Morgunblaðið - 23.08.1990, Page 19

Morgunblaðið - 23.08.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990 19 Alver í byggða- kjamanum Eyjafirði eftir Krislján Þór Júlíusson Eyjafjarðarsvæðið er að verða eitt atvinnusvæði. Með bættum samgöngum hafa byggðir við fjörðinn tengst betur en áður var og um Ieið styrkist sá grunnur sem samstarf þeirra byggist á. Þetta hefur í för með sér aukna hagræð- ingu í rekstri og fjárfestingum og afkoma íbúa fjarðarins batnar. Sameining sveitarfélaga er þeg- ar hafin. í þrem hreppum innan Akureyrar, sem hafa haft sífellt aukið samstarf, hefur komið fram eindreginn vilji til sameiningar og verður um það kosið á þessu ári. Þar verður til um eitt þúsund manna sveitarfélag og einn íjöl- mennasti sveitahreppur landsins. Á ýmsum öðrum sviðum samstarfs hafa sveitarfélög við Eyjaijörð stigið mikilvæg skref sem öll miða að því að byggja upp sterkan byggðakjarna í Eyjafirði. Sem dæmi má nefna samvinnu á sviði mennta- og heilbrigðismála, gerð svæðisskipulags svo og starfsemi Iðnþróunarfélags Eyjaijarðar. Sú samvinna sem hér á sér stað varðar byggðaþróun almennt á íslandi og er í fullkomnu samræmi við þær hugmyndir um byggða- stefnu sem mótast hafa síðustu ár á breiðum stjórnmálavettvangi. Þær beinast að eflingu svokallaðra „vaxtarsvæða" á landsbyggðinni með átaki í atvinnu- og samgöngu- málum. í nýlegu áliti byggða- nefndar forsætisráðherra er heils- hugar tekið undir þessi sjónarmið og eru þau raunar kjarni hug- mynda hennar. Og í Eyjafirði er einmitt að verða til það „atvinnu- þróunarsvæði" sem nefndin lítur á sem „grundvallareiningu við skipulega atvinnuuppbyggingu í héraði“. Innan fárra vikna verður tekin ákvörðun um byggingu álvers á íslandi. Nú vinna Eyfirðingar sam- an að því að í héraðinu rísi þetta fyrirtæki ef ákvörðun verður tekin um byggingu þess hér á landi. Byggðir Eyjafjarðar hafa orðið að sætta sig við samdrátt í höfuðat- vinnugreinum. Hefðbundinn land- búnaður og úrvinnsla búvara þar Kristján Þór Júlíusson „Byggðir Eyjaíjarðar hafa orðið að sætta sig við samdrátt í höfuðat- vinnugreinum.“ með hefur dregist saman; skipa- smíða- og ullariðnaður eiga í erfið- leikum. Kvótaskerðingar hafa hér bitnað á annars sterkum sjávarút- vegi og fiskvinnslu ekki síður en í öðrum landshlutum. M.a. í ljósi þessa getur þetta mikilvæga hagsmunamál haft úr- slitaáhrif á uppbyggingu Eyja- fjarðar sem atvinnuþróunarsvæð- is. Ef ákvörðun verður tekin um byggingu álvers í Eyjafirði mun það ekki einungis efla hér allt at- vinnulíf heldur yrði þar með lagð- ur grunnur að öflugu samstarfi sveitarfélaga á sviði iðnaðarupp- byggingar í héraðinu. Með kröft- ugri og raunhæfri byggðastefnu myndaðist hér sterkt atvinnuþró- unarsvæði. Höfundur er bæjarsljóri á Dalvík, á sætiíhérnðsnefnd oghérnðsráði Eyjntjarðar. Símar fyrir heimilið og vinnustaðinn Panasonic Laugavégi 170-174 Slmi 695500 ams&r* KX-T2135BE — Takkasími með sjálfvirku vali — 28 minni — Inn- byggður hátalari og hljóðnemi — Handfrjáls notkun — Skjár sem sýnir klukku, valið númer, tímalengd símtals — Elti—hringing (ef símanúmer er á tali hringir síminn sjálfkrafa í næsta valið númer) — Hægt að geyma viðmælanda — Endurvalstakki fyrir síðasta númer — Styrkstillir fyrir hljóð — Púlsval, tónval — Veggfesting KX-T 2342 E — Takkasími með sjálfvirku vali og innbyggðum hátalara og hljóðnema — Handfrjáls notkun — 20 minni — 6 minni fyrir beint útval — Endurvalstakki fyrir síðasta númer — Hægt að geyma viðmælanda — Tónval, púlsval — Veggfesting KX-T 2386 BE — Takkasími með símsvara — Sjálfvirkt val — Innbyggð- ur hljóðnemi og hátalari — 12 minni — 3 minni fyrir beint útval — Hvert móttekið skilaboð í allt að 150 sek. — Ljós í takkaborði — Tónval. púlsval — Veggfesting. SPRENGI - MARKADSTORGID Meiriháttar markaður með allan fatnað - Laugavegi25 Verðdæmi: Sportskór.....................frá kr. 100 Uppháir strigaskór...........frá kr. 300 Stuttbuxur................... frá kr. 500 Komið og lítið á eitt-hundrað-krónu markaðinn þar sem 100 kallinn er í fullu verðgildi. Bolir.....................frá kr. 300 Jogginggallar.............frá kr.1.500 Opið virka daga kl. 9-18. Laugardaga kl. 10 -14. Sprengi-markaðstorgið Laugavegi 25 Sími 132 85.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.