Morgunblaðið - 01.09.1990, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1990
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
f‘■a'fö
í
Þessir hringdu . . .
Undarlegur samanburður
Jóhann Guðmundsson hringdi:
„Hann vekur undrun, saman-
hurður sá er Þórólfur Matthías-
son gerir á launum flugumferða-
stjóra og háskólakennara í grein
sem birtist í Morgunblaðinu hinn
29. ágúst. Flugumferðarstjórar
vinna á vöktum alla vinnuævi
sína, jól páskar og aðrari frídag-
ar gera engan mun þar á. Sumar-
leyfi þessara stétta þyrftu einnig
að koma inn í málið, eðli staf-
anna er svo gerólíkt að ekki
þarf um að íjalla. Það er ótrú-
legt að háskólakennari skuli sýna
slíkt skilningsleysi eins fram
kemur í þessum samnaburði
hans.“
íslensk músík
Kona hringdi:
„Ég sakna þess að heyra ekki
lengur íslenska músík í útvarpi
og virðist það gilda um allar
útvarpsstöðvarnar að íslensk
músík verður útundan. Vil ég
hvetja útvarpsmenn til að flytja
meira af íslenskri músík.“
Gott lainbakjöt
Viðskiptavinur hringdi:
„Ég vil vekja athygli á því
hversu sérstaklega vel útlítandi
og gott lambakjöt fæst í Kjötbúð-
inni við Laugaveg. Margir eru
með aðkenningu að kvefi núna
°g þyngsli fyrir bijósti. Þeim
ráðlegg ég að elda sér lambakjöt
og kjötsúpu og tel víst að fólk
hressist af að snæða svo ágætan
mat.“
Myndavél
Myndavél tapaðist í Græn-
landsferð 13. ágúst. Finnandi
hafi vinsamlegast samband í
síma 36174.
Frakki
Sá sem tók ljósan karlmanns-
frakka í misgripum í Aflagranda
40, Félagsmiðstöð aldraðra,
föstudaginn 24. ágúst er vinsam-
legst beðinn að hafi samband í
síma 622571.
Myndavél
Hinn 10. ágúst tapaðist lítil
sjálfvirk Olympus myndavél í
gráu hulstri á leið frá Hrafnistu
í Reykjavík um Vesturbrún og
til Hafnaríjarðar með vikomu í
Fjarðarkaupum. Filmunar sem í
vélinni var er sérstaklega sakn-
að. Vinsamlegast hafið samband
við Björgvin i síma 94-7674 ef
myndavélin hefur komið í leitirn-
ar.“
Lélagar kvikmyndir
Berglind hringdi:
„Ég er orðin þreytt á því
hversu lélegar kvikmyndir eru
sýndar í Ríkissjónvarpinu. Þær
tvær kvikmyndir sem sýndar
voru sl. laugardagskvöld voru
báðar lélegar. Væri ekki hægt
að sýna a.m.k. eina góða kvik-
mynd á laugardagskvöldum?"
Hjól
Blátt Peugeut hjól hvarf 18.
ágúst frá Mosgerði 12. Það var
með álbrettum, böglabera og gli-
tauga á armi. Ef einhver veit
hvar það er niður komið vinsam-
legast hringið í síma 31254.
Bindisnæla
Silfurbindsnæla tapaðist,
líklega við Laugaveg. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma
666515.
Veski
Svart seðlaveski tapaðist sl.
föstudag í Hafnarfjarðarstrætó.
I því voru skilríki og ávísana-
hefti. Finnandi vinsamlegast hafi
samband við Arngrím í síma
53603.
Myndir
17 slædsmyndir frá Vík og
nágrenni, þar á meðal myndir
af sólarlagi við Reynisdragna,
lentu á flækingi og er þeirra
sárt saknað af eiganda. Vinsam-
legast hafið samband við Þórir
í síma 98-71250 ef þær hafa
einhvers staðar komið í leitirnar.
Köttur
Grár fressköttur hefur verið á
þvælingi við Seilugranda sl. þijá
daga. Hann er ómerktur en með
bláa hálsól. Eigandi hans er vin-
samlegst beðinn að hringja í síma
627227.
Góð þjónusta
Kona hringdi:
„Ég vil þakka fyrir góða þjón-
ustu hjá Bílandi við Fossháls 1
en þeir gerðu við bíl fyrir mig
fyrir skömmu. Verðinu- af stillt
í hóf og þar var góðu viðmóti
að mæta.“
Þakklætið í hávegum haft
Til Velvakanda.
I æsku minni þótti alveg sjálf-
sagt að rétta hver öðrum hjálpar-
hönd, jafnvel þótt menn hefðu þá
stundina annað fyrir stafni.
Greiðslan var að jafnaði: Bestu
þakkir fyrir. Þessi greiðsla var inn-
sigluð með hlýju handtaki. Ég man
líka eftir að ef við börnin fórum í
önnur hús og okkur var gefið eitt-
hvað sagði mamma alltaf þegar
við komum til baka. „Þið hafið
munað eftir að þakka fyrir ykkur."
Þakklætið var í hávegum haft.
