Morgunblaðið - 26.09.1990, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 26.09.1990, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS / \B Þessir hringdu . . . Óhollar kartöflur? Bergþóra Hreinsdóttir- hringdi: „Ég hef verið að velta fyrir mér hvort þessar kartöflur sem teknar voru upp nokkrum dögum eftir að eitrað var fyrir kartöflu- myglu hljóti ekki að vera óhollar. Eitrið hefur smogið niður í jarð- veginn og átt greiða leið inn í kartöflurnar. Þessar kartöflur hljóta að vera óhollar. Ég hef heyrt að þegar þessi aðferð er notuð erlendis til að losna við kartöflumyglu sé ekki tekið upp fyrr en eftir tóif daga.“ Hanski Ryðbrúnn leðurdöinuhanski á vinstri hönd tapaðist á þriðjudag. Vinsmalegast hringið í síma 74228. Taska Hvít taska með sundbol og handklæði gleymdist sennilega i leið 5 fyrir skömmu. Taskan er merkt „Hulda 3ÞG“. Vinsamleg- ast hringið í síma 35373 ef hún hefur einhvers staðar komið í leit- irnar. Næla Næla, sem er erfðagripur, tap- aðist' í Miðbænum fyrir nokkru. Um er að ræða silfurnælu eins og eðla í lögun og alsett steinum. Upplýsingar í síma 71517. Köttur Síams fressköttur fannst við Grafarvog á laugardag. Upplýs- ingar í síma 676787. Stórkostleg heimildamynd Kona hringdi: „Ég vil þakka Sjónvarpinu fyrir stórkostlega heimildamynd, Blóð- litað hafa, sem sýnd var miðviku- daginn 19. september. Þetta var meiriháttar mynd og ætti að end- ursýna hana. Þá finnst mér að umræðuþáttur ætti að vera eftir svona myndir því þetta mál snert- ir okkur mjög.“ Veski Svart veski með lyklum og far- miðum frá Ferðafélagi íslands fannst í vesturborginni. Upplýs- ingar á kvöldin í síma 10669. Kettlingur Kettlingur fæst gefins. Upplýs- ingar í síma 675255. Lykill Húslykill með kristalskúlu tap- aðist, líklega við Landsbankann, Laugavegi 77. Finnandi er vin- samlegast beðinn að hringja í síma 18199. Fundarlaun. Gleraugu Miðvikudaginn 19. september tapðaðist lítið veski með gleraug- um og peningabuddu við strætis- vagnabiðskýli við Grensásvegi á móts við Hæðargarð. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 33333. Stærðir 48.-64 3 gerdir 3 litir ...ekki barakaffi Níðsterkur, léttur ng fjölliætur Yale - gæði - ending £ JÓHANN ÓLAFSSON & CO. HF. 43 Sundaborg 13 - UM R*yk)»vik - Simi 688 W8 ^T«nOs. Heilræði Mörg börn leika sér á svoköll- uðum hjólabrettum. Það er í góðu lagi séu þau ekki á þeim í umferðinni. Einnig er ástæða til að mæla með notkun hlífðar- búnaðar - sérstaklega hjálma. Snaran ekki langt undan Þakstál með stfl Góðir dagar í Skálholti Til Velvakanda. í byijun september var haldin kvennaráðstefna í lýðháskólanum í Skálholtí. Síra Hanna María Péturs- dóttir stóð fyrir ráðstefnuhaldi og hafði fengið hingað þijá ágæta fyrir- lesará, þær doktor Heide Göttner- Abendroth heimspeking frá Þýska- landi sem fjallaði um mæðraveldi í fyrndinni og nýjustu rannsóknir á þeim sviðum, Ásdísi Egilsdóttur cand. mag. sem starfar við Áma- stofnun og kennir miðaldabók- menntir við Háskóla íslands. Sagði Ásdís skemmtilega frá heilögum Þorláki Þórhallssyni biskupi og kon- um sem höfðu áhrif á ævi hans. Varpaði ræða hennar nýju ljósi á helgisöguna, enda