Morgunblaðið - 25.09.1990, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 25.09.1990, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990 Helga Sigurðar- dóttir - Minning Fædd 30. janúar 1944 Dáin 16. september 1990 Það er 17. september, ósköp venjulegur haustmorgunn, frekar svalur en mildur. Ég hélt að þessi dagur myndi líkjast öðrum mánu- dögum, en þá berast mér þessi sorg- legu tíðindi, hún Helga frænka mín hafði látist í bilslysi kvöldið áður, •*®þann 16. september. Með henni í bílnum var sonur hennar Snorri ásamt unnustu hans Önnu Björk og tveggja ára syni þeirra. Þau slös- uðust öll, en þó mest Anna Björk, sem liggur enn á sjúkrahúsi. Það er erfitt að sætta sig við það að hún Helga sé horfin okkur, og hræðileg sú staðreynd að í umferð- inni leynist hættur eins og þær sem urðu valdar að þessu slysi. Helga fæddist á bænum Gröf æá Vatnsnesi 30. janúar 1944, dótt- ir hjónanna Unnar Ágústsdóttur og Sigurðar Gestssonar. Hún ólst upp í foreldrahúsum á bænum Mörk í Hvammstangahreppi. Hún var gift Sævari, syni Snorra hótelhaldara á Blönduósi og Þóru konu hans. Börn Helgu og Sævars eru Þórunn, Anna Kristín, Snorri og Sigrún, öll búsett á Reykjavíkursvæðinu. Helga var ákaflega vel gerð manneskja, greind og hafði sérstak- lega fágaða framkomu. Fjölskyldan er afar samhent og fjölskyldubönd- in mjög sterk. Helga valdi sér hjúkr- un að ævistarfi og hafði hún, að mínu mati, alla þá kosti til að bera sem þarf til þeirra starfa. í bernskuminningu minni er " ákaflega bjart í kringum Helgu þar sem hún er lítil stúlka heima í Gröf. í minningunni er hún fallegt og elskulegt barn, sem mér þótti ákaf- lega vænt um. Við munum öll sakna Helgu sárt, en minningin mun lifa björt og tær. Ég sendi Sævari, börnum, barna- börnum, foreldrum og systkinum mínar dýpstu samúðarkveðjur. Dedda Vinkona mín og skólasystir, Helga Sigurðardóttir, er látin. Henni var kippt út úr þessu lífi fyrirvaralaust. Éftir sitjum við dofin og skiljum ekkert í þessu óréttlæti, að kona í blóma lífsins skuli allt í einu hverfa á brott svo snögglega. Ég kynntist Helgu vinkonu minni haustið >1988 í Námsflokkum Reykjavíkur þar sem við vorum saman á sérhæfnisnámskeiði á veg- um Sóknar. Þá stundaði Helga einn- ig nám í skólanum á kvöldin til að rifja upp móðurmál, stærðfræði, o.fl. því hún ætlaði sér að hefja sjúkraliðanám strax eftir áramót. Þá lágu leiðir okkar aftur saman, við hófum samtímis sjúkraliðanám og kláruðum einnig sérhæfnisnám- skeiðin á þeim tíma. Við vorum því mikið samvistum og ég komst að raun um að hún var góður og traustur félagi, það var hægt að tala um allt við hana, hún var róleg og aldrei neinn æsingur í henni þó svo hún væri oft hlaðin verkefnum. Hún var samviskusöm og dugleg. í haust þegar ég hitti Helgu aft- ur eftir sumarið fann ég hvað mér þótti vænt um hana, hún sagði mér að hún og Sævar maðurinn hennar væru að flytja út úr bænum skammt frá Reykjavík, og hún ætlaði samt sem áður að stunda skólann í vetur og fara heim um helgar og þegar tími innist til. Þá dáðist ég að dugn- aðinum í henni og þrautseigju. Hún var þannig að hún gafst ekki upp og fór ekki frá hálfkláruðu verki. Hún vildi klára allt til fulls sem hún byijaði á. Núna þegar ég kveð kæra vin- konu finn ég að söknuðurinn er mikill og í hópi okkar skólasystra er stórt skarð sem aldrei verður fyllt, en minningin um góða konu lifir og varðveitist. Sævari og bömum hennar votta ég samúð mína og bið þess að þau hljóti styrk í sorg sinni. Katrín Sól. Högnadóttir Það er erfitt að sætta sig við það, þegar góður vinur hverfur svo skyndilega úr tilveru okkar eins og raunin hefur orðið með vinkonu okkar, Helgu Sigurðardóttur. Þau Sævar höfðu ráðið sig í starf sem þau bundu miklar vonir við. Þessa örlagaríku helgi höfðu þau notað til að flytja búslóð sína aust- ur og Helga var á leið til Reykjavík- ur með syni sínum, tengdadóttur og litlum sonarsyni þegar kallið kom, alveg fyrirvaralaust og án þess að nokkuð væri hægt að gera til að afstýra því. Við