Morgunblaðið - 25.09.1990, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 25.09.1990, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990 héraðsdómslögmanns öðlaðist hann 1962 og hæstaréttarlögmanns 1970. Af margvíslegum trúnaðar- og félagsstörfum má nefna setu í ríkisskattanefnd 1972—79 ogmats- nefnd eignamámsbóta frá 1973 svo og formennsku í því gamalgróna félagi, Stúdentafélagi Reykjavíkur, 1973— 74, Lögfræðingafélagi ís: lands 1976—79 og skólanefnd VÍ 1974- 78. í Verslunarskólanum vakti hann þegar athygli fyrir gjörvileika. Það gustaði af honum og hann vakti sífellt glaðværð svo að lognmolla þektist ekki væri hann nærri. Þann- ig var það löngum síðan að hnyttni hans setti svip á umhverfið og gæddi lífi. Hann var öðmm mál- snjallari, átti svo létt með að koma orðum að hverju sem hann vildi og hitta beint í mark. Auk þess var hann stálminnugur. Það kom því á óvart og stakk í stúf hvað hann gat komið óömggur og sáróánægður úr prófum, nagandi ekki bara negl- ur heldur líka fingur ótt og títt. Þvílík fjarstæða þótti þetta að um- svifalaust var haft í flimtingum og hann varaður við að hætta nú áður en hann væri kominn upp að oln- boga. Einkunnir sýndu líka von bráðar að uggurinn var ástæðulaus. En slíkur órói leitaði stöku sinnum á hann af því sem öðmm fannst lítið tilefni og skildu ekki. Þegar Jóhannesi bráðungum var sýnt það traust að fela honum starf háskólaritara Háskóla Islands af þeim vandaða manni Pétri Sigurðs- syni var það mörgum sem Verslun- arskólanum unnu sérstakt gleði- efni. Þeir sáu í ráðningunni fulla staðfestingu á að þau horn væru horfin sem höfð vom í síðu VÍ þeg- ar sett var upp í skólanum undir forystu hins merka skóla- og út- varpsmanns Vilhjálms Þ. Gíslasonar lærdómsdeild í framhaldi af beinu verslunamámi og farið að útskrifa stúdenta þaðan á 5. áratugnum. Ekki dró það heldur úr viðurkenn- ingunni fyrir Jóhannes að á bak við hann stóð dr. Ármann Snævarr þá háskólarektor sem verið hafði einn af aðalkennumm hans í lagadeild og vissi því hverjum hann var að fela þetta lykilstarf við æðstu menntastofnun þjóðarinnar. Eiginleikar Jóhannesar gerðu hann að snjöllum málflytjanda og því var ekki að undra að hann sneri sér nær alfarið að lögmannsstörfum á næsta skeiði sinnar of stuttu starfsævi. Dómarar höfðu mætur á honum fyrir skýran og heiðvirðan málatilbúnað. Trúi ég því að hann hafi verið einn þeirra sem gerði sér ljóst að rétt takmark er ekki að reyna að vinna röngum málstað sig- ur fyrir dómi heldur að sanngjörn niðurstaða fáist í ljósi málavaxta. Þeir sem úr fjarlægð hafa fylgst með þróun og umsvifum Happa- drættis HÍ í forstjóratíð Jóhannesar sem staðið hefur á annan áratug hafa ekki komist hjá því að taka eftir nýjungum sem styrkt hafa þesa mikilvægu fjáröflunarleið há- skólans þar sem nær 1 'A milljarður er í veltu á ári. Af hinum mörgu og glæstu mannkostum Jóhannesar risti drengskapur hans dýpst. Mér er minnisstætt þegar Jóhannes fyrir nokkrum árum hljóp í skarðið fyrir skólabróður sinn sem hafði átt að vinna verk fyrir hópinn. Hann sagði að það væri ekkert tiltökumál. Vin- átta fælist í því að þegar vinir þyrftu manns með legði maður ann- að til hliðar. Vinátta hans var af því tagi að ekki vaknaði spurningin um hvort greiðinn væri verðskuld- aður. Nóg var að þú þyrftir hans með. Um fertugsaldur varð þess vart að Jóhannes væri kominn með Parkinsonveiki. Þetta var alvarlegt áfall en aðdáunarvert hve honum tókst að halda glaðri lund sinni og mæta af þolgæði og þrautseigju erfíðleikunum sem þessu fylgdu. Þeir vaxandi erfíðleikar sem hann gat átt í vændum vegna veikinda sinna — þótt alltaf sé von að læknavísindin fínni leið — eru kannski helsta huggunin andspænis andláti hans svo snemma. Að loknu