hefir Ásdís staðið að nýrri útgáfu á Þorlákssögu. Auð- ur Eir Vilhjálmsdóttir prestur í Þykkvabæ ijallaði um endurskoðun á karlaarfi átrúnaðar. Trúarlega nýtúlkun kvenna á samtíðinni, stefn- ur og strauma. Húsakynni í lýðháskólanum eru hin vistlegustu og viðurgerningur og viðmót húsráðenda og hjúa þann- ig að hver dagur leið í dýrðlegum fagnaði. Var líkast því að dvelja á einu af stórheimilum fyrri tíma þar sem gestir voru kærkomnir — af þvi að hjónin eru þar öðrum og sér til glaðværðar. Hafi allir starfsmenn Lýðháskólans í Skálholti þökk fýrir góða daga. Sigurveig Guðmundsdóttir Yale Vírtogari PC - Tölvunám Notkun tölva byggist á þekkingu og fœrni. Þér býöst nú 60 tíma vandað nám á sérstaklega góðum kjörum. Ritvinnsla Töflureiknir Piannja át þakstál Aðrir helstu sölu- og þjónustuaðilar: Blikksmiðjan Funi sf, Kópavogi, sími 78733. Blikkrás hf, Akureyri, Simi 96-26524. Vélaverkstæði Bjöms og Kristjáns, Reyðarfirði, sími 97-41271. Vélaverkstaeðið Þór, Vestmannaeyjum, sími 98-12111 Hjá okkur færðu allar nýjustu gerðir hins vinsæla og vandaða þakstáls frá Plannja. Urval lita og mynstra, m.a. Plannja þakstál með mattri litaáferð, svartri eða tígulrauðri. ÍSVÖR HF. Dalvegur 20 Kópavogur Pósthólf 435 • 202 Kópavogur Sími 91-670455 • Fax 670467 Velvakandi góður. Ég sé í dálkum þínum 21. septem- ber sl. að einhver hófdrykkjumaður, (sem ég held að fáir eða enginn viti hvað er) er á ferðinni. Ég minnist þess að ég var eitt sinn í hópi nokkurra slíkra með skemmtiatriði að mér hafði hug- kvæmst að hafa vísunar nógu vit- lausar og auðvitað var hrópað húrra fyrir. Það er ekki nýtt að myrkrið komi úr skúmaskotum án nafns og myndar. Menn þora á þessari braut oft ekki að sýna sitt rétta andlit. En það mega þeir félagar Sverrir og Leifur eiga, að þeir koma til dy- ranna eins og þeir eru klæddir. Guð gefi þeim náð til að finna hinn þrönga veg. Maðurinn á að fá að ráða sér sjálfur, segja þeir, jafnvel þótt menn séu ekki sjálfráðir gerða sinna. Það er þetta frelsi sem veður um í dag — og þá er snaran ekki langt undan — því miður. Áfengið hefir áhrif — bindindis- menn ekki. Því er nú verr að of mikil sannindi eru í þessu. Bindindis- menn eru í veikleika sínum að benda manninum á hollari lífsfarveg, benda þeim á hinn þrönga veg sem frelsar- inn talar um. Það er engin biðröð eins og við bjórstofurnar í dag. Bindindismenn vita að enginn má fara til ónýtis í okkar fagra iandi, þar sem nóg verkefni eru fyrir hveija Stýrikerfið - Tölvuskóli Islands Sími: 67 14 66, opið til kl. 22 starfandi hönd. Þá tekur sárt til þeirra sem villast út á hin breiða veg eltandi mýrarljós samtíðarinnar. Því það er auðhlaupinn vegur og ég segi enn: það er sárt að sjá gott manns- efni verða til byrði í þjóðfélaginu í stað gagns, lifa sjálfum sér og öðrum til leiðinda. Flestir vilja vera hóf- drykkjumenn en taka áhættuna að enda sem ofdrykkjumenn. Frelsarinn sagði: Faðir, fyrirgef þeim því þeir vita ekki hvað þeir gera. Er ekki hægt í dag að orða þetta þannig: Faðir, fyrirgef þeim því þeir hafa ekki hugmynd um hvað þeir eru að segja.^ Árni Helgason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.