Morgunblaðið - 25.09.1990, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
911 RH 9197H LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjori
Ll IOU“lIO/U KRISTINNSIGURJONSSON,HRL.loggilturfasteignasau'
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Til sölu - hagkvæm skipti
Aðalhæð 4ra herb. í þríbýlish. við Barðavog. Töluvert endurn. Bílsk.
Glæsil. trjágarður. Skipti æskil. á einbýlish. eða raðh. af meðalstærð
í austurhluta borgarinnar. Má þarfnast nokkurra endurbóta.
Iðnaðarhúsnæði við Höfðatún
á 1. hæð 142 fm nt. auk lítillar geymslu í kj. og kaffistofu í risi. Laust
1. jan. nk. Nánari uppl. aðeins á skrifst.
Góð íbúð við Rauðalæk
3ja herb. lítið eitt niðurgr. í kj. Hiti og inng. sér. Góð sameign. Nýtt
gier o.fl. Skipti æskil. á stærri íb. t.d. I nágrenninu.
í gamla góða Austurbænum
Á aðalhæð í steinh. 3ja herb. ekki stór endurn. íb. Föndurherb. í kj.
Laus strax. Verð aðeins kr. 3,8-4 millj.
2ja herb. góðar íbúðir við:
Dúfnahóla. (Fráb, útsýni.) Stelkshóla. (Góður bílskúr.) Asparfell. (Fráb.
útsýni.) Vinsaml. leitið nánari uppl. %
Sérstaklega óskast á söluskrá
3ja, 4ra og 5 herb. íbúðir. Einkum með bílskúrum. Sérhæðir í borginni
og nágr. og einbýlish. eða raðh. á einni hæð.
Margs konar eignaskipti mögul. Margir bjóða útborgun fyrir rétta eign.
Góðar íbúðir og sérhæðir
óskast íVesturborginni
Fjársterkir kaupendur.
LAUGAVEGi 18 SÍMAR 21150 - 21370
AIMENNA
FASTEIGNASALAN
Sólheimar - háhýsi
Félagasamtök - eldri borgarar
Björt og rúmgóð 4ra-5 herb. íbúð á 8. hæð. Suðursval-
ir. Laus. í húsinu er húsvörður. Tvær lyftur og góð
sameiginleg aðstaða. íbúðin hentar sérlega vel fyrir
aldraða og fatlaða, eða félagasamtök utan af landi sem
vilja eignast orlofsíbúð í Reykjavík.
26600
Fasteignaþjónustan
Amhintrmti 17, t. 2M00.
já&gi Þorsteinn Steingrimsson.
j lögg tasteignasali
Sölumaður Kristján Kristjánsson, hs. 40396.
Yale talíur
Flestargerðirfyrirliggjandi
Yale - gæði - ending
Heildsöludreifing
® JÓHANN ÓLAFSSON & C0. HF.
43 Sundaborg 13-104 Reykjavík - Sími 688 588
V_____________________________________y
Landsþing Sambands
íslenskra sveitarfélaga
LANDSÞING Sambands
íslenskra sveitarfélaga, hið 14.
í röðinni, verður haldið á Hótel
Sögu í Reykjavík 27. og 28. sept-
ember. Þingið sækja um 300
fulltrúar og gestir hvaðanæva
úr heiminum.
Sigurgeir Sigurðsson, formaður
sambandsins, setur þingið kl.
10.00 á fimmtudagsmorgun, en
síðan flytja ávörp Jóhanna Sigurð-
JAFNRÉTTISRÁÐ hefur kom-
ist að þeirri niðurstöðu að ráðn-
ing Ásbjarnar Sigurðssonar í
stöðu fjármálafulltrúa hjá Sel-
fossveitum brjóti í bága við lög
um jafna stöðu og jafúan rétt
kvenna og karla. Auk Ásbjarnar
sóttu um stöðuna tvær konur
og óskaði Sigurbjörg Karlsdótt-
ir Schiöth eftir umsögn Jafn-
réttisráðs um stöðuveitinguna.
í niðurstöðu Jafnréttisráðs kem-
ur fram það mat að báðir umsækj-
endur Ásbjörn og Sigurbjörg séu
vel hæfir til að gegna umræddri
stöðu, en sú síðarnefnda hafi meiri
menntun og lengri starfsreynslu
við ýmis konar skrifstofustörf,
m.a. við bókhald og fjárreiður.
Síðan segir: „Jafnréttisráð get-
ur ekki fallist á að þeir hæfileikar
sem Ásbjörn Sigurðsson hefur að
mati stjórnar Selfossveitna um-
fram Sigurbjörgu Karlsdóttur
Schiöth séu þess eðlis að þeir rétt-
læti að gengið sé fram hjá þeim
umsækjenda sem hefur meiri
menntun og lengri starfsreynslu.
