Morgunblaðið - 26.09.1990, Side 1
56 SIÐUR B
De Klerk Ijær
máls á jöfhum
atkvæðisrétti
Washington. Reuter.
FREDERIK W. de Klerk forseti
Suður-Afríku sagði í fyrsta skipti
í gær að hann gæti fallist á að
svartir og hvítir íbúar landsins
hefðu jafnan atkvæðisrétt. De
Klerk sem nú er í opinberri heim-
sókn í Bandaríkjunum bætti því
skilyrði þó við að tryggð yrðu
réttindi minnihlutahópa i landinu
við gerð nýrrar stjórnarskrár.
De Klerk hitti bandaríska þing-
menn í gær. Robert Dole leiðtogi
repúblikana í þinginu sagði að lokn-
um fundinum að hann teidi að de
Klerk hefði tekist prýðilega að
vinna stefnu sinni fylgi. William
Gray, þeldökkur þingmaður demó-
krata krata, sagði hins vegar að
fæstir vissu hvert de Klerk stefndi
í raun.
A fréttamannafundi í Washing-
ton í gær sagðist de Klerk telja að
fundur sinn með George Bush
Bandaríkjaforseta á mánudag hefði
stuðlað að því að Bandaríkin afléttu
viðskiptaþvingunum gagnvart
Suður-Afríku enda hefðu þær ein-
ungis haft neikvæðar afleiðingar.
Að sögn dagblaðsins New York
Times hét Bush því að reyna að fá
þingið til að láta af efnahagsþving-
unum að gefnum vissum skilyrðum
um pólitískar umbætur.
F. W. de Klerk
Saumað vegna sameiningar
Reuter
Rétt vika er nú til sameiningar þýsku ríkjanna tveggja. Saumakona í Vestur-Berlín sést hér festa vestur-
þýska skjaldaimerkið, örninn, á fána ríkisins. Eins og vænta mátti hefur ríkisstjórn landsins pantað ókjörin
öll af ríkisfánum, þ.e. með skjaldarmerkinu, tii að flagga á sameiningardeginum, 3. október.
Alþjóða heilbrigð-
ismálastofnunin:
Alnærai heij-
ar á börnin
Genf. Reuter.
BÚIST er við að fram til alda-
móta muni 10 milljónir barna
smitast af alnæmisveirunni. Er
þessi spá byggð á tölum um út-
breiðslu veirunnar meðal barna
en þær hafa ekki áður verið
birtar. Segir Alþjóða heilbrigð-
ismálastofnunin (WHO) að þetta
þýði að endurskoða verði allar
spár um útbreiðslu alnæmis.
Nú er talið að 700.000 börn
beri alnæmisveiruna. Þar af hafa
400.000 veikst af alnæmi. Samtals
eru alnæmissjúklingar sem sýna
einkenni nú 1,2 milljónir talsins.
WHO reiknar með að um aldamót-
in hafi komið fram 25-30 milljónir
smitbera.
Útbreiðsla alnæmis er langmest
í Afríku. Fjórði hver íbúi í þéttbýlis-
kjörnum Austur- og Mið-Afríku
ber alnæmisveiruna og níu af
hveijum tíu alnæmistilvikum með-
al barna eru í Afríku. Talið er að
30% líkur séu á því að barn móður
sem ber veiruna smitist. Þau börn
sem sleppa eiga þó oft erfitt líf
fyrir höndum vegna fráfalls móður
eða beggja foreldra.
• •
Oiyggisrað SÞ samþykk-
ir loftferðabann á Irak
Sameiiuiðu þjóðunum. Nikosíu. Reuter.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gær loftferða-
bann á Irak í refsingarskyni fyrir
innrásina í Kúvæt 2. ágúst sl. Öll
flugumferð til og frá landinu
verður stöðvuð nema það stríði
gegn mannúðarsjónarmiðum. Til
að leggja áherslu á mikilvægi
málsins voru 13 af 15 fulltrúum
í ráðinu utanríkisráðherrar sinna
landa. Einungis Kúba greiddi at-
kvæði gegn tillögunni.
Edúard Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, varaði íraka
við því í gær að Sameinuðu þjóðirn-
ar hefðu völd til þess að beita her-
valdi til að frelsa Kúvæt. í ávarpi á
Allsheijarþingi SÞ sagði hann að
Gorbatsjov hafnar hugmyndum
Solzhenítsyns um nýtt ríki Slava
Moskvu. Reuter, dpa.
MÍKHAÍL S. Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna og leiðtogi kommún-
ista þar eystra, gerði í gær að umtalsefni hugmyndir þær um framtíð
ríkjasambandsins er nóbelsverðlaunarithöfundurinn og útlaginn
rússneski, Alexander Solzhenítsyn, kynnti í ritgerð fyrir skömmu.
