Morgunblaðið - 25.09.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
31
Regnboginn sýnir „Lukku—
Láki og Dalton bræðurnir“
REGNBOGINN hefur tekið til
sýninga barna- og fjölskyldu-
teiknimyndina „Lukku—Láki og
Dalton bræðurnir".
Myndin er gerð í samvinnu við
Gaumont í Frakklandi og Hanna-
Barbara Productions í Bandaríkjun-
um eftir hinum víðlesnu sögum
Morris og Goscinny. Alls hafa 35
titlar um Lukku—Láka og ævintýri
hans komið út í íslenskri þýðingu.
Myndin fjallar um Lukku—Láka og
samskipti hans við hina illræmdu
Dalton bræður.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
24. september.
FISKMARKAÐUR hf.
í Hafnarfirði
Hæsta verð Lægsta verð Meðal- verð Magn (lestir) Heildar- verð (kr.)
Þorskur 101,00 83,00 99,03 19,252 1.906.685
Þorskur(ósL) 81,00 81,00 81,00 16,00 1.296
Ýsa 107,00 80,00 102,41 9,919 1.015.891
Ýsa (ósl.) 108,00 108,00 108,00 239,00 25.812
Karfi 50,00 25,00 49,90 6.084 285.382
Ufsi 48,50 45,00 46,34 13,239 613.484
Steinbítur 75,00 75,00 75,00 0,221 16.649
Hlýri 62,00 62,00 62,00 0,031 1.922
Langa 55,00 55,00 55,00 0,667 36.685
Lúða 345,00 230,00 277,10 1,752 485.613
Koli 70,00 70,00 70,00 0,654 45.780
Sólkoli 70,00 70,00 70,00 0,105 7.350
Skötuselur 196,00 196,00 196,00 0,025 4.900
Keila 37,00 37,00 37,00 0,581 21.497
Steinb. ó. 50,00 50,00 50,00 0,020 1.000
Lýsa ósl. 20,00 20,00 20,00 0,068 1.360
Smáþorskur 75,00 75,00 Samtals FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík 75,00 84,54 0,128 53,004 9.600 4.480.906
Þorskur 127,00 86,00 98.77 35.258 3.482.423
Þorskursmár 80,00 80,00 80,00 00,749 59.920
Ýsa 136,00 50,00 97,41 24.179 2.355.238
Ýsa (ósl.) 90,00 90,00 90,00 00,525 47.250
Karfi 46,00 29,00 43,43 39,575 1.718.873
Ufsi 46,00 26,00 44,00 102.655 4.516.624
Steinbítur 71,00 60,00 67,54 01,345 90.845
Langa 75,00 51,00 61,56 06,845 384.562
Lúða 340,00 120,00 269,54 00,675 181.940
Skarkoli 91,00 60,00 75,60 00,179 13.532
Keila 37,00 37,00 37,00 2,805 103.785
Skata 150,00 150,00 150,00 00,086 12.900
Skötuselur 210,00 205,00 00,173 0,205 35.525
Lýsa 29,00 29,00 29,00 00,049 1.421
Kinnar 240,00 205,00 225,00 00,045 10.125
Gellur 335,00 240,00 317,00 00,090 28.593
Blanda 20,00 20,00 20,00 0,188 3.760
Samtals 340,00 20,00 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. 60,85 216.226. 13.156.753
Þorskur 107,00 70,00 89,09 69,674 6.206
Ýsa 106,00 50,00 87,47 6,493 567.926
Karfi 34,00 34,00 34,00 0,276 9.384
Ufsi 56,00 33,00 41,10 1,502 61.738
Steinbítur Hlýri 70,00 70,00 70,00 0,183 12.810
Langa 60,00 50,00 57,06 1,796 102.472
Lúða 400,00 265,00 289,22 0,586 169.485
Keila 42,00 24,00 37,36 1,672 62.467
Skata 82,00 80,00 81,57 0,107 8.728
Skötuselur 315,00 170,00 194,92 0,064 12.475
Lýsa 15,00 15,00 15,00 0,020 300
Koli 50,00 50,00 50,00 0,513 25.650
Lax 206,00 206,00 206,00 0,101 20.806
Blandað Samtals 40,00 40,00 40,00 87,29 0,340 83,353 13.600 7.275.858
Selt var m.a. úr Hauki GK 57, 7 tonn þorskur, Happasæl 6 kör og línu- og færabátum. Á morgun veröur selt úr dagróðrabátum.
