Morgunblaðið - 25.09.1990, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 25.09.1990, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990 • • Oryggi umferðarinnar og skylduskoðun bifreiða eftir Arinbjörn Kristinsson Að undanförnu hafa orðið nokkur blaðaskrif og umræður um gjaldskrá og starfsemi Bifreiðaskoðunar ís- lands. í þessari umíjöllun er lítið rætt um stofnun, starf. hlutverk og gildi Bifreiðaskoðunar Islands fyrir bifreiðaeigendur og þjóðfélagið í heild. í sumum blaðaskrifum hefur komið fram nokkur misskilningur, sem er fólginn í því að gera einfald- an samanburð á gjaldskrárliðum Bifreiðaeftirlits ríkisins annars veg- ar og hins vegar hjá Bifreiðaskoðun íslands. Hér er og á að vera um gerólíka þjónustu að ræða, þótt hún beri sama nafn, skylduskoðun bif- reiða (í fortíð og nútíð). Tildrög að breyttri bifreiðaskoðun Félag íslenskra bifreiðaeigenda hafði um langt árabil bent á, að aðstaðan hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins væri með öllu óviðunandi, bæði hér í Reykjavík og enn frekar úti á landi, og lagt til að ný, fullkomnari og fjölþættari skyldúskoðun yrði tekin upp. Þörfin á nákvæmara og betra eftirliti með öryggisbúnaði bif- reiða hefur farið mjög vaxandi hin síðari ár. Kemur þar til fjölgun bif- reiða, aukin umferð á vissum vegum, tilkoma hraðaksturs, sem áður heyrði til undantekninga. Markmiðin með stofnun Bifreiðaskoðunar voru, að taka upp viðtækari og nákvæm- ari skoðun, þar sem notuð væru fullkomnustu mælitæki’ við bestu aðstæður í sérhönnuðu húsnæði eða í sérstökum færanlegum skoðunar- stöðvum, þar sem ekki væru tök á að starfr'ækja fastar stöðvar. Brems- umælingar skyldu gerðar á vélræn- an hátt, sömuleiðis könnun á stýris- búnaði bifreiða, könnun og mæling á ljósabúnaði, ítarlegri skoðun á öll- um öðrum öryggisbúnaði, svo sem beltum, höfuðpúðum, sætum og þurrkum, ásamt skoðun á öllum undirvagni bifreiðarinnar. Hér var því brýn þörf á ger- breyttri starfsaðstöðu og tækjabún- aði fyrir skylduskoðun bifreiða. Þetta kallaði á mikið fjái-magn til uppbyggingar húsnæðis og tækja- kaupa. Tilgangurinn var að sjálf- sögðu að skapa meira öryggi í um- ferðinni og sérstaklega stuðla að fækkun alvarlegustu slysa. Einnig skyldu settar reglur um það, að allir bílar, sem eiga aðaild að um- ferðarslysum, verði teknir til sér- stakrar skoðunar varðandi ástand alls öryggisbúnaðar strax að slysi loknu. Stofnun Bifreiðaskoðunar íslands hf. Bifreiðaskoðun íslands_ hf. var stofnuð í samráði við FÍB 1988. Markmið hennar voru í meginatrið- um þau sömu og FÍB hafði sett fram varðandi skylduskoðun bifreiða. Fyrsti fundur um stofnun Bifreiða- skoðunar íslands var boðaður að til- hlutan þáverandi dómsmálaráð- herra, Jóns Sigurðssonar, í mars 1987. FÍB átti fulltrúa á þessum fundi og lýsti stuðningi við það fyrir- komulag á skylduskoðun bifreiða, sem fyrirhugað var með stofnun Bifreiðaskoðunar íslands. Félagið átti einnig fulltrúa í nefnd þeirri sem undirbjó stofnun bifreiðaskoðunar- innar og hefur átt fulltrúa í stjórn „Umferðarslysin hér á landi eru talin kosta 3,5—4 milljarða króna á ári, sem bifreiðaeigend- ur bera einir.