Morgunblaðið - 25.09.1990, Page 45

Morgunblaðið - 25.09.1990, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990 45 arprófi og framtíðin var björt. En leiðir skildu um hríð. Hugir manna stefndu í ýmsar áttir. Fyrir tæpum áratug lágu þær saman aft- ur og í stað æskukynna urðu sam- verustundirnar nánari, í gamni og alvöru, úti sem inni og það allt árið. Það hjálpaði til, að konurnar unnu í sama húsi, en á þeim bæ er fólki oft hóað saman til fagnaða. Þá var stofnað litríkt félag vina og kunningja úr ýmsum hornum þjóðfélagsins, sem gengið hefur undir ýmsum nöfnum, en með þjóð- legan fróðleik og samát á stefnu- skrá sinni. í báðum þessum hópum hefur Jóhannes verið hrókur alls fagnaðar, óspar á þverrandi orku sína og brunnur skemmtilegra hug- mynda. Þriðji hópurinn, sem í hafa átt sæti fimm trúnaðarvinir í meira en sex ár, var þá sá nánasti. Þar hefur verið mætt einu sinni í viku og í stærri hóp, sem sá minni er hluti af, einnig einu sinni í viku hverri. Þar hefur sjálfs- og mannrækt skip- að öndvegi og eflt alla aðila til að stunda betra og ríkara líferni. Nú er skarð fyrir skildi á öllum þessum vígstöðvum. í mörg ár hefur Jóhannes barist við Parkinsonsveiki, sem var honum óvæginn, en Jóhannes var líka - óvægin við veikina og neytti allra krafta til að láta hana ekki buga sig. Enginn má við ofurefli, svo sjúkdómurinn og sá með ljáinn höfðu sitt fram á endanum. Þrotinn af kröftum lést Jóhannes í stuttri ferð sinni til Helsinki 15. september sl. aðeins tæpra 53ja ára að aldri. Við sem unnum honum, erum þakkláUfyrir, að heilsteyptur góð- vinur skyldi fá að fara með reisn, óbugaður, þó við hefðum viljað í eigingirni okkar njóta hans lengur. Það var honum sjálfum líka hið mesta mál. Við fjórir, sem eftir erum úr viku- lega hópnum og fjölskyldur okkar, sendum Önnu Fríðu og niðjum þeirra Jóhannesar hugheilar sam- úðarkveðjur. Hrafn Pálsson Jóhannes L.L. Helgason varð bráðkvaddur í Finnlandi fimmtánda þessa mánaðar. Nokkrum dögum áður en hann fór til Finnlands leit hann inn á skrifstofuna hjá okkur. Að vanda var margt skrafað á kaffi- stofunni í það skiptið sem endranær þegar Jóhannes kom við, sagðar sögur, bæði í gamni og alvöru, þó mest í gamni, mikið hlegið. Jóhann- es kvaddi okkur síðan með enn einni gamansögu og við ákváðum að hitt- ast fljótt aftur. Þrátt fyrir hið létta yfirbragð og viðmót Jóhannesar fór ekki framhjá okkur að sjúkdómur sá sem hann gekk með var farin að há honum verulega. Engum okkar datt þó í hug að þetta væri í síðasta sinn sem við sæjum Jóhannes á lífi. Hugurinn leitar nú til baka til okkar fyrstu nánu kynna, sem voru í lagadeild Háskóla Islands. í skóla bar Jóhanness af öðrum sem frá- bbær námsmaður. Hann var góður félagi, vinsæll og hrókur alls fagn- aðar hvarvetna þar sem fleiri komu saman. Við útskrifuðumst saman úr iagadeild vorið 1962 . Á þessum árum kynntist ég for- eldrum Jóhannesar, öndvegishjón- unum Helga Jóhannessyni loft- skeytamanni og Dagmar Árnadótt- ur. Helgi var sonur Jóhannesar L.L. Jóhannessonar prests á Kvenna- brekku _ í Dölum en Dagmar var dóttir Árna Jónssonar trésmíðam. í Rvík. Það stóðu styrkir stofnar að Jóhannesi í báðar ættir. Að loknu háskólanámi