Morgunblaðið - 01.09.1990, Side 1
64 SIÐUR B/LESBOK
197. tbl. 78. árg.
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Efnahagsmál í Sovétríkjunum;
Stöðugleiki forsenda
markaðsbúskapar
- segir Míkhaíl S. Gorbatsjov
Moskvu. Reuter
MÍKHAÍL S. Gorbatsjov, leiðtogi sovéska kommúnistaflokksins, sagði
á fundi með blaðamönnum í Moskvu í gær að ákveðið hefði verið að
freista þess næsta hálfa árið að tryggja stöðugleika í hagkerfi Sov-
étríkjanna til að unnt yrði að innleiða markaðsbúskap þar eystra.
Gorbatsjov ítrekaði fyrri ummæli
sín um efnahagsástandið í Sovétríkj-
unum og sagði að tíminn til að koma
á nauðsynlegum umbótum innan
hagkerfisins væri skammur. Hann
sagði þá hafa orðið niðurstöðu
tveggja daga fundar ráðamanna og
sérfræðinga á sviði efnahagsmála
að ákveðið hefði verið að skipa nýja
nefnd sem fjalla myndi um tvær ólík-
ar tillögur um róttækar breytingar
á efnahagssviðinu. Yrði sú vinna
hafin í dag, laugardag. Önnur tillag-
an kemur frá nefnd sérfræðinga sem
þeir Gorbatsjov og Borís Jeltsín, leið-
togi sovéskra umbótasinna og for-
seti Rússlands, skipuðu í sameiningu
en hin er afrakstur þess starfs sem
farið hefur fram á vegum nefndar
sem Nikolaj Ryzhkov, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, skipaði og nýt-
ur stuðnings hans. Gorbatsjov sagði
á blaðamannafundinum í gær að
hann væri áfram um að niðurstaðan
lægi fyrir í næstu viku er fulltrúa-
þing Sovétríkjanna tekur til starfa
a ný.
Sovétleiðtoginn sagði nauðsynlegt
að tryggja stöðugleika í hagkerfi
Sovétríkjanna. „Markaðsbúskap
verður ekki komið á í einu vetfangi
án þess að fram hafi farið umræður
um hvernig tryggja megi stöðug-
leika.“ Sagði hann að næsta hálfa
árið yrði gripið til viðeigandi aðgerða
í þessu skyni og kvaðst telja verð-
bólgu alvarlegustu ógnunina á efna-
hagssviðinu.
Sjá „Hruni verður aðeins af-
stýrt . . . “ á bls. ?
Reuter
A sjötta hundrað Pakistana sem verið hafa innlyksa í Irak fóru yfir tyrknesku landamærin í gær. Báru
þeir eigur sínar með sér.
Stríðsástandið við Persaflóa:
Mikil áhersla lögð á að
fínna pólitíska lausn
New York, London, Amman. Reuter.
Javier Perez De Cuellar, fram-
kvæmdasljóri Sameinuðu þjóð-
anna, (t.h.) og Tarek Aziz, ut-
anríkisráðherra Iraks, ræðast
við í Amman í Jórdaníu í gær.
MIKIL áhersla er nú lögð á að
finna pólitíska lausn á ástandinu
við Persaflóa þó enn sem komið
er bendi ekkert til að það takist.
Javier Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, og Tarek Aziz, utanríkisráð-
herra Iraks, ræddust samtals við
í fimm klukkustundir í Amman í
De Klerk vill
opna svört-
um flokkinn
Durban. Reuter.
FORYSTA Þjóðarflokksins í
Suður-Afríku lagði til í gær að
flokkurinn yrði opnaður fyrir
öllum íbúum landsins, óháð lit-
arhætti. F.W. de Klerk forseti
sagði að það væri í samræmi
við stefnu stjórnarinnar í lands-
málum að aðild að flokknum
verði fijáls.
Þjóðarflokkurinn komst til valda
árið 1948 á grundvelli stefnu sem
boðaði aðskilnað íbúa eftir litar-
hætti á öllum sviðum þjóðlífsins.
De Klerk sagði í gær að tími kyn-
þáttafordóma og aðskilnaðar væri
liðinn undir lok í Suður-Afríku.
Hvatti hann allar deildir flokksins
til að styðja tillögu flokksforyst-
unnar og gerðu 20 deildir það
þegar í gær.
Jórdaníu í gær, og ákváðu að hitt-
ast að nýju í dag. Margaret That-
cher, forsætisráðherra Bretlands,
og Hussein Jórdaníukonungur
ræddust við í London í gærmorg-
un og að því búnu ráðfærði That-
cher sig símleiðis við George Bush
Bandaríkjaforseta. Ræddi Bush
síðan við bæði Helmut Kohl, kansl-
ara Vestur-Þýskalands, og Fran-
cois Mitterrand Frakklandsfor-
seta.
Að sögn heimildarmanna sáust
engin merki um árangur eftir fimm
stunda viðræður De Cuellars og Aziz
í Amman. Hélt Aziz fast við þá af-
stöðu íraka að Vesturveldin bæru
ábyrgð á stríðsástandinu við Persaf-
lóa og eina lausnin væri að þau
drægju hersveitir sínar og flota burt.