Olíuverö á Rotterdam-markaöi
1. ág. - 21. sept., dollarar hvert tonn
BENSÍN
371/
-h-----1----1——i-----1-----1----1----
3. ág. 10. 17. 24. 31. 7. sept. 14. 21.
400-
375“
350“
325“
300
275
250
GASOLIA
301/
296
300-----:---------
200-/—----------:-----------------------
175-------------------------------------
150-------------------------------------
-H-----1----1---1----1----1---1----h-
3. ág. 10. 17. 24. 31. 7. sept. 14. 21.
ÞOTUELDSNEYTI
-H------1-----1----1-----1----1-----1----1—
3. ág. 10. 17. 24. 31. 7. sept. 14. 21.
Um 45 kindur fundnar dauðar í Vopnafírði:
Ærnar liggja í krapa og
ekki hægt að skoða mörk
„ÞAÐ er ekki Ijóst hvað hver á því að kindurnar liggja í krapa og
menn hafa ekki koinist að þeim til að skoða mörk. Það hafa fundist
35 dauðar kindur í landi Hámundarstaða en það eru fleiri eigendur
að þeim en ég,“ sagði Guðni Stefánsson bóndi á Hámundarstöðum
um fjárdauðann sem varð síðastliðið fimmtudagskvöld og á fostudag
í illviðri sem þá gekk yfir norðaustanvert landið.
Guðni kvaðst telja að tveir eig-
endur væru aðallega að því fé sem
væri á þessum slóðum, hann sjálf-
ur og Arthúr Pétursson bóndi að
Syðri-Vík. Einnig hafi fundist 9-10
dauðar ær í landi Strandhafnar og
höfðu í gær fundist í allt um 45
Keflavík.
BROTIST var inn í Myllubakka-
skóla á laugardagskvöldið, vask-
ur á jarðhæð stíflaður og skrúf-
að frá vatninu. Skemmdarverkið
uppgötvaðist rétt fyrir hádegi á
sunnudag og þá hafði vatn flætt
um 6 kennslustofur á hæðinni
Lýst eftir
vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir vitnum að skemmdarverk-
um á bíl við Hátún 12, aðfara-
nótt sunnudags 23. september
síðastliðinn. Grjóti var hent á
bílinn og rúða brotin.
Vitni að skemmdarverkunum eru
vinsamlega beðin um að snúa sér
til Lögreglunnar í Reykjavíkur.
dauðar kindur í Vopnafirði. „Fjöldi
fjár getur svo legið dauður undir
fönn því að þetta var það mikill
snjór sem kyngdi hér niður. Til
marks um óveðrið þá braut það
niður þijá rafmagnsstaura á lín-
unni hérna á milli bæjanna. Seinni-
og 4 í kjallara. Talsverðar
skemmdir urðu á sökklum inn-
réttinga, dyrakörmum og gólf-
dúk. Einnig skemmdust bækur
sem voru í kjallara hússins.
Vilhjálmur Ketilsson skólastjóri
sagði að kennarar hefðu verið við
vinnu í skólanum á laugardags-
kvöldið til kl 20.30 og hefði verið
brotist inn eftir þann tíma. Hann
sagði að farið hefði verið inn um
glugga á jarðhæð nýbyggingar
með því að spenna einn gluggann
upp. Þegar menn hefðu svo komið
í skólann rétt fyrir hádegi á sunnu-
dag hefði all verið á floti.
