Morgunblaðið - 26.09.1990, Side 19

Morgunblaðið - 26.09.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990 19 Samstarf íslendinga, Frakka og Spán- verja að Eureka-verkefni: Hönnun á fískiskipi 10. áratugarins FELAG íslenskra iðnrekenda efndi nýlega til kynningar á Halios- verkefninu svonefnda, saipstarfsverkefni Frakka, Spánverja og ís- lendinga, um þróun á fiskiskipi 10. áratugarins. Aðilar að verkefn- inu eru opinberar stofnanir auk einkafyrirtækja í þessum lðndum og er það eitt af verkefnum Eureka-áætlunarinnar. Einu undirverk- efni Halios, „Maður fyrir borð“, er þegar lokið og veitti menntamála- ráðuneytið fyrirtækinu Björgunarnet Markúsar, sem vann verkið, viðurkenningu í tilefni af því. Halios-verkefnið er eitt af 385 verkefnum innan Eureka-áætlunar- innar og forsvarsmenn þess eru Franska haftæknistofnunin, Sam- tök skipasmíðastöðva og tækja- framleiðenda á Spáni og Félag ís- lenskra iðnrekenda á íslandi. Eureka-áætlunin er frumkvæði 20 Evrópulanda auk Evrópuráðsins að því að stuðla að samstarfi milli ríkja Evrópu í því skyni að auka framleiðni og samkeppnisfærni Evrópumanna á heimsmælikvarða. Islendingar eru aðilar að þremur verkefnunum innan Eureka-áætlunarinnar. Halios-verkefninu hefur verið skipt í tvo hluta. Annars vegar er unnið að þróun á búnaði tækjum og heildarkerfum til nota um borð í fiskiskipum en hins vegar að hönn- un og smíði skipa sem geta orðið einskonar fyrirmynd fiskiskipa þessa áratugar. Verkefnið hefur staðið í tvö ár og er ráðgert að fyrra hluta þess ljúki árið 1992 en seinni hlutanum í upphafi ársins 1993. Þau íslensku fyrirtæki og stofn- anir sem eru þátttakendur í Halios- verkefninu eru Marel hf. og Há- skóli íslands, sem vinna að þróun upplýsingakerfis fyrir togara ásamt spænsku og frönsku fyrirtæki og er áætlaður kostnaður við verkefnið 350 milljónir ísl. króna. Þá vinnur Marel ásamt íslenska fyrirtækinu Efli og franska fyrirtækinu Breuil að þróun vinnslulínu fyrir togara sem áætlað er að kosti 40 milljónir ísl. kr. og Slippstöðin hf., Vélsmiðj- an Oddi og Plasteinangrun hf. vinna að þróun lestarkerfis fyrir ísfisktog- ara ásamt frönsku og spænsku fyr- irtæki og hljóðar kostnaðaráætlun upp á 120 milljónir kr. Loks vann fyrirtækið Björgunarnet Markúsar að verkefninu „Maður fyrir borð“ og er því nú lokið. Alls tók það þijú ár í vinnslu og var kostnaður 9 milljónir ísl. króna. Morgunblaðið/Sverrir Jón Adolf Guðjónsson, bankastjóri Búnaðarbankans, og Siguijón Þ. Arnason, formaður SHÍ, handsala samning bankans við stúdenta. Samningur SHÍ og Búnaðarbankans: Fyrsta árs nemum lán- að fyrir fyrstu önninni STÚDENTARÁÐ Háskóla íslands og Búnaðarbíinkinn hafa gert með sér samning um sérþjónustu við háskólastúdenta i bankanum. Hún felur það meðal annars í sér að fyrsta árs nemum er lánað fé sem nemur allt að 90% af áætlaðri fyrstu lánveitingu Lánasjóðs ís- lenzkra námsmanna. Á sú lánveit- ing að duga stúdentum til fram- færslu á fyrstu önninni í námi, eða fram yfír áramót, er niðurstöður prófa liggja fyrir og greiðslan kemur frá Lánasjóðnum. Fram til þessa hafa nýnemar í Háskólanum þurft að bíða námsláns þar til eftir áramót. Búnaðarbankinn mun lána stúdentum