Morgunblaðið - 25.09.1990, Page 34
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins;
Morgunblaðið/Rúnar Þór
íslandsbanki í nýtt húsnæði
Kjarnaútibú Islandsbanka á Akureyri var opnað formlega í nýjum húsakynnum á neðstu hæð Alþýðu-
hússins við Skipagötu í gær. Utibú bankans voru fjögur þar til að flutningum kom um helgina.
Húsnæðið er um 600 fermetrar að stærð og hafa miklar breytingar verið gerðar, m.a. var
inngangi breytt, en hann er á húsinu sunnanverðu. Þá hefur útibú bankans við Hrísalund verið
stækkað. Mikið var um að vera við bankann í gær á opnunardeginum, sparibaukaparið Óskar og
Emma stigu léttan dans við lúðrablástur og öll börn sem í bankann komu voru leyst út með stunda-
skrám, límmiðum og góðgæti.
Kjörnefnd falið að gera
tillögu að framboðslista
Eftírspum eftir hlutabréfum
þrefalt meiri en framboðið
Á fímmta hundrað manns vildu kaupa bréf
ÓSKIR um kaup á nýjum hlutabréfum Útgerðarfélags Akur-
eyringa voru mun meiri en sú hlutafjárupphæð sem til sölu var.
Þegar frestur til áskriftar að nýjum hlutabréfum rann út á föstu-
dagskvöld höfðu borist óskir um kaup að nafnvirði tæplega 64,3
milljónir króna, eða rúmlega 2,6-föId sú heildarQárhæð sem boðin
var til sölu nú. A almennum markaði voru boðin út hlutabréf að
lega 50 milljónir króna að nafn-
virði, þannig að heildarhlutafé fyr-
irtækisins verði 430 milljónir. Pét-
ur sagði að enn hefði ekki verið
tekin ákvörðun um hvenær nýtt
hlutafé yrði boðið á almennum
markaði, það yrði skoðað í ljósi
þeirrar þróunar sem yrði á næstu
vikum á þessum vettvangi. Hann
sagðist gera ráð fyrir að eitthvað
af bréfum kæmi nú á markað og
menn ætluðu að sjá hvert gengi
þeirra yrði, en stefnt væri að því
að bjóða út þær 50 milljónir sem
heimild er fyrir fyrir næstu ára-
mót.
EA, sem gerður er út frá Gríms-
ey, eyðilögðust í slæmu veðri sem
gekk yfír í síðustu viku. Sandvík
hf. gerir Kristínu út ásamt
Dagnýju EA, en hún er á línu.
Um er að ræða talsvert tjón
fyrir fyrirtækið.
Línubátum sem gerðir eru út
héðan hefur gengið sæmilega þegar
viðrað hefur til sjósóknar. Miklar
ógæftir hafa þó verið allan þennan
mánuð og lítið verið hægt að róa.
í síðustu viku var veðrið sérstaklega
slæmt þannig að enginn komst á
sjó. Á meðan þetta leiðindaveður
geisaði hélt allstór hópur Grímsey-
inga á sjávarútvegssýninguna í
Reykjavík.
Bára
Hlutaljárútboð Útgerðarfélags Akureyringa:
SJÁLFSTÆÐISMENN á Norðurlandi eystra hafa ákveðið að efna
ekki til prófkjörs við val á framboðslista flokksins til
Alþingiskosninga á næsta ári. Kjörnefnd skipuð 29 mönnum mun
gera tillögu að uppstillingu á lista flokksins og er stefnt að því að
nefndin Ijúki störfum í næsta mánuði, en fyrsti fundur hennar verður
um helgina.
Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins á Norðurlandi eystra
var haldinn á Akureyri á laugardag.
Rætt var um framboðsmálin í kjör-
dæminu og Þorsteinn Pálsson for-
maður Sjálfstæðisflokksins, sem var
gestur fundarins, hélt erindi. At-
kvæðisrétt á fundinum höfðu 46
manns og var ákveðið með 39 at-
kvæðum gegn 2 að fela kjörnefnd
að gera tillögu um framboðslista.
