Morgunblaðið - 26.09.1990, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.09.1990, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990 Yfírmaður KGB vísar á bug getgátum um valdarán sovéska hersins: Grein dreift til Qölmiðla um valdaránsáform umbótasinna Moskvu. Reuter. VLADÍMIR Krjútsjkov, yfirmaður sovésku öryggislögreglunnar, KGB, hefur vísað á bug ummælum þingmanns eins þess efnis að her Sovétríkj- anna sé hugsanlega að undirbúa valdarán. Mjög hefur borið á slíkum sögusögnum í höfuðborg Sovétríkjanna, Moskvu, á undanfórnum vikum og fjallaö hefur verið um áform um valdarán í dagblöðum og tímarit- um. Við nýjan tón kvað þó í gær er TASS-fréttastofan sovéska dreifði grein þar sem fullyrt var að róttækir umbótasinnar í Moskvu hefðu í hyggju að steypa Míkhaíl S. Gorbatsjov, forseta og leiðtoga sovéska kommúnistaflokksins, af stóli. í grein sem TASS-fréttastofan dreifði í gær og sögð var túlka skoð- anir höfundarins, V. Petrúníja, var látið að því liggja að róttækum umbótasinnum hefði verið komið til valda í borgarstjórn Moskvu í þeim tilgangi að skerða lífskjörin þar enn frekar. Tilgangurinn með því væri hins vegar sá að auka á óánægju almennings í því skyni að undirbúa valdarán í Sovétríkjunum. Höfund- urinn kvaðst vera þeirrar skoðunar að það væri ekki tilviljun ein að íbúar höfuðborgarinnar kæmu til með að líða skort í vetur. Yfirvöld í Moskvu hefðu ekki gert neitt til að tryggja að þar yrði nægan mat að fá. Þetta væri verk „lýðræðis- sinna“ og samstarfsmanna þeirra og átti höfundurinn þar að líkindum við Borís Jeltsin, forseta Rússlands, og þekktasta leiðtoga svonefndra róttækra umbótasinna í Sovétríkj- unum. Með því að skapa þetta ófremdarástand hefðu öfl þessi lagt grunninn að valdaráni, sem miðaði í senn að því að steypa ríkisstjórn Níkolajs Ryzhkovs forsætisráð- herra og forseta Sovétríkjanna, Míkhafl S. Gorbatsjov. Gagnrýni Jeltsíns Svo virtist sem grein þessi væri ætluð til birtingar í sovéskum dag- blöðum og þótti athyglisvert að veist væri að Borís Jeltsín með þess- um hætti en hann og aðrir ráða- menn rússneskir hafa gagnrýnt Ríkissaksókn- ari — ekki rík- islögmaður í frétt um rannsókn á máli Jans P. Syse, forsætisráðherra Noregs, hér í blaðinu í gær er sagt, að ríkis- lögmaður Noregs hafi mál hans nú til meðferðar. Þetta er ekki rétt, því að það er norski ríkissaksóknar- inn sem hefur málið í sínum hönd- um. Norska orðið ríksadvokat merkir ríkissaksóknari en hins veg- ar er regjeríngsadvokat ríkislög- maður. Morgunblaðið biðst velvirð- ingar á þessum mistökum við þýð- ingu. Rynkeby ÁVAXTAGRAUTAR harðlega völd þau sem Æðsta ráð- ið, þing Sovétríkjanna, veitti Gorb- atsjov á mánudag til að stjórna með tilskipunum. Þá hefur hugsanlegt valdarán verið ofarlega á baugi, einkum í Moskvu að undanförnu en fram til þessa hafa þær getgátur einkum verið settar í samhengi við óánægju innan Rauða hersins. Skýringa krafist á þingi Þannig sagði þingmaður einn, Sergej Bjelozerstjev, í ræðu er hann flutti á þingi Sovétríkjanna á mánu- dag að umfangsmikilir liðsflutning- ar hefðu farið fram í höfuðborginni að undanförnu. Fjórum deildum fallhlífarhermanna og tveimur her- fylkjum til viðbótar hefði verið skip- að í viðbragðsstöðu og tvær deild- anna hefðu venð færðar undir yfir- stjóm KGB. „Ég krefst skýringar á því hvers vegna hermennirnir voru einkennisklæddir og hvers vegna þeir voru vopnaðir byssum og táragashylkjum og í skotheldum vestum,“ sagði þingmaðurinn. Sagði hann að draga mætti þá ályktun að valdarán væri í undir- búningi. „Hvers vegna hafa leyfi hermanna verið afturkölluð? Hvers vegna hefur viðbúnaður heraflans verið aukinn?