“ hennar frá upphafi. Þess vegna hef- ur FÍB fylgst grannt með öllum málum varðandi þróun og starf Bif- reiðaskoðunar íslands. Fulltrúi FÍB hefur lagt þar fram ýmis mál í sam- ræmi við stefnu félagsins og fengið þar mörgu framgengt en þó að sjájf- sögðu ekki öllu. Bifreiðaskoðun ís- lands er rekin lýðræðislega, allir stjómarmenn ráða nokkru, en eng- inn öllu. Þessi gerbreyting á fyrir- komulagi skylduskoðunar bifreiða, sem Bifreiðaskoðun íslands var ætl- að að framkvæma, var eins og áður segir að sjálfsögðu gerð til þess að koma í veg fyrir a.m.k. sum af hin- um hörmulegu umferðarslysum og til geta kannað að hve miklu^leyti bilanir í bifreiðum eru orsök slíkra slysa. Á síðari árum hafa orðið of mörg umferðarslys, þar sem ástand bifreiðar hefur verið talið orsaka- þáttur og það jafnvel skömmu eftir að skoðun með gamla iaginu hafði verið framkvæmd. Ef litið er til þess að umferðarslys- in hér á landi eru talin kosta 3,5—4 milljarða króna á ári, sem bifreiða- eigendur bera einir, er auðséð að til mikils er að vinna, til þess að koma í veg fyrir þessa sóun. Hér er aðeins litið tii fjármuna, en hinn þátturinn, sem varðar líf og heilsu þeirra, sem í umferðarslysum lenda, er þó miklu stærri, þótt hann verði ekki metinn í krónum. SPARHD - SETJIÐ SAMAN SJALF jöminn býður upp á gott og fjölbreytt úrval efniviðar til smíði á eldhús- og baðinnréttingum og fataskápum. Fagmenn okkar sníða efnið eftir þínum þörfum. Þú setur innréttinguna saman sjálf(ur) og sparar þannig peninga. Komdu með þína hugmynd til okkar - fagmenn aðstoða þig - 0 við að útfæra hana. Jk , BJORNINN BORGARTÚNI28 S. 6215 66 m Forvarnir umferðarslysa Stofnun Bifreiðaskoðunar íslands er tvímælalaust eitt stærsta skrefið, sem opinberir aðilar hafa stigið, að vegabótum einum undanskildum, til þess að fækka alvarlegum umferðar- slysum og ber vissulega að fagna því framtaki. Rétt er að geta þess að árið 1989 hækkaði skoðunargjald um 700 krónur fyrir venjulega fólks- bifreið, án þess að skoðunin breytt- ist, en þó bættist við söluskattur og verðbólguhækkun. Sumir telja að þessi hagnaður árið 1989 sé óeðlileg- ur. Hann hefur þó runnið til bifreiða- eigenda, í formi nýrrar og öruggari þjónustu og aukinnar verndar gegn hörmungum umferðarslysa. Rekstur bifreiðaskoðunar íslands Sá „dómur“ héfur verið kveðinn upp, að Bifreiðaskoðun íslands sé eitt verst rekna fyrirtæki á íslandi, sennilega af því að það hefur „grætt“ of mikið. Þetta er hinn mesti misskilningur. Bifreiðaskoðun íslands hefur verið rekin nákvæm- lega eftir þeirri áætlun, sem henni var sett. Að mati FÍB er sú áætlun of hægfara og þyrfti að hraða, þann- ig að uppbygging skoðunarstöðva í öllum landshlutum verði lokið innan þriggja ára og færanlegar skoðunar- stöðvar orðnar nægilega margar til að geta sinnt smærri stöðum og dreifbýli. Ef sú væri raunin þyrfti enginn að ferðast langa vegalengd til þess að fá einkabíl sinn skoðað- an. Einnig