Morgunblaðið - 25.09.1990, Síða 44

Morgunblaðið - 25.09.1990, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990 Úlpur st. 36-52 Verð 11.800,- v/Laugalæk o o o o ' ͧí SAMBANDSINS HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50 VID MIKLAGARD & KAUPFÉLÖGIN Minninff: Jóhannes L. L. Helgason, forstjórí Fæddur 20. október 1937 Dáinn 15. september 1990 Haustið 1956 settist mannvæn- legur hópur ungra stúdenta í laga- deild háskólans. Mér eru enn í dag minnisstæðar fyrstu kennslustund- irnar með þessum nýstúdentum, og sérstaklega hve auðvelt var að ná til þeirra í kennslunni og hve áhuga- samir þeir voru. í hópnum vakti athygli mína glæsilegur stúdent, hár vexti, bjartur yfirlitum, prúður og snyrtilegur, glaðlegur og hressi- legur. Varð fljótlega ljóst, að hann var afbragðs námsmaður, markviss og skipulegur í vinnubrögðum, skemmtilegur í viðmóti og geðfelld- ur í hvívetna. Mig varði þá ekki, að fáum árum síðar yrði þessi ungi stúdent náinn samverkamaður minn í stjórnsýslu Háskóla íslands. Hitt varði mig vitaskuld ekki held- ur, að honum yrði ekki auðið lengri lífdaga en svo; að hann félli frá 52 ára að aldri. Eg kveð vin minn Jó- hannes L.L. Helgason með trega. Ekki má sköpum renna, en rauna- tölur voru víðsfjarri lífsviðhorfum hans og lífssýn. Jóhannes L.L. Helgason lauk embættisprófí í lögfræði vorið 1962 með lofsamlegum vitnisburði. Síðla árs 1962 var ákveðið að ráða starfs- mann á skrifstofu háskólans er verða skyldi eftirmaður prófessors Péturs Sigurðssonar háskólaritara og vinna með honum nokkurn tíma. Pétur hafði þá gegnt þessu starfí í 33 ár við mikinn orðstír, enda var hann hverjum manni starfsamari og svo stálminnugur í hvívetna um málefni háskólans og stjórnun hans, að undrum sætti. Mjög þurfti að vanda til vals á eftirmanni hans. Ég leitaði til þessa unga og efnilega kandídats. Var það lán fyrir háskól- ann að hann skyldi veljast til starfa í stjómsýslu skólans. Starfslið á skrifstofu háskólans var þá furðu fámennt, aðeins þrír fastir starfs- menn auk rektors. Hefír lengstum skort skilning á því hér á landi, hve stjórnun stofnana er mikilvæg og krefst mikils starfsliðs og góðrar starfsaðstöðu. Starfsbræðurum mínum á Norðurlöndum var torskil- ið, hvernig unnt væri að starfrækja háskóla með svo fámennu starfsliði við stjórnun. Hér skipti það þó sköp- um, að starfsmennirnir voru hver um sig frábærir, spöruðu sig hvergi og sinntu lítt um afmarkaðan vinn- utíma. Jóhannes L.L. Helgason reyndist mikill vinnugarpur, eljusamur og kappsamur. Hjá honum fór saman vit og strit — hann kunni að vinna. Honum var óvenju lagið að bijóta raunhæf málefni tii mergjar, greina aðalatriði hvers máls án þess að láta smáatriði villa sér sýn, og ráða síðan málum til lykta hratt og vei eftir hlutlægu mati. Samstarf okkar á rektorsárum mínum var með mikl- um ágætum. Við höfðum frá upp- hafi ákveðna verkaskiptingu, og ég bar til hans og annarra starfsmanna óskorað traust. Ég leitaði margoft til hans í erfiðum málum sem þá steðjuðu að. Hann reyndist mér ávallt hollráður, traustur og trygg- ur í hvívetna. Hann hafði til að bera óvenju góða og næma almenna dómgreind, hvoit sem var um menn eða málefni. í öllum störfum var hann hið mesta snyrtimenni og prúðmenni. Hann lagði mikla áherslu á snotran frágang mála. Bera gerðabækur háskólaráðs frá þessu tímabili þessa m.a. merki. Þegar Jóhannes féllst á að ger- ast háskólaritari batt hann