Morgunblaðið - 25.09.1990, Side 54

Morgunblaðið - 25.09.1990, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990 Ólafsvík: Bókagjöf til dvalar- heimilisins Jaðars Ólafsvík. í SUMAR barst dvalarheimilinu Jaðri góð gjöfþegar Gísli Olafs- son frá Geirakoti gaf því bóka- Leiðrétting Villa var í frétt Morgunblaðsins síðastliðinn laugardag um síðustu réttir haustsins. Stóðréttir verða í Laufskálarétt, Víðdalstungurétt og í Svarfaðardal 6. október og í Borg- arrétt í Eyjafirði 13. október. Beð- ist er velvirðingar á mistökunum. safn sitt til minningar um for- eldra sína Ólöfu Einarsdóttur og Ólaf Gíslason er bjuggu í Geirakoti. Að sögn Öldu Vilhjálmsdóttur, forstöðumanns, er þetta góð og mikil gjöf sem kemur sér vel fyrir vistfólk. Safnið er yfir 800 bindi, verk innlendra höfunda þar á meðal heil ritsöfn. í heild er safn- ið vandað og gott bæði til fróð- leiks og afþreyingar. Er Jaðar og heimilisfólk þa_r í mikilli þkkar- skuld við Gísla Ólafsson fyrir þessa kærkomnu gjöf. Helgi Blönduós: Urðarbraut 1 val- in fallegasta lóðin Blönduósi. VIÐURKENNIGAR fyrir fallegar og vel hirtar lóðir á Blönduósi voru veittar fyrir skömmu. Það var formaður bygginganefndar Blönduóss sem veitti íbúum á Urðarbraut 1, viðurkenningu fyrir fallega og vandlega hirta lóð. Ennfremur hlaut hesthúseigandi viður- kenningu fyrir snyrtilega umgengni og viðhald við hesthús sitt. Það er komin hefð á það að veita árlega viðurkenningar fyrir snyrti- legar og vel hirtar lóðir á Blöndu- ósi. Að þessu sinni fengu hjónin á Urðarbraut 1, Gíslína Torfadóttir ■^og Ágúst Friðgeirsson, viðurkenn- ingu fyrir fallega og vandlega hirta lóð og Ragnar I. Tómasson fékk viðurkenningu fyrir snyrtilega um- gengni og umhirðu á hesthúsi sínu sem er í hesthúsahverfi Blönduós- inga í Arnargerði. Það var formað- ur bygginganefndar Blönduóss, Rúnar Þ. Ingvarsson, sem veitti viðurkenningarnar í smákaffisam- sæti á Hótel Iilönduósi fyrir skömmu. Jón Sig. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðiflundsson Nesbú hf., en hér fer eggjaframleiðslan fram. Hænsnabú á Vatnsleysuströnd fær viðurkenningu fyrir snyrtimennsku Vogum. HÆNSNABÚIÐ Nesbú hf. á Vatnsleysuströnd fékk nýlega viðurkenningu frá fegrunar- nefnd Vatnsleysustrandar- hrepps fyrir snyrtilegt um- hverfi. Hænsnabúið var eina fyrirtækið sem fékk viðurkenn- ingu í ár. Nesbú hf. sem verður tuttugu ára á næsta ári rekur umfangsmik- ið hænsnabú á þremur stöðum á Vatnsleysuströnd. Þar fer fram stofnræktun, útungun, ungaeldi og framleiðsla á eggjum. Sigurður Sigurðsson einn eigenda Nesbús segir gaman að fá svona viður- kenningu, enda hafi eigendur fyrir- tækisins lagt áherslu á þrifnað og gott útlit, og það eigi við bæði innan húss og utan, og jafnt hjá hænsnum og fólki. Hann segir reksturinn hafa Sigurður Sigurðsson með unga í ungaeldishúsi, verðandi varphænur. gengið upp og niður og að þeim sig eins og hefur verið að gerast Nesbúsmönnum þyki verst að sjá að undanförnu í fiskeldinu." fyrii-tæki fara á hausinn í kringum - EG Námskeið kjötmatsmanna á Sauðárkróki: Legg mikla áherslu á þjálf- un starfsfólks sláturhúsanna unar á námskeiði sem þessu. Taldi Andrés að kjötmatsmál væru almennt í góðu horfi, hinsveg- ar yrði það ekki, nema stöðugt væri hlúð að starfinu með vakandi umræðu og eftirliti. Gerðar væru stöðugt meiri og harðari kröfur um hreinlæti og rétta flokkaskiptingu á hráefninu og því yrðu menn að vera_ vel á verði. „Ég legg mikla áherslu á þjálfun starfsfólks sláturhúsanna og tel að það sé forsenda fyrir því að fram- leidd sé góð vara. Þessi námskeið eru haldin til þess að mæta meðal annars þeirri þörf. Það er nefnilega ekki nægilegt að vera með stór, falleg og vel búin sláturhús, ef eng- inn kann vel til verka, það er kunn- átta og færni þeirra sem um slátur- afurðirnar fjalla sem sker úr um það hvort um góða framleiðsluvöru er að ræða eða ekki,“ sagði Andrés Jóhannesson. Hann telur einnig nauðsynlegt að lengja það tímabil sem slátrun fer fram og haga framleiðslunni í samræmi við kröfur markaðarins. „Ég er einnig afar ósáttur við þá stefnu að leggja niður litlu slátur- húsin, meðal annars vegna þess að þau geta miklu betur en hin komið til móts við þarfir markaðarins og einnig eru þau í betri og nánari tengslum við hinn almenna neyt- anda.