Morgunblaðið - 25.09.1990, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
41
14. Interpolis-skákmótið:
Undrabörnin í eldlínunni
Skák
Karl Þorsteins
GLÆSTUR ljómi hefur ætíð
leikið um Interpolis-skákmótin
í Tilburg. Frá upphafí hefur
það verið yfírlýst stefna móts-
haldara að fá aðeins til leiks
nokka af sterkustu skákmönn-
um heims hverju sinni. Anatoly
Karpov var nær einráður um
sigursætið í Tilburg um margra
ára skeið. Afrek heimsmeistar-
ans Garri Kasparovs frá fyrra
ári er þó óneitanlega hið glæsi-
legasta í sögu mótsins. Þá sigr-
aði hann og hlaut 12 vinninga
í skákunum fjórtán og hlaut
þremur og hálfum vinningi
meira en næsti keppandi á
mótinu! Kasparov kom þátttöku
ekki við í þetta skiptið sökum
undirbúnings fyrir heimsmeist-
araeinvígið gegn Karpov sem
hefst í New York í næsta mán-
uði. Mótshaldarar þurfa samt
ekki að örvænta þrátt fyrir að
heimsmeistarar séu ekki á
keppendalistanum þetta árið.
Mótið í ár er nefnilega það
sterkasta í stigum talið frá upp-
hafí og meðalstig keppenda
telja 2.643 ELO skákstig!
Óneitanlega vekur það því
mikla athygli að yngsti keppand-
inn á mótinu, hinn 15 ára gamli
Gata Kamskíj, er einn í efsta
sætinu á mótinu þegar aðeins
einni umferð er ólokið. Hann hef-
ur 8 vinninga að loknum þrettán
umferðum, hálfum vinningi meira
en Ivanchuk, Short og Gelfand.
1. Kamskíj vinn. 8
2-4. Ivanchuk 7 l/z
2-4 Short 7 'h
2-4. Gelfand 7 'A
5. Andersson 6 ‘A
6. Nikolic 6
7. Timman 5 'A
8. Seirwan 4
Kamskíj er fæddur og uppalinn
í Sovétríkjunum. Þar hlaut hann
sína skákmenntun og var mikið
hampað eystra sem verðandi
heimsmeistaraefni. Það vakti því
gríðarlega athygli fjölmiðla vestra
eftir Opna mótið í New York vor-
ið 1989 þegar hann og faðir hans
ákváðu að snúa ekki aftur til
Sovétríkjanna heldur biðja um
hæli sem pólitískir flóttamenn í
Bandaríkjunum. Sagan segir að
karl faðir hans stjórni líferni son-
arins með hörðu. Hann fylgir hon-
um jafnan á skákmót og skáktekj-
ur sonarins eru lífsviðurværi ekki
einungis þeirra feðga heldur og
móður hans sem búsett er í Sov-
étríkjunum.
Óneitanlega stendur Kamskíj
með pálmann í höndunum fyrir
síðustu umferðina. Andstæðingur
hans í síðustu umferð mótsins er
Yasser Seirwan sem hefur verið
ófarsæll í síðari hluta mótsins. Á
sama tíma bíður helstu kepp-
inauta hans erfitt hlutskipti. Gelf-
and hefur svart gegn Andersson,
Ivanchuk svart gegn Nikolic og
Short svörtu mennina gegn Tim-
man.
Framganga ungu kynslóðar-
innar vekur strax athygli þegar
mótstaflan er skoðuð. Enski stór-
meistarinn Nigel Short er elstur
þeirra ijórmenninga sem beijast
um sigursætið á mótinu nú, aðeins
24 ára gamall. Hvort mótið er
tákn um nýja tíma í skákheimin-
um verður tíminn einn að segja
til um en í heild hefur mótið ver-
ið afskaplega skemmtilegt. Bar-
áttan hefur verið í fyrirrúmi og
afleikir máski fleiri en almennt
gerist á mótum af svipaðri styrk-
leikagráðu. Ef undanskilinn er
árangur Kamskíjs kemur slök
frammistaða hollenska stórmeist-
arans Timmans mest á óvart.
Hann var í neðsta sætinu framan
af mótinu en hefur heldur rétt
sinn hlut í síðari umferðunum.
Ivanchuk og Gelfand hafa ekki
tekist að endurtaka glæsilegan
árangur á millisvæðamótinu í
Manila. Sá kráftur sem einkenndi
taflmennsku þeirra beggja á milli-
svæðamótinu hefur ekki verið til
staðar nú.
Hér skulunt við skoða skák
Kamskíj gegn sovéska stórmeist-
aranum Gelfand í fyrstu umferð
mótsins. Kasparov hefur mikið
álit á Gelfand og hefur látið þau
orð falla að hann vet'ði næsti
áskorandi um heimsmeistaratitil-
inn, væntanlega á árinu 1993.
Ef dæma má af taflmennskunni
í skákinni núna á hann þó margt
ólært ennþá.