Fjórir sátu hjá.
Sigurður Björnsson formaður
kjördæmisráðs sagði að ráðið hefði
hist í vor til að hefja umræður og
undirbúning framboðsmála, en sér-
stakt kjördæmisþing var haldið á
Húsavík í júní sl. „Það var haldið
til að ýta umræðunni af stað,“ sagði
Sigurður. „Það er mjög eindregin
skoðun kjördæmisráðsfulltrúanna að
það eigi ekki að fara í prófkjör
núna.“
Kjörnefnd er skipuð öllum for-
mönnum sjálfstæðisfélaganna í kjör-
dæminu, en þeir eru 21 talsins, þá
sitja þar einnig 7 kjörnir fulltrúar
frá kjördæmisráði auk formanns
kjördæmisráðs, þannig að í nefnd-
inni eiga sæti 29 aðilar.
Sigurður sagði að engin tímamörk
hefðu verið sett varðandi starf
nefndarinnar, en ætlast til að hún
hraði verkinu. Fyrsti fundur hennar
verður haldinn um næstu helgi. „Við
stefnum að því að ljúka uppstillingu
í október," sagði Sigurður.
------------
Grímsey:
Netin eyði-
lögðust í
slæmu veðri
^ Grímsey.
ÖLL NET smábátsins Kristínar
nafnvirði um 24,3 milljónir króna. Hátt á fímmta hundrað manns
af öllu landinu skráðu sig fyrir hlutum í félaginu.
Aðalfundur kjördæmisráðs sjálfstæðisfélaganna:
Engin alvara að baki yfirlýsing
um um álver á landsbyggðinni
„AÐALFUNDUR kjördæmisráðs sjálfstæðisfélaganna í Norður-
landskjördæmi eystra lýsir áhyggjum sínum yfír því alvarlega
ástandi sem skapast hefur í atvinnumálum fjórðungsins undir for-
ystu rikissíjórnar Steingríms Hermannssonar. Atvinnuleysi er veru-
legt og horfur á að það inuni fara vaxandi. Hinar dreifðu byggðir
standa nú frammi fyrir meiri óvissu í atvinnumálum en nokkru
sinni fyrr. Ríkisstjórnin hefur brugðist þeirri skyldu sinni að
marka nýja atvinnustefnu þegar afleiðingar samdráttar í landbún-
aði og sjávarútvegi verða æ ljósari. Þýðingarmiklar atvinnugreinar
standa hölium fæti, eins og skipasmíðaiðnaður og ullariðnaður og
ekkert hefur verið gert til að mæta sérstökum erfíðleikum bátaút-
gerðar,“ segir í stjórnmálaályktun aðalfundar kjördæmisráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Norðurlandskjördæmi eystra sem haldinn var á
Akureyri á laugardag.
Vegna þess hve margar óskir
bárust um kaup á hlutabréfum
verður að skerða umbeðnar fjár-
hæðir um meira én helming og fær
hver kaupandi í sinn hlut 37,75%
af því sem hann bað um.
Gengi hlutabréfanna er 3,0 og
því er heildarfjárhæðin sem beðið
var um tæpar 193 milljónir króna
á söluverði. Hátt á fimmta hundr-
að kaupendur skráðu sig fyrir
hlutum og hafa þeim nú verið
sendir gíróseðlar, sem greiða á
Myndarleg
gjöf færð FSA
Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri hefur nýlega borist
myndarleg gjöf, en samkvæmt
erfðaskrá systranna Aðalbjarg-
ar og Lilju Randversdætra arf-
leiða þær Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri að eignum sínum að
báðum látnum.
Aðalbjörg lést 21. apríl 1989 og
Lilja 9. september síðastliðinn.
Helstu eignir búsins eru húseign
að Munkaþverárstræti 26, banka-
innstæður, hlutabréfaeign, auk
innbúsmuna.
í fréttatilkynningu frá FSA
vegna gjafarinnar þakkar sjúkra-
húsið þessa höfðinglegu gjöf.
eigi síðar en 1. október. Aðalsölu-
aðilar voru Kaupþing hf og Kaup-
þing Norðurlands hf.
