Morgunblaðið - 23.08.1990, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 23.08.1990, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990 Tekur viðskiptaráð- herra sér löggjafarvald? eftir Kristínu Einarsdóttur Þann 27. júlí sl. gaf viðskipta- ráðuneytið út regiugerð um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála. I 49. grein reglugerðarinnar er sagt að hún sé sett samkvæmt heimildum í gildandi lögum. Er þar átt við lög um skipan gjaldeyris- og viðskipta- mála sem hafa verið í gildi síðan 1979. Það er furðulegt að viðskipta- ráðherra ákveði að gjörbreyta skip- an þessara mála án þess að það sé borið undir Alþingi og án þess að ljóst sé hvort reglugerðin hafi stoð í lögum. Hver á að taka ákvörðun? Það geta eflaust flestir verið sammála um að kominn er tími til að endurskoða lög um skipan gjald- eyrismála, sem eru orðin 11 ára gömul. Margt hefur breyst bæði hér á landi og annars staðar sem kallað getur á breytingar. En hver á að ákveða hvernig þessum málum skuli fyrir komið? Er það Alþingi eða er eðlilegt að viðskiptaráðherra geti með útgáfu reglugerðar breytt um stefnu án samráðs við löggjafar- valdið? Ég tel að hér hafí viðskipta- ráðherra gengið of langt. Gildandi lög Greinilegt er samkvæmt gildandi lögum um skipan gjaldeyris- og við- skiptamála, að löggjafínn hefur á þeim tíma er þau voru sett talið nauðsynlegt að setja reglur sem takmarka rétt fólks til að flytja fé á milli landa og fjrafesta og kaupa verðbréf erlendis. í lögunum segir m.a. að gjaldeyriseftirlit Seðla- banka íslands geti leyft tilteknum aðilum að eiga reikning í erlendum gjaldeyri utanlands. Þetta er undan- þáguheimild frá því ákvæði laganna um að „Allur erlendur gjaldeyrir sem innlendir aðilar eiga eða eign- ast fyrir seldar vörur, þjónustu eða „Viðskiptaráðherra hefur mistnotað stór- lega það vald sem lög- gjafínn fól honum með lögum um skipan gjald- eyris- og viðskipta- mála.“ á annan hátt, skal seldur eða honum skilað til gjaldeyrisviðskipta- banka ...“ Jafnframt segir í lögun- um: „Innlendum aðilum er óheimilt að kaupa fasteignir erlendis eða erlend verðbréf, nema að fenginni heimild Seðlabankans." Það er því greinilegt að löggjafinn reiknaði með að meginreglan væri sú að innlendir aðilar þyrftu sérstakt leyfi til að fjárfesta í útiöndum eða taka þar lán. Óheftir fjármagnsflutning- ar voru því löggjafanum síst í huga þegar lögin voru sett. Húsavík: Miklar byggingaframkvæmdir Húsavík. Byggingaframkvæmdir eru með meira móti á Húsavik og í Þingeyjarsýslum og fleiri ein- staklingar hafa hafið byggingar íbúða en undanfarin ár. í smíðum eru 6 einbýlishús, 8 íbúðir í 2 raðhúsum, 4 búseturéttar- íbúðir fyrir aldraða og að þeim með- töldum hafa verið reist 15 slíkar íbúðir við Hvamm, dvalarheimili aldraðra. Verið er að bjóða út bygg- ingu 12 íbúða sem byggðar verða á félagslegum grunni, eins og kallað er, svo alls eru þetta 30 íbúðir í byggingu. Einnig er í byggingu sjó- minjasafnshús, viðbygging við grunnskólann, um 4300 rúmmetrar, og fleira er í byggingu. Kunnugur tjáði fréttaritara að „ótrúlega miklar byggingafram- kvæmdir ættu sér stað til sveita víðsvegar um sýsluna". - Fréttaritari. Fjórar búseturéttaríbúðir aldraðra í byggingu. Morgunblaðið/Suli Fyrsta reglugerðin sem sett var af viðskiptaráðuneytinu