Hvítt: Gata Kamskíj
Svart: Boris Gelfand
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4
— cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3
— a6, 6 g3
Það er athyglisvert að styrk-
leiki Kamskíj er einkum í miðtafl-
inu. Hann virðist almennt veita
bytjunum fremur litla athygli og
forðast eins og heitan eldinn að
tefla samkvæmt bókarfræðum
langt fram eftir skákum. Hér beit-
it' hann afbrigði sem fræðin álíta
lítt skeinuhætt svörtum.
6. - e5, 7. Rde2 - Be7, 8. Bg2
— b5, 9. 0-0 - Rbd7, 10. h3 -
Bb7?!
í skákum undanfarið hefur yfir-
leitt verið hrókerað strax áðut' en
biskupnum er valinn staður á b7.
Áframhaldið í skákinni Mtanovic
— Pigusov tefldist 11. a4 — b4,
12. Ra2 — Hb8, 13. c3 en svartur
hafði lítið að óttast. Eins og
áframhaldið teflist hefut' svarti
biskupinn lítið að gera á skálín-
unni a8—hl þegar peðið á d5
skerðir athafnafrelsi biskupsins.
11. g4! — b4, 12. Rd5 — Rxd5,
13. exd5 - a5?! 14. Rg3 - g6,
15. Bh6 - Bg5?
Það veldut' svörtum vandræðum
að geta ekki hrókerað. Næði hann
uppskiptum á svartreita biskupn-
um án nokkurs tilkostnaðar væru
vandræði hans úr sögunni.
Kamskíj hefur annað í huga.
16. Re4! - Bxh6, 17. Rxd6+ -
Kf8, 18. Rxb7 - Db6, 19. d6 -
Bf4, 20. c4
Hvíta staðan er unnin. Svartur
er varnarlaus gagnvart peðafram-
rás eftir c- og d-línunni og ein-
asta von hans felst í því að skapa
einhver mótfæri á kóngsvæng.
Kamskíj kemur auðveldlega í veg
fyrir það.
20. - Hb8, 21. Dd5 - Rf6, 22.
Df3 - g5, 23. c5 - Da6, 24.
Hfel - h5, 25. gxhS - Hxh5,
26. De2 - Da7, 27. d7 - e4,
28. Bxe4 - Hxh3, 29. Bg2 -
Hh2, 30. d8D - Hxd8, 31. De7+
- Kg7, 32. Rxd8
Svartur gafst upp. Hann er
heilum hrók undir fyrir engar
bætur.
■ JARÐHITASKÓLI Háskóla
Sameinuðu þjóðanna býðut' á ári
hvetju erlendum fræðimanni til ís-
lands til að flytja fyrirlestra um
jat'ðhita. Gestafyrirlesari Jarðhita-
skólans á þessu ári er André
Menjoz frá Frakklandi. Hann
mun flytja fimm fyrirlestra á ensku
í fundarsal Orkustofnunar, Grens-
ásvegi 9, dagana 24.-28. septem-
ber. Fyrirlestrarnir heíjast klukkan
16. Jarðhita er víða að finna í
Frakklandi og heitt vatn er notað
mikið til upphitunar þúsa, einkum
í nágrenni Parísar. í dag eru um
60 hitaveitur starfandi í Frakkl- -
andi. Flestar þeirra byggjast á því
að 70-80 gráðu heitu vatni er dælt
upp úr holu og í gegnum vartna-
skipta, en vatninu síðan dælt niður
aftur 35-45 gráðu heitu. Þar sem
þörf er á er vatnið hitað með varma-
dælum. Helstu vandamál í rekstri
hitaveitu hefur verið óöryggi í
rekstri dæluútbúnaðar, m.a. vegna
útfellinga og tæringar í kerfunum.
Þá et' ijárhagsstaða margra hita-
veita ótraust enda söluverð heita
vatnsins tengt olíuverði, sem hefur
verið í lágmarki undanfarin ár,
nokkuð sem við íslendingar könn-
umst vel við. André Menkoz, eðlis-
fræðingur, hefur unnið við jarðhita-
rannsóknir og mat á afkastagetu
franskra jarðhitasvæða frá 1978.
Síðan 1983 hefur hann haft yfirum-*
sjón með geymisverkfræði og gerð
reiknilíkana fyrir ft'önsk jarðhita-
svæði á vegum jarðhitadeildar
frönsku jarðfræðistofnunarinnar
(BRGM). Fyrirlestrarnir eru öllum
opnir.
■ LAUGARDAGINN 29. sept-
embet' klukkan 15 heldur móttöku-
nefnd Nelsons Mandela opinberan
fund og tónleika á Hótel Borg. Á
fundinunt talar Tim Maseko, aðal-
fulltrúi Afríska þjóðarráðsins fyr-
ir Danmörk, Island og Færeyjar,
ásamt fleirum. Blúsbandið Trega-
sveitin mun spila að fundi loknum.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
Libby>
Stórgóða tómatsósan