það við þann tíma sem ég myndi gegna rektorsembæcti, svo sem minnis- grein mun vera til um og hann rifj- aði stundum upp. Hann gegndi þó embættinu nokkru lengur eða til 1. september 1971. Honum lék þá hugur á málflutningsstarfí og varð löggiltur til starfa hæstaréttarlög- manns 1970. Gerðist hann nú um hríð lögmaður í samvinnu við hina virtu lögmenn, Guðmund Ingva Sig- urðsson, Jónas A. Aðalsteinsson og Svein Snorrason. Var hann mikils metinn í lögmannsstarfi og mjög til hans leitað. Hann breytti þó til fljótlega og varð forstjóri happ- drættis Háskóla íslands árið 1977 og tengdist þá að nýju háskólanum. Því starfi gegndi hann til dauða- dags hinn 15. september sl. Jóhann- es var vitaskuld mjög vel kunnugur málefnum happdrættisins vegna fyrri starfa sinna við háskólann. Var það mikilvægt fyrir fyrirtækið og skólann að hann skyldi taka að sér þetta starf. Happdrættið hefir verið háskólanum geysimikilvæg fjárhagsstoð í nærfellt sex áratugi. Ér vandséð, hvemig skólanum hefði reitt af án þessarar miklu fjárhags- lindar er kostað hefir byggingar hans, skipulagningu lóðasvæða og margháttaðar framkvæmdir á þeim svæðum, tækjakost o.fl. Mun það fádæmi, ef ekki einsdæmi, að ríkis- háskóli fjármagni byggingafram- kvæmdir með þessum hugvitsam- lega hætti, en prófessor Alexander Jóhannesson, sá mikli velgerðar- maður háskólans, átti drýgstan þátt í að koma háskólahappdrætt- inu á fót. Jóhannes Helgason undi vel hag sínum hjá happdrættinu á aðalskrifstofu þess, en hún hefír ávallt verið aðlaðandi vinnustaður og starfslið vel verki farið. Jóhann- es var þama sem annars staðar vinsæll og vel látinn hjá samstarfs- mönnum og viðskiptamönnum. Til Jóhannesar var mjög leitað til ýmissa starfa við hlið aðalstarfs og til forystu í félagsmálum. Má þar nefna kennslu hans um langt árabil við viðskiptadeild háskólans og við Verslunarskóla íslands, starfa í byggingamefndum í þágu háskólans og í lögskýringarnefnd, setu í ríkisskattanefnd, formennsku í Stúdentafélagi Reykjavíkur og Lögfræðingafélagi íslands og for- mennsku í skólanefnd Verslunar- skóla íslands. Kunnugt er mér einn- ig að til hans var oft leitað um álits- gerðir um lögfræðileg efni. Sýnir þetta hvert traust var borið til hans. Jóhannes L.L. Helgáson var heill- andi persónuleiki. Það geislaði af honum góðvild og glaðværð og mönnum leið vel í návist hans. Hann var maður óvenju vel af Guði gerður. Hann hafði á hraðbergi kímilegar frásagnir og hafði næmt skopskyn og sjálfur var hann hnitt- inn í tilsvörum. Gaman þótti mér að heyra hann segja frá þeim tíma, er hann „var á sjó“, en hann nam loftskeytafræði og tók próf í þeirri grein árið 1959 á námsárum sínum í háskólanum. Ekki er mér kunnugt um annan löglærðan loftskeyta- mann á landi bér. Kærar minningar hrannast upp um samstarf og glaðværð á góðu dægri. Fjarri fer því, að maður sé allur, eins og stundum er sagt, þótt hann andist. „Merkið stendur þótt maðurinn falli." Eftir standa verk hans og þeirra sér víða stað að því er Jóhannes Helgason varðar. Með vandamönnum og vinum búa kærar minningar um látinn drengskapar- mann. Allir sem kynntust honum munu minnast hans með hlýhug. Jóhannes L.L. Helgason kvæntist Önnu Björgvinsdóttur vorið 1962 nokkrum dögum eftir að hann lauk embættisprófi. Er mér minnisstætt hve glæsileg þau voru og hvern æskuþokka þau báru með sér. Þau eignuðust tvo börn, Helga lögfræð- ing og Kristínu kennara. Er mikill