“ Bjelozerstjev kvað upplýsingar þessar hafa borist frá félögum í samtökunum „Skjöldur" (Sjíkth) en yfirlýstur tilgangur þeirra er sá að gæta hagsmuna bæði núverandi og fyrrverandi hermanna. Fyrr í þess- um mánuði var fjallað um hugsan- legt valdarán í tveimur sovéskum tímaritum og sagði þar að sú skoð- un nyti vaxandi fylgis innan Rauða hersins að binda bæri enda á upp- lausnarástandið sem ríkjandi væri í Sovétríkjunum. Dmítrí Jazov, varnarmálaráðherra Sovétríkjanna, taldi ástæðu til að bera fréttir þess- ar til baka á opinberum vettvangi. Vöruskortur og síversnandi lífskjör alþýðu manna í Sovétríkjunum hafa að sögn kunnugra ýtt enn frekar undir sögusagnir og getgátur um að herinn hyggist ræna völdum auk þess sem vitað er að óánægja er ríkjandi innan heraflans vegna fyr- irhugaðrar heimkvaðningar hundr- aða þúsunda hermanna frá ríkjum Austur-Evrópu. Andmæli Gorbatsjovs og KGB Míkhaíl S. Gorbatsjov bað þing- manninn um að nafngreina heimild- armenn sína og sakáði hann um að eyða tíma þingheims til einskis. Vladímír Kijútskov, yfinnaður ör- yggislögreglunnar, sagði að sveitir fallhlífarhermanna hefðu verið fluttar frá Ríjazan, um 200 kíló- metra suður af Moskvu og stæðu þeir flutningar í sambandi við fyrir- huguð hátíðarhöld vegna byltingar- afmælisins í nóvember. Þegar þeim væri lokið yrðu hersveitirnar fluttar aftur til búða sinna. Fallhlífarsveit- irnar er þingmaðurinn nefndi hefðu um tíma verið færðar undir stjórn KGB til að efla landamæravörslu. „Fullyrðingar þingmannsins fá ekki staðist," sagði yfirmaður öryggis- lögreglunnar. Búlgaría: Lflov endurkjörinn leiðtogi sósíalista Sófíu. Reuter. ALEXANDER Lílov var endur- kjörinn formað- ur búlgarska só- síalistaflokksins á flokksþingi í gær. Umbóta- sinnar í röðum ilokksmanna höfðu hvatt hann Alexander Lílov til að draga sig í hlé. Lílov er 57 ára gamall og fyrrum hugmyndafræðingur búlgarska kommúnistaflokksins í valdatíð Todors Zhívkovs flokksleiðtoga. Nýtur Lílov stuðnings harðlínu- manna í flokknum, sem stofnaður var á rústum kommúnistaflokksins. Stjórnmálaskýrendur sögðu að völd harðlínumanna hefðu aukist á flokksþinginu þar sem fjórir kunnir umbótasinnar hefðu verið felldir úr stjóm flokksins. Er þar um að ræða Dragomír Draganov, Valentín Vatsev, Asen Zhablenskí og Petar- Emíl Mítev. Ennfremur misstu Pet- ar Mladenov, fyrrum flokksleiðtogi, og Dobrí Ozburov, fyrrum varnar- málaráðherra, sæti sín í flokksráð- inu og einnig Beltsjo Beltsjev fjár- málaráðherra. Fulltrúar umbótasinna spáðu því í gær að sósíalistaflokkurinn myndi klofna fyrst Lílov var endurkjörinn leiðtogi hans. Hlaut hann 833 at- kvæði af 1.330 á flokksþinginu en 432 greiddu honum mótatkvæði. í ræðu að kosningum loknum sagðist Lílov áhyggjufullur vegna brotthvarfs ýmissa umbótasinna úr flokksráðinu. Líklegt er talið að sósíalistaflokkurinn klofni þegar í þessari viku því nokkrar fylkingar' umbótasinna hafa boðað til fundar nk. laugardag til þess að bera sam- an bækur sínar um hvernig brugð- ist skyldi við auknu veldi harðlínu- manna í flokknum. JÍ ' m&m mmma OOOOUB 4 Wrm AtlCiÖST, IMA / iJfy / / ’ V / / , ffMKAsri?Y mr n u HpHjMl ^ fyf/ IgHHHMHHfl O X K M l LLIÖ X P O V X I > H / á/ / /s/f f/s f/ff/ffff /:■/// s~4/ f/t€ //f//Sfjá;, f Æ/' yfc' / f/£///:// //$&/// / / //, 5wM Milljónpundaseðillinn Reuter Gert er ráð fyrir að siegist verði um milljón punda peningaseðil sem verður boðinn upp hjá Christie’s- uppboðsfyrirtækinu í London í næsta mánuði. Ekki_ er hægt að innlevsa seðilinn sem er einn af átta* slíkum er gefnir voru út árið 1948 til að vekja at- hygli á Marshall-aðstoð Bandaríkjanna við V-Evrópu eftir