lagaprófi gekk Jóhann- es að eiga Önnu Fríðu Björgvins- dóttur, Finnssonar læknis í Reykjavík og konu hans, Kristínar Ólafsdóttur, frábæra húsmóður, líka skemmtilega og einkar geð- þekka í viðkynningu. Stóðu þau vel saman í mörgu. Glöggt má finna í börnum þeirra tveimur, Helga lög- fræðingi og Kristínu kennara, að eplin hafa ekki fallið langt frá eik- inni og gott er að vita af þeirri gleði sem nýfætt fyrsta bamabarn náði að verða afa sínum. Mikill er miss- ir þeirra allra, en margt stendur Iíka eftir. Ekki verður því varist að dagar glati lit sínum þegar á braut er horfinn sá sem var mesti gleðigjaf- inn í hópi skólafélaga sinna og vina. En þó mun brátt hærra bera endur- minningarnar um hann í essinu sínu og gleðin yfir að hafa átt samleið með svo góðum dreng. Guð blessi Jóhannes L.L. Helga- son og ástvini hans. Ólafur Egilsson Vinur okkar, Jóhannes L.L. Helgason, er látinn. Það er eins og lífíð breytist allt í einu. Þetta er allt svo ótrúlegt. Getur það verið að við eigum aldrei eftir að vera með honum eða tala við hann fram- ar? Þetta er staðreynd og henni verður ekki breytt. Þessi gáfaði og glæsilegi maður er horfinn sjónum okkar. Ung kynntust þau Anna Fríða og Jói. Glæsilegra par sáum við varla. Þau giftu sig 9. júní 1962. Fljótlega byggðu þau sér glæsilegt hús í Hjálmholtinu þar sem heimili þeirra hefur verið síðan. Þau eign- uðust tvö börn, Helga, lögfræðing, giftur Önnu Maríu Sigurðardóttur viðskiptafræðingi og Kristínu, kennara, en sambýlismaður hennar er Gísli Þór Reynisson viðskipta- fræðingur. Börnin feta í fótspor foreldra sinna, bæði glæsileg og dugleg. Jói varð þeirrar gleði aðnjótandi að eignast barnabarn. Dóttir Kristínar og Gísla fæddist 9. maí sl. og var skírð Anna Fríða. Hún er núna sólargeisli fjölskyldunnar. Jói var gáfaður maður svo af bar. Það sýndi hann bæði í námi og starfi. Ókkur er minnisstætt að á sama tíma og hann nam lögfræði við Háskóla íslands lauk hann loft- skeytamannsprófi. Hann var eftir- sóttur lögfræðingur enda var hann mjög áreiðanlegur og heiðarlegur og hafði ríka réttlætiskennd. Hon- um voru falin mörg trúnaðarstörf. í mörg ár kenndi hann við Verslun- arskóla íslands og Háskóla íslands. Vinnudagur hans var því oft lang- ur. Það var því ekki algild regla hjá honum að taka sér fn' um helg- ar. Minningarnar koma fram ein af annarri, frá þvi við vorum börn í sveit og svo allar götur síðan. Marg- ar góðar og skemmtilegar stundir höfum við vinir þeirra Jóa og Önnu Fríðu átt með þeim í Hjálmholtinu. Þau hafa verið höfðingjar heim að sækja. Allar ferðimar sem við höf- um farið saman bæði innanlands sem utan verða ekki farnar oftar en minningarnar um þær munum við geyma. Við eigum sameiginlega vini og frændur í Hrútafirði og þangað hafa leiðir okkar oft legið saman. Okkur er minnisstætt hve dætur okkar urðu alltaf ánægðar þegar ákveðið var að fara norður með Önnu Fríðu, Jóa og krökkunum. Það var alveg öruggt að þær ferðir urðu skemmtilegar. Það var eins og það gerðist alltaf eitthvað óvænt í þessum ferðum. Bílarnir biluðu eða vegagerðin var búin að loka Holtuvörðuheiðinni og við þurftum að bíða í marga klukkutíma til þess að komast yfir. Þá var Jói alltaf jafn hress. Það var engin lognmolla yfír því að ferðast með honum. Það * Blóma- skreytingar við öll tilefni yBlómahajid Stórhöfða 17. við Gullinbrú ® 67 14 70 Blomastofa Friöfimis Suöurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opiö öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. var eins og hann gæti alltaf snúið svona uppákomum upp í skemmtun hjá okkur og við hrifumst með. Við höfðum ákveðið að fara saman norður einhveija næstu helgi. Hann verður ekki með okkur í þeirri ferð. Jói var mikið á skíðum og það var eins með