Þeir hæfileikar eða sú þekking á
51500
Hafnarfjörður
Víðihvammur
Góð 4ra-5 herb. íb. á 3. hæð,
ca 120 fm auk bflsk.
Brattakinn
3ja herb. íb. á 1. hæð í forsköl-
uðu timburhúsi.
Hverfisgata
Flöfum fengið tii sölu eldra
timbureinbhús, ca 150 fm.
Mjög fallegur garður.
Hraunbrún
Einbhús (Siglufjarðarhús) ca
180 fm auk bílsk. Æskileg skipti
á 3ja-4ra heb. íb. í Fif.
Lækjarkinn
HÖfum fengið tif sölu gott einb-
hús sem er hæð og ris. Allar
nánari upplýsingar á skrifst.
Hraunbrún
Höfum fengið til sölu stórglæsil.
ca 280 fm eínbhús á tveimur
hæðum auk tvöf. bílsk. ca 43 fm.
Norðurbraut
Efri hæð ca 140 fm auk bílskúrs.
Neðri hæð ca 270 fm. Búið að
samþykkja 3 íb. á neðri hæð.
Hentugt f. byggaðila.
Drangahraun
Höfum fengið til sölu gott iðn,-
og/eða versl.-/skrifsthúsn., 765
fm á tveimur hæðum. Fokhelt.
Vantar - vantar
Höfum kaupendur að 2ja, 3ja
og' 4ra herb. íb. í Hafnarfirði.
Ámi Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.,
Linnetsstíg 3, 2. hæð, Hafn.,
símar 51500 og 51501.
v__—^
ardóttir, félagsmálaráðherra, og
Magnús L. Sveinsson, forseti borg-
arstjórnar Reykjavíkur.
Flutt verður skýrsla um starf-
semi sambandsins síðasta
kjörtímabil og kynntar tillögur til
breytinga á lögum sambandsins.
A fyrri degi þingsins fjallar Jón
G. Tómasson, borgarritari, um
hlutverk sveitarstjórnarmanna,
Tómas Ingi Olrich, menntaskóla-
tölvuhugbúnaði sem þar er rakin,
eru þess eðlis að þeir falla á engan
hátt undir hefðbundna starfslýs-
ingu fjármálafulltrúa fyrirtækis
eða stofnunar. Á það skal einnig
þent að samkvæmt starfsauglýs-
ingu eru ekki gerðar kröfur um
slíka tækniþekkingu, enda venja
að fyrirtæki kaupi þessa þjónustu
af sérstökum tölvufyrirtækjum.“
kennari, flytur erindi um sveitarfé-
lögin og umhverfismál og Kristó-
fer Oliversson, skipulagsfræðing-
ur, ræðir um fjármál sveitarfélaga.
Helgi Númason, bæjarendurskoð-
andi í Hafnarfirði, kynnir reikn-
ingsskil sveitarfélaga, og Þórður
Skúlason, sveitarstjóri og nýráð-
inn framkvæmdastjóri sambands-
ins(> fjallar um hlutverk þess.
Á síðari degi þingsins ræða þeir
Guðmundur Arni Stefánsson, bæj-
arstjóri í Hafnarfírði, og Kristinn
V. Jóhannsson, framkvæmdastjóri
í Neskaupstað, um helstu stjórn-
tæki sveitarstjóma, og Steingrím-
ur J. Sigfússon, samgönguráð-
herra, flytur erindi um samgöngur
og jafnvægi í byggð landsins. í
síðasta erindinu fjallar Davíð
Oddsson, borgarstjóri, um hlut-
verk sveitarfélaga næsta áratug-
inn, verkefni, þjónustu og fjármál.
Landsþing sveitarfélaganna eru
haldin fjórða hvert ár eftir hverjar
sveitarstjórnarkosningar. Það fer
með æðsta vald í málefnum sam-
bandsins og kýs því 9 manna stjórn
og 25 manna fulltrúaráð, sem
kemur saman árlega. Rétt til setu
á þinginu eiga fulltrúar allra sveit-
arfélaga landsins, sem era 204,
30 bæir og 174 hreppar.
