Morgunblaðið - 23.08.1990, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990
23
Morgunblaðið/Hallur
Guðmundur Lárusson, formaður Landssambands kúabænda, í ræðu-
stól á aðalfundi LK. Við borðið sitja talið frá vinstri: Maria Hauks-
dóttir, Haukur Steindórsson, Birna Lárusdóttir og Hilmar Jóhannes-
son.
Aðalfundur Landssambands kúabænda:
Taka þarf upp sveigj-
anlegri viðskiptahætti
með fullvirðisrétt
AÐALFUNDUR Landssambands kúabænda, sem lauk á Flúðum á
þriðjudag, vill að teknir verði upp sveigjanlegri viðskiptahættir með
fullvirðisrétt, en fundurinn telur að núverandi fyrirkomulag á til-
færslu fullvirðisréttar milli bænda hindri eðlilega þróun búskapar.
Fundurinn vill að seljendur geti lagt fullvirðisrétt sinn inn til með-
höndlunar hjá Framleiðsluráði eða búnaðarsambandi, sem auglýsi
allan lausan fullvirðisrétt á viðkomandi búmarkssvæði, en rétt til
að sækja um hafí þeir einir sem hafí fyrir fullvirðisrétt til mjólkur-
framleiðslu.
Á fundinum kom fram að líkur
eru á að um talsverðan samnings-
auka til mjólkurframleiðslu verði
að ræða á næsta verðlagsári vegna
þess að neysla innanlands hefur
farið fram úr því sem áætlað var í
búvörusamningi, en samkvæmt
reglugerð er verulegum hluta væht-
anlegs samningsauka varið til sér-
stakra verkefna eða ráðstafað að
tillögum framkvæmdanefndar bú-
vörusamninga. Nú líti hins vegar
út fyrir að neysla mjólkurvara sé
aftur á niðurleið, og því muni samn-
ingsauki þessi ganga til baka á
verðlagsárinu 1991/1992. Því legg-
ur fundurinn þunga áherslu á að
óráðstöfuðum hluta samningsauk-
ans verði jafnað út milli framleið-
enda í hlutfalli við fullvirðisrétt
þeirra, og skerðing verði tekin á
sama htt ef til hennar komi.
Kúabændur telja brýnt að vinna
ötullega að því að koma á nýjum
búvörusamningi milli bændasam-
takanna og ríkisvaldsins, sem taki
við þegar núgildandi samningur
rennur út í lok ágúst 1992. Til að
tryggja nauðsynlega festu í fram-
leiðslunni og viðunandi öryggi
framleiðenda telja þeir að samning-
urinn þurfi að taka til 6-8 ára hvað
varðar ramma hans, en um nánari
útfærslu megi semja til skemmri
tíma. Markmið kúabænda með því
að ganga til slíkra samninga sé að
fá tryggingu fyrir fullu verði fyrir
ákveðið magn afurða svo sem verið
hafi undanfarin ár, en þeir telji að
krafa ríkisvaldsins um að tengja
afurðamagn í samningum við sveifl-
ur í innanlandsneyslu geti því að-
eins verið aðgengileg að henni fylgi
fyrirheit um að markaðsstöðu af-
urðanna verði ekki raskað á samn-
ingstímanum með aðgerðum eða
aðgerðaleysi stjórnvalda.
Frystitogarinn Aðalvík KE á leið norður:
„Komum skipinu eins
fljótt á veiðar og unnt er“
- sagði Vilhelm Þorsteinsson framkvæmdastjóri ÚA
Keflavík.
„VIÐ gerum sjálfsagt einhverjar
lagfæringar á skipinu þegar það
kemur norður, en síðan komum
við því á veiðar eins fljótt og
unnt er,“ sagði Vilhelm Þor-
steinsson framkvæmdastjóri Ut-
gerðarfélags Akureyringa þegar
frystitogarinn Aðalvík KE 95
lagði frá höfninni í Njarðvík í
fyrradag og hélt áleiðis til nýrrar
heimahafnar sem verður Akur-
eyri.