það og annað sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var fljótur að ná árangri og varð góður skíðamaður. Hann naut þess að fara upp í Bláfjöll á meðan heils- an leyfði. Það rifjast upp fyrir okk- ur núna að það eru um það bil tíu ár síðan við vorum öll saman á skíðum en þá nefndi Jói það að hann væri eitthvað svo máttlaus í vinstri fætinum og ætti erfítt með að stjóma skíðunum. Hann fór fljót- lega til læknis og úrskurðurinn var Parkinsonveiki. Hann sagði okkur sjálfur að hann gæti átt svona tíu góð ár eftir. Það er hálf kaldhæðnis- legt að hugsa til þess núna að jafn- vel í þessu hafði hann rétt fyrir sér. Við spurðum hann ekki oft hvernig honum liði en við sáum það þeim mun betur. Það er þyngra en tárum taki að horfa upp á svo glæsi- legan mann beijast við sjúkdóm sinn. Við heyrðum hann aldrei kvarta og til hinstu stundar gerði hann allt sem honum var trúað fyr- ir, áreiðanlega oft sárþjáður. Við skiljum það best hversu dýrmætt það er að eiga góða vini þegar þeir hverfa snögglega frá okkur. Við leituðum til hans bæði sem vinar og lögfræðings. Alltaf brást hann jafn vel við, sama hvernig stóð á. Fyrir það viljum við nú þakka. Elsku Anna Fríða, Helgi, Kristín, tengdaböm og litla Anna Fríða og aðrir aðstandendur, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Pálína Sigurbergsdóttir og Stefán Kjartansson í dag er til moldar borinn Jóhann- es L.L. Helgason, hæstaréttarlög- maður og forstjóri Happdrættis Háskóla Islands, en hann lézt hinn 15. þ.m. langt um aldur fram á 53. aldursári. Með Jóhannesi er genginn mætur maður og gegn, sem verður mér ætíð minnisstæður sakir mannkosta hans og andlegs atgervis. Við Jó- hannes áttum margvísleg samskipti um árin, s.s. í málflutningsstörfum, störfum í ríkisskattanefnd um ára- bil, svo og í félagsmálum, en saman sátum við í stjóm Lögfræðingafé- lags íslands um nokkurt skeið. Og fleiri minningar geymi ég um sam- skipti okkar Jóhannesar og sam- vinnu, sem allar eru góðar og bera órækt vitni um drenglund hans. Sem lögmaður var Jóhannes að mínum dómi í fremstu röð. Eru mér minnisstæð störf hans sem veijanda í opinbemm málum fyrr á árum. Þau störf rækti hann af frábærri alúð, og nutu sín þar vel hinir miklu hæfíleikar hans. Komu þar og glöggt fram hinir eðlislegu eigin- leikar hans, drenglyndi og mannúð, samfara sterkum efnistökum á málum. Er það sannfæring mín, að Jóhannes hefði verið ágætlega hæf- ur til æðstu starfa á sviði dóm- gæzlu, hefði honum enzt aldur og heilsa til. Jóhannes lét víða til sín taka á starfsævi sinni, voru hæfi- leikar hans slíkir, að hann hlaut að verða eftirsóttur til ýmissa vanda- samra starfa, sem hér verða ekki rakin. En fleira kom og til, sem gerði manninn eftirminnilegan. Nærvera hans var ávallt góð og ánægjuleg, og veit ég að upp í huga margra koma minningar um gáska hans og glaðlyndi á hveiju sem gekk. Ég kveð góðan dreng, þar sem Jóhannes L.L. Helgason var og heiðra minningu hans. Ástvinum hans sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hallvarður Einvarðsson Kveðjuorð Mjög var mér brugðið við þá harmafregn, að Jóhannes L.L. Helgason hæstaréttarlögmaður og framkvæmdastjóri væri skyndilega fallinn frá og horfinn á braut langt um aldur fram. Undirritaður átti því láni að fagna að kynnast honum Eiginmaður minn, ÁGÚST KJARTANSSON, Blönduhlíð 10, lést föstudaginn 21. september. só|vejg Sigurðardóttir. Móðir okkar, HALLDÓRA J. GUÐMUNDSDÓTTIR, Miðengi, lést í sjúkrahúsinu á Selfossi 22. september. Helga Benediktsdóttir og Guðmundur Benediktsson. t SÉRA BJARTMAR KRISTJÁNSSON, sem andaðist 20. september sl., verður jarðsunginn frá Munka- þverárkirkju laugardaginn 29. september kl. 14.00. Hrefna Magnúsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Eiginmaður