Morgunblaðið - 01.09.1990, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1990
19
- , _ Morgunblaðið/Sverrir
Pau bera veg og vanda af tonleikum Tríós Reykjavíkur í Hafnarborg: Halldór Haraldsson píanóleikari, Ronald Neal fíðluleikari, Unnur
Sveinbjarnardóttir lágfíðluleikari, Guðný Guðmundsdóttir fíðluleikari, Gunnar Kvaran sellóleikari, Gayane Manasjan sellóleikari, Þorkell
Sigurbjörnsson tónskáld og Pétrún Pétursdóttir, forstöðumaður Hafnarborgar.
áherslum."
Unnur Sveinbjarnardóttir er bú-
sett í Þýskalandi þar sem hún star-
far í lausamennsku, hefur leikið tölu-
vert af kammertónlist auk þess sem
hún kemur fram sem einleikari. „Ég
hef aldrei leikið í kvintett Schuberts
áður en hefur lengi iangað til þess,
þar sem þetta er ákaflega fallegt
verk. Tíminn sem við höfum til að
æfa saman er að vísu mjög stuttur.
sem gerir vinnuna erfíðari en jafn-
framt ánægjulegri."
Guðný og Gunnar hafa áður leikið
með gestunum þremur. Síðast hittu
þau Neal og Manasjan á tónlistarhát-
íðinni í Vermont í sumar. í sömu
ferð léku Guðný og Gunnar léku með
Ronaid Levy píanóleikara en hann
verður einmitt gestur þeirra á þriðju
tónleikunum í tónleikaröðinni. Hafa
dómar um þá tónleika verið lofsam-
legir og tríóið sagt leika sem einn
maður.
Aðrir tónleikar í röðinni verða 11.
nóvember, þar sem flutt verða verk
eftir Ravel og Brahms auk þess sem
frumflutt verður tríó eftir Pál
Pampichhler Pálsson. Þriðju tónleik-
amir verða 24. mars. Gestur tríósins
verður Ronald Levy. Á efnisskránni
verður rússnesk tónlist og verða flutt
verk eftir Rachmaninoff, Mússorgskí
og Tsjaíkovskí. Fjórðu tónleikamir
verða svo í byijun júní á Listahátíð
Hafnarborgar. Meðal annars verða
flutt verk eftir Mozart, Beethoven
og Sjostakóvíts en gestur tríósins
verður Margrét Bóasdóttir ljóðasöng-
kona.
Auk þessa stefnir tríóið að því að
leika utan höfuðborgarsvæðisins.
Efnisskrá fyrstu tónleikanna verður
endurtekin þriðjudaginn 4. septem-
ber í Borgarneskirkju og miðviku-
daginn 5. september í safnaðarheim-
ilinu Vinaminni á Akranesi og hefj-
ast báðir tónleikar kl. 20.30, ólíkt
því sem gerist í Hafnarfirði en þar
hefjast. allir tónleikarnir kl. 20. Fyrir-
huguð ferð um Austfirði í byrjun
nóvember og ferð til Norðurlandanna
í lok sama mánaðar. Þá mun tríóið
koma fram á tónleikum Kammer-
músíkklúbbsins síðar í vetur.
Safnaði 650
þúsundum í
áheitahlaupi
JAMES Martin, 31 árs gamall
Englendingur frá Liverpool, og
aðrir starfsmenn Sólningar
höfðu um það forgöngu að safna
áheitum til styrktar rannsókna-
starfsemi Krabbameinsfélags Is-
lands í tengslum við Reykjavík-
urmaraþon 19. ágúst sl.
Fólk hét á James ákveðinni upp-
hæð á hvern hlaupinn kílómetra.
Alls söfnuðust með áheitum 650
þúsund krónur. Þar af er framlag
Sólningar 50 þúsund.
Áheitahlaupið fór fram með þeim
hætti að James Martin velti á und-
an sér vörubílshjólbarða hálft mara-
þon eða 21 km. Hann lauk hlaupinu
á liðlega tveimur klukkustundum.
James Martin afhendir Almari
Grímssyni, formanni Krabba-
meinsfélags Islands, afrakstur
áheitahlaupsins, 650 þúsund
krónur.
Helgarsýning í Nýlistasafninu
MITTERRAND Frakklandsfor-
seti var í opinberri heimsókn
hér á landi sl. miðvikudag. í
fylgdarliði hans var Jack Lang,
menningarmálaráðherra
Frakka. Lang óskaði m.a. eftir
því að heimsækja Nýlistasafnið
og af því tilefni var sett upp
fyrir hann sýning á verkum í
eigu safnsins í húsakynnum
þess við Vatnsstíg 3b.