Þegar hefði verið hafist handa
með að sjúga upp vatnið með þar
til gerðum tækjum og síðan hefði
hreingerningarlið verið kallað til.
Kennsla hefði ekki raskast af þess-
um sökum, en æ meiri skemmdir
væru að koma í ljós.
-BB
hluta fimmtudagsins gekk dimm-
viðrið á en að morgni föstudags
var komin slydda og rigning og
rigndi heil feikn hérna fram yfir
hádegi. Þá fylltust hér allir skurðir
af krapa sem höfðu verið fullir af
snjó áður. Fé hefur þvælst af
túnunum ofan í skurðina og þar
hefur það króknað..Það voru að-
eins kinduraar sem fyrst náðist til
sem björguðust en við höfum ekki
komist upp á heiðina til að leita
kinda. Þar er allt á kafi í fönn,“
sagði Guðni. Hann kvaðst ekki vita
hve mikið fé hefði drepist þar sem
lítið væri enn búið að smala.
Kristín Bi-ynjólfsdóttir eigin-
kona Guðjóns Jósefssonar bónda í
Ytri-Vík sagði að tólf kindur í eigu
þeirra hefðu fundist dauðar en
ekki væri vitað hve margar hefðu
drepist í allt. Hún sagði að þau
hjónin hefðu átt 700 ær og lömb
á íjalli og enn vantaði margt upp
á. Töluvert væri þó komið af fé
heim. Hún sagði að spáð væri
hláku og yrði líklega haldið upp á
heiðina á morgun til að smala.
------♦-♦-4----
Lýst eftir
fólksbil
Lögreglan í Hafnarflrði lýsir
eftir dökkgráum Chevrolet
Monza fólksbíl, sem stolið var
frá Selvogsgötu, skammt frá
Flensborgarskóla.
Eigandinn skildi bílinn þar eftir
meðan hann fór utan í frí. Þegar
hann kom heim hafði bílnum verið
stolið. Þeir sem gætu gefið upplýs-
ingar um hvar bíl þennan er að
finna eru beðnir að hafa samband
við lögreglunaí Hafnarfirði.
Skemmdarverk í Myllubakkaskóla:
Vaskur stíflaður o g
skrúfað frá vatninu
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNIMAR í REYKJAVÍK:
21.-24. september 1990
93 ökumenn voru kærðir fyrir
of hraðan akstur um helgina. 5
þeirra voru sviptir ökuréttindum
„á staðnum", enda orðnir uppvísir
að akstri langt yfir leyfilegum há-
markshraðamörkum.
Mörg alvarleg umferðarslys
hafa orðið undanfarnar vikur og
er því full ástæða til þess að öku-
menn, og reyndar aðrir vegfarend-
ur einnig, skoði hug sinn vel. Ekki
er víst að eitt víxlspor verði
aftur tekið.
Tilkynnt var um 35 árekstra og
3 umferðarslys. Eftir hádegi á
föstudag voru tveir farþegar fluttir
í slysadeild eftir árekstur tveggja
bifreiða á gatnamótum Kringlu-
mýrarbrautar og Sæbrautar.
Skömmu síðar þurfti að flytja öku-
menn og farþega tveggja bifreiða
í slysadeild eftir árekstur á gatna-
mótum Breiðholtsbrautar og
Stangar. Um nóttina var ekið á
stúiku við á Skólabrú við Lækjar-
götu.
59 manns gistu fangageymsl-
urnar. Þar af óskuðu 17 eftir gist-
ingu af sjálfsdáðum þar sem þeir
áttu ekki í önnur hús að venda. 4
fengu tiltal hjá dómara, en aðrir
voru færðir til frekari skýrslutöku
eða var sleppt að lokinni vistun.