Baltnesk tónlist
Tónlist
JónÁsgeirsson
Norræna húsið stóð fyrir fróð-
legum tónleikum sl. sunnudag,
þar sem leikin voru píanóverk
eftir tónskáld frá Eistlandi,
Lettlandi og Litháen. Flytjandi
var Vardo Rumessen en hann
er kennari við Tónlistarháskól-
ann í Tallin. Eins og fleiri tónlist-
armenn frá baltnesku ríkjunum
hefur Rumessen verið atkvæða-
mikill í stjórnmálum enda voru
tónleikarnir helgaðir því mark-
miði að leiða í ljós sérkenni balt-
neskrar listar, sem hlýtur að
vera mikilvægur þáttur í sjálf-
stæðisbaráttu baltnesku þjóð-
anna. Áþján og undirokun er
ekki aðeins efnahagsleg og
stjómmálaleg, heldur einnig að
hamla gegn sjálfstæði í hugsun
og listrænni sköpun. Það hefur
fram að þessu tekist gagnvart
baltnesku ríkjunum, að því leyti
að Vesturlandabúar þekkja lítið
sem ekkert til menningarviðleitni
baltverja.
Nú er tekið að rofa til og þá
berast til eyrna raddir, sem gefa
til kynna að baltverjar séu enn
til sem þjóðir, sem er kraftaverk,
að þær skuli hafa lifað af al-
þjóðahyggju kommúnismans.
Þetta hefðu íslenskir tónlistar-
menn mátt hafa í huga, með því
að fjölmenna á tónleika Rumess-
en. Flutt voru verk eftir Kalnins,
Ciurlionis, Saar, Tobias og Tub-
in. Allt eru þetta höfundar sem
meira eða minna hafa týnst
Vesturlandabúum í mannhaf
Sovétríkjanna og því er heim-
sókn Rumessen ekki aðeins mik-
ilvægur tónlistarviðburður, held-
ur og kennslustund til upprifjun-
ar um frelsis- og menningarbar-
áttu okkar íslendinga.
Fluttar voru fyrst tvær prelúd-
íur eftir Alfreds Kalnins (1879-
1951) en hann var frá Riga og
rektor tónlistarháskólans þar í
borg. Eftir hann liggja um 700
tónverk og þar af um 300 ein-
söngsverk. Annar í röðinni var
Mikalojus Konstantinas Ciurlion-
is (1875-1911), frá Varena í Lit-
háen en hann var fyrst og fremst
listmálari og einnig ágætt tón-
skáld. Ciurlionis var dulspeking-
ur, sem áleit að náttúran væri
frumkraftur að þeim listgreinum
sem hann stundaði. Eftir hann
voru leiknar fjórar prelúdíur,
mjög sérkennileg og falleg tón-
verk.
Þriðja tónskáldið sem Ru-
messen kynnti var Mart Saar
(1882-1963) frá Eistlandi. Hann
nam tónsmíðar hjá Rimskí-Kor-
sakov og safnaði eistneskum
þjóðlögum, svo sem heyra má í
þeim 400 kórverkum sem hann
samdi. Eftir hann lék Rumessen
þrjú verk, tvær prelúdíur, sem
voru nokkuð litaðar af blæbrigð-
um sem Debussy notaði, en
þriðja verkið, Masúrki í h-moll
(1908) er sérlega skemmtileg
tónsmíð. Annar nemandi frá
Rimskí-Korsakov, Rudolf Tobias
(1873-1918), átti verk á tónleik-
unum en það var Valborgamessa
(1910) sem er eins konar próg-
amverk, þó nokkuð erfítt, er
Rumessen lék mjög vel.
Síðasti höfundurinn á þessum
gagnmerku tónleikum var Euard
Tubin (1905-1982) frá Eistlandi.
Tubin flúði til Svíþjóðar í lok
heimsstyijaldarinnar síðari og
varð sænskur ríkisborgari 1961.
Tubin lagði mikla áherslu á að
kynna nútímatónlist og stjómaði
m.a. frumflutningi á Sálmasin-
fóníunni eftir Stravinski í Eistl-
andi árið 1936. Tvö verk voru
leikin eftir Tubin en það fyrra
var Tvær þjóðvísur frá heimal-
andi mínu (1947) og það síðara
Sónata nr. 2. Þessi sónata var
nefnd „Norðurljósasónatan“
(1950), sem er túlkun á þeim
áhrifum sem hann varð fyrir er
hann sá norðurljós í fyrsta sinn.
Sónatan er nokkuð laus í formi
en á köflum fallega unnið verk
og vandasamt í flutningi.
Rumessen er sérkennilegur en
góður píanisti og var flutningur
hans á sónötunni eftir Tubin,
Prelúdíunum eftir Ciulionis,
Masúrkanum eftir Saar og Val-
borgarmessu Tobiasar mjög góð-
ur og nokkuð í að missa fýrir
þá, sem ekki gáfu sér tíma til
að leggja við eyra þegar mikið
lá við fyrir baráttubræður okkar
baltvetja.
Jafnréttisráð um stöðuveitingu hjá
Selfossveitum:
Brýtur í bága við lög um
jafna stöðu kynjanna