féð fram að áramótum, að uppfylltum almennum skilyrðum um námshæfni og ábyrgð- ir. Lánið greiðist í mánaðarlegum skömmtum inn á reikning stúdents eins og um vanalegt námslán væri að ræða. Þegar peningar koma frá LÍN greiðist lánið svo upp, en falli stúdent á janúarprófunum og fái ekki námslán, eru afborganir af lán- inu sveigjanlegar. í námsmannaþjónustu bankans felst einnig að stúdentar geta fengið 50.000 kr. yfirdráttarheimild á tékk- areikningi sínum. Þá veitir bankinn námslokalán allt að 750.000 krónum, sem einkum er ætlað til húsnæðis- kaupa. Öll þessi þjónusta er veitt án viðtals við bankastjóra. Samkvæmt samningi SHÍ og Bún- aðarbankans styrkir bankinn íjóra útskriftarstúdenta árlega, einn í heil- brigðisgreinum, einn i verkfræði- og raunvísindadeild, einn lögfræði- eða viðskiptastúdent og einn hugvísinda- nema. Nesjavalla- virkjun vígð á laugardaginn FORMLEG vígsla Nesjavallavirkj- unar fer fram á laugardaginn. Hefst athöfnin að Nesjavöllum klukkan þrjú. Heitu vatni frá Nesjavöllum var fyrst hleypt inn á dreifikerfi Hitavei- tunnar 28. ágúst sl. Hefur síðan verið unnið að því að prófa og endur- bæta tæknibúnað. Virkjunin var stöðvuð í síðustu viku og farið yfir stillingar á forritum og rafdreifi- kerfi. Var hún svo ræst að nýju á mánudag. Árni Gunnarsson, yfirverkfræð- ingur Hitaveitu Reykjavíkur, segir að nú sé líklega búið að komast yfir fyrstu barnasjúkdómana og að virkj- unin sé komin í fullan rekstur. Morgunblaðið/Sverrir Vilhjálmur Lúðvíksson framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs ríkisins í ræðustól. Honum á vinstri hönd eru Dávíð Lúðvíksson hjá Félagi íslenskra iðnrekenda og lengst til vinstri er Þorvaldur Pétursson verkefnissljóri Halios-verkefnsins á íslandi. Júlíus Sólnes umhverfisráðherra: Landsmenn dragi úr mengun frá bílum í kjölfar nýs álvers JÚLÍUS Sólnes umhverfisráðherra vill að landsmenn sameinist um að hraða þvi að koma við mengunarvörnum á útblástur bifreiða í kjölfar byggingu nýs álvers sem hafi verulega viðbót á loftmengun í för með sér. Júlís Sólnes sagði við Morbunblað- ið, að ef verið væri að ræða um að reisa allt að 400 þúsund tonna ál- ver, þá færu út í andrúmsloftið allt að 400 þúsund kílóum af flúor á ári, og þessi rekstur væri því, hvað sem hveiju liði, mjög mengandi. „Þetta er því spurning urn að reyna að viðhafa ströngustu meng- unarvarnir og nota bestu fáanlegu tækni í þeim efnum sem völ er á. Eg hef einnig varpað fram þeirri hugmynd, að við ættum í kjölfarið á þessu að gera átak til að draga úr mengum frá bifreiðum. Við gætum með því dregið verulega aftur úr þeirri viðbótarloftmengun sem álve- rið hefði í för með sér, sagði Júlíus. Hann sagðist viija láta athuga með hvaða hætti stjórnvöld gætu hvatt til þess að flýta aðgerðum til að koma fyrir mengunarútbúnaði á bílum, m.a. með skattaívilnunum. (gauknecht ÞÝSK GÆÐATÆKIÁ GÓÐU VERÐI mmm @ SAMBANDSINS HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50 VIÐ MIKLAGARÐ & KAUPFÉLÖGIN BOSCH HEIMILISTÆKI og lífid er leikur JÚHANN ÚLAFSSON & Cú. HF. Sundaborg 13 - 104 Reykjavík - Sími 688 588 OPIÐ LAUGARDAGA KL. 10-12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.