gerðist Jóhannes deildarstjóri hjá Vátrygg- ingafélaginu hf. og vann þar til ársloka 1962. Af starfi hans var m.a. sögð sú saga að hann hefði tekið við starfi tveggja manna sem höfðu ekki undan afgreiðslu verk- efna sinna. Þegar Jóhannes hafði unnið þarna í nokkrar vikur var málabunkinn sem hann tók við af- greiddur og hann óskaði eftir fleiri verkefnum. Það var þó ekki verk- efnaskortur sem varð til þess að Jóhannes skipti um vinnu og tók að sér starf háskólaritara í ársbyij- ■un 1962. Ástæða þéss var vafa- laust margþætt en ekki síst hvatn- ingarorð háskólarektors sem vildi njóta starfskrafta hans, þekkingar, gjörhygli, samviskusemi og dugn- aðar og á hinn bóginn áhugi Jó- hannesar á kennslu og skólamálum almennt. Starfi sínu sem háskólarit- ari gegndi hann til 1971 við mikinn og góðan orðstír. Áhugi Jóhannesar á kennslustörfum birtist á þessum árum í því að hann gerðist kennari í sínum gamla skóla, Verslunar- skóla íslands, frá 1966 til 1977 og síðar einnig í háskólanum frá 1971-1988. Við Jóhannes rákum saman lög- mannsstofu í samvinnu við Guð- mund Ingva Sigurðsson hrl. og Svein Snorrason hrl. til ársins 1977. Það tímabil verður okkur öllum ógleymanlegt. í lögmannsstarfinu, sem ekki hvað síst er fólgið í ráð- gjöf af ýmsu tagi, naut Jóhannes sín vel. Þekking hans, skarpskyggni og dómgreind ásamt jákvæðu og alúðlegu viðmóti varð fljótt til þess að hann varð hlaðinn störfum. Þótti hveiju máli vel borgið í hans hönd- um. Við félagar Jóhannesar nutum samvistanna við hann sem félaga og góðan vin, í umræðum um fag- lega lausn erfiðra úrlausnarefna og spjalli af léttara tagi. Fáum var betur gengið að koma öðrum til að hlæja, varpa ljósi léttleikans inn í grámyglu hversdagsleikans. Það var aldrei lognmolla þar sem Jó- hannes var. Á árinu 1977 skipuðust veður svo að Happdrætti Háskóla íslands fékk Jóhannes til starfa sem for-. stjóra og því starfi gegndi hann til æviloka. Eg hef fyrir satt, að Há- skóli Islands þakki Jóhannesi það, að þessi lind fjármagns til háskóla- starfseminnar hafi haldið áfram að vera jafn gjöful og hún er enn í dag, þrátt fyrir mjög aukna ásókn annarra aðila á undanförnum árum í hliðstæða ijármögnun. Samhliða starfi fyrir Happdrætti HÍ. gegndi Jóhannes áfram kennslustörfum auk þess sem á hann hlóðust ýmis önnur ábyrgðarstörf. Hann átti sæti í ríkisskattarefnd um tíma, var varaformaður matsnefndar eignar- námsbóta frá 1973 auk þess sem hann átti sæti í stjórnum Stúdenta- félags Reykjavíkur, Lögfræðifélags íslands, Verslunarskóla íslands og Lögmannafélags íslands. Hann var skipaður setudómari í Hæstarétti íslands í nokkrum málum. Lifsförunautur Jóhannesar hefir verið hans ágæta eiginkona Anna Björgvinsdóttir. Mér er til efs að til séu mörg jafn myndarleg og hlý- leg heimili og þau hjónin áttu í Hjálmholti 13 og reyndar einnig í sumarbústaðnum við Þingvallavatn. Það var gott að sækja þau Önnu og Jóhannes og börn þeirra tvö, Helga og kristínu, heim. Það var gaman að vera með þeim, það dróg- ust allir að þeim hvar sem þau fóru. Veikindi Jóhannesar á síðustu árum vörpuðu vafalaust skugga á tilveru þeirra, en hvorugt lét á því bera. Jóhannes skilur eftir í hugum okkar, sem honum kynntumst