Morgunblaðið - 26.09.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.09.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990 7 AUGLYSING FLUGLEIDIR OFAROGOFAR NÝJUSTU FRÉTTIR FYRIR VIÐSKIPTAVINI • SEPTEMBER1990 Með kveðju frá Bandaríkjunum Flórída: Sólarfrí með frábærum möguleikum. Sóldýrkendur geta treyst á sólbaðið sitt og góða veðrið á Flórída í vetur, t.d. við Mexíkóflóann. Svo eru aðrir sem sjá varla sólina fyrir öllu því sem Flórída hefur að bjóða ferðamönnum. Níu ára eða níutíu. Aldurinn skiptir ekki máli þegar t.d. Disneyworld, Epcot Center, Universal Studio og Kennedy-geimstöðin eru annars vegar. I vetur bjóða Flugleiðir hinar vinsælu beinu flugferðir milli íslands og Orlando. Frá Keflavík á þriðjudögum og laugardögum fram til 1. nóvember en síðan á mánudögum og laugardögum. Frá Orlando verður alltaf farið daginn eftir. Eftirmiðdagsferðir bæði frá Keflavík og Orlando. Mjög hagstætt verð á viku- og helgarferðum á góðum hótelum. Nánari upplýsingar hjá Flugleiðum og ferðaskrifstofunum. Baitimore: Besti tengifiugvöllur í öilum Bandaríkjunum. Fyrir (slendinga sem hyggja á ferðalag innanlands í Bandaríkjunum mælum með eindregið með Baltimore-flugvelli. Hann er sannkölluð iúxusskipti- stöð íslendinga vestanhafs því áætlanir Flugleiðavéla frá íslandi tengjast þægilega yfir 70 ferðum USAir flugfélagsins um gervöll Bandaríkin. Baltimore er líka hreinieg og róleg flughöfn á bandaríska stórborgarvísu. Kynnið ykkur vildarkjör á ferðapössum frá USAir sem gefa kost á mjög hagstæðum ferðamöguleikum innan Bandaríkjanna. Verulega bætt stundvísi Stundvísi Flugleiðavélanna eykst jafnt og þétt. Það má fyrst og fremst þakka nýjum vélum og kraftmiklu starfsfólki. Yfir háannatímann, sl. þrjá mánuði, var stundvísi Flugleiðaflugvéla að meðaltali 76,7% í Evrópuflugi, 66,3% í Atlantshafsflugi og innanlandsflugið hreykir sér af því að 91,6% flugferða voru á réttum tíma. Þessi árangur er mjög nálægt meðaltalsstundvísi evrópskra flugfélaga. Þetta er mikil framför miðað við sama tímabil í fyrra. Flestar skoðanakannanir leiða í ljós að viðhorf farþega til flugfélaga byggjast einna helst á stundvísi flugvéla. Þetta vitum við og stefnum að því að vera enn stundvísari í framtíðinni. ÍSLENDINGAR í GÓÐUM HÖNDUM FLUGLEIÐA ÍAMSTERDAMOG HAMBORG Iflugsamgöngum til og frá íslandi er óhætt að leggja sitt á Flugleiðir. Flugleiðir er íslenskt flugfélag með yngsta millilandaflugflota Evrópu, gott og vel þjálfað starfsfólk, traust viðskiptasambönd um allan heim og síðast en ekki síst byggja Flugleiðir á 53 ára samfelldum rekstri. Eins og öllum landsmönnum er kunnugt hafa sérstakar kringumstæður skapast á áætlunarflugleiðum milli íslands og Amsterdam og Hamborgar. Því tókum við með stuttum fyrirvara að okkur þjónustu á þessum flugleiðum til bráðabirgða, eða til 31. október nk. Þannig ættu hagsmunir íslenskra og erléndra ferðamanna, sem og (slands, að vera tryggðir á tímabilinu. Meðan Flugleiðir annast þjónustu við Amsterdam og Hamborg er stefna okkar í farþegaþjónstu þessi: NÝTT - flug til Parísar í vetur Við bjóðum íslendingum nýjung í haust og vetur - vetrarstefnumót við París - með flugi milli íslands og Parísar tvisvar í viku. Þessi ferðatilhögun er sérlega heppiieg til