Útgerðarfélag Akureyringa
keypti Aðalvíkina af Hraðfrystihúsi
Keflavíkur og var kaupverðið 450
milljónir auk þess sem ÚA keypti
öll hlutabréf HK fyrir 75 milljónir.
Aðalvíkin hefur legið við bryggju
frá 25. júlí og var ráðgert að halda
á veiðar aftur 1. september. Yfir-
rrienn ásamt tveim hásetum sigla
skipinu norður.
Skipstjóri á Aðalvík KE 95 er
Kristinn Gestsson en hann hefur
verið með skipið frá því það kom
til Keflavíkur fyrir einu og hálfu
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Söguleg stund, Aðalvík KE 95 tekur landfestarnar í höfninni í
Njarðvík s.l. þriðjudag áður en haldið er af stað til Akureyrar. Þar
með fór síðasti togarinn sem gerður hefur verið út frá Keflavík og
Njarðvík.
ári. Þar áður hafði hann verið með
togarann Bergvík í 10 ár. Kristinn
sagði að allri áhöfninni hefði verið
sagt upp þegar skipinu var lagt,
hann og aðrir yfirmenn yrðu um
borð fyrst um sinn, en undirmenn,
um 20 manns, misstu starf sitt.
BB
Mosfellsbær:
Aldraðir í
Mosfellsbæ.
NOKKUR undanfarin ár hefir
starfað svokölluð samstarfs-
nefnd um málefni aldraðra í
Mosfellsumdæmi. Nefndin er
byggð upp af ýmsum félögum
sem starfa í bænum en sóknar-
nefnd hefír þar nokkra forystu.
Samkomur eru haldnar reglu-
lega yfír veturinn en á sumrin
er farið í ferðalög að ræða.
í fréttabréfi sem sent var út ný-
lega er boðið í ferð um upphéruð
Borgarfjarðar og stansað í Húsa-
felli og Reykholti og væntanlega á
fleiri sögustöðum. Þessar ferðir eru
styrktar af ýmsum stofnunum í
bænum en að þessu sinni munu
bankaútibúin, Búnaðarbankinn og
íslandsbanki, bjóða ferðalöngum í
hádegisverð í Reykholti.
Mæting er í Hlégarði laugardag-
inn 25. ágúst og lagt verður upp
ferð um Borgarfjörð
klukkan 9 f.h. Allur akstur er í
boði Jónatans Þórissonar og Ragn-
hildar konu hans, en þau hjón gera
út hópferðabíla í Mosfellsbæ. Um-
sjónarmenn ferðarinnar era þau
Svanhildur Þorkelsdóttir og Ingólf-
ur Árnason.
- Fréttaritari.
Prestslaust í Tálkna-
§ arðarprestakalli
Innri-Múla.
Prestskosning átti að fara
fram í Tálknaljarðarpresta-
kalli, fímmtudaginn 16. ágúst.
Jón Hagbarður Knútsson var
eini umsækjandinn um brauðið,
en þegar til kosningar kom dró
hann umsókn sína til baka, en
bauðst til þjónustu ef hann yrði
kallaður til starfa.
Sautján kjörmenn úr Haga-,
Bijánslækjar- og Stóra-Laugar-
dalssókn mættu á fundi í Birki-
mel undir stjórn prófasts, sr. Flosa
Magnússonar. Ekki náðist tilskil-
inn meirihluti eða 3A sem nauð-
synlegt er til þess að kalla megi
prest. Nýja prestakallið er því
prestslaust áfram. - SJÞ.
álauga'j
beW' P'°
kreditmánuöur
r— FLUGLEIÐIR l I Kl
Hægt er að greiða miða að Risarokkinu i Reiðhöllinni með Eurocard eða Visa.
ttur Flugleiðir veita Risarokkgestum 35% afslátt á flugfargjaldi gegn framvisun aðgöngumiða
O S
/\erosráW\’
áVJVi'":esr'*®'t,ara.U0' '
■,ða á'a093"3* RooV-'r''''
po'lSOO 09 _________