“ Að lokum kvaðst Andrés mjög þakklátur fyrir þá aðstöðu sem fengist hefði á Sauðárkróki, bæði á fundarstað og í sláturhúsunum, sem slátruðu sérstaklega til þess að þátttakendur á námskeiðinu fengju ferskt hráefni til þess að íjalla um og meta. - BB. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Ágúst Friðgeirsson, Gíslína Torfadóttir og Ragnar I. Tómasson. - segir Andrés Jóhannesson Sauðárkróki. Um mánaðamótin ágúst-sept- ember fór fram á Sauðárkróki námskeið fyrir kjötmatsmenn frá öllum sláturleyfishöfum, víðsvegar af landinu. Var nám- skeiðið haldið í húsnæði Fjöl- brautaskólans á Sauðárkróki, en verkleg kennsla fór fram í slátur- húsum Slátursamlags Skagfirð- inga og Kaupfélags Skagfirð- inga. Undirbúningur og stjórnun námskeiðisins var á vegum Yfir- kjötmats ríkisins og Andrésar Jóhannessonar yfírkjötmats- manns. Fyrri dag námskeiðsins var fjall- að um ýmsa þætti sem vörðuðu meðferð og meðhöndlun hráefnis allt frá því er slátrun fer fram og til þess að um fullunna markaðs- vöru er að ræða. Fyrirlestra fluttu: Þorgeir Hlöð- versson siáturhússtjóri Kaupfélags Þingeyinga, um stjórnun slátrunar; Sigurður Örn Hansson dýralæknir, um meðferð á sláturdýrum fyrir slátrun og um flutning sláturafurða á markað; Hilmar Hilmarsson kjöt- iðnaðarmaður um kjötmat og sölu- mál; og Andrés Jóhannesson kjöt- matsformaður og Stefán Vilhjálms- son dýralæknir um kjötmat. Síðari dag námskeiðsins fór fram verkleg kennsla í sláturhúsunum þar sem meðal annars var fjallað um kjötskoðun og kennsla var í meðferð fitumæla. Einnig fór þá fram hæfnispróf í kjötmati, og voru niðurstöður kynntar þátttakendum. Að lokum fluttu erindi Biynjólfur Sandholt yfirdýralæknir um heil- brigðisskoðun á kjöti og Sigurður Sigurðarson dýralæknir, um varnir gegn smitsjúkdómum. Andrés Jóhannesson kjötmats- formaður taidi að námskeiðið hefði tekist vel, þó taldi hann að þörf hefði verið á meiri tíma, þar sem af nógu væri af að taka, tii umfjöll- Fjölbrautaskóli Suðurnesja: Nemendum hefur heldur fækkað Keflavík. KENNSLA við Fjölbrautaskóla ja»Suðurnesja hófst 10. september og verða nemendur á haustönn 583. Nemendum hefur heldur fækkað frá síðasta ári en þá voru þeir liðlega 600 á haustönninni. Ægir Sigurðsson aðstoðarskóla- meistari sagði í samtali við Morg- unblaðið að engar meiriháttar breytingar yrðu á skólastarfinu, þeir hefðu þó ætlað að vera með kennslu í netagerð en af því hefði ekki getað orðið að þessu sinni. Nýnemar sem nú hófu nám eru 188 og er það nokkur fækkun frá fyrra ári. Éinnig er starfrækt öld- ungadeíld við skólann og verða nemendur í öldungnum 120 á önn- inni. Ægir sagði að sér virtist sem flestir þeirra er hygðust ljúka stúd- entsprófi veldu hagfræði eða mála- braut sem aðalbrautir. Verknáms- deildir eru einnig starfræktar við skólann og þar er verknám vélstjóra þekktast. Námsflokkar verða í boði með Morgunblaðið/Björn Blöndal Enginn var skyldugur til að mæta í hina hefðbundnu busavígslu sem fram fór á föstudaginn. Ekki var annað að sjá en þátttakan væri með besta móti þrátt fyrir það en alla vikuna höfðu busarnir orðið að gera eldri nemendum ýmislegt til þjónkunar. svipuðu sniði og á undanförnum þar mætti nefna • tölvuskóia, ljós- árum. Þar gefst almenningi kostur myndun, íslensku fyrir útlendinga, á að sækja stutt námskeið í hinum skrautskrift og fleira efni. ýmsu greinum og sagði Ægir að BB

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.