Morgunblaðið - 26.09.1990, Side 9

Morgunblaðið - 26.09.1990, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990 9 Svona einfalt er að gerast áskrifandi að spariskírteinum ríkissjóðs Já, ég vil hefja reglulegan spamað og gerast áskrifandi að spariskírtemum ríksissjóðs Nafn__________________________________________ Heimili______________________________________ Staður_______:_______________i____ Póstnr.___ Sími------------------- Kennitala I I I I I I I I I I T~l (Tilgreindu hér fyrir neðan þá grunnfjárhæð sem þú vilt fjárfesta fyrir f hverjum mánuði og lánstíma skírteinanna.) Fjárhæð □ 5.000 □ 10.000 □ 15.000 □ 20.000 □ 25.000 □ 50.000 eóa aðra fjárhæö að eigin valikr. (semhleypurákr. 5.000) Binditiml og vextír □ 5ármeð6,2% vöxtum □ 10ármeð6,2% vöxtum Ég óska eftir að greiða spariskírteinin með □ greiðslukorti □ heimsendum gíróseðli Greiðslukort mitt er: □ VISA □ EUROCARD □ SAMKORT Númer greiðslukorts: II 1 II 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 Gildistími greiðslukortsins er til loka (mán. og ár): dags. undirskrift X Vfsitala og vextir bætast við gntnnfjárhæð hverju sinni, sem reiknast ftá og með útgáfudegi skfrteinanna til 20. dags hvers mánaðar á undan greiðslu. Settu áskriftarseðilinn í póst fyrir 15. þess mánaðar sem þú ákveður að hefja áskrift, og sendu til: Þjónustumiðstöðvar e8a Seðlabanka íslands ríkisverðbréfa Kalkofnsvegi 1 Hverfisgötu 6 150 Reykjavík lðl Reykjavík Þú getur einnig hringt f sfma 91-626040 eða 91-699600 og pantað áskrift. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6, 2. hæð. Sími 91-62 60 40 Sprungnar áætlanir I síðustu viku var for- síða Þjóðviljans, mál- gagns sósíalisma, þjóð- frelsins og verkalýðs- hreyfingar, lögð undir fréttir af því, að stöðugt fleiri leita aðstoðar fé- lagsmálastofnana í ýms- um sveitarfélögum vegna vaxandi erfiðleika og fátæktar. í raun eru fréttir þessar stórfelld árás á foringja og ráð- herra Alþýðubandalags- ins, sem láta sér það lynda að sitja í stjórnar- ráðinu setuimar einnar vegna. Oll stefnumið og fyrri heitstrengingar eru týnd- og tröllum gefin, enda tilgangur ráðherra- sósíalismans sá einn, að halda foringjunum við völd. Þar eru þeir Svavar Gestsson, Steingrímur J. Sigfússon og Ólafur Ragnar Grimsson verð- ugir arftakar fyrri ráð- herrasósíalista Alþýðu- bandalagsins. I fréttum Þjóöviljans kemur fram, að sífeUt fleiri leiti til félagsmála- stofnunar borgariimar „vegna þess að endar ná ekki saman i heimUisbók- haldinu", eins og bfaðið orðar það. Þar kemur fram, að borgarstjóra hafi tvívegis þurft að auka Qárveitingar tif að aðstoða fólk á þessu ári og nemi aukafjárveiting- araar samtals 120 millj- ónum króna. Þá gerir Þjóðvifjiim og grein fyrir þvi, að fjár- hagsáætlun félagsmála- stofnunar Hafnarfjaröar sé sprungin, aUt fé upp urið og útlit fyrir að tvö- falda þurfi Qárveitingu til aðstoðar illa stöddu fólki í bænum. Blaðið ræðir við forstöðumann stofnunarinnar, Mörtu Bergmann, sem segir að ástandið sé ekki bundið við Hafnarfjörð. Hún hafi sömu sögu að segja frá öðrum víða um land, ekki sizt í nágrannasveit- arfélögunum. Kjararýrnunin Marta segir í viðtalinu við Þjóðviljtum, að hún Ólafur Ragnar Steingrímur J. Svavar Alþýðuriddarar og heimilisbókhald AFLEIÐINGARNAR af stefnu ríkisstjórn- ar „jafnréttis og félagshyggju" taka nú á sig hörmulegri myndir en sést hafa á íslandi frá kreppuárunum fyrir stríð. At- vinnuleysi er mikið og kjararýrnunin orðin svo gífurleg að launin nægja ekki lengur fullvinnandi fólki til framfærslu. Æ fleiri neyðast til að leita ásjár félagsmálastofn- ana, sem hafa orðið að fá miklar aukafjár- veitingar til að greiða úr vandræðum fólks. og aðrir starfsmenn verði óþyrmilega varir við