu starfi
þeirra fyrir sjónvarpið. Hann sagði
ennfremur að sá útgjaldaauki sem
sjónvarpið yrði fyrir vegna samn-
ingsins væri svo lítill að honum
mætti mæta með minniháttar til-
færslum.
Áframhald mun verða á
langtímaspákynningu á fimmtu-
dögum og sunnudögum, auk þess
sem horfur á öðrum og þriðja degi
verða kynntar daglega. „Þá munu
verða teknar upp veðurkynningar
í ellefu fréttum,“ sagði Bogi. „Við
munum nota tímann fram til 1.
september til að koma veðurfregn-
unum í fastari skorður. Þannig
munu áhorfendur eiga von á ein-
hveijum breytingum á framsetn-
ingu spánna."
Alþýðuflokkurinn
er mótfallinn gerð
nýs búvörusamnings
SIGHVATUR Björgvinsson, fulltrúi Alþýðuflokksins í samstarfsnefnd
ríkisstjórnarinnar um gerð búvörusamnings, segir Alþýðuflokkinn
vera mótfallinn því að gerður verði nýr búvörusamningur við Stéttar-
samband bænda, ef hann eigi að byggja á sömu forsendum og sá
samningur sem nú er í gildi.
„Við viljum afnema þetta kerfi
sem meðal annars hefur orðið til
þess að byggja upp eitt dýrasta
milliliðabákn í landbúnaði um allan
heim. Þó að búið sé að borga tugi
milljarða á undanförnum árum inn
í þetta kerfi, hefur það því miður
ekki skilað tiiætluðum árangri,
hvorki fyrir bændur né neytendur.
Menn hljóta því að vera tilbúnir til
að hugsa dæmið upp á nýtt,“ sagði
Sighvatur.
Hann sagði fyrirgreiðslukerfið í
landbúnaðinum vera þannig byggt
upp, að tekin væri ábyrgð á afkomu
svo til allra aðila í í kerfinu nema
einna helst bændanna sjálfra. „Þeg-
ar niðurstaðan er orðin sú að dýr-
ara er orðið að slátra lambinu en
að ala það þá er auðvitað eitthvað
meira en lítið að, og íslenskir skatt-
borgarar eiga ekki lengur að taka
þátt í svona vitleysu. Það þarf því
að skera þetta kerfi upp eins og
það ieggur sig og koma á sam-
hengi milli þess hvað fólkið er til-
búið að borga fyrir þessar vörur
og á hvaða verði þær verða seldar.
Framleiðslan verður að taka mið
af þörfum íslensks markaðar fyrir
þessar afurðir, og við getum auk
þess ekki gert kröfur um að fá að
flytja okkar matvæli hindrunarlaust
til annarra landa, en ætlast síðan
til þess að aðrir fái ekki sambærileg
kjör á okkar litla markaði."
Nýtt skipulag Gullfosssvæð
isins hlýtur staðfestingu
GULLFOSSSVÆÐIÐ er einn
fjölsóttasti ferðamannastaður
á landinu, en áætlað er að
þangað komi um 200 þúsund
ferðamenn á ári. Það hefur oft
verið talað um að þar þurfi
betri aðstöðu fyrir ferðamenn,
snyrtingar vanti, bæta þurfi
göngustíga og bílastæði sé of
lítið.
Nú hefur verið staðfest skipu-
lag fyrir svæðið og mun aðkoman
að því vera um efri gljúfurbarm-
inn. Kjalvegur verður færður til
vesturs, fjær Gullfossi. Þar verð-
ur gert rúmgott bílastæði, settar
upp snyrtingar og gerðir
göngustígar fram á brún gljúf-
ursins og niður að Gullfossi.
Fyrsta verkefni varðandi
bætta aðstöðu við Gullfoss og
fyrsta skrefið í átt að þessu
skipulagi var nýlega tekið í notk-
un. Það er stigi frá núverandi
bílastæði upp á gljúfurbarminn,
en flestir vilja komast þangað
Morgunblaðið/Einar Falur
Stiginn sem reistur var við Gullfoss í sumar er aðeins fyrsti
áfangi þeirra miklu umbóta, sem gerðar verða við fossinn. Stig-
inn liggur frá núverandi bílastæði og er skyggður á kortinu, sem
birtist með fréttinni.
upp. Stiginn leysir af hólmi
margar illfærar slóðir sem mynd-
ast hafa í brekkunni ofan við
bílastæðið. Með tilkomu stigans
verður hægt að loka þessum slóð-
um og græða upp brekkunna.