með nánari ákvæðum um framkvæmd laganna styður þá skoðun að ekki hafi verið ætlun löggjafans að veita leyfi til óheftra fjármagsflutninga með lög- unum. Einungis gert ráð fyrir því að ráðuneytið veiti í undantekning- artilvikum undanþágur, en ekki sé veitt almennt leyfi til óheftra fjár- greiðslna milli landa. Nýja reglugerðin í nýju reglugerðinni og auglýs- ingum Seðlabankans frá 30. júlí er fjallað um fjölmörg veigamikil at- riði sem eru nýmæli frá því sem hefur verið í gildi hér á landi á undanförnum árum. Ekki síst eru breytingar í V. kafla reglugerðar- innar, sem ber heitið fjármagns- flutningar. Þar er fjallað m.a. um beinar fjárfestingar innlendra aðila í útlöndum og erlendra aðila hér á landi, um fasteignaviðskipti inn- lendra aðila erlendis og erlendra hérlendis og um viðskipti með markaðsbréf milli landa. í VI. kafla eru 25 greinar um fjármagnsflutn- inga. Þegar ákvæðin eru lesin verð- ur ekki betur séð en verið sé að gerbreyta gjaldeyris- og viðskipta- málum þjóðarinnar og Ieyfa með reglugerðinni óhefta fjármagns- flutninga þann 1. janúar 1993. Er reglugerð viðskiptaráðherra meira að segja svo ítarleg að í 10. gr. hennar er Seðlabankanum veitt heimild til að setja nánari ákvæði um framkvæmd hennar. Reglugerð- in er því ekki um framkvæmd gild- andi laga heldur plagg sem fjallar um algjörlega nýtt fyrirkomulag þessara mála. Misnotkun valds Ég tel að hér sé um svo veiga- miklar breytingar að ræða að ráð- herrann sé með reglugerðinni að fara inn á verksvið löggjafans. Lög- um verður ekki breytt með reglu- gerð né við þau aukið svo stórlega1 að reglugerðin gerbreyti því skipu- lagi sem heimildarlögin gera ráð fyrir. Viðskiptaráðherra hefur mistnot- að stórlega það vald sem löggjafinn fól honum með lögum um skipan Kristín Einarsdóttir gjaldeyris- og viðskiptamála með því að setja reglugerð sem gerbreyt- ir gjaldeyris- og viðskiptakerfi þjóð- arinnar við útlönd. Auðvitað á ráð- herrann að beyta sér fyrir að leggja fyrir Alþingi tillögur um breytta skipan laga um gjaldeyris- og við- skiptamál, sem eru orðin 11 ára gömul, en ekki leysa þau af hólmi með bústinni reglugerð og auglýs- ingum frá Seðlabankanum. Hvers vegna er ekki lagt til að lögum sé breytt? Það sem vekur furðu í þessu máli er fyrst og fremst það, að við- skiptaráðherrann skuli gefa út reglugerð án þess að hafa fyrir henni ótvíræða Iagastoð. Hvers vegna bíður hann ekki í nokkra mánuði og leggur fram lagafrum- varp á Alþingi um breytingu á lög- um um skipan gjaldeyris- og við- skiptamála? Éf viðskiptaráðherra telur að breyta eigi lögum um skipan gjald- eyris- og viðskiptamála, á hann að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga, þar sem tekið er efnislega á þeim nýmælum sem hann vill inn- leiða. Þannig gefst þjóðinni kostur á að fylgjast með umræðum um þessi mál og eiga innlegg í þá umræðu. Vinnubrögð ráðherrans eru í hæsta máta ólýðræðisleg. Hann á að sjá sóma sinn í að nema reglu- gerð nr. 312/1990 úr gildi. Það er Alþingis að setja lög í landinu. Til þess hefur þjóðin Alþingi. Höfundur er þingkona Kvennalistans. Nýir stóðhestar í ættbók Gunnars GUNNAR Bjarnason fyrrum hrossaræktarráðunautur og höfundur ritverksins Ættbók og saga íslenska hestsins á 20 öld, hefur nú gefið öllum þeim stóðhestum ættbókarnúmer, sem