Stjórn ÚA ákvað í júnímánuði
að bjóða út nýtt hlutafé að nafn-
virði 50 milljónir króna, hluthafar
nýttu sér forkaupsrétt að nafn-
virði rúmlega 25,7 milljónum
króna og voru því boðin á almenn-
um markaði hlutabréf að nafnvirði
tæplega 24,3 milljónir. Hlutafé
Útgerðarfélags Akureyringa er að
loknu útboði rúmlega 379,4 millj-
ónir króna.
Pétur Bjarnason formaður
stjórnar Útgerðarfélags Akur-
eyringa sagði að menn væru ákaf-
lega ánægðir með viðbrögð kaup-
enda, en eftirspurnin hefði verið
meir en tvöföld á við framboð bréf-
anna. „Við erum mjög ánægð,
þetta sýnir að fólk hefur trú á að
fjárfesta í félaginu og þá væntan-
lega í ljósi rekstrarafkomu síðustu
ár. Ég tel þessi góðu viðbrögð
sýna að fólk telji fjárfestingu í
ÚA góða og þar muni fé þess
ávaxtast vel,“ sagði Pétur. „Við
erum líka ánægð með það hversu
margir kaupendumir eru, en vel á
fimmta hundrað manns skráðu sig
fyrir hlutafé. Þessir kaupendur eru
dreifðir um land allt, bæði til sjáv-
ar og sveita, en vissulega eru flest-
ir af Norðausturlandi.“
Stjóm ÚA hefur heimild til að
bjóða út hlutabréf fyrir rétt rúm-
„Einstakt tækifæri er nú til að
veita nýjum krafti í atvinnulíf
landshlutans með uppbyggingu
orkufreks iðnaðar. Þess vegna
hefðu umræður um nýtt álver átt
að beinast að því að það risi við
Eyjafjörð. Nú bendir hins vegar
allt til þess að þessum möguleikum
hafi verið spillt með því verklagi
sem iðnaðarráðherra hefur viðhaft
í samningaviðræðum við Atlantal-
hópinn. Nú er komið á daginn að
engin alvara var á bak við yfirlýs-
ingar ráðherra um að álver risi
utan höfuðborgarsvæðisins. Aðal-
fundur kjördæmisráðsins mótmæl-
ir því harðlega að hinir erlendu
aðilar skuli einir ákveða staðarval
stóriðju, en það jafngildir því að
ríkisstjórn Steingríms Hermanns-
sonar láti útlendingum það eftir
að móta byggðaþróun á íslandi,"
segir einnig í ályktuninni.
7 Þá segir ennfremur að í nútíma-
þjóðfélagi kalli þjónustugreinar á
mestan mannafla og kröftugri
byggðastefnu verði ekki haldið
nema skilyrði séu sköpuð fyrir
öfluga þjónustustarfsemi á helstu
vaxtarsvæðum landsbyggðarinnar.-
Stofnun Háskólans á Akureyri
hafi markað tímamót í byggðaþró-
un og því leggi kjördæmisráð
áherslu á að hröð uppbygging hans
sé ein raunhæfasta leiðin til að
treysta undirstöðu byggðar á
Norðurlandi og harmar að ónógar
íjárveitingar hamli starfi og upp-
byggingu hans. í tengslum við
skólann beri að efla Náttúrufræði-
stofnun Norðurlands, aðra rann-
sókna- og menningarstarfsemi og
heilbrigðisþjónustu í fjórðungnum.
Þá leggur ráðið einnig áherslu
á nauðsyn þess að samgöngur inn-
an ijórðungsins komist í viðunandi
horf og öruggu vegasambandi
verði komið á við Austurland, til
að greiða fyrir gagnkvæmum við-
skiptum og þjónustustarfsemi.
Bættar samgöngur séu forsenda
þess að hægt sé að nýta markaði
fyrir ferskan sjávarafla og eldis-
fisk, virkja fjölbreytta möguleika
fjórðungsins í ferðaþjónustu og
lengja ferðamannatímann.