þá rýrnun kaupmátt- ar og þann samdrátt í atvinnulífi sem orðið hef- ur síðustu árin, atviimu- leysi hafi aukizt tíli muna og yfirvinna sé ekki jafn mikil og áður. Þá segir í viðtalinu í Þjóðvi\janum: „Fólk í fullri vinnu kemur til félagsmála- stofnunar og biður um aðstoð. Sem fyrr segir eru jafnvel dæmi um að fólk biðji um aðstoð vegna skólagöngu fólks á aldrinum 16-19 ára, það er fólki sem hefur lokið skyldunámi en hefur enn ekki hafið lánshæft nám. Þetta er alveg nýtt þjá stofnuninni." Þá kemur fram hjá félagsmálasfjóranum, að áður hafi fólk gert út á yfirvinnuna, en þegar hún minnki og fólki sitji eftir með strípaða taxt- ana, uppgötvi það, að endar ná ekki saman. Þetta eru ljótar lýsing- ar, en því miður raun- sannar. Það vekur hins vegar athygli, að Þjóð- viljinn sér ekki ástæðu til að fjargviörast yfir ástandinu, enda eru það bara endamir, sem ná ekki saman í heimilisbók- haldinu. Menn geta imyndað sér stríðsletrið á forsíðu Þjóðviljans, ef þetta ástand hefði skaþazt í stjómartíð Sjálfstæðisflokksins. Skattheimtan En veiyulegt fólk, kjósendur, eiga ekki að gleyma því, hveijir það era sem bera ábyrgðina. Það eru að sjálfsögðu flokkarnir, sem kenna sig við alþýðuna og fé- lagshyggju. Þeim virðist standa á sama um ástandið og ætla sveitar- stjornum að taka við af- leiðingum stjomarstefn- minar. Það eru sveitar- stjórniriuu', sem verða að leggja fram fé til aðstoð- ar þeim bágstöddu. Það gerir rikissjóður ekki. Þvert á móti er ein höfuðástæðan fyrir vax- andi fátækt og örbirgð einstaklinga og fjöl- skyldna nýjar og hærri skattaálögur, sem „fé- lagshyggjustjómin“ hef- ur fagt á landslýð. Þar virðist hugmyndafiugið óþijótandi og græðgin endalaus. Hver man ekki eftir stórhækkun tekju- skatts, eignarskatts (ekknaskatts), virðis- aukaskatts, bifreiða- skatts og hækkun enda- lausra gjalda? Ábyrgðin Að sjálfsögðu bera all- ir aðstandendur núver- andi ríkisstjómar Steingríms Hermamis- sonar ábyrgð á ástand- inu. Sem fyrr mun Fram- sóknarflokkurinn firra sig allri ábyrgð. Hann telur sig ekki bera ábyrgð á neinu, sem mið- ur hefur farið, i þau 20 ár sem haim hcfur setið samfellt í ríkisstjóm. Það er allt einhveijum öðrum að kenna. Meira að segja sfj órnarandstöðunni. Alþýðuflokkurinn tel- ur sig ekki bera neina ábyrgð á kjararýrnun- hmi eða þurfa að hafa áhyggjur af vaxandi fá- tækt. Hann hafi nóg með álmál, viðræður EFTA og EB og gjaldþrot hús- næðiskerfisins, auk þess sem gleyma þarf öllum loforðum formannsins fyrir síðustu kosningar um hreinsun í framsókn- arQósinu. Borgaraflokkurinn telur sig ábyrgðarfausan, því hann sé týndur og Stefán Valgeirsson mun benda á, að hann sé upp- tekin af launuðum störf- um í nefndum og ráðum ríkisins og hafi því ekki tima aflögu fyrir lítil- magnaim. Alþýðulietjur ráð- herrasósialismans telja sig ekki heldur bera ábyrgð á kjararýrnun og vaxandi fátækt. Þcir era ríddarar sósíalismans, þjóðfrelsis og verkalýðs- lireyfingar. Þeir telja sig þvi ekki bera ábyrgð á einhveijum endum í heimilisbókhaldi. ÖRYGGISFJÁRMÁL Varasjóður er líka fyrír góðu stundimar Varasjóður er ekki aðeins þarfur til að mæta áföll- um í lífinu. Hann getur líka komið að góðum notum við að hjálpa þeim sem rnanni þykir vænst um. Sífellt fleira ungt fólk leggur stund á framhaldsnám og marg- ir eiga erfitt með að láta enda ná saman. Það getur líka verið gaman að hjálpa dóttur eða syni að hefja bú- skap í fyrsta sinn, sérstaklega ef barnabarn er komið í heiminn. Varasjóð má eignast með mánaðarlegum sparnaði án þess að koma of mikið við pyngjuna. Verið velkomin í VIB. VlB VERÐBRÉFAMARKAOUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Simsvari 68 16 25.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.