harmur að þeim kveðinn. Sendum við Valborg þeim innilegar samúð- arkveðjur. Armann Snævarr Jóhannes L.L. Helgason, fram- kvæmdastjóri og hæstaréttarlög- maður, varð bráðkvaddur á ferða- lagi á vegum Happdrættis Háskóla íslands 15. september 1990. Hann fæddist 20. október 1937 í Reykjavík. Foreldrar hans voru hjónin Dagmar Árnadóttir og Helgi Jó- hannesson, loftskeytamaður. Helgi Jóhannesson var lengi loftskeyta- maður á fiskiskipum, en gerðist síðar starfsmaður Landssíma Is- lands. Helgi var í 15 ár á togurun- um Imperialist og síðar Júpíter undir stjórn Tryggva Ófeigssonar. Lýsir Tryggvi Helga m.a. þannig í ævisögu sinni, sem út kom 1979: „Helgi var stórvel gefínn maður, eins og bróðir hans Jakob Smári og faðir þeirra Jóhannes L.L. Jó- hannesson frá Kvennabrekku í Döl- um. Hann var málamaður góður og fær loftskeytamaður. Skemmti- legur og eftirsóttur félagi. Hagorð- ur nokkuð en fór dult með það ... Helgi var eins fyrsta túrinn og þann síðasta. Hann korri alltaf til skips á réttum tíma. Ekki í eitt skipti þurfti að bíða eftir honum ... Hann var vakandi maður og skyldurækinn ...“ Þau kynni, er sá, sem þetta ritar, hafði af Dagmar, konu Helga, gáfu til kynna að jafnræði hefði verið með þeim hjónum. Jóhannes L.L. Helgason lauk embættisprófi í lögfræði frá Há- skóla íslands í maí 1962 með glæsi- legum árangri. Að loknu prófi starf- aði hann um nokkurra mánaða skeið hjá Vátryggingafélaginu hf. Hann var ráðinn háskólaritari frá 1. janúar 1963 (skipaður frá 1. jan- úar 1964) og gegndi því starfí til 1. september 1971. Þá setti hann á stofn lögmannsskrifstofu í félagi við Jónas Á. Aðalsteinsson, hæsta- réttarlögmann og í samvinnu við hæstaréttarlögmennina Guðmund Ingva Sigurðsson og Svein Snorra- son. Tengsl Jóhannesar við Háskól- ann rofnuðu ekki við þessi vista- skipti, því hann sinnti áfram marg- víslegum málum fyrir skólann og stofnanir hans. Urðu verkefni þessi meiri eftir því, sem árin liðu og árið 1977 var þess að farið á leit, að hann tæki við stöðu fram- kvæmdastjóra Ilappdrættis Há- skóla íslands, en héldi jafnframt áfram lögfræðistörfum fyrir Há- skólann. Tók Jóhannes því boði og hætti rekstri málflutningsskrifstofu með fyrri félögum sínum. Var hann ráðinn framkvæmdastjóri happ- drættisins vorið 1977. Gegndi Jó- hannes því starfi með ágætum til dauðadags, ásamt því að vera lög- maður og lögfræðilegur ráðunautur Háskólans. Þótt Jóhannes ynni nær alla starfsævi sína fyrir Háskóla íslands s, hafði hann með höndum um- fangsmikil störf sem hæstaréttar- lögmaður og naut verðskuldaðs álits sem slíkur. Jóhannes annaðist einn alla kennslu í lögfræði á fyrsta námsári í viðskiptadeild Háskólans frá 1972 til vors 1988 og í nokkur ár kenndi hann verkfræðistúdentum lögfræði. Jóhannes kenndi ennfremur versl- unarrétt um árabil í Verslunaskóla Islands og eru nemendur hans þar og í Háskólanum fleiri en tölu verð- ur á komið með góðu móti. Hann var prófdómari í skattarétti í laga- deild Háskólans frá 1974. Jóhannes gegndi ýmsum opinberum störfum og öðrum trúnaðarstörfum utan aðalstarfs síns. Meðal annars átti hann sæti í ýmsum nefndum fyrir Háskólann, ríkisskattanefnd, mats- nefnd eignarnámsbóta og nokkrum lögskipuðum gerðardómum. Jóhannes L.L. Ilelgason v_ar for- maður Lögfræðingafélags íslands frá aðalfundi 11. desember 1975 til aðalfundar 18. desember 1978 og tók þátt í ýmsum öðrum félags- störfum, sem ekki verða talin hér. 