Morgunblaðið - 23.08.1990, Side 40

Morgunblaðið - 23.08.1990, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990 Snorri Vigfús- son - Kveðjuorð Snorri fæddist í Þorleifskoti í Flóa 22. febrúar 1901 og lést þann 30. júlí sl. á nítugasta aldursári. Foreldr- ar hans voru þau Solveig Snorradótt- ir frá Þórustöðum í Olfusi, f. 10. apríl 1873, d. 12. febrúar 1957 og Vigfús Jónsson frá Iðu í Biskupst- ungum, f. 27. mars 1862, d. 9. jan- úar 1932. Solveig var dóttir hjón- anna Snorra Gíslasonar bónda og hreppstjóra á Kröggólfsstöðum Ey- jólfssonar og Kristínar Oddsdóttur bónda á Þúfu í Ölfusi Bjömssonar bónda og hreppstóra á Þúfu. Faðir Vigfúsar var bóndi á Iðu Vigfússon- ar Jónssonar á Iðu. Þau Solveig og Vigfús eignuðust sjö börn. Elsta barnið, Snorra, misstu þau á öðru ári, en hin voru: Kristín húsfreyja í Smjördölum í Flóa, Jónína Ingveldur húsfreyja í Reykjavík, Snorri, sem hér er minnst, Þórhildur húsfreyja í Sölvholti í Flóa, Magnús bygginga- meistari í Reykjavík og Guðjón bif- reiðastjóri í Reykjavík. Eru þau nú öll fallin frá. Eins og títt var um samtíðarfólk Snorra hóf hann lífsbaráttuna snemma. Faðir þeirra systkina var löngum heilsuveill, mun hafa verið heysjúkur og hlóðust bústörfin fljót- lega að mestu á herðar Snorra. Sagði hann mér eitt sinn að Eggert í Laug- ardælum hefði gjarnan kallað sig litla bóndann. Snorri var alla tíð vinnusamur og kappsfullur og sótti vinnu út í frá með bústörfunum. Ungur réri hann á skútum á vert- íðum og síðar var hann um alllangt skeið á saltfiskvertíðum á togaran- um Max Pemberton. Hann lagði allt sitt aflafé til búsins og hafði að eig- in sögn hug á að eignast fæðingar- jörð sína, en er jörðin reyndist ekki föl og faðir hans látinn varð hann afhuga því að leggja meira af mörk- um til búskapar. Er hér var komið bjuggu þau saman með móður sinni Snorri, Ingveldur og Guðjón og varð það úr að þau brugðu búi og fluttu til Reykjavíkur. Fljótlega eftir kom- una til Reykjavíkur eignaðist Snorri sitt eigið húsnæði, en hann lagði alla tíð ríka áherslu á að vera það sem hann kalíaði efnalega sjálfstæð- ur maður. í stríðsbyijun festi Snorri svo kaup á húsinu númer 35 við Bergþórugötu þar sem heimili hans stóð upp frá því. Um þetta leyti hætti hann svo endanlega sjó- mennsku og fór í.land og vann upp frá því byggingarvinnu, lengst af með Magnúsi bróður sínum. Hann sagði þó aldrei skilið hvorki við bónd- ann né sjómanninn í sér. Hann hafði jafnan mikinn áhuga á hvernig bú- skapurinn gekk fyrir austan fjall og var að ég hygg alla tíð í Sjómannafé- lagi Reykjavíkur, sem hann taldi sitt félag. Um sjötugt taldi Snorri sig hafa lokið dagsverki sínu og naut tilverunnar sem eftirlaunamaður, enda kominn á tryggingarnar, eins og hann sagði gjaman. Snorri var á sínum yngri árum fríður maður, léttur og skemmtileg- ur. Mér eru minnisstæðar ferðimar „á báða bæina“ með þeim bræðrum, er farið var austur eða „ustur“ eins og þeir orðuðu það á sunnlensku sinni. Uppáhaldsumræðuefni hans var alla tíð það sem hann nefndi stjómmál. Ekki minnist ég annars en að ríkjandi stjóm hafí ávallt ver- t Útför móður okkar, MAGNDÍSAR ÖNNU ARADÓTTUR, fer fram frá Langholtskirkju, föstudaginn 24. ágúst kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Laufey Jónsdóttir Muscente, Dýrleif Jónsdóttir, Guðrún Jónsdótttir. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, VALUR H. JÓHANNSSON, Reynigrund 1, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 24. ágúst kl. 14. Þeim sem vildu minnast hans er bent á minningarsjóð Sigríðar R. Sigurðardóttur. Björg Hermannsdóttir, Sigriður og Ingibjörg Valsdætur. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EIÐUR SVEINSSON verkstjóri, Nesvegi 41, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 24. ágúst kl. 13.30. Sigríður Sæmundsdóttir, Steindór Eiðsson, Helga Eiðsdóttir, Einar Jóhannsson, Sæmundur Eiðsson, Elva Björk Sigurðardóttir, Katrín Eiðsdóttir og barnabörn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN JÓNSSON, Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, verður jarðsunginn frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð laugardag- inn 25. ágúst kl. ,14.00. Rúnar Guðjónsson, Auður Svala Guðjónsdóttir, Ingi Guðjónsson, Erna Hanna Guðjónsdóttir, Margrét Guðjónsdóttir, Kjartan Óskarsson og barnabörn. ið verri fyrirrennara sínum og stjórn- málamenn þjóðarinnar í sífelldri aft- urför að hans dómi og mátti hér sannast að lengi getur vont versnað. Aldrei vissi maður raunar hvaða stjórnmálaflokkur naut fylgis hans, en hann taldi það ókost að vera flokksbundinn, fannst slíkt hindra nógu einarða gagmýni. Snorri var stálminnugur á menn og málefni, talnaglöggur og kunni vel að sjá fótum sínum forráð í lífsins ólgusjó. Það orðatiltæki sem honum var tam- ast í mínum eyrum var að orð skulu standa og veit ég að harin lifði eftir því, hvað sem í skarst. Snorri var orðinn rúmlega fertug- ur er hann kvæntist frænku sinni Kristínu Gísladóttur bónda á Torfa- stöðum í Grafningi Snorrasonar, en þau Kristín voru systkinabörn. Kristín dó fyrir réttum fjórum árum, í ágúst 1986, eftir langvarandi veik- indi. Börn þeirra eru tvö, bæði bú- sett í Reykjavík, Gísli bifreiðarstjóri, ókvæntur og Solveig húsfreyja, gift Bergi Ingimundarsyni frá Melhól í Meðallandi. Eru börn þeirra þijú. Eftir lát Kristínar bjó Snorri einn á Bergþórugötunni og mallaði í sig sjálfur, eins og hann orðaði það. Naut hann aðstoðar Solveigar dóttur sinnar, auk þess sem hann fékk heimilsaðstoð. Snorri var lengst af heilsuhraustur. Fyrir allmörgum árum var hann að dytta að húsi sínu og datt þá úr stiga og hlaut höfuð- kúpubrot sem olli heyrnatapi á öðru eyra og jók á heyrnarleysi hans í seinni tíð, auk þess sem Snorri taldi minni sínu hafa hfakað eftir þetta, enda þótt þess yrði ekki vart í sam- ræðum við hann. Fram undir það síðasta stundaði hann gönguferðir sínar og fór m.a. reglulega tvisvar á dag inn á Hlemm til að taka stöð- una í landsmálunum með kunningj- um sínum þar. í seinni tíð ræddi Snorri oft um dauðann. Hann kvaðst aldrei hafa búist við því að lifa svo lengi sem raun bar vitni. Hann taldi sig tilbú- inn hvenær sem væri að mæta örlög- um sínum. Hann átti aðeins eina ósk varðandi viðskilnaðinn, sem sé þá að hann yrði skjótur. Segja má að honum hafí orðið að ósk sinni, en óþarflega sóttkaldur þykir mér frændi minri hafa verið að hafa ekki leitað læknis í þau tvö ár sem mein það, sem loks dró hann til dauða, var við og við að gera vart við sig. Er hann loks beygði sig fyrir ofurefl- inu varð engu bjargað, þrátt fyrir aðgerð. Hann átti ekki afturkvæmt á Bergþórugötuna, komst aðeins í stutta dvöl heim til Solveigar dóttur sinnar, áður en hann varð enn að leita á náðir sjúkrahússins þar sem hann lést eftir skamma legu. Snorri gerði jafnan hreint fyrir sínum dyrum, eins og sjá mátti á stéttinni á Bergþórugötunni, og ekki brá hann vana sínum er hann fann dauðann nálgast og mælti gjörla fyrir um hvernig haga skyldi málum. Ekki átti að tilkynna lát hans fyrr en bálför hefði farið fram. Er við kvöddumst síðast á heimili Solveigar dóttur hans, gerðum við ráð fyrir að við myndum hittast aft- ur. Má vera að svo verði, aldrei ræddum við trúmál og okkur var ókunnug afstaða hvors annars í þeim efnum. Fari minn gamli frændi og vinur vel. Vigfús Magnússon Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMÚVEGI48. SiMI 76677 * Kristín Þ. Asgeirs- dóttir - Kveðjuorð Fædd 26. febrúar 1900 Dáin 26. júlí 1990 Að leiðarlokum vil ég minnast móðursystur minnar, Kristínar Þór- kötlu Ásgeirsdóttur í Samtúni, eða Kristínar í Samtúni eins og hún hét í mínum huga. Kristín var fædd aldamótaárið að Hrútsholti í Miklaholtshreppi og var af Rauðkollsstaðaætt, sjötta í röð ellefu barna Ásgeirs J. Þórðar- sonar og Ólínu Bergljótar Guð- mundsdóttur, er síðast bjuggu í Fróða, hinu forna höfuðbóli. Ung að árum giftist Kristín Stef- áni Einarssyni, trésmið, mætum manni og eignuðust þau þijú börn, Einar, Ólaf og Soffíu, gift Carland- er. Að Samtúni 2 bjuggu þau mynd- arbúi, en Stefán er látinn