Morgunblaðið - 26.09.1990, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990
ÍSLENSKI HANDBOLTINN
BLAK / EVROPUKEPPNIN
Þróttur mætir austur
K rísku meisturunum
Þróttarar vilja leika báða leikina íVín
ÍSLANDSMEISTARAR Þróttar
taka nú þátt í Evrópukeppni
meistaraliða í blaki í þriðja
sinn. Þróttur drógst gegn aust
urrísku meisturunum, Ts So-
kolmuma frá Vín.
Að sögn Jón Árnasonar hjá
blakdeild Þróttar, eru þeir nú
að vinna í því að seija heimaleikinn
út til Vínar. „Við bíðum eftir svari
frá austurríska liðinu. Við bjóðum
þeim að leika báða leikina á heima-
velli gegn því að þeir greiði fjörtíu
prósent af ferðakosnaði okkar,“
sagði Jón.
Fyrri leikurinn á að fara fram
10. nóvember og reikna Þróttarar
með að leika síðari leikinn strax
daginn eftir. Ekki er mikið vitað
um styrkleika austúrrísku meistar-
anna, en þó er gert ráð fyrir að
þeir séu með mun sterkara lið en
Islandsmeistararnir. „Við vitum að
austurrísk félagslið hafa verið að
vinna félagslið í Noregi, en norsk
blaklið eru betri en þau íslensku
þannig að það segir kannski eitt-
hvað um styrkleika Austurríkis. En
við gerum okkar besta og reynum
að standa í þeim,“ sagði Jón.
Búið er að draga í aðra umferð
keppninnar. Sigurliðið úr viðureign-
inni í Austurríki mætir sovésku
meisturunum.
Þróttarar hafa fengið fjóra nýja
leikmenn frá því í fyrra. Bjarki og
Víðir Guðmundssynir komu frá
HSK, Haukur Magnússon frá Fram
og Lárentínus Ágústsson hefur tek-
ið fram skóna á ný. Einn leikmaður
hefur yfirgefið Þrótt. Það er Sveinn
Hreinsson, sem er fluttur til
Húsavíkur.
BADMINTON / EM FELAGSLIÐA
2. UMFERÐ
29.09. KR-Haukar
Kl. 16:30
Laugardalshöll
3. UMFERÐ
26.09. FH-Stjarnan
Kl. 20:00
íþróttahúsið Kaplakrika,
Hafnarfirði
26.09. Selfoss-Valur
Kl. 20:00
íþróttahús Selfoss
26.09. ÍR-KR
Kl. 20:00
r
Iþróttahús Seljaskóla
26.09. Grótta-Víkingur
Kl. 20:00
íþróttahús
Seltjarnarness
26.09. KA-Fram
Kl. 20:30
íþróttahöllin Akureyri
^jf VÁTRYGGIIVGAFÉLAG íslands hf
TBR einum leik frá því
að komast í 8-liða úrslit
Lið TBR, sem tók þátt í Evrópu-
keppni félagsliða í badminton
í Búdapest í Ungverjalandi um helg-
ina, var aðeins einum leik frá því
að komast í 8-liða úrslit keppninnar.
TBR var í riðli með liðum frá
Frakklandi, Ungvetjalandi og Aust-
urríki. Islenska liðið hóf keppni við
franska félagið, IMBC 92 og vann
örugglega, 6:1. Síðan var leikið við
Ungverska liðið, Nyíregyházi VSC
og fór hann einnig 6:1 fyrir TBR.
Fyrir síðustu viðureignina við
austurríska liðið, Askö BCS 70,
höfðu bæði liðin unnið leiki sína og
var því um hreinan úrslitaleik að
ræða um efsta sætið í riðlinum.
Broddi Kristjánsson vann Kai Abra-
ham, 15:10 og 15:12, Jón Pétur
Zimsen tapaði fyrir Hannes Fuchs,
9:15 og 6:15, Birna Petersen tapaði
fyrir Hertha Almer, 11:7, 5:11 og
3:11, Elsa Nielsen tapaði fyrir
Gabrele Kumpfmuljer, 12:9, 7:11
og 8:11, Broddi og Árni Þór Hallgr-
fmsson unnu H. Fuchs og H.
Götschc, 15:12 og 15:8, Guðrún og
Birna unnu G. Kumpfmuller og B.
Harzeitner, 15:9 og 15:12. Bæði
liðin voru því með þrjá leiki unna
fyrir tvenndarleikinn. Þar léku Guð-
rún og Árni Þór fyrir TBR og töp-
uðu, 7:15 og 4:15.
TBR hafnaði í 2. sæti í riðlinum,
en Askö frá Austurríki sigraði og
lék gegn liði frá Hollandi í 8-liða
úrslitum og tapaði.
Broddi Kristjánsson vann alla sína leiki í Ungverjalandi.
FRJALSAR
Gunnar Guðmundsson, FH, náði
góðum árangri í spretthlaupum á
norska háskólameistaramótinu.
Gunnar náði
sínubesta
- sigraði í 400 m hlaupi í Ósló
GUnnar Guðmundsson, FH, náði
góðum árangri í spretthlaup-
um á norska háskólameistaramót-
inu, sem fór fram á Bislett-leik-
vanginum í Ósló um
Erlingur - helgina. Gunnar
Jóhannsson sigraði í 400 m a
skri,ar 47,92 sek., sem er
besti tími íslendings
á árinu, og besti árangur hans.
Þess má geta að þetta er fimmti
besti tími íslendings í greininni.
Gunnar bætti einnig árangur sinn
í 100 m hlaupi, sigraði i 11,02
sek., sem er næst besti tími íslend-
ings á árinu. í 200 m hlaupi náði
Gunnar einnig góðum tíma, hljóp á.
21,85 sek. og hafnaði í 2. sæti, en
meðvindur var of mikill til að tíminn
fengist staðfestur.
Þessi árangur Gunnars er góður,
einkum þegar haft er í huga að
hann var frá æfingum og keppni i
tvo mánuði síðastliðið vor.
Agnar Steinarsson, ÍR, keppti
einnig á mótinu og náði hann besta
árangri sínum í 400 og 800 m. Tími
hans í 400 m var 49,69 sek og
hafnaði hann í 3. sæti. Þetta er
besti tími ÍR-ings. 800 m hljóp hann
á 1.53,95, sem nægði til silfurverð-
launa.