Tilkynnt var um 10 þjófnaði og
8 innbrot. Á föstudag var peninga-
veski stolið í verslun við Grensás-
veg og þvotti af snúru húss við
BergStaðastræti. Á laugardag var
reiðhjóli stolið frá húsi við Grettis-
götu, tékkhefti og ökuskírteini úr
bíl á bílastæðinu við Þangbakka,
fatnaði og ljósmyndum frá tjald-
stæðunum í Laugardal og dekkjum
undan bíl á bílastæði við Lágmúla.
Á sunnudag var veski stolið úr
húsi við Hafnarstræti og hjólbörum
undan bíl við Hamarshöfða. Brotist
var inn í bíl á Freyjugötu við Bald-
ursgötu aðfaranótt laugardags og
úr honum stolið hljómtækjum. Að-
faranótt sunnudags var brotist inn
í söluturn við Gnoðarvog og þaðan
stolið tóbaki og fleiru. Þá nótt var
maður handtekinn við innbrot í
Bjórhöllina við Gerðuberg. Brotist
var inn í söluturn við Kleppsveg,
en litlu stolið. Þrír menn voru hand-
teknir við innbrot á Skólavörðustíg
3 á sunnudagsnótt. Þeir höfðu
brotið rúðu á gullsmíðastofu og
stolið úrum úr glugganum.
28 sinnum var fólk aðstoðað við
að komast inn í læstar bifreiðir.
Auk þeirra 93 sem kærðir voru
fyrir of hraðan akstur voru 96
kærðir fyrir að virða ekki rauða
umferðarljósið, 2 fyrir að virða
ekki stöðvunarskyldu, 31 fyrir að
leggja ólöglega, 2 fyrir réttinda-
leysi við akstur og 9 fyrir önnur
umferðarlagabrot.
9 eru grunaðir um ölvun við
akstur, en ekki er vitað til þess
að ölvaður maður hafi lent í um-
ferðaróhappi um helgina.
Tilkynnt var um 12 skemmdar-
verk, 12 rúðubrot og 7 líkamsmeið-
ingar. M.a. var ráðist að stúlku
utan við hús á Kleppsvegi á föstu-
dagskvöld. Vitað er hver var þar
að verki. í öðrum tilvikum var um
slagsmál ölvaðs fólks að ræða,
flest á veitingastöðum.
Síðdegis á laugardag er bókað
í dagbók Árbæjar að tilkynning
hafi borist um að karl og kona
væru á ferð við Árbæjarskóla og
væri hann vopnaður byssu og hefði
hleypt af skoti. Tilkynnandinn,
móðir, hafði þetta eftir börnum
sínum. Leit var gerð á svæðinu en
ekkert fannst, sem bent gæti til
þessa.
Um kvöldmatarleytið á laugar-
dag var tilkynnt að skotið hefði
verið á mann á sorphaugunum í
Gufunesi, Um gabb var að ræða.
Aðfaranótt sunnudags var til-
kynnt að verið væri að brjótast inn
í bifreið við Grettisgötu. Lögreglan
brást snarlega við og handtók
manninn. Sá reyndist, þegar betur
var að gáð, vera eigandi bifreiðar-
innar. Minna ber þó á að allar
þarflegar ábendingar um eitthvað
misjafnt eru vel þegnar. Eðlilegt
má teljast að almenningur og lög-
reglan vinni saman að því að upp-
ræta og koma í veg fyrir afbrot.
Eldur kom upp f potti á eldavél
húss við Ijarnarból á sunnudag.
Ta'.sverðar skemmdir urðu og varð
að flytja húsráðanda á slysadeild.
Aðfaranótt mánudags var gerð
leit að pilti í hlíðum Esju. Hann
fannst þremur tíinum síðar heill á
húfi. Pilturinn hafði lent í sjálf-
heldu og beið komu björgunar-
manna.
í dagbók miðborgarstöðvar má
sjá að næturvaktirnar hafi verið
fremur rólegar og ekki mikið bók-
fært. Fjöldi fólks safnaðist þó á
miðborgarstöð til þess að fá afnot
af síma og salernum venju sam-
kvæmt.