fyrir all- mörgum árum. Þótt aldursmunur væri mikill að árum komst á sérstakt og gott sam- band mitt við Kristínu, er ég 15 ára flutti.til höfuðborgarsvæðisins. Samband, sem þróaðist í einlæga vináttu og skilning, því Kristín var að eðlisfari létt í lund og Ijúf og hún var óendanlega góð við mig. Á erfiðu ævikvöldi .sýndi hún ekki hvað síst hve sterk og góð hún var og gefandi umhverfi sínu. Fyrir að fá að kynnast henni og eiga að vini, vil ég þakka og bið henni allrar blessunar við vista- skiptin og ég veit að á móti henni verður tekið opnum örmum. Lilla Jóhanna Jóhannes- dóttir — Kveðjuorð Fædd 14. janúar 1948 Dáin 16. ágúst 1990 Hún Jóhanna okkar er farin á annan stað til dvalar. Hún er farin úr okkar augsýn, en í hjörtum okk- ar á hún stóran stað og í huga okkar er hún og mun alltaf vera. Okkur finnst skrýtið að hugsa til hennar svona langt í burtu, en samt svo nálægt. Við vorum mjög lánsöm að njóta þeirra forréttinda að eiga hana sem okkar besta vin. Hún er búin að fylgjast með okkur í svo langan tíma. Alltaf var stutt í hlátur, glens og gaman þegar hún var í heim- sókn, og enn meira gaman þegar við bættust Reynir, Siggi og Auður. Stórt skarð er nú höggvið í þenn- an stóra vinahóp sem umlukti Jó- hönnu en við munum halda lífinu áfram með bjartar og fallegar minn- ingar um hana, þessa yndislegu manneskju sem veitti okkur systk- inunum allt sem vinur gat veitt. Við vottum vinum okkar Reyni, Sigga og Auði og öðrum aðstand- endum okkar dýpstu samúð. Við kveðjum okkar kæru Jó- hönnu með broti úr Ijóð Einars Benediktssonar: Sjá, uppi logar sól við sól, sjá silfurhafsins brunn! Vort líf er kvikt sem loftsins hjól og lagardjúpsins unn, því andi og hold, loft, haf og fold fer hring - knýr Guðs síns dyr. Þitt hjarta sjálfs siær hátt frá mold, einn hvílir tíminn kyrr. Aron, Ervin, Anita, Örn, Orri og fjölskyldur í dag verður vinkona okkar Jó- hanna borin til hinstu hvílu, en hún andaðist 14. þ.m. eftir harða og stranga baráttu við banvænan sjúk- dóm. Allt frá okkar fyrstu hjúskapar- árum var Jóhanna eins og ein úr fjölskyldunni. Börnum okkar var hún bæði leiðbeinandi fyrstu skrefa þeirra og seinna meir er þau uxu úr grasi var hún þeirra besti vinur. Hún var alltaf þessi fasti punktur fyrir ökkur öll, með þátttöku sinni í okkar gleðistundum og daglega lífí og smávandamál unglingsár- anna fengu alltaf farsæla lausn hjá Jóhönnu. Heimili hennar og Reynis varð annað heimili yngstu sona okkar ef við vorum ekki á landinu. Alltaf mundi Jóhanna eftir öllum afmælum og alltaf voru gjafir rétt- ar fram úr hennar hendi við hið minnsta tilefni. Í flestum tilfellum var það eitthvað sem hún hafði búið til sjálf, en hún var hagleiks- manneskja hin mesta. Hennar stærsta ánægja í Iífinu var að gefa og gleðja aðra. Fastur liður í jóla- haldi á heimili okkar var að taka við fagurlega skreyttum pakkanum frá Jóhönnu seint á aðfangadags- kvöld og bragða á ljúffenga konf- ektinu hennar sem var algjört lost- æti og nostrað hafði verið við af hennar einstöku fimi og alúð. Eitt sinn er við héldum jól á heim- ili sonar okkar og tengdadóttur í Noregi, bjó Jóhanna út sinn árlega konfektpakka handa okkur að fara með, og er sonardóttir okkar fædd- ist þá um jólin þá var pakki handa baminu tilbúinn í farangri okkar, en þangað hafði Jóhanna laumað honum. í pakkanum voru fallegar litlar bamaflíkur saumaðar af Jó- hönnu úr efni sem hún hafði sjálf þrykkt með sínum eigin munstrum. í stofunni okkar í dag, eigum á ljósmynd af lítilli sonardóttur í þess- um fallegu flíkum. Þannig er Jóhönnu best lýst. Hún var alltaf að og fegraði allt í kring- um sig bæði með orðum og gerðum. Þó hún hafí nú kvatt þennan heim, þá skilur hún eftir minningar sem alltaf munu fylgja okkur. Hún gerði þennan heim betri með veru sinni og okkur sem eftir lifum að betri manneskjum. Reyni og börnunum Auði og Sig- urði og öðrum aðstandendum vott- um við okkar dýpstu samúð. Við kveðjum kæran vin. Sigurbjörg og Ken Amin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.