Morgunblaðið - 23.08.1990, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990
Dýrafjörður brúaður:
Brúarsmíðinni verð-
ur lokið nú í vikunni
SMÍÐI brúar yfir Dýrafjörð miðar
samkvæmt áætlun og lýkur brú-
arsmíðinni í þessari viku. Brúin
Skákþing ís-
lands á Höfn
SKÁKÞING íslands, landsliðs-
flokkur, hefst á Höfn í Horna-
firði, þriðjudaginn 28. ágúst og
stendur til 8. september.
Þátttakendur eru 12 að þessu
sinni: Jón L. Ámason, Margeir Pét-
ursson, Hannes Hlífar Stefánsson,
Þröstur Þórhallsson, Björgvin Jóns-
son. Halldór Grétar Einarsson,
Þröstur Árnason, Sigurður Dagði
Sigfússon, Tómas Björnsson, Snorri
Bergsson, Héðinn Steingrímsson og
Ámi Ármann Ámason.
Skákstjóri verður Ólafur Ásgríms-
son. Framkvæmdaaðili mótsins er
Taflfélagið Höfn Homafirði með
stuðningi bæjarstjómar og fyrir-
tækja á staðnum. Telft verður á
Hótel Höfn.
VEÐUR
sjálf, sem er 120 metra löng, er
aðeins brot af þeim framkvæmd-
um sem þarf til að brúa fjörðinn.
Unnið verður að uppfyllingu í
fjörðinn fram á haust en ráðgert
er að uppfyllingu verði lokið
haustið 1991 og brúin þá opnuð
fyrir umferð.
Það er Vegagerð ríkisins sem
annast brúarsmíðina og sagði Kristj-
án Kristjánsson, umdæmisstjóri
Vegagerðarinnar, kostnaðaráætlun
vegna framkvæmdanna hljóðað upp
á 300 milljónir króna og sýndist
honum að kostnaður yrði innan
þeirra marka þegar upp væri staðið.
7-14 menn hafa unnið að sjálfri brú-
arsmíðinni og 7-8 manns hafa verið
á vegum verktakanna.
Verktakafyrirtækin Klæðning hf.
og Suðurverk hf. annast uppfyllingu
í fjörðinn og frágang verksins en
heildarkostnaðaráætlun vegna
þeirra þátta hljóðaði upp á 166 millj-
ónir kr. á kostnaðaráætlun en tilboð
verktakanna nam 139 milljónum kr.
Endanleg verklok, frágangur og
lagning bundins slitlags, eru áætluð
haustið 1992.
Morgunblaðið/Einar Falur
Norræna lögfræðingaþingið var sett í Háskólabíói í gær að viðstöddu fjölmenni.
1050 þátttakendur á norrænu lögfræðingaþingi:
Norrænu lögfræðingaverð-
launin féllu Svíum í skaut
NORRÆN ráðstefna lögfræð-
inga var sett í gær í Háskólabíói
að viðstöddum forseta íslands,
VEÐURHORFUR I DAG, 23. AGUST
YFIRLIT I GÆR: Skammt norður af Melrakkasléttu er 989 mb djúp
lægð sem þokast austnorðaustur og frá henni lægðardrag suðvest-
ur á Grænlandshaf.
SPÁ: Vestanátt, víða stínningskaldi eða allhvasst sunnantil á
landinu en annars hægari, norðaustaniands er gert ráð fyrir að
vindur verði nórðvestlægari í kvöld og nótt. Smámsaman iéttir til
á Suðausturlandi og í fyrramálið einnig á Austfjörðum. i öðrum
landshlutum má búast við skúraveðri. Fremur svalt verður áfram
um vestan- og norðanvert landið, en sæmilega hlýtt að deginum
sunnanlands og austan.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðlæg átt og fremur milt veður. Rtgning
eða súld um sunnan- og vestanvert landið en þurrt og surr\9 stað-
ar bjart veður norðanlands og austan.
HORFUR ÁIAUGARDAG: Austan- og suðaustanstrekkingur. Rign-
ing víða um land, en þó líklega þurrt í innsveitum norðanlands. Hiti
á bilinu 9 til 16 stig, hlýjast norðvestan- og vestanlands.
TAKN:
Heiðskfrt
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vin
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
10°
10 gráður á Celsíus
\J Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12:00
Akureyri
Reykiavik
hltf
111
10
ísl. tíma
vedur
úrkomaígr.
skúr
Bergen 12
Helsinki 16
Kaupmannahöfn 19
Narsserssuaq 6
Nuuk 4
Ósló 17
Stokkhólmur 21
Þórshöfn 13
súld
skúr
skýjað
skýjað
féttskýjað
rlgning
skýjað
skýjað
Algarve
Amsterdam
Barcefona
Berlín
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Hsmborg
Laa Pafmas
London
Los Angetes
Lúxemborg
Madrfd
Mallorca
Montreal
New York
Orlando
Paris
Róm
Vín
Washington
Wlnnlpeg
24
21
Hfö
19
20
25
17
18
17
26
23
18
19
29
27
30
16
19
26
23
28
18
19
19
helðskírt
mfstur
mistur
skýjafi
þokumóða
heiðskírt
skýjað
skýjað
skýjað
féttskýjað
hálfskýjað
hálfskýjað
mistur
léftskýjað
léttskýjað
afskýjað
alskýjað
léttskýjað
léttskýjað
skýjað
þokumóða
Vigdísi Finnbogadóttur, Óla Þ.
