Morgunblaðið - 26.09.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.09.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990 Horfur hjá bæjarsjóði Kópavogs: Útgjöld 290 millj- ónir fram úr áætlun ÚTGJÖLD bæjarsjóðs Kópavogskaupstaðar stefna í að fara 290 milljónir króna fram úr áætlun á þessu ári, eða sem nemur um 23% af áætluðum útgjöldum. Þetta kom fram á bæjarstjórnarfundi í gær, þar sem lagðar voru fram tölur frá bæjarskrifstofum Kópa- vogs, miðaðar við stöðuna 15. september siðastliðinn og áætluð stað- an í árslok. Samkvæmt áætlun fyrir þetta ár átti að verða 71 milljónar króna rekstrarafgangur eftir árið, en mið- að við þær tölur sem.kynntar voru á bæjarstjórnarfundinum í gær, í tengslum við umræður um úttekt á stöðu bæjarsjóðsins, stefnir í um 220 milljóna króna halla á rekstrin- um þetta ár. Helstu liðir sem fára fram úr áætlun eru byggingar, sem fara 85 milljónir króna fram úr, þar af sund- laug 53 milljónir. Götur og holræsi fara 29 milljónir króna fram úr ijár- hagsáætlun, umhverfísmál 12 millj- ónir og rekstrarliðir 82 milljónir, auk annarra liða. Sjá ennfremur um úttekt á stöðu bæjarsjóðs Kópavogs í miðopnu. Concorde-farþegaráLangjökli Hópar ferðamanna frá Evrópu hafa komið til landsins á síðustu dögum með Concorde-þotu í sérstakar skemmtiferðir þar sem meðal annars hefur verið boðið til veislu og tónleika uppi á Langjökli. Það er ferða- skrifstofan Atlantik sem hefur séð um ferðamennina hér á landi. Meðfylgjandi mynd tók Ómar Ragnarsson af veislunni á Langjökli þar sem Arni Elvar, Friðrik Theodórsson og fleiri hljómlistarmenn léku dixieland fynr dansi og gestirnir nutu veitina við hlaðborð, en myndina af þotunni tók Rúnar B. Ólafsson. Hæstiréttur: Tveimur kærum vegna forsjárdeilu vísað frá HÆSTIRÉTTUR vísaði í gær frá tveimur kærumálum sem snerta deilu um forræði yfír níu ára gamalli stúlku. Annars vegar var um að ræða kæru móðurinnar vegna úrskurðar fógetaréttar Reykjavík- ur um að hún skyldi sæta varðhaldi í allt að 6 mánuði. Hins vegar kærði faðir barnsins synjun borgarfógeta, vegna skorts á fulltingi Iögreglu, við því að framkvæma, samkvæmt eigin úrskurði, innsetn- ingargerð sem færði föðurnum umráð yfír barninu. Ríkíð getur ekki dregið úr skattheimtu á bensíni - segir starfandi fjármálaráðherra Ríkisstjórnin mun ekki draga úr skattheimtu á bensini til að vega á móti fyrirsjáanlegri hækkun á olíu. Starfandi Qármálaráð- herra segir að ríkissjóður hafi ekkert svigrúm til að taka á sig viðbótarálögur. Varðhaldsúrskurðurinn var kveð- inn upp 21. ágúst síðastliðinn þegar móðirin neitaði að segja hvar barn- ið væri að fínna svo unnt væri að fela það umráðum föðurins, sam- kvæmt úrskurði fógeta. Ekki kom til varðhalds og 10. september var úrskurðurinn felldur úr gildi enda taldi fógeti ekki varðhalds þörf þar sem fram hefði komið að barnið dveldist á heimili móðurinnar. í nið- urstöðum Hæstaréttar segir að móðirin hafi ekki sætt varðhaldi samkvæmt hinum kærða úrskurði og hafi því ekki lögvarða hagsmuni af því að hæstaréttardómur gangi um gildi hans. Þegar af þeirri ástæðu sé kærumálinu vísað frá. Hin kæran snerti það að