Morgunblaðið - 25.09.1990, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
2m
® Óseyri4, Auðbrekku2, Skeifurini 13, f
Akureyri Kopavogi Reykjavik
Frá Reykjavík-
urpró fastsdæmi
Hér með er athygli á því vakin,
að um þessar munir fer í hönd vetr-
arstarf safnaða Reykjavikurpróf-
astsdæmis.
Er hér um mjög fölbreytt starf
að ræða svo sem barnastarf í
sunnudagaskólum, starf með 10-12
ára börnum, fermingarfræðsla til
undirbúnings fermingu á næsta
ári, æskulýðsstarf, starf í þágu aldr-
aðra, fyrirbænastundir, biblíules-
hópar og samverur aðrar af ýmsu
tagi í kirkjum, safnaðarheimilum,
félagsmiðstöðvum og skólum, þar
sem kirkjan fær starfsaðstöðu. Er
safnaðarfólk sérstaklega hvatt til
þess að leita sér nánari upplýsinga
um fyrrgreinda starfsemi í kirkjum
viðkomandi safnaða.
A undangengnum árum hafa
barnaguðsþjónustur hafíst fyrsta
sunnudaginn í október. Ætlunin er
nú að hefja það starf fyrr og hefj-
ast sunnudagaskólarnir ýmist 23.
eða 30. september, verður það aug-
lýst í messuauglýsingum dagblað-
anna.
Með vetrarstarfinu færist hin al-
menna guðsþjónusta yfir á tímann
til kl. 2 síðdegis nema á þeim stöð-
um, þar sem sunnudagaskóli og
messa fara fram á sama tíma.
Æskulýðsstarf og starf í þágu
aldraðra er annað hvort hafið eða
hefst upp úr mánaðamótum.
Innritun á fermingarnámskeið
safnaða í Reykjavíkurprófastsdæmi
fer fram í vikunni eftir 23. septem-
ber og eiga böm sem fædd eru á
árunum 1977 rétt til innritunar.
Fermingarnámskeiðsgjald verður
um kr. 4.000 og greiðist fyrri hluti
þess, kr. 2.500, við innritun eða þá
um næstu mánaðamót.
Foreldrar eru eindregið hvattir
til þess að fylgjast vel með ferming-
arundirbúningsnámi barna sinna og
uppörva þau og hveta og koma með
þeim í guðsþjónustu safnaðanna.
Sérstaklega er mikilvægt, að for-
eldrar sæki fyrstu messurnar eftir
innritun og fái þá vitneskju um
hvernig kennslu verður hagað. Það
er ekki hvað sístur þáttur í námi
væntanlegra fermingarbarna, að
þau kynnist guðsþjónustulífi safn-
aðanna þar sem menn koma saman
til að heyra Guðs orð, biðja og sam-
einast í lofgjörð og þökk til Guðs.
{ skírninni leiðir Kristur okkur inn
í kirkju sína og til lífs í sér, þar
eigum við mót við Krist er opinber-
ar okkur Guð og sem dáið hefur á
krossi í okkar stað og hjálpar okkur
að lifa hvert með öðru í friði og
sátt. Þá er það mikils virði að börn-
in geti orðið virkir félagar í safnað-
arlífinu. Eitt mikilvægasta starf
kirkjunnar er einmitt fermingar-
undirbúningurinn, þar þurfa heimiii
og kirkja að légjast á eitt og eiga
sem best samstarf með hag og heill
bamsins efst í huga. Ekkert starf
veitir ríkulegri uppskeru en að leiða
menn til Krists.
Guð blessi starf safnaðanna, sem
framundan er og gefi því vöxtinn.
Innritun fermingarbarna árs-
ins 1991 í Reykjavík, Kópavogi
og Seltjarnarnesi fer fram hjá
söfnuðunum sem hér segir og eru
börnin beðin um að hafa með sér
ritföng er þau mæta til innritun-
ar:
ÁSSÓKN: Þriðjudaginn 25. októ-
ber kl. 17 í Áskirkju.
BREIÐHOLTSSÓKN: Miðviku-
Áhugi á saumaskap fer mjög vaxandi. Svipmynd frá einu námskeið-
anna á vegpim klúbbsins Nýtt af nálinni.
Klúbburinn Nýtt af nálinni
með námskeið um allt land
ÍSLENSKI tísku- og handavinnuklúbburinn Nýtt af nálinni heldur á
næstunni sauma- og pijónanámskeið víða um land og er þetta fjórða
árið í röð sem slík námskeið eru haldin. Nýtt af nálinni er áskrifenda-
klúbbur sem bókaforlagið Vaka-Helgafell stendur að.
Klúbbfélagar fá í hveijum mán-
uði sendan heim pakka sem inni-
heldur 14 litprentaðar sauma- og
pijónauppskriftir, auk uppskrifta
af ýmsu nytsamlegu og fallegu fyr-
ir heimilið. Uppskriftirnar og sníða-
arkir eru flokkaðar eftir efni og
þeim raðað í sérstakar klúbbmöppur
til þess að allir geti haft sem mest
gagn af því að vera í klúbbnum.
Þá er ráðgjafarstarfsemi í gangi
fyrir klúbbfélaga og þeir geta
hringt eða komið til umsjónarmanns
klúbbsins, Rögnu Þórhallsdóttur,
sem er við allan daginn hjá Vöku-
Helgafelli. Það hefur sýnt sig að
klúbbfélagar eru alls óhræddir við
að hafa samband ef þeir eru í vand-
ræðum, eða langar að koma óskum
á framfæri og margir hafa samband
reglulega.
Til að styrkja tengslin enn frekar
og til að kiúbbfélagar hefðu sem
allra mest gagn af því að vera í
klúbbnum, var ákveðið að efna til
námskeiða í tengslum við klúbbinn,
þar sem félagar fengju tilsögn í
sauma- og pijónaskap undir leið-
sögn handavinnukennara. Nám-
skeiðin, sem haldin eru á vorin og
haustin, urðu strax óhemju vinsæl
og eins og fyrr segir er þetta fjórða
árið í röð sem þau eru haldin. Félag-
ar í Nýju af nálinni eru búsettir um
allt land og því er sífellt verið að
bæta við nýjum stöðum á landinu,
þar sem námskeið eru haldin.
Nú í haust verða þau á Akur-
eyri, Egiisstöðum, Höfn í Horna-
fírði, ísafirði, Sauðárkróki, Selfossi,
Sigiufírði, í Hafnarfirði, Borgar-
nesi, Reykjavík og Vestmannaeyj-
um.
(Úr frétUitilkynningu)