Guðbjartssyni dómsmálaráð-
herra og fjölda ráðstefnugesta.
Svíinn Bertil Bengtson hlaut að
þessu sinni norrænu lögfræð-
ingaverðlaunin, sem veitt eru á
þriggja ára fresti.
Ármann Snævarr, fyrrverandi
hæstaréttardómari, setti ráðstefn-
una, sem haldin ér hér á landi í
þriðja sinn. í máli Ármanns kom
fram að alls hefðu 1.350 norrænir
lögfræðingar sótt um þátttöku á
ráðstefnunni en vegna skorts á
hótelrými og öðrum tæknilegum
annmörkum hefði orðið að tak-
marka fjölda þátttakenda við 1.085,
þar af 800 lögfræðinga. Ármann
minntist þeirra norrænu lögfræð-
inga sem hafa látist frá því að
síðasta ráðstefna var haldin í Hels-
inki 1987.
Verðlaun norrænu lögfræðinga-
samtakanna eru veitt á þriggja ára
fresti norrænum lögfræðingi, helst
í tengslum við norræna lögfræð-
ingaþingið, en verðlaunin eru 100
þúsund sænskar krónur. Verðlaunin
að þessu sinni hlaut Svíinn Bertil
Bengtson og afhenti forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, honum verð-
launin við opnunarathöfnina í Há-
skólabíói í gær.
Stofnun nýs dagblaðs
áformuð á næsta ári
HÓPUR fólks undirbýr nú stofnun nýs dagblaðs og er áformað að
fyrsta eintak þess líti dagsins ljós í mars eða apríl á næsta ári. Segir
Ágúst Árnason, einn þeirra sem standa að þessu nýja blaöi, að ætlun-
in sé að reka gagnrýna frétta- og upplýsingastefnu og að blaðið verði
fyrst og fremst í samkeppni við Morgunblaðið.
„Þetta hefur verið til umræðu
síðan fyrir jól í fyrra,“ sagði Ágúst
Árnason, en hann hefur starfað
töluvert fyrir Ríkisútvarpið að und-
anförnu og áður verið fréttaritari
þess í Þýskalandi. Hann segir að
um morgunblað verði að ræða, 16
og 24 síður að stærð til skiptis, og
reiknuðu menn með að vera í sam-
keppni við Morgunblaðið en ekki
önnur blöð á markaðinum. „Þetta
verður flokkslega óháð blað, ólíkt
öðrum blöðum, og setjum við smá-
blöðin þrjú og Morgunblaðið og DV
undir sama hatt í þeim efnum.“
Ágúst sagði að menn vildu ekki
láta flokka blaðið fyrir fram sem
„hægri" eða „vinstri" en myndu
taka sér það bessaleyfi, þegar þar
að kæmi, að gagnrýna þá sem
væru við völd. Rekin yrði hörð
fréttastefna en gagnrýni yrði á fag-
legum grundvelli. Þetta yrði fyrst
og fremst fréttablað en einnig yrði
reynt að sinna menningarmálum
og öðrum sviðum.
Ágúst vildi ekki gefa það upp
hverjir það væru sem ætluðu að
standa að útgáfu blaðsins en sagði
að vonandi yrði hægt að greina
nánar frá því í næstu viku.
Heimsókn San Giorgio:
HringingTim linnir ekki
í ítalska konsúlatið
HRINGINGUM hefur ekki linnt í ítalska konsúlatiö frá því að
ítalska herskipið San Giorgio lét úr Reykjavíkurhöfn. Eru það
ungar stúlkur sem fýsir að vita utanáskrift og ferðaáætlun skips-
ins sem standa fyrir þessum hringingum og biðja konsúlatið
að veita sér þessar upplýsingar.
Ragnar Borg, konsúll Ítalíu á
íslandi, sagði að mest hefði verið
um hringingar rétt eftir að skip-
ið lét úr höfn og væri þeim að-
eins farið að fækka núna. I
síðustu viku hefðu hátt í tuttugu
stúlkur hringt. Hann sagði að
af hálfu konsúlatsins hefðu menn
ekki verið að hnýsast í ástæðurn-
ar fyrir hringingunum en auðvit-
að gætu menn látið sér detta í
hug að þarna væru á ferð yngis-
meyjar sem hefðu fallið fyrir
ungu sjóliðunum.
Ragnar sagði að þess mætti
geta að San Giorgio hefði komið
til hafnar í Halifax í Kanada í
gærmorgun og yrði þar til 29.
ágúst en færi þá til Boston í
Bandaríkjunum. Þaðan færi skip-
ið til bandarísku borganna Balti-
more og Jacksonville áður en það
héldi til Hamilton á Bermúdaeyj-
um og Santa Cruz á Kanaríeyj-
um. Það kæmi svo loks til heima-
hafnar sinnar Livorno á Ítalíu
13. október nk.