sterka mynd af glæsilegum manni með fas og framkomu alla, sem bar vott um óvenjulega mikinn dugnað og kraft, einbeittan vilja og skýra hugsun. Jóhannes gumaði aldrei af verkum sínum eða eigin ágæti, fór frekar leynt með, ef eitthvað var. Þeir sem til þekkja, og þeir eru margir, meta Jóhannes og það mikla ævistarf sem hann skilaði að verðleikum. Við hjónin færum Önnu, fjöl- skyldu hennar og öðrum ástvinum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guðrún R. Eiríksdóttir og Jónas A. Aðalsteinsson „Það syrtir að er sumir kveðja." Við óvænt andlát Jóhannesar Lár- usar Lynge Helgasonar langt um aldur fram eru vinir hans slegnir djúpri hryggð. í hópi skólafélaga var hann í sérstökum metum og aðrir sem hann átti samleið með lengur eða skemur komu fljótt auga á mannkosti hans þ. á m. leiftrandi gáfur og kímni, einstaka réttsýni og drenglyndi í hvívetna. Jóhannes var fæddur í Reykjavík 20. október 1937, sonur hjónanna Helga loftskeytamanns Jóhannes- sonar og konu hans, Dagmar Árna- dóttur. Helgi var hægur og traustur en hún hress til orðs og æðis. Bæði voru þau einkar alúðleg við skólafé- laga Jóhannesar sem að garði bar og er ljúft að minnast umhyggju- semi þeirra og hiýju á fallegu heim- ili þeirra. Þau létust bæði alltof snemma fyrir mörgum árum. Jó- hannes, sem var skírður nafni föð- urafa síns hins vel kunna kenni- manns er lengi sat að Kvenna- brekku í Dölum, erfði kosti úr báð- um ættum og fór vel á því þar sem hann var einbirni. Á uppvaxtarárum sínum var hann í sveit og til sjós og kynntist því þjóðlífínu vel. Námsferill Jóhannesar var glæsi- legur og starfsferill merkur. Hann iauk stúdentsprófi frá Verslunar- skóla íslands 1956 yngstur bekkjar- systkina, lagaprófi frá Háskóla ís- lands 1962, lét sig reyndar ekki muna um að festa í fótspor föður síns og taka loftskeytamannspróf 1959 meðan á háskólanáminu stóð, var háskólaritari HÍ 1963—71, rak málflutningsskrifstofu 1971—77 og gerðist þá forstjóri Happdrættis HI sem hann var til æviloka. Réttindi ÆFINGABEKKIR HREYFINGAR (áður Flott form - Engjateigi 1) Léiöbeinandi: Sigrún Jónalansdóttir Nuddbekkur Slökunarbekkur Er 7 bekkja æfingakerfið fyrir big? Reynslan hefur sýnt að þetta æfingakerfi hentar sérlega vel fólki ó öllum aldri sem ekki hefur stundað einhverja líkamsþjólfun í langan tíma. Æfingakerfið er einnig gott fyrir fólk sem ekki stundar almenna leikfimi vegna stífra vöðva o.fl. 7 bekkja æfingakerfið liðkar, styrkir og eykur blóðstreymi til vöðva þannig að rúmmól þeirro minnkar. Einnig gefur það gott nudd og slökun. Getur eldra fólk notið góðs af bessum bekkjum? Jó, þessi leið við að hreyfa líkamann er þægileg, liðkar og gefur góða slökun. Og er þess vegna kjörin fyrir eldra fólk. Innritun frá kl.1M5ísíma 30460. Frír kynningartími. HREYFING Ármúla 24. Sími 680677 aBBK8nfe»»?n ReYnSU" ■ðunaSndTreks«ar6rví!8"'él Hjá okkur sitja gæðin í fyrirrúmi. FAG kúi u- og rúllulegur TIMKEN Keilulegur (=^> Ásþétti optjbeit (onlinenlal Viftu- og tímareimar precision Hjöruliðir ÍSACHS Höggdeyfar ogkúplingar F'MaiT'i Bón- og bílasnyrtivörur Þekking Reynsla Þjónusta FALKINN SUÐURLANDSBRAUr 8 SÍMI 84670

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.