Morgunblaðið - 25.09.1990, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
13
Endurvekja
sinfóníu-
hljómsveit
áhugamanna
RÁÐGERT er að Sinfóníuhljóm-
sveit áhugamanua, sem starfaði
á árunum 1976 til 1981, heQi á
ný starfsemi. Garðar Cortes
óperusöngvari stóð fyrir því á
sínum tíma að stofna sveitina og
stjórnaði henni lengst af en hljóð-
færaleikarar voru um fímmtíu
talsins.
Nokkrir félagar sem tóku þátt í
starfi sveitarinnar hafa nú ákveðið
undir stjórn Ingvars Jónassonar
lágfiðluleikara að endurvekja
hljómsveitina og er ætlun þeirra að
ná saman hljóðfæraleikurum á öll
hljóðfæri sinfóníuhljómsveitar.
Ráðgert er að hefja æfingar í
næsta mánuði og að æft verði einu
sinni í viku að kvöldi til. Þeir sem
hafa lært á hljóðfæri og vilja halda
við kunnáttu sinni geta haft sam-
band við einhvern eftirtalinna aðila:
Ingvar Jónasson, Grandavegi 47,
Jakob Hallgrímsson, Aðálbóli við
Starhaga, Leif Benediktsson,
Brekkuseli 24 eða Pál Einarsson,
Laufásvegi 26.
Jón Páll
leikurjóla-
svein í Japan
JÓN Páll Sigmarsson, aflrauna-
maður og handhafí titilsins
Sterkasti maður heims, leikur
íslenskan jólasvein á myndbandi
sem Islenska umboðsskrifstofan
hyggst setja á markað í Japan í
tengslum við Islandskynninguna
sem þar fer fram 15.-20. nóvem-
ber.
Ráðgert er að Jón Páli haldi afl-
raunasýningar í Japan í tengslum
við íslandskynninguna auk þess
sem sýnt verður úr myndbandinu í
sjónvarpsstöðinni Sport Nippon
News sem er í eigu japanskra aðila
sem standa að íslandskynningunni.
Bjarni Óskarsson hjá íslensku
umboðsskrifstofunni sem hefur ný-
lega tekið að sér umboðsmennsku
fyrir Jón Pál, segir að á myndband-
inu sýni íslenski jólasveinninn afl-
raunir sem ekki eru á hvers manns
færi. „Þetta er fyrst og fremst land-
kynningarmynd með íslenska jóla-
sveininum þar sem hann nærist á
íslenskum afurðum og í því felst
styrkur hans. Við ætlum að sýna
fólki að íslenski jólasveinninn hafi
nokkra sérstöðu meðal jólasveina í
heiminum, hann sé sterkasti jóla-
sveinn í heiminum. Síðan verður
íslenskum fyrirtækjum gefinn kost-
ur að styrkja Japansför Jóns Páls
með því að auglýsa sínar vörur á
myndbandinu," sagði Bjarni.
„Jón Páll hefur tíundað ísland í
erlendum fjölmiðlum í öðru hveiju
orði án þess að fá nokkra greiðslu
fyrir það og okkar verkefni er að
sjá til þess að hann fari að fá ein-
hveija aura fyrir þá landkynningu
sem hann hefur stundað," sagði
Bjarni.
■ DANSKI kvenguðfræðingur-
inn Lone Fatum, lektor í nýjatesta-
mentisfræðum við guðfræðideild
Kaupmannahafnarháskóla, held-
ur almennan fyrirlestur við guð-
fræðideild Háskóla íslands
fimmtudaginn 27. september
klukkan 10.15 í stofu V á 2. hæð
í aðalbyggingu háskólans. Fyrir-
lesturinn nefnist „Kvindeteologisk
relevans for fortolkning af Ny testa-
mente (túlkun Nýja testamentisins
frá sjónarhorni kvennaguðfræði).
Fyrirlesturinn verður haldinn á
dönsku og er öllum heimill aðgang-
ur.
Það fylgir því
sérstök fjölskyldustemmning
að taka slátur
Nú er slátursala SS í Starmýri 2
✓
Asamt bjartsýni og æðruleysi hefur slátur verið
helsti lífgjafi íslensku þjóðarinnar í baráttu hennar
á liðnum öldum við máttarvöld þessa heims og annars.
Slátur er sérstaklega næringar- og fjörefnarík fæða og
hollustubylting síðustu ára hefur lyft því til vegs og
virðingar á nýjan leik. SS hefur nú opnað slátursölu í
Starmýri 2. Þar er til sölu nýtt slátur og allt til slátur-
gerðar svo sem rófur, kartöflur, rúgmjöl, haframjöl, rús-
ínur, saumagarn, nálar og frystipokar.
Slátursala ©
í einu slátri eru: Sviðinn og sagaður haus, lifur, hjarta,
tvö nýru, hálsæðar, þind, hreinsuð vömb og keppur, 1 kg
mör og 750 gr blóð. í slátrið þarf síðan 1,5 kg af mjöli,
sem gefur af sér 5-6 stóra sláturkeppi. Á ódýrari fæðu
er tæpast kostur. í kaupbæti færðu svo ítarlegan
leiðbeiningarpésa um síáturgerð.
Slátursalan er opin kl. 13-19 þriðjudaga til fimmtudaga,
13-20 föstudaga og kl. 10-18 á laugardögum.
LOKAÐÁMÁNUDÖGUM.
Allt til sláturgerðar á einum stað.
Slátursala SS í Starmýri 2, sími 30425
Athugið nýtt heimilisfang