Ríkharður myndhöggvari lýsir
greiðaseminni einna best í minn-
ingum um föður sinn sem kom út
í bókinni: Faðir minn. Hún kom
út 1950 og ráðlegg ég fólki að
lesa þær. Mér finnst í dag við vera
.á góðri leið ef við gleymum þessu,
að rétta náunganum hjálparhönd,
og taka ekkert fyrir greiða. Um
leið og maður hættir þessu, missir
maður eitthvað af sál sinni. Það
sem engin greiðsla getur endur-
goldið.
Eg man þegar menn urðu fyrir
miklum búsiíjum, misstu ijölda
fjár, þá var það víða að svei-
tungarnir hjálpuðust að og færðu
þeim ijárstofninn að nýju, þ.e. hver
bóndi gaf, jafnvel af sinni fátækt.
Ef til vill þarf þetta ekki núna,
því allir eru orðnir svo ríkir, jafn-
vel þeir sem eiga ekki það sem
þeir fara með.
1 dag erum við rík þjóð í öllum
erlendu skuldunum. Menn geta
veitt sér það sem þeir girnast og
alltaf er keppnin harðari við ná-
ungann sem er á horninu hinum
niegin.
Lífsgæðakapphlaupið minnir
mig stundum á þegar bílar á þjóð-
veginum á ofsa hraða reyna að
komast framúr þeim sem er á und-
an. Er ekki mikið til í þessu?
Og í allri þessari keppni gleym-
ast sönnustu og bestu verðmætin
sem nokkur dauðlegur maður get-
ur hlotið, gæfa guðs og sálarfriður.
Skömmu eftir að ég kom hingað
á Snæfellsnes, hlotnaðist mér það
að verða ijárhaldsmaður nokkurra
einstaklinga, eldri borgara sem þá
áttu ekki í mörg hús að venda.
Ég kunni ekki að meta þetta
þá, og jafnvel fannst þetta kvöð.
En ég var ekki lengi búinn að
fylgja þessum einstakiingum þegar
ég sá hve gífurleg auðæfi ég hafði
komist yfir og nú sé ég að ég verð
aldrei borgunarmaður fyrir þessu.
Ég reyni að orna mér við minnin-
garnar og er að rita upp brot aí
því sem mér var þarna fært á „gull-
fati“. Og þakklætið sem var í
hveiju fótmáli gleymist aldrei.
Hvernig trúin á algóðan Guð lyfti
þessum sálum í veldi ánægju og
þakklætis var stórkostlegt.
Á þetta minnist ég nú, ef það
skyldi verða einhveijum til um-
hugsunar — að staldra við. Hver
er ávinningurinn af öllum lífsgæð-
um, ef þau eyðileggja hinn andlega
gróður. Handleiðslan var mikil. Og
á henni hefi ég fengið að þreifa
um dagana. Mér þykir sárt að sjá
vini mína og samferðamenn farast
í elfu vímuefna hvern af öðrum,
líf sem hefðu orðið landi og þjóð
blessun og styrkar stoðir, enda á
sorphaugum mannlífsins. Hvernig
skyldi þeim líða sem framleiða allt
þetta eitur og eins þeim sem dreifa
og selja? í trúaijátningunni okkar
standa þessi orð: Mun koma aftur-
í dýrð sinni og dæma lifendur og
dauða. Hvaða dómur? Svari nú
hver fyrir sig.
Árni Helgason
Success
GUARANTEED ^
PERFECTIN
8MINUTES
Cfiicften Aímondme
CfítcRcH Hivcrtvf R/.v wí/i Pastá & Almrndi
Framandi og ógleymanlegur
hrísgrjónaréttur. Löng
hrísgrjón blönduð með ses-
am, möndlum og núðlum og
kryddað á afar sérstæðan
hátt. Svo sannarlega öðruvísi
kjúktingaréttur.
Fyrir 4 - suóutími 8 mín.
Heildsölubirgðin
KARL K. KAKLSSON&CO.
Skúlalúni 4, Reykjavík, sími.62.32 32
TILBOÐ
FRYSTIKISTUR
MÁL H X B X D STÆRÐ GERÐ STAÐGR. VERÐ
90x73x65 1851 B 20 31.950
90x98x65 2751 B 30 35.730
90x128x65 3801 B40 39.960
90x150x65 4601 ■ B 50 43.470
ÁRATUCAREYNSLA
DÖNSK CÆÐATÆKI Á GÓÐU VERÐI
■■■ -—
VISA Jjjjj Samkort
HHH1
8MH§B
@ SAMBANDSINS
VIÐ MIKLAGARÐ SÍMAR 68 55 50 - 6812 66
a
SIGUNGASKOUNN
Námskeið
TIL 30 TONNA
RÉTTINDA
hefst 3. september.
Kennt mánudags
og miövikudags-
kvöld kl. 7-11.
Próf í lok október
Námskeið
TIL HAFSIGUNGA
(Yachtmaster Offshore)
hefst 4. september.
Kennt þriðjudags-
og fimmtudagskvöld
kl. 7-11.
Próf í lok október.
Innritun
og upplýsingar í dag og
næstu daga í símum
689885 og 985-33232.
Öll kennslugögn
fáanleg í skólanum.
SICUNCASKÓUNN
- medlimur i Atþjódasambandi siglingaskóla, ISSA.
-