stríð þegar mörg ríki álfunnar voru í rústum. Líklegt er talið að seðillinn fari á allt að 30.000 pund eða rúmar þijár milljónir ÍSK en aðeins eru til tvö eintök í heiminum; hinir sex voru eyðilagðir skömmu eftir prentunina. Bandaríski rithöfundurinn Mark Twain ritaði þekkta smásögu um örsnauðan mann sem fenginn var milljónpundaseðill og átti hann að reyna að hjara um hríð í London með því að slá lán út á seðilinn. ■ LEIPZIG Kirkja mótmælenda í Austur-Þýskalandi hefur svipt prest nokkurn kjóli og kalli fyrir að skíra tvo ketti, að sögn Werners Leichs, biskups. Skímin átti sér stað í sókn í bænum Greiz sem er skammt frá Leipzig. ■ VÍNARBORG Fyrrum kansl- ari Austurríkis, Fred Sinowatz, var í gær sektaður um 360.000 skildinga, jafnvirði 1,8 milljóna ÍSK, fyrir að bera ljúgvitni í meið- yrðamáli sem hann höfðaði á hend- ur tímaritinu Profil og rekið var í tengslum við embættistöku Kurts Waldheims forseta. Við réttarhöld- in neitaði Sinowatz því að hafa hótað að upplýsa um fortíð Wald- heims, eins og tímaritið hélt fram, en rétturinn komst að þeirri niður- stöðu að blaðið hefði haft rétt fyrir sér. ■ ROSEVILLE PRENTARI að nafni Jim Carlberg í bænum Rose- ville í Illinoisríki græðir á tá og fingri og getur ekki annað eftir- spurn eftir óvenjulegum salernis- pappír. Er hann skreyttur myndum af Saddam Hussein íraksforseta og kostar fjögurra rúllu búnt 19,95 dollara, jafnvirði 1.100 ÍSK. Hefur Carlberg á nokkrum dögum prentað og selt 20.000 rúllur og fengið pant- anir fyrir öðru eins magni. Fyrir- tæki Carlbergs sérhæfir sig í prent- un óvenjulegs salemispappírs og eru tvær tegundir hvað vinsælast- ar; pappír með mynd af skatta- skýrslunni og svo pappír sem á er prentað orðið tengdamamma. ■ ÓSLÓ NORSKA stjórnin fór þess á leit við sovésk yfirvöld að þau veittu upplýsingar um meintan urðunarstað kjarnorkuúrgangs í 70-80 km fjarlægð frá norður- norsku landamærunum. Þar mun grafinn djúpt í jörð úrgangur frá kjarnorkuknúnum kafbátum og orkuverum. Sovésk umhverfisstofn- un mun hafa bent á urðunarstaðinn og hyggjast Norðmenn iáta reyna á ársgamlan samning þeirra og Sovétmanna um gagnkvæma upp- lýsingaskyldu vegna' atvika tengd- um kjarnorkuvinnslu. ■ BRUSSEL Undanfarna daga hafa mörg veggspjöld verið tekin niður í höfuðstöðvum Atlantshafs- bandalagsins (NATO) vegna fyrir- hugaðrar heimsóknar Míkhaíls Gorbatsjovs, leiðtoga sovéska kommúnistaflokksins, þangað. Til þess að særa ekki leiðtogann hafa sgjöld með áletrunum á borð við „Ognin er viðvarandi" og „Látum leyndarmálin ekki berast" verið sett í geymslu. Noregur: Flokksfyrir- tæki SV brutu skattalögin Ósló. Reuter. LEIÐTOGAR Sósíalíska vinstri- flokksins (SV) viðurkenndu í gær að fyrirtæki í hans eigu hefðu gerst sek um brot á skattalögum sem væru í eðli sínu hin sömu og fyrirtæki í eigu Jans Syse forsæt- isráðherra urðu uppvís að. Blaðið Aftenposten skýrði frá því í gær að fyrirtæki SV hefðu gerst sek um brot á skattalögunum og játaði Bente Sandvig, framkvæmda- stjóri flokksins, að frétt blaðsins væri sannleikanum samkvæm. Að sögn Aftenposten skilaði eitt flokks- fyrirtæki ársreikningi eftir að skila- frestur var út runninn og reikningar annars voru sagðir hafa verið sendir en virtust hafa týnst í pósti. SV hefur 17 þingmenn af 165 sem sitja á norska Stórþinginu. Flokkur- inn gekk fram fyrir skjöldu þegar út spurðist að fyrirtæki Syse hefðu brotið skattalögin með því að skila ekki ársreikningum til skattyfirvalda og krafðist afsaganar Syse. Sögðu leiðtogar flokksins að forsætisráð- herrann ætti að vera til fyrirmyndar í því að virða landslög.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.