höfum lengi átt þau að vinum og höfum því fylgst vel með þeim, bæði á tímum þegar vel gekk og eins þegar erfíðleikar steðjuðu að. Séð hvernig þau tóku á þeim vanda- málum sem við var að glíma og hvernig þau unnu sig út úr þeim með dugnaði og samviskusemi. Helga var fædd á Hvammstanga, en fluttist ung til Blönduóss, þar sem hún kynntist Sævari Snorra- syni og rugluðu þau saman reytum sínum langt innan við tvítugt. Þau hafa verið samstíga gegn um lífið alla tíð síðan. Einhvern tímann sagði Sævar okkur, á sinn „kómíska" hátt, hvernig fundum þeirra bar saman í fyrsta sinn. Hún hafði komið með rútunni til Blönduóss. Bílstjórinn hafði boðið Sævari, sem þá vann á hótelinu hjá föður sínum, að koma með upp í sveit, en konuefni hans biði út í bíl. Sævar sagðist muna það að hún hefði verið í ullarsokk- um, sem hún braut niður yfir skóna. Hann bætti því við að hann hafi verið fyrstur ungra manna á staðn- um að sjá hana og hann hafi nýtt sér það forskot sem hann fékk þarna út í æsar. Ekki vildi Helga þó gangast við því að þetta væri rétt munað hjá honum. Sérstaklega þetta með sokkana. Börn Helgu og Sæars eru ijögur og barnabörnin eru orðin fimm. Yngst þeirra er Helga, aðeins tæpra þriggja mánaða og hélt amma hennar henni undir skírn viku fyrir þetta hörmulega slys. Með Helgu er gengin góð mann- kostakona sem ekki hefði verið að skapi að kostir hennar væri dregnir fram í blaðagrein. Hún kaus að vinna sín störf í kyrrþey og án alls þess trumbusláttar og auglýsinga sem auðkennir nútíma samkeppnis- þjóðfélag. Blessuð sé minning hennar. Við vottum Sævari, börnum og bamabörnum samúð okkar og virð- ingu og óskum þeim alls hihs besta í framtíðinni. Þórey og Ásgrímur Hún Helga er dáin, þessi frétt kom ’eins og þungt högg og var okkur skólasystrum hennar næsta óskiljanleg. í þessa tvo vetur sem við höfum verið hjá Námsflokkum Reykjavíkur minnumst við þess ekki, þegar til baka er litið, að Helgu hafi nokkru sinni vantað í skóla. Það var því óvanaleg sjón mánu- dagsmorguninn 17. september að sjá sætið hennar autt. Helga hafði látið lífið í hörmulegu slysi kvöldið áður. Helga var mjög ósérhlífin, hún vann fulla vinnu auk heimilisstarfa, en það aftraði henni ekki frá að stunda nám sitt af dugnaði og sam- viskusemi. Henni var ekki tamt að kvarta yfir ýmsum smámunum sem við hinar létum angra okkur. Hún hélt sínu striki með þeirri festu og ró sem einkenndi hana. Hann var ekki stór þessi hópur sem kom frá Námsflokkum Reykjavíkur til að ljúka námi á sjúkraliðabraut við Ármúlaskóla í haust, í þennan hóp hefur nú verið höggvið stórt skarð. Við þökkum fyrir að hafa fengið að njóta sam- fylgdar Helgu þessa vetur og hörm- um að sú samfylgd varð ekki lengri. Eiginmanni Helgu, börnum og öðrum aðstandendum vottum við innilega samúð. Skólasystur Kveðja frá samstarfsfólki Þeir sem hafa unnið við umönnun veikra og geðsjúkra vita hve góð samvinna skiptir miklu máli, þar sem hver og einn starfsmaður er mikilvægur hlekkur, hvaða stétt sem hann tilheyrir. Það var því með nokkurri eftirvæntingu og ef til vill örlitlum kvíða að við biðum þess að Helga Sigurðardóttir, sem við kveðjum í dag, hæfi störf á deild 28 í ársbyijun 1989. Sá kvíði reyndist ástæðulaus, eins og síðar átti eftir að koma í ljós. Okkar kynni af henni voru öll á einn veg. Hún reyndist fær í sínu starfi, nákvæm, vandvirk og dugleg. Skjólstæðingum sínum sýndi hún nærgætni og hlýju. Það sama gilti um samstarfsmenn henn- ar. Eftir að hafa kynnst Helgu og mannkostum hennar, skiljum við hvers vegna hún hafði valið sér það starf sem hún nú stefndi markvisst að með námi sínu, þ.e. sjúkraliða- starfið, þar sem hinir góðu eigin- leikar hennar kæmu til með að fá notið sín. Okkur setti hljóð er við fréttum lát hennar, svo snöggt og svo óvænt. Við teljum okkur ríkari af að hafa átt hana að samstarfsmanni og kveðjum hana með söknuði. Öll- um ástvinum Helgu vottum við dýpstu samúð. Samstarfsfólk á deild 28, Hátúni 10A. H

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.