Morgunblaðið - 01.09.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1990
21
Höfn:
273 tonn af humri
á land í sumar
Höfn.
HUMARVERTÍÐ lauk hér á
Höfn fyrir skemmstu. Fiskiðju-
ver Kaupfélags Austur-Skaftfell-
inga tók á móti 229 tonnum af
humri. Af þeim voru 125 tonn
af heilum humri og 104 tonn af
slitnum humri eða humarhölum.
Heildaraflinn svarar til um 150
tonna af slitnum humri.
Á vertíðinni 1989 tók KASK á
móti tæpu 81 tonni af hölum og
71,5 tonnum af heilum humri. Sá
afli samsvarar 103 tonnum um-
reiknaður í hala. Aukning milli ára
er því 46% eða tæp 50 tonn.
Áð sögn Ara Þorsteinssonar hjá
Fiskiðjuverinu var meðalkaupverð
hala 764 krónur kílóið og fyrir kíló
af heilum humri greiddi kaupandinn
(eða KASK) að meðaltali 1.055
krónur. Ari kveður verð hafa verið
að lækka undanfarið í erlendri
mynt og í framhaldi af því ætlar
KÁSK að reyna að selja eitthvert
magn á jólamarkað á Spáni.
Æskan SF lagði upp mestan afla
hjá KASK eða 22.064 kg umreikn-
að í hala. Hvanney SF lagði upp
17.062 kgogLyngey SF 16.636 kg.
Skinney hf. tók á móti 14.997
Morgunblaðið/Hjörtur Gíslason
Ari Þorsteinsson framkvæmda-
syóri Fiskiðjuvers KASK.
kg af heilum humri og 28.592 kg
af humarskottum, alls um 43,6
tonn. Þetta magn mun svara til um
33.211 kg af hölum er það hefur
verið umreiknað.
- JGG
SIF tekur formlega
við franska saltfisks-
fyrirtækinu Nord Moru
Sighvatur Bjarnason ráðinn aðstoðar-
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
1 DAG, laugardaginn 1. septem-
ber, tekur Sölusamband
islenskra fiskframleiðenda form-
lega við franska matvælafyrir-
tækinu Nord Morue, sem samtök-
in keyptu nýverið. Nord Morue
er söíu- og framleiðslufyrirtæki
sem sérhæfir sig i saltfísksrétt-
um fyrir franskan neytenda-
markað. Með kaupunum á
franska fyrirtækinu fær SÍF
greiðari aðgang að frönskum
markaði fyrir íslenskan saltfisk,
sem er virt gæðavara þar í landi.
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins
er Gilles Mercier en hann hefur
gegnt því starfi undanfarin ár og
hafa forráðamenn SÍF endurráðið
hann í starfið. Sighvatur Bjarnason,
sem verið hefur sölustjóri hjá SIF,
tekur samtímis við starfi aðstoðar-
framkvæmdastjóra Nord Morue.
Hann hefur starfað hjá SÍF með
hléum allt frá árinu 1981 er hann
var við nám í viðskiptafræði við
_ Háskóla íslands. Sighvatur lauk
prófi í rekstrarhagfræði frá háskól-
anum í Árósum árið 1987. Að loknu
námi hóf hann störf hjá Útflutn-
ingsráði íslands en hefur starfað
samfleytt hjá SÍF síðaiTi desember
1987. Hann mun sjá um innkaup
og útflutningsmál verksmiðjunnar
svo og vöruþróunar- og markaðs-
mál.
Sighvatur Bjarnason
Verksmiðjufyrirtækið Nord
Morue er í bænum Jonzac í suðvest-
urhluta Frakklands og um 100 kíló-
metra fyrir norðan Bordeaux. Með
þessari fjárfestingu í frönsku fyrir-
tæki er SÍF að styrkja stöðu sína
á Evrópumarkaði og um leið að
auka sölu á saltfisksafurðum frá
íslandi, segir í frétt frá fyrirtækinu.
Finnskir rithöfundar
í Norræna húsinu
HÉR Á landi eru nú staddir 9 fínnskir rithöfundar í stuttri heim-
sókn til að kynna sér land og þjóð. 1 dag, laugardaginn 1. septem-
ber kl. 16.00, munu þeir efna til
skrár í Norræna húsinu.
Jarkko Laine formaður finnska
rithöfundasambandsins mun segja
frá starfsemi þess og auk þess lesa
nokkrir rithöfundanna úr verkum
sínum. Dagskráin fer fram á
finnsku og sænsku og verður túlkur
til aðstoðar ef tungumálaerfiðleikar
skyldu gera vart við sig.
i.þ.b. kiukkustundar langrar dag-
Rithöfundarnir sem eru með í
förinni eru Jarkko Laine, Anni
Lahtinen, Jukka Parkkinen, Arto
Seppálá, Keijo Siekkinen, Anneli
Toijala, Kaarina Toijanniemi, Kaari
Utrio og Kaarina Valoaalto. Allir
eru velkomnir.
Virðisaukaskattur hefur verið felldur niður af bókum.
Réttlætismáli hefur verið komið í höfn og við bjóðum til bókaveislu.
Hundruð bókatitla á hagstæðara verði en nokkru
sinni fyrr. Tækifæri sem býðst aldrei aftur.
Barna- og unglingabækur sem nauðsynlegar eru á
hverju heimili. íslenskur fróðleikur. Æviminningar. Við-
talsbækur. Þýddar bækur. Ástarsögur. Sakamálasögur.
Ljóðabækur.
BÆKUR SEM ALDREI HAFA VERID BOÐNAR
AÐUR A AFSLATTARVERÐI: VERÐ VERÐ
áður nú
Davíö borgarstjóri - Eiríkur Jónsson ... 3.488 1.980
Ástandiö - Bjarni Guöm., Hrafn Jökulsson ... 4.493 2.200
íslendingatilvera - Jón Örn Marinósson .... ... 2.998 1.980
Örlagasaga - Þorsteinn Antonsson ... 2.998 1.490
Aulabandalagið - John K. Tool ... 3.388 1.980
Krabbamein - Heidi Tuft ...1.980 1.390
Nasistar á íslandi - Hrafn og lllugi ... 2.998 1.980
Golfbókin - Geir Svansson ... 2.998 1.980
Gullfoss - Pétur Már Ólafsson ... 4.495 2.200
Hallbjörg - Stefán Jökulsson ... 3.495 1.980
Á miðjum vegi - Ólafur Ketilsson ... 2.885 2.200
Bömin svikin .1.980 1.390
Ættemisstapi og 18 vermenn - Þorsteinn frá Hamri 1.500
Hugarfar úr viðjum vanans 68 980
Gagnnjósnarinn 980
Kiros spádómar um framtíð .... 2.350 1.490
Hvora höndina viltu? - Vita Andersen 980
VEISLAN STENDUR
í NOKKRA DAGA
OPIÐ:
Alla daga nema
sunnudaga..kl 9-18
j Skjaldborg
Ármúla 23 - 108 Reykjavík"
Símar: 67 24 00
67 24 01
31599
sértilboð
SSWoe*éTm
Q'æsiSfreS ?Son'
'an*unaó»1nojm 'an«'
aldirnar. m' ge9num
Sk"dvaitAue,H(!
*gPW«HWim!f£L.
SÉRTILBOÐ
VSSTAN
nitsafn/ð AÐ VESTAN
Ss&znáS*
HMMBIND4VEP®m
WLBqq fcr, 2,aSll^:
Jps®*
■jssSSs:
seinniárum "10,unt)“rá i
meook,. 2.900..