Gorbatsjov fór lofsamlegum orðum um Solzhenítsyn en kvaðst ekki
geta tekið undir þá liugmynd hans að Slövum búsettum í Rúss-
landi, Hvíta-Rússlandi, Ukraínu og norðurhluta Kazakhstan bæri
að stofna nýtt ríki um leið og ríkjasambandið sovéska yrði leyst upp.
Þessar hugmyndir Solzheníts- að þessi skrif hans hafi vakið al-
yns, sem var sviptur sovéskum
ríkisborgararétti árið 1974 og rek-
inn frá heimalandi sínu vegna
skrifa sinna um níannréttindabrot
valdhafa í Sovétríkjunum og þrælk-
unarbúðir staiínismans, birtust í
síðustu viku í Komsomolskaja
Pravda, málgagni ungliðahreyfing-
ar sovéska kommúnistaflokksins.
Solzhenítsyn nýtur mikillar virð-
ingar í Sovétríkjunum og hermt er
menna athygli, ekki síst í fyrr-
nefndum lýðveldum, þar sem fjöl-
margar þjóðir og þjóðarbrot hafa
blásið í lúðra í nafni sjálfstæðis.
Gorbatsjov kvaðst aðspurður á
þingi í gær hafa lesið þessa grein
rithöfundarins tvívegis. Kvaðst
hann hafa komist að þeirri niður-
stöðu að höfundurinn sýndi öðrum
þjóðum Sovétríkjanna ekki tilhlýði-
lega virðingu. Byltingarleiðtoginn
Vladímir Lenín hefði allt fram til
sinnar hinstu stundar barist fyrir
því að sérhverri þjóð og þjóðar-
broti auðnaðist að njóta frelsis í
Sovétríkjunum og gætu þær þannig
horft með bjartsýni til framtíðar-
innar. Sagðist hann þess fullviss
að þessi draumur Leníns myndi
senn rætast og vísaði til þess að
hafin væri vinna við drög að nýjum
sáttmála um samband Sovétlýð-
veldanna 15.
Gorbatsjov sagði hugmyndir
Solzhenítsyns vera sér framandi.
„Hann er allur í fortíðinni en ég,
sem lýðræðissinni, er hallur undir
róttækar hugmyndir,“ sagði Gorb-
atsjov en bætti við að ritsmíðin
verðskuldaði nánari umfjöllun ekki
síst í ljósi þess hver höfundurinn
væri. „Hann er að sönnu mikil-
menni,“ sagði Sovétleiðtoginn en á
árum áður var Solzhenítsyn talinn
í hópi föðurlandssvikara vegna
skrifa sinna.
Gorbatsjov minntist hins vegar
ekki á skrif Solzhenítsyns um sögu
kommúnismans í Sovétríkjunum en
í greininni sagði hann umbóta-
stefnu Sovétleiðtogans , sem kennd
er við perestrojku, „aumkunar-
verða".
Sovéska dagblaðið Trúd skýrði
frá því í gær að Solzhenítsyn hefði
verið gerður að heiðursborgara í
borginni Ríjasan í Rússlandi en þar
dvaldist hann er hann skrifaði bók-
ina „Dagur í lífi Ivans Denísovítsj".
Sjá ennfremur „Grein dreift
til fjölmiðla...“ á bls. 20.
heimurinn væri á barmi styijaldar
og skoraði á íraka að sýna skyn-
semi.
Ávarp frá Saddam Hussein íraks-
forseta var sýnt í bandarísku sjón-
varpi í gær. Þar sagði hann að
George Bush Bandaríkjaforseti
stefndi að styrjöld sem yrði þjóðinni
enn dýrkeyptari en Víetnam-stríðið.
Ráðamenn í Sýrlandi og íran lýstu
því yfir í gær að þeir hefðu sömu
afstöðu til Persaflóadeilunnar.
Assad Sýrlandsforséti lauk í gær
opinberri heimsókn sinni til írans.
Ilann gagnrýndi bæði innrás íraka
í Kúvæt og hernaðaruppbyggingu
Vesturlanda í Saudi-Arabíu en lagði
áherslu á að hið fyrra væri orsök
hins síðara.
Að sögn bandaríska dagblaðsins
New York Times hafa írakar flutt
búnað til að hreinsa eiturgas af
mönnum og farartækjum til landa-
mæra Saudi-Arabíu. Blaðið vitnar í
ónafngreinda heimildamenn í banda-
ríska stjórnkerfinu og segir að þetta
sýni að írakar séu að búa sig undir
efnavopnastríð. Sérfræðingar segja
hins vegar að útilokað sé fyrir Iraka
að framfylgja hótun Saddams Huss-
eins um að stöðva með árásum olíu-
framleiðslu við Persaflóa. Olíulindir
á landi í Saudi-Arabíu skipti til dæm-
is hundruðum. Hins vegar væri auð-
veldara að ráðast á olíuborpalla
Saudi-Araba á hafi úti en slíkt myndi
ekki hafa mikil áhfrif á heildarfram-
leiðslu landsins.