Morgunblaðið - 25.09.1990, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 25.09.1990, Qupperneq 56
Fjárlagafrumvarpið: Hallinn á -næsta ári verði 3,5 milljarðar Ríkisstjórnin hefur í aðalatrið- um náð samkomulagi um íjár- lagafrumvarp fyrir næsta ár. Var gengið frá því um helgina. Fjármálaráðuneytið hefur ekki viljað gefa upplýsingar um frum- varpið fyrr en það verður lagt fram á Alþingi 11. október. Samkvæmt ’upplýsingum Morgunblaðsins, er niðurstaða frumvarpsins sú að um 3,5 milljarða króna halli verði á ríkissjóði á næsta ári. Það svarar til um 1% af vergri landsfram- leiðslu. Þetta er svipuð niðurstaða og á síðasta ári. * Islenskur "fiskur í gúanó í Þýskalandi EINN fimmti hluti þess karfa og ufsa, sem seldur var úr íslenskum gámum í Vestur- Þýskalandi síðastliðinn þriðju- dag fór í gúanó, svo og hluti fisks úr einum gámi í gær, að sögn Vilhjáims Vilhjálmssonar framkvæmdasljóra Aflamiðlun- ar. „Það var lélegur fiskur á ferð- inni í fyrri hluta síðustu viku, þar sem leiðindaveður og lítið fiskirí var 'síðustu tvo tii þijá dagana áður en sett var í gámana. Fiskur- inn var því tveim dögum eldri en vanalega. Þá var flutningaskipið sólarhring á eftir áætlun og talað var um að gámarnir hefðu verið illa einangraðir. Aftur á móti hefur dregið verulega úr því að fiskur fari í gúanó,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson. Fallhlífarstökk íþágu umferðarátaks KrorgunMM/RAX Elfa Gísladóttir leikkona, einn af- forsvarsmönnum hóps um bætta umferðarmenningu, sveif í gær til jarðar á Hagatorgi sem farþegi Rúnars Rúnarssonar fallhlífastökkvara. Þar með hófst formlega um- ferðarátak, sem standa mun út vikuna. Átakinu lýkur með því að vígð verður varða með krossi í Kúagerði við Reykjanesbraut, en þar hafa orðið mörg banaslys. Varðan á að verða ökumönnum til áminningar. Ný afurð til útflutnings: Samið um sölu á 200-300 tonnum af saltfískmarningi Þegar búið að flytja út 120 tonn SAMNINGAR hafa verið gerðir um sölu á 200-300 tonnum á saltfisk- marningi til útfiutnings og hafa um 120 tonn þegar verið flutt utan í tilraunaskyni. Marningurinn er gerður úr afskorningum og afgangs- fiski, sem hingað til hefur verið hent. Erlendis er þessi nýja útflutn- ingsvara notuð í ýmsa fiskrétti, til dæmis fiskbúðing og -bollur. Að sögn Magnúsar Gunnarsson- ar, framkvæmdastjóra Sölusam- bands íslenzkra fiskframleiðenda, hefur tilraunaframleiðsla á salt- fiskmarningnum nú farið fram í eitt ár hjá Norðurfiski í Keflavík og gefið góða raun. „Þettá er árang- ur af þróunarvinnu á rannsókna- stofunni hér hjá okkur. Þetta er marningur, sem unninn er úr útlits- gölluðum saltfiski, saltfiskafrifum, þunnildum og öðru því sem ekki nýtist við pökkun á saltfiski. Fram- leiðslan er nú að komast af tilrauna- stiginu, salan hefur gengið vel og við verðum varir við vaxandi eftir- spurn eftir þessari nýju vöru,“ sagði hann. Magnús sagðist telja saltfisk- marninginn framtíðarafurð, sem SIF myndi bjóða á breiðum grund- velli á mörkuðum sínum. „Það hefur Trilla sökk undan Rifí: Báturinn hífður upp af hafsbotni STARFSMENN Köfunarstöðvarinnar hífðu í gær Ármann SH, 10 tonna trillu sem sökk skammt undan Rifi á sunnudagskvöld, af hafsbotni. Áhöfn Ármanns, tveir menn, bjargaðist við illan leik í gúmmíbát. Báturinn var hífður af hafsbotni, sjó dælt úr honum og hann síðan dreginn til hafnar. Verið var að vinna við hafnar- bætur á Rifi og fékk tryggingarfé- lag bátsins, Tryggingamiðstöðin hf., starfsmenn Köfunarstöðvar- innar til að annast björgunina. Báturinn lá á um 15 faðma dýpi og hafði rekið allt að 3 mílur til vesturs frá því að mennirnir yfir- gáfu hann marandi í kafi. Matsmenn Tryggingamiðstöðv- arinnar koma til Olafsvíkur í dag. Skemmdir voru ekki fullkannaðar þegar Morgunblaðið hafði spurnir af í gærkvöldi. Páll Ingólfsson, umboðsmaður Tryggingamið- stöðvarinnar, sagði þó að skrokk- ur bátsins virtist vera lítið eða ekkert skemmdur. Morgunblaðið/Snorri Böðvarsson Sjómennirnir af Ármanni á bryggjunni í Ólafsvík, Magnús G. Emanúeisson til vinstri og Ríkharður Hjörleifsson skipstjóri. Ekki er vitað um ástæður þess að Ármann SH sökk. Veður var gott þegar atburðurinn átti sér stað. Fulltrúi Sjóslysanefndar var viðstaddur björgun bátsins í gær. Sjá viðtal við skipsijórann á miðopnu. fyrst og fremst verið Frakklands- markaður, sem hefur keypt þessa tilraunavinnslu. Ég held að þetta sé mjög stórt skref í bættri nýtingu á því hráefni, sem menn eru með á milli handanna," sagði hann. Að sög;n Magnúsar hefur SÍF selt marninginn á tiltölulega lágu verði hingað til. „Þetta er ennþá tilraunaframleiðsla hjá okkur, en þegar menn hafa fengið reynslu af afurðinni og eru búnir að átta sig á því hvað þeir geta gert við hana, eykst áhuginn og verðið hækkar,“ sagði hann. „Afurðin er ný, þannig að það er ekki verið að fara inn á markað og keppa við aðra, heldur búa til rnarkað." Hraðakstur: 93 teknir LÖGREGLAN í Reykjavík kærði 93 ökumenn fyrir of hraðan akst- ur um helgina. Flestir óku á 80-100 kílómetra hraða á klukku- stund en fimm voru sviptir öku- réttindum til bráðabirgða vegna hraðaksturs. Tveir voru stöðvaðir í kappakstri í Elliðavogi við Holtaveg og mældist liraði beggja 118 kílómetrar. Tveir voru teknir á ofsahraða í Ártúns- brekku, annar á 120, hinn á 110 og sá fimmti ók á 134 kílómetra hraða um Suðurlandábraut.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.