Á sýningunni eru verk eftir 15
íslenska og erlenda listamenn. Þar
eru bæði eldri verk sem hafa verið
sýnd áður og ný verk sem aldrei
hafa sést opinberlega fyrr en nú.
Fólki gefst kostur á að skoða
þessa sýningu Nýlistasafnsins nú
um helgina. Safnið verður opið
bæði laugardag og sunnudag kl.
14-18.
(Fréttatilkynning)
Vetrarstarf Nýhafnar-
klúbbsins að hefjast
VETRARSTARF Nýhafnar-
klúbbsins hefst mánudaginn 3.
september. Júlíana Gottskálks-
dóttir listfræðingur flytur
fyrsta fyrirlesturinn á haustönn
og fjallar hann um list Svavars
Guðnasonar.
Þetta er fjórða önnin í starfsemi
klúbbsins sem starfar í tengslum
við Listasalinn Nýhöfn, Hafnar-
stræti 18. Starfsemi klúbbsins
byggist á fyrirlestrahaldi um
myndlist, auk þess sem farið hefur
verið í tvær utanlandsferðir í þeim
tilgangi að skoða merkar sýningar
og söfn. Stefnt er að þriðju ferð-
inni á vori komanda.
Fyrirlesturinn hefst í Nýhöfn
kl. 20.30 og er opinn félögum
Nýhafnarklúbbsins.
Breyttur skóli
í nýju húsnæði
Listdansskóli Þjóðleikhússins
tekur til starfa nú í byrjun sept-
ember í nýju húsnæði við Engja-
teig 1. Miklar breytingar hafa
verið gerðar á starfseminni og
verður nú hægt að taka mun fleiri
nýja nemendur inn skólann enn
áður. Þá hafa þrír nýir kennarar
verið ráðnir til skólans þær Hlíf
Svavarsdóttir, María Gísladóttir
og Nanna Ólafsdóttir. Skólastjóri
er Ingibjörg Björnsdóttir.
Inntökupróf fyrir nýja nemendur
fer fram dagana 5. og 6. septem-
ber. Lágmarksaldur er 9 ár og er
ekki nauðsynlegt að hafa stundað
listdansnám áður. Skráning í inn-
tökuprófíð verður 3. og 4. september
frá kl. 16.00 til 19.00. Í vetur verð-
ur í fyrsta skipti boðið upp á opna
tíma tvisvar í viku fyrir framhalds-
nemendur og dansara.
María Gísladóttir ballettdansari
er ein þeirra nýju kennara sem
komið hafa til iiðs við Listdans-
skóla Þjóðleikhússins og mun
kenna þar í vetur. Hér er hún í
hlutverki Svanadrottningar í
Svanavatninu.
POTT
APLÖNTU
20-50% A f S LÁIT u r
Afsláttur á fallegum jukkum og burknum:
JUKKUR 50%
BURKNAR 50%
KAKTUSAR 30%
Okkar árlega pottaplöntuútsala stendur nú yfir. Aldrei
fyrr höfum við boðið jafn góðar plöntur á jafn góðu
verði! Ótrúlegt útval af fyrsta flokks plöntum með
20-50% afslætti!
Dæmi um verð:
Áður Nú Áður
Jukkur 35 sm VTT,- 3%,- Pálmar (Areka) 350!-
Jukkur 45 sm LW2,- 5%,- Pálmar (Areka) L029,-
Jukkur 60 sm L9T7,- 988,- Stofnaskur Í25,-
urknar, minni >4T,- 270,- Gúmmítré 370,-
Burknar, stætri A49",- 324,- Kaktusar, minni J98",-
Fíkusar 3921- 475,- Kaktusar, stærri 380,-
Nú
245,-
720,-
437,-
539,-
139,-
199,-
Sérstök tilboð í tilefni útsölunnar:
KERAMIKPOTTAR 20-40% AFSLÁTTUR.
SfeRLAGAÐUR BLÓMAÁBURÐUR
- KYNHINGARVERO.
Landsbyggðarþjónusta - sendum hvert á land sem er.
Nú er kjörið að fegra umhverfi sitt með fallegum
þlöntum - og ódýrum!
Ibllémwd
Opið alla daga frá kl. 9-21. Sími 689070.
> 4 *r 'rfr!
V
\ w
MÚSIO / SlA