Thatcher hafnaði tiliögum Husseins
til lausnar deilunni. Gengu þær út á
að hinar alþjóðlegu hersveitir yrðu
dregnar til baka frá Persaflóasvæð-
inu samtímis því sem írakar kölluðu
innrásarher sinn frá Kúvæt. I stað
innrásarherjanna tækju arabískar
friðargæslusveitir við hlutverki
þeirra og síðan hæfust samningar
Kúvæta og Iraka um framtíð Kú-
væt. Breskur embættismaður sagði
að leiðtogana hefði greint verulega
á um orsakir ástandsins við Persaflóa
og leiðir til að koma í veg fyrir átök.
Utanríkisráðherrar Arababanda-
lagsins hittust í Kairó í gær og ítrek-
uðu fyrri kröfur sínar um að írakar
dragi innrásarlið sitt frá Kúvæt og
að útlendingum yrði leyft að fara
úr landi.
Bandaríkjastjóm undirbýr nú
miklar loftárásir á írak ef deilan
fyrir botni Persaflóa leysist ekki eft-
ir pólitískum leiðum, að því er blaðið
Newsday í New York hafði eftir
áreiðanlegum heimildum í gær.
Fréttin birtist eftir að George Bush
forseti hafði sagt við blaðamenn að
hann efaðist um að deilan yrði leyst
með samningum. Sagði blaðið engan
ágreining vera um þá leið, einungis
vefðist fyrir ráðamönnum hvenær
láta ætti til skarar skríða. Sú ákvörð-
un kæmi til með að ráðast af því
hversu langt úthald hinar alþjóðlegu
hersveitir í eyðimörk Saudi Arabíu
væru talda'r hafa og hvort takast
mundi að loka glufum sem írakar
hefðu fundið til að bijóta viðskipta-
bann Sameinuðu þjóðanna. Yfirmað-
ur bandarísku hersveitanna á Persaf-
lóasvæðinu sagði í gær að engar
hernaðaraðgerðir væru í undirbún-
ingi og sveitirnar myndu aðeins
bregðast við ef ráðist yrði á þær.
Sýrlendingar kröfðust þess í gær
að Irakar kalli heri sína heim frá
Kúvæt. Sagði Farouq Al-Shara ut-
anríkisráðherra að Sýrlendingar
væru tilbúnir að senda aukið herlið
til Persaflóasvæðisins til varnar
Saudi Arabíu og öðrum Persa-
flóaríkjum.
Jórdanir hafa sent njósnaflugvélar
til þess að fylgjast með hemaðarupp-
byggingu í Saudi Arabíu fyrir íraka,
að sögn háttsettra manna í Israels-
her. Einnig hafa Jórdanir stóraukið
njósnaflug meðfram ísraelsku landa-
mæninum.
Sjá fréttir á bls. 22.
Kostnaður vegna aðgerða við Persaflóa:
Vestræn ríki heita Qárframlögum
Ósló. Frá Hcljir Sarensen, fréttaritara Morgunblaðsins. Bonn, Helsinki, Washington.
VESTUR-ÞYSK sljórnvöld hafa heitið því að taka þátt í kostnaði
af því að halda uppi viðskiptabanni SÞ gegn írökum. „Við eigum
hluta að þessari samvinnu ríkja heims og munum hegða okkur
í samræmi við það,“ sagði Dieter Vogel, talsmaður ríkisstjórnar
Helmuts Kohls. Japanir hafa þegar heitið að leggja fram milljarð
Bandaríkjadollara, m.a. til aðstoðar þeim ríkjum í Mið-Austur-
löndum sem verða fyrir Qárhagslegu tjóni vegna þess að þau
virða viðskiptabannið.
Norðmenn hafa hagnast mjög
á Persaflóadeilunni vegna hækk-
unar olíuverðs. Bandaríkjastjórn
hefur beðið Norðmenn að taka
þátt í kostnaðinum en ákveðin
fjárhæð hefur ekki verið nefnd í
þessu sambandi. Varaformaður
Verkamannaflokksins tekur
dræmt í hugmyndir um að Norð-
menn styrki hernaðaruppbygg-
inguna við Persaflóa með fé, seg-
ir það myndu stangast á við hefð-
ir í utanríkisstefnu landsmanna.
í áætlun Bandaríkjamanna er
gert ráð fyrir að önnur ríki leggi
fram sem svarar um 60 millj-
Reuter.
örðum ÍSK á mánuði. Auk þess
verði nokkrum nágrannalöndum
íraks, þ.e. Tyrklandi, Egyptalandi
og Jórdaníu, veitt umfangsmikil
aðstoð vegna tjóns af völdum við-
skiptabannsins.
Evrópusamband lýðræðis-
flokka lauk þingi sínu í Helsinki
í gær með yfirlýsingu þar sem
tekið var undir kröfur breska for-
sætisráðherrans Margaret That-
cher um að Evrópuríki sendu auk-
ið herlið til styrktar viðbúnaðinum
við Persaflóa eða greiddu hluta
kostnaðarins.