helgarferða. Brottför frá Keflavík verður á miðvikudags- og sunnudagsmorgnum og frá París síðdegis sömu daga. Frá og með 1. nóvember koma fimmtudagsferðir í stað miðvikudagsferða. Um leið og við kynnum þessa nýjung höfum við bætt þjónustuna á jörðu niðri. Frá 1. nóvember nk. munu Flugleiðafarþegar fara um glæsilegasta og besta flugvöll Parísarborgar: Charies de Gaulie. Þá bjóðum við fjölbreyttari gistimöguleika i París en endranær, eða allt frá vingjamlegum fjölskylduhótelum til bestu lúxushótela. Valið er ykkar. íslendingar! Stefnið nú á vit mannlífsins, listanna, innkaupanna og ekki síst ástarinnar í París. Þriggja nátta hagstæð helgarferð fyrir einn í tveggja manna herbergi kostar frá 34.970 krónum með flugvallarskatti. Flugleiðir fyrsta flugfélagið með “Chain des Rotisseurs" á fleiri en einu farrými n H| szra æðaþjónusta er eitt sterkasta trompið á okkar hendi í harðnandi samkeppni. Það er því ánægjulegt að veitingaþjónusta um borð í flugvélum Flugleiða skuli vera með þeim hætti að hin virtu alþjóðlegu samtök “Chain des Rotisseurs“ hafi séð ástæðu til að veita Flugleiðum viðurkenningu fyrir mat, drykk og þjónustu í flugvélum félagsins, bæði á viðskiptafarrými og venjulegu farrými. Það má benda á að Að raska sem minnst áætlun farþega sem leið eiga um Amsterdam og Hamborg fram til 31. október nk. Að í Amsterdam og Hamborg sé íslenskt flugafgreiðslufólk. T þessu tilfelli gerum við út af örkinni okkar reyndustu starfsmenn á þessu sviði, til þess að greiða götu farþega sem hafa þurft að búa við óvissu. Auðvitað er þetta reynda starfsfólk okkar einnig í Amsterdam og Hamborg til þess að ábyrgjast að fastir viðskiptavinir Flugleiða fái þá gæðaþjónustu sem þeir eiga að venjast hjá starfsfólki Flugleiða. P.s. Amsterdam og Hamborg eru ennþá sömu skcmmtiiegu borgirnar og áður. Það eina sem hefur breyst er að a.m.k. næstu vikurnar geta tslendingar örygglega reiknað með Flugleiðum í þessum borgum. Flugleiðir er fyrsta flugfélagið í heiminum sem nýtur gæðastimpils “Chain des Rotisseurs1' á þessum farrýmum en ýmis önnur flugfélög hafa þennan gæðcistimpil aðeins á fyrsta farrými. Fyrir farþega okkar er gæðastimpill “Chain des Rotisseurs" viðurkenning á sókn Flugleiða að bestu farþegaþjónustu í háloftum heimsins. Fyrir Flugleiðir er slík viðurkenning miklis virði og um leið hvatning til að gera enn betur fyrir farþega sína. Glasgow - hvað, hvar og hvernig? Okkur þykir vænt um að geta auðveldað farþegum okkar ferðalagið með aukinni uppiýsingaþjónustu. Lykill að Glasgow er nafnið á fróðlegum og aðgengilegum Flugleiðabæklingi sem kemur út nú í september. Framvegis verður lykilatriði í Glasgow-ferðum að hafa meðferðis þennan nýjasta upplýsingabækling frá Flugleiðum. í Glasgow-lyklinum er að finna margvíslega vitneskju um það sem er að gerast í Glasgow, t.d. er leiðbeint um verslanir, menningarlíf, áhugaverða staði, skemmtanir, veitingahús, neyðarþjónustu og fleira og fleira. Biðjið um ókeypis eintak af Glasgow-lykli Flugleiða á söluskrifstofum okkar eða hjá ferðaskrifstofunum. Við höfum áður gefið út sambærilegan lykil að París. P.s. Beinar flugferðir eru til Glasgow á þriðjudögum og laugar jHÉjÉMÉk, dögum. AUK/kl 10d91-534

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.