Viðræður um búvörusamning:
Staða sauð fj árbænda er
orðin allt að því vonlaus
segir formaður Landssamtaka sauð fj árbænda
JÓHANNES Kristjánsson, for-
maður Landssamtaka sauðfjár-
bænda, segir að staða sauðfjár-
bænda í viðræðum um nýjan
búvörusamning sé allt að því
orðin vonlaus, og þeir verði af
íslenzkar fegurðar-
dísir á faraldsfæti
ÍSLENZKAR fegurðardrottn-
ingar fara innan skamms til
keppni erlendis.
Fyrsta keppnin verður Ungfrú
Skandinavía, sem fram fer í Hels-
inki 22. september. Tvær íslenzk-
ar stúlkur taka þar þátt, Ásta
Sigríður Einarsdóttir, fegurðar-
drottning íslands, og Linda Björk
Bergsveinsdóttir. Þórdís Steins-
dóttir tekur þátt í Miss Internati-
onal-keppninni, sem fram fer í
Japan 23. september. Sigríður
Stefánsdóttir tekur þátt í keppn-
inni Ungfrú Evrópa, sem fram
fer í Aþenu 4. október. Loks mun
Ásta Sigríður taka þátt í keppn-
inni Ungfrú heimur, en dagsetn-
ing hennar hefur ekki verið
ákveðin.
þeim sökum að taka því sem að
þeim verði rétt. Hann sagðist
ekki geta séð að hægd; verði að
leggja drög að nýjum búvöru-
samningi fyrir aðalfund Stéttar-
sambands bænda sem hefst
næstkomandi miðvikudag, en
að því hefur verið stefnt. „Ef
ráðherra gerir það þá splundr-
ast allt, en á þessu stigi er ég
ekki tilbúinn til að segja hvers
vegna,“ sagði hann. Aðalfundur
Landssamtaka sauðfjárbænda
hefst á Hrafnagili í Eyjafirði
næstkomandi sunnudag, og
sagði Jóhannes að þessi mál
yrðu þar til umræðu.
Eins og greint hefur verið frá
í Morgunblaðinu hefur orðið veru-
legur samdráttur í sölu kindakjöts
á innanlandsmarkaði á því verð-
lagsári sem nú er að ljúka miðað
við verðlagsárið á undan, og kem-
ur samdrátturinn samkvæmt spá
til með að nema rúmlega 600 tonn-
um. Samkvæmt upplýsingum frá
Framleiðsluráði landbúnaðarins
hefur sala kindakjöts innanlands
undanfarin fimm verðlagsár dreg-
ist saman úr 9.200 tonnum verð-
lagsárið 1985/1986 í 7.950 tonn
samkvæmt spá fyrir það verðlags-
ár sem nú er að ljúka, eða um
1.250 tonn. Samkvæmt tölum um
innvegið magn til meðferðar í slát-
urhúsi hefur kindakjötsframleiðsl-
an dregist saman um 3.360 tonn
frá verðlagsárinu 1986/1987 sam-
kvæmt spá um framleiðsluna í
haust, eða úr 12.680 tonnum í
9.340 tonn. Heildarfullvirðisréttur
í sauðfé, þ.e. það magn sem bænd-
um er nú tryggt fullt verð fyrir,
er hinsvegar 12.300 tonn.
Jóhannes sagði að vegna mikils
samdráttar í sölu kindakjöts væri
staða sauðfjárbænda orðin mjög
erfið, og því væru þeir ekki í jafn
sterkri stöðu og kúabændur að
setja fram ákveðnar kröfur í við-
ræðum við ríkisvaldið um nýjan
búvörusamning.
„Það verður að segjast eins og
er að staða okkar er nánast von-
laus, og reyndar má segja að við
séum í þeirri stöðu að taka bara
því sem að okkur er rétt. Það er
alveg ljóst að það getur ekki orðið
annað en gífurleg uppstokkun á
núverandi verðlagningarkerfi i
landbúnaði vegna þess að það
beinlínis veldur sölusamdrætti, en
það er síðan spurning hvort menn
eru tilbúnir að skipta á þeirri
tryggingu sem nú er við iýði og
miklu meira fijálsræði hvers
bónda. Mín skoðun er sú að við
þurfum að leita eftir miklu sveigj-
anlegra kerfi, þar sem ég tel að
núverandi dæmi geti aldrei gengið
upp, auk þess sem sú trygging sem
búskapurinn hefur búið við hefur
gert bæði bændur og sláturleyfis-
hafa of rólega og sinnulausa gagn-
vart því sem er að gerast,“ sagði
Jóhannes.