Morgunblaðið - 25.09.1990, Page 43

Morgunblaðið - 25.09.1990, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990 43 Jóna Margrét Jóns- dóttir - Minning Fædd 5. september 1910 Dáin 15. september 1990 í dag verður gerð frá Fossvogs- kirkju útför Jónu Margrétar Jóns- dóttur, Nóatúni 24, Reykjavík, en hún andaðist á Landspítalanum 15. september si. eftir stranga sjúk- dómslegu. Margrét, eins og hún var alltaf kölluð, var fædd á Kalastöðum á Stokkseyri 5. september 1910, dótt- ir hjónanna Viktoríu Halldórsdóttur og Jóns Þóris Ingimundarsonar, sem lengst af bjuggu á Sólbakka, Stokkseyri. Hún var elst 9 barna. Margrét ólst upp á Sólbakka á Stokkseyri en flutti um tvítugt til Reykjavíkur. Hinn .10. nóvember árið 1933 giftist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Þoi’valdi Ár- mannssyni, sjómanni og verka- manni í Reykjavík, en Þorvaldur vann mest allan starfsferil sinn hjá Stálsmiðjunni í Reykjavík. Þeim Margréti og Þorvaldi varð 4ra barna auðið en af þeim eru 3 á lífi, Dagrún, sem gift er Björgvini Guðmundssyni viðskiptafræðingi, Viktoría, sem gift er Magnúsi Sig- urjónssyni bílstjóra, og Guðný, en sambýlismaður hennar er Þórdór Pálsson húsasmiður. Jóhannes, fjórða barn þeirra Margrétar og Þorvaldar, lést 1974, aðeins 28 ára að aldri. Eg, sem þessar línur rita, kynnt- ist Margréti fyrir 37 árum er ég kvæntist elstu dótturinni og var tekinn í fjölskyldu hennar. Var mér strax tekið opnum örmum og má segja, að Margrét hafi alla tíð verið mér sem móðir. Margrét var glæsileg kona og myndarleg húsmóðir. Enda þótt efni væru ekki mikil varð þess aldr- ei vart í heimilisrekstrinum. Hún rak heimili sitt alltaf af miklum myndarskap og snyrtimennsku. Til skamms tíma bakaði hún reglulega brauð og kökur eins og tíðkaðist í gamla daga á myndarheimilum. Saumakona var hún einnig mjög góð og saumaði mikið. Margrét hafði unun af lestri góðra bóka og las mjög mikið. Hún var vel að sér um þjóðfélagsmál, fylgdist vel með og hafði ákveðna skoðun á hlutunum. Hún var ein- dreginn verkalýðssinni og vildi rétta hlut þeirra, sem minna máttu sín í þjóðfélaginu. Það var mjög gaman að ræða við hana .um þjóðfélags- mál. Enda þótt við værum í grund- vallaratriðum á sömu skoðun vorum við ekki alltaf sammála. Henni þótti baráttan fyrir bættum kjörum launafólks ganga alltof seint. Margrét var hlý og elskuleg kona og það fundu barnabörnin og barna- barnabörnin best. Þau hændust að ömmu og langömmu og þótti gott að koma í Nóatún. Barnabörnin eru nú 17 talsins. Eitt er látið. Barna- barnabörnin eru orðin 20. Margrét stóð áttræðu þegar hún lést. Hún skilaði ævistarfi sínu vel, kom upp 4 myndarlegum börnum og stóð með manni sínum í blíðu og stríðu. Hún var fyrst og fremst móðir og húsfreyja, en er hún hafði komið börnum sínum upp vann hún einnig um skeið úti til þess að drýgja tekjur heimilisins. Undanfarna mánuði átti Margrét við mjög erfið veikindi að stríða. í því sjúkdómsstríði dvaldist hún lengst af á spítala en einnig var hún um tíma heima. Þennan erfiða sjúkdómstíma önnuðust dætur hennar hana mjög vel. Má segja, að síðustu mánuðina hafi þær varla vikið frá henni. Veit ég, að það létti Margréti mjög hina erfiðu sjúk- dómsbaráttu að hafa dætur sínar ávallt hjá sér. Nú þegar Margrét hefur fengið hvíldina vil ég þakka henni sam- fylgdina. Drottinn blessi minningu hennar. Björgvin Guðmundsson Amma mín, Jóna Margrét, er farin. Nú setur mig hljóða og ég hugsa til baka. Tilveran breytist því amma var svo stór hluti af íjöl- skyldu minni. Ömmu er sárt sakn- að. Afi kallaði ömmu alltaf Möggu. Nú heyrist sá ómur ekki lengur. Þegar ég heimsótti ömmu mína leið mér alltaf vel því amma var svo notaleg kona. Alltaf hafði hún mikið fyrir gestum sínum og eldri börnin mín höfðu oft orð á því, enda alltaf heimabakað meðlæti þegar boðið var kaffi. Amma var sterkur persónuleiki sem fer seint úr minni. Börnin mín nefndu alltaf heimsóknir til hennar þegar þau voru í bænum, enda Endurbætur á slátur- húsi Króksfjarðamess Miðhúsum. MIKLAR endurbætur hafa verið gerðar síðastliðinn vetur og í sumar á sláturliúsinu í Króksfjarðarnesi og þegar þeim er lokið ætti sláturhúsið að vera þokkalegt, segir Guðbjörg Þorvarðardótt- ir, dýralæknir í Búðardal. Yfirumsjón með endurnýjun á sláturhús- inu hefur Magnús Helgason, bóndi og smiður, Múla í Gufudalssveit. Slátrað verður í haust um 13 þúsund fjár og var byijað að slátra 13. þ.m. Lömb virðast vera allgóð og vel feit sem ekki þykir kostur nú til dags. Sláturhúsið í Króksfjarðarnesi er eitt af fáum fyrirtækjum kaup- félagsins sem skila arði. Ekki er vitað um hver kostnaðurinn verður við endurnýjun hússins, en hann verður upp á nokkrar milljónir. Sláturhússtjóri er Margrét Ágústsdóttir, fyrrum bóndi í Mýr- artungu. Ekki er ólíklegt að hún sé fyrsta konan sem gegnir því starfi hér á landi. - Sveinn þótti þeim virkilega vænt um hana. Samúðarkveðjur vil ég senda til allra ættingja og vina og sérstak- lega vil ég senda móður minni sam- úðarkveðjur og vona að guð gefi henni styrk í raunum sínum. Afa sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Amma var mér svo kær. Guð varðveiti hana. BÁRUSTÁL Sígilt form — Litað og ólitað = HÉÐINN = STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000 Þórir Björgvinsson VETRARSTARFIÐ HAFIÐ Þjálf unartímar fyrir alla ★ Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri ★ Byrjendaflokkar - framhaldsflokkar megrunarflokkar - lokaðir flokkar NÝTT NÝTT OG FYRIR ÞIG Sérstakur flokkur fyrir 17-23 ára íkúrinn 28 + 7 Kvöldflokkar að fyllast, ennþá pláss í morgun- og dagtímum _______________ATH[_______________ Lokaðir flokkar Tímum ekki haldið lengur en til 1. okt. Jazzballettskólinn Kennsla í öllum flokkum hafin Bætum við flokk fyrir: 6-7 ára 1 x í viku í Suðurveri Einnig tekið á biðlista fyrir alla aldurshópa byrjenda Upplýsingar og innritun í símum 83730 og 79988 Næst færðu þér...

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.