9. júní 1962 gekk Jóhannes að eiga Önnu Fríðu Björgvinsdóttur, dóttur hjónanna Kristínar Ólafs- dóttur og Björgvins Finnsonar, læknis í Reykjavík. Anna er fulltrúi í forsætisráðuneytinu. Við Lovísa hugsum nú til margra ánægju- stunda sem við áttum með þeim Önnu og Jóhannesi á heimili þeirra í Hjálmholti 13 og annars staðar. Börn Önnu og Jóhannesar eru Helgi, f. 4. október 1963, héraðs- dómslögmaður, kvæntur Önnu Maríu Sigurðardóttur, viðskipta- fræðingi, og Kristín, f. 2. mars 1966, kennari. Maður hennar, Gísli Þór Reynisson, er við framhaldsnám í viðskiptafræðum í Bandaríkjun- um. Þau síðarnefndu eiga eina dótt- ur á fyrsta ári, Önnu Fríðu. Helgi og Krístin búa yfír góðum hæfíleik- um eins og foreldrar þeirra og má mikils af þeim vænta. Jóhannes var atgervismaður til líkama og sálar. Hann var glaðlynd- ur, fyndinn og með afbrigðum skemmtilegur, hvort sem hann var í stórum eða smáum hópi, að leik eða starfi. Jóhannes var glæsilegur á velli, fríður og höfðinglegur. í lögfræði voru honum allir vegir færir. Ég hygg, að hann hefði skar- að fram út í hvaða starfí eða fræði- grein sem er. Þekking hans, eðlis- greind, rökvísi og vald á íslensku máli var með miklum ágætum. Fáum mönnum hef ég kynnst sem eru eins fljótir að svara fyrir sig og koma auga á kjama hvers máls. Hann hafði jafnan hnyttið og skyn- samlegt svar á hraðbergi og átti það til að svara með gamansögu eða ljóðabroti. Áberandi er, hvað margt á vel við um Jóhannes í lýsingu á Helga föður hans í upphafi þessara minn- ingarorða. Jóhannes var árrisull og stundvís. Margir getá um þetta borið, ekki síst starfsmenn Happ- drættis Háskóla íslands. Andlegur styrkur og góðar gáfur entust honum til æviloka, en fyrir um það bil áratug brást líkams- hreysti, sem hann átti mikla framan af ævi. Síðustu árin þjáðist hann af Parkinsonsveiki. Þrátt fyrir það kom kallið óvænt, því að hann hafði til hins síðasta gengið til allra starfa og oftast unnið langan vinnudag. Jóhannes er öllum þeim, sem hann þekktu harmdauði. Mikill mann- skaði er að fráfalli slíks hæfíleika- manns. Fyrir mína hönd og fjölskyldu minnar kveð ég þannan góða ná- granna og eftirsótta félaga. Við þökkum honum vináttu og margar gleðistundir. Arnljótur Björnsson Með Jóhannesi L.L. Helgasyni er genginn gáfaður og góður dreng- ur, sem samferðamenn hans munu sárt sakna. Hann bar jafnan af öðrum án þess að láta fólk tiltakan- lega finna fyrir því enda hvers manns hugljúfi. Jóhannes varð ung- ur stúdent og lagði fyrir sig jafn- hliða loftskeytafræði og lögfræði. Tjáskipti hans urðu því liðug og rökvísin eftir því góð. Bóngóður var hann með afbrigðum og lagði á sig æma aukavinnu fyrir aðra án þess að þiggja nokkuð að launum, enda næm tilfinningavera en þó harður af sér og karlmennsku skorti hann ekki. Jóhannes var dulur en vamir hans einkenndust af græskulausri en óþijótandi kímni. Orðvar var hann og lét ekki ljót orð falla til nokkurs manns. Slúður var honum ekki að skapi, en gaman var að heyra hann skilgreina dægurmál jafnt sem fræðilega hluti, enda Jó- hannes víðlesinn, stórfróður og ótrúlega minnugur. Vörpulegur og bjartur yfirlitum var hann, þannig að honum var prýði hvert sem hann fór. Vinnusamur var hann og gerði hlutina vel enda vandur að virðingu sinni. Margs er að minnast frá því leið- ir lágu fyrst saman fyrir 36 áram, þegar Jóhannes hafði lokið Verslun-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.