minn, SVEINN KJARTAN KAABER, lögfræðingur, lést í Landakotsspítala 23. september. Guðrún S. Kaaber. allnáið fyrir nokkrum árum og eiga með honum stutta en afar ánægju- lega samfylgd sem aldrei þar skugga á. Fyrir það vil ég nú þakka, þó að þessi örfáu, fátæklegu orð hrökkvi þar skammt. Aðrir munu rekja prýðilegan fer- il Jóhannesar sem lögmanns og fagmanns á ýmsum sviðum. Þar fórst honum allt vel úr hendi, enda skorti ekkert á vandvirkni hans, samviskusemi og skýrleika. Mér er efst í huga maðurinn, Jóhannes, og sérstæður persónuleiki hans. Ég minnist Jóhannesar mjög greinilega frá háskólaárunum sem karlmann- legs glæsimennis, sem bar það með sér að hann léti sér fátt fyrir bijosti brenna og fátt stæði fyrir honum ef hann beitti sér. Fjölmörgum árum síðar lágu leiðir saman og persónuleg kynni tókust sem áður segir. Jóhannes var vasklegur sem fyrr, en þá hafði hann raunar veikst af alvarlegum sjúkdómi sem bakaði honum þunga raun, þótt hann verð- ist af miklu harðfylgi og æðruleysi. Fyrir mér var Jóhannes óvenju tær og hreinskiptinn persónuleiki. Góðgjam, greiðvikinn, skarp- skyggn, algjörlega tilgerðarlaus og einkar markviss í hugsun og máli. Mér varð snemma hugstætt málfar hans sem einkenndist af orðknöpp- um beinskeyttum setningum sem* tjáðu á augabragði það sem segja þurfti, en sá eiginleiki er helst til fágætur. Brátt varð mér og æ ljós- ara, að á bak við hvassleitan og oft óræðan svip hans bjuggu afar hlýj- ar tilfinningar, samkennd, við- kvæmni og sársauki sem hann tjáði vinum sínum af einlægni, en um leið reisn og virðingu. Fyrir kom að við litum inn á vinnustaði hvors annars enda stutt að fara. Sótti ég til hans mörg góð heilræði. Oftast hitti ég Jóhannes í hópi góðra vina okkar beggja, en á einum af síðustu fundum okkar voru þeir allir vant við látnir. Ræddum við þá lífið og tilveruna og glimdum við flókin rök lengur og fastar en tíðkast hafði. Jóhannes var þá ákaflega gefandi og glettni, alvara og góðvild runnu saman í einum farvegi. Þannig er mynd sú og minning Jóhannesar L.L. Helgasonar sem lifír, greypt í huga mér, og ég veit að eins mun farið um marga aðra er áttu hann að vini. Slíkir menn sem Jóhannes skilja eftir verðmæta gjöf hið innra með okkur hinum sem eftir lifum um sinn. Magnús Skúlason Ég var barn að aldri er fundum okkar Jóhannesar bar saman. Hann var þá að gera hosur sínar grænar fyrir Önnu systur minni. Jóhannes var einkabarn og kann það að hafa leitt til þess að við urðum brátt ekki einungis vinir heldur á vissan hátt eins og bræður þótt talsverður aldursmunur væri. Segja má að þau Jóhannes og Anna hafí allt frá fyrstu tíð verið þátttakendur í lífshlaupi okkar hjóna. Meðan við dvöldumst erlend- is um árabil við nám og störf var Jóhannes sú stoð og stytta hér heima sem aldrei brást. Vinnustaðir okkar hafa lengi legið saman og leiddi það til daglegs sambands okkar. Ósjaldan hef ég hlaupið til Jóhannesar er vandi steðjaði að og ævinlega fengið góða úrlausn. Raunar má segja að lífsþræðir okk- ark hafi tvinnast svo rækilega að við hjónin höfum fátt gert án þeirra eða þeirra góðu ráða. Börnin okkar kunnu líka að meta verðleika Jóhannesar sem var mik- ill barnakarl og sakna þau nú vinar í stað. Fátækleg orð megna ekki að lýsa hversu mjög fiölskylda mín syrgir nú þennan skemmtilega og góða dreng. En börnin hans, Þau Helgi og Kristín, eru vinir okkar og munu næra minninguna um föður sinn. Bjartur sólargeisli lýsir nú skært í myrkri sorgarinnar; fyrsta afa- barnið, Anna Fríða, sem Jóhannes fékk að njóta svo skamma stund. Megi hann hvfla í friði. Finnur Björgvinsson Fleiri greinar um Jóhannes L. L. Helgason bíða birtingar. Þær munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.