er það álit FÍB, að í öllum landshlutum þurfti að skapast að- staða til að skoða allar gerðir bif- reiða. Til þess að svo megi verða, veitir ekki af þeirri hækkun skoðun- argjalds, sem orðið hefur þessi 2 ár. Sú kostnaðarhækkun er samt lítil í samanburði við það mikla öryggi sem skipulögð og vönduð skoðun bifreiða um allt land mun skapa bif- reiðaeigendum og öðrum þeim, sem um vegina fara. Eitt slys gæti orðið dýrara en sá tímabundni kostnaðar- auki sem færi til þess að tryggja örugga og vandaða skoðun á örygg- isbúnaði bifreiða um allt land. Fundarályktanir Á stjórnarfundi í FÍB 15. septem- ber sl., voru gerðar eftirfarandi ályktanir: „Fundurinn ályktar að hraða beri uppbyggingu skoðunarstöðva, þann- ig að henni verði lokið innan þriggja ára. Þá telur fundurinn að skoðunar- gjald beri að lækka sem nemur verði ljósastillingar á þeim stöðum á landinu, þar sem ljósakoðun getur ekki farið fram samhliða aðalskoð- un.“ Við þessar ályktanir má bæta, að virðisaukaskatt ætti að afnema af skylduskoðun bifreiða, sem er í raun forvarnarstarf gegn hinum alltof tíðu, hörmulegu og kostnaðarsömu umferðarslysum. Slíkt forvarnar- starf er virkur þáttur heilbrigðis- þjónustu, en enginn þáttur þeirrar þjónustu á að bera virðisaukaskatt. Þá telur höfundur að endurskoðun- argjald ætti að lækka eða leggja niður. Höfundur er formaður FÍB. Morgunblaðið/Grímur Gíslason Á bökkum Markarfljóts, þar sem landbrotið er mest. Frá vinstri: Árni Johnsen, Sigurður Einarsson, Gunnar Marmundsson og Guðjón Hjörleifsson. Á bak við þá má sjá hvernig fljótið er að brjótast í vesturátt. Vestmannaeyjar: Áhyggjur vegna land- brots Markarfljóts Vestmannaeyjum. EYJAMENN hafa töluverðar áhyggjur vegna landbrots Mark- arfljóts og óttast að vatnsleiðslan til Eyja kunni að vera í hættu. Vatnleiðslan liggur frá berg- vatnsá í landi Syðri-Merkur yfir Markarfljót, niður Landeyjasand og yfir álinn til Eyja. Rétt neðan Mark- arfljótsbrúar hefur fljótið verið að ryðjast í vesturátt og hefur talsvert landbrot orðið þar að undanförnu. 100 til 150 metrar eru nú frá fljót- inu að leiðslunni og getur fljótið verið fljótt að ryðja þá leið ef það er í ham. Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Eyjum, Sigurður Einarsson, for- maður bæjarráðs, og Árni Johnsen, varaþingmaður, fóru ásamt Gunn- ari Marmundssyni, starfsmanni] vatnsveitunnar á fastalandinu, að Markarfijóti fyrir skömmu til að kanna ástandið. Á fundi bæjarráðs, eftir ferðina, gerði bæjarstjóri grein fyrir ferðinni og lýsti bæjarráð yfir áhyggjum sínum með það alvarlega ástand sem skapast getur í vatns- málum Vestmanneyinga ef vatns- leiðslan verður fyrir skemmdum. Nú er unnið að athugunum á hvernig bregðast megi við þessum ágangi fljótsins til að veija vatns- leiðsluna og hver kostnaður þess verður. Ekki er talin hætta á að fljótið geti valdið skemmdum á henni í vetur en ljóst þykir að strax næsta sumar verði að grípa til ein- hverra ráðstafana. Grímur HRAÐLESTRARSKOLINNI10ÁRA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.