að undanförnu hafa náð lágmarkseinkunn til ættbókarfærslu. í fimmta bindi Ættbók- arinnar, sem út kom í fyrra, var endað á hestinum Dökkva 1140 frá Fagranesi, en nú hafa bæst við hestar upp að númer 1172, og hafa því 32 stóðhestar bæst í Ættbókina síðan. Hér á eftir fer upptalning á hestunum ásamt ættbókarnúmerum þeirra, upplýsingum um fæð- ingarstað, fæðingarár, lit, eiganda og ætterni. Roði 1156 frá Kolkuósi. Knapi Matthias Eiðsson. Dropi 1141 frá Miðsitju. Rauð- stjörnóttur með leist á v. afturf, f. 1985. Faðir: Hervar 963 frá Sauð- árkróki. Móðir: Perla 4663 frá Kú- skerpi. Eigandi: Gunnar Arnarson, Reykjavík. Eðall 1142 frá Hólum. Rauð- blesóttur, glófextur, fæddur 1985. Faðir: Feykir 962 frá Hafsteins- stöðum. Móðir: Eldey 5477 frá Hólum. Eigandi: Hólabúið, Hjalta- dal. Mozart 1143 frá Hellishólum. Svartur, fæddur 1985. Faðir: Óður 937 frá Torfastöðum. MÓðir: Hrafn- hetta frá Reykjavík. Eigandi: Lárus Sigfússon, Hellishólum. Orri 1144 frá Þúfu. Brúnn, fæddur 1986. Faðin Otur 1050 frá Sauðárkróki. Móðir: Dama frá Þúfu. Eigandi: Indriði Ólafsson, Þúfu. Mímir 1145 frá Ytra-Skörðu- gili. Brúnn, fæddur 1986. Faðir: hervar 963 frá Sauðárkróki. Móðir: Skerpa 5430 frá Ytra-Skörðugili. Eigandi: Sæmundur Á. Hermanns- son, Sauðárkróki. Krummi 1146 frá Kálfholti. Brúnn, fæddur 1986. Faðir: Byr frá Skollagróf. Móðir: Hrefna frá Kálf- holti. Eigandi: Jonas Jónsson, Kálf- holti. Hósías 1147 frá Kvíabekk. Dökkjarpur, fæddur 1986. Faðir: Gustur 923 frá Sauðárkróki. Móðir: Skerpa 5485 frá Kvíabekk. Eig- andi: Kristín Andrésdóttir, Kvía- bekk. Dagur 1148 frá Mosfellsbæ. Leirljós, fæddur 1986. faðir: Blakk- ur 977 frá Reykjum. Móðir: Drottn- ing 5391 frá Stykkishólmi. Eig- andi: Leifur Kr. Jóhannesson, Mos- fellsbæ. Börkur 1149 frá Laugarvatni. Jarpur, fæddur 1986. Faðir: Hrafn 802 frá Holtsmúla. móðri: Sjöfn 4036 frá Laugarvatni. Eigandi: Þorkell Þorkelsson, Laugarvatni. Gammur 1150 frá Tóftum. Jarpur, fæddur 1986. Faðir: Otur 1050 frá Sauðárkróki. Móðir: Gáta frá Tóftum. Eigandi: Ásgeir Her- bertsson, Reykjavík. Bragi 1151 frá Reykjavík. Rauðblesóttur, fæddur 1985. Faðir: Snældu-Blesi 985 frá Árgerði. Móð- ir: Frigg 5094 frá Kirkjubæ. Eig- andi: Hörður G. Albertsson, Kópa- vogi. Mökkur 1152 frá Varmalæk. Brúnn, fæddur 1986. Faðir: Borg- fjörð 909 frá Hvanneyri. Móðir: Kolbrún 4970 frá Sauðárkróki. Eig- andi: Björn Sveinsson, Varmalæk. Blær 1153 frá Höfða. Brúnn, fæddur 1985. Faðir: Gustur 923 frá Sauðárkróki. Móðir: Ösp frá Kolku- ósi. Eigandi: Hjörleifur Jónsson, Akranesi. Silfurítoppur 1154 frá Sig- mundarstöðum. Bleikálóttur, fæddur 1986. Faðir: Hamar 1081 frá Litla-Bergi. Móðir: Blika frá Sigmundarstöðum. Eigandi: Reynir Aðalsteinsson, Sigmunarstöðum. Sólon 1155 frá Hóli. Brúnn, fæddur 1984. Faðir: Náttfari 776 frá Ytra-Dalsgerði. Móðir: Blesa 4823 frá Möðrufelli. Eigendur: Systkinin Hóli. Roði 1156 frá Kolkuósi. Rauð- tvístjörnóttur, fæddur 1979. Faðir: Funi frá Kolkuósi. Móðir: Dögg frá Kolkuósi. Eigendur: Anders og Lars Hansen, Árbakka. Safír 1157 frá Viðvík. Brúnn, fæddur 1985. Faðir: Hrafn 802 frá Holtsmúla. Móðir: Gloría 4233 frá Hjaltastöðum. Eigandi: Jóhannes Viðarsson, Akureyri. Trostan 1158 frá Kjartansstöð- um. Rauðblesóttur, fæddur 1986.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.