fógeti kom á heimili móðurinnar hinn 8. september og hugðist með innsetn- ingu taka barnið úr umsjá móður- innar og færa föðurnum, á grund- velli úrskurðar fjölskipaðs fógeta- réttar frá 21. ágúst. Fógeti ákvað að falla frá aðgerðinni þegar fyrir lá að lögregla neitaði að beita valdi til að hún næði fram að ganga nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. í niðurstöðum fógeta segir meðal annars að gerðin verði ekki reynd að nýju nema ljóst liggi fyrir að lögregla muni hlíta fyrirmælum fógeta um framkvæmd hennar. I niðurstöðum Hæstaréttar segir að í þessum ummælum felist að fógeti muni meta hvort innsetningargerð- in verði reynd að nýju og sam- kvæmt því þyki ekki ástæða til þess að svo stöddu að kveða á um að gerðin skuli fara fram. Því sé málinu vísað frá Hæstarétti. Kröfu móðurinnar um að úr- skurður sá sem framkvæma átti með innsetningunni verði felldur úr gildi segir Hæstiréttur að ekki hafi verið skotið til réttarins með lögmætum hætti, þótt sætt geti áfrýjun. Því standi hann óraskaður og sé ekki til úrlausnar í þessu máli. Alþýðusambandið og Vinnuveit- endasambandið hafa beint þeim tilmælum til ríkisstjómarinnar að draga úr skattheimtu á bensíni, vegna hækkunar á innkaupsverði. Steingrímur J. Sigfússon starfandi fjármálaráðherra sagði við Morg- unblaðið að ekki væri um annað að ræða en að taka á sig þessar hækkanir. Þetta væri áfall sem þjóðarbúið hefði orðið fyrir, og ríkið eitt og sér gæti ekki eitt axlað það. „Menn yrðu þá að svara því, hvar ætti að mæta því með niður- skurði ef ríkið færi að niðurgreiða bensín. Því reynslan er sú, þegar svona gerist, að heildarskatttekjur ríkissjóðs aukast ekki vegna þess að á móti dregst saman neyslan sem mælist í öðrum veltusköttum. í þessu tilviki verða menn einnig að átta sig á því að markaðir tekju- stofnar til vegagerðar breytast ekki með bensínverðinu. Það eru eingöngu tollar og virðisauka- skattur sem fylgja verðinu," sagði Steingrímur J. Sigfússon. Utanríkisráðherra: Eystrasalts- ríkin fáiað- ild að RÖSE JÓN Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra vakti athygli við opnun Allsherjarþings Samein- uðu þjóðanna í New York á mánudag, þegar hann vék frá skrifuðum texta ræðu sinnar og kvað sterkar að orði um þátttöku Eystrasaltsríkjanna í Ráðstefn- unni um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE). 30-50 tonn af svartolíu í sjóinn við Laugames Eva María Sævarsdóttir. Lést af völd- um bílslyss SJÖ ára telpa, Eva María Sæv- arsdóttir, lést í gær á sjúkrahúsi af völdum áverka sem hún hlaut er hún varð fyrir bíl á Suður- götu, móts við Háskólann þann 13. þessa mánaðar. Eva María Sævarsdóttir var fædd þann 12. nóvember 1982. Hún átti heima að Einarsnesi 44 í Reykjavík. 30-50 tonn af svartolíu láku í sjóinn þegar verið var að losa úr sov- ésku olíuskipi í geyma OIís í Laugarnesi á mánudag. Skipið lá skammt undan landi og var olíunni dælt um neðansjávarleiðslu í land. Ekki fengust upplýsingar um tjón af völdum olíulekans í gærkvöldi, en vart hafði orðið við olíublautar gæsir á Reykjavíkurtjörn í gær. Lekans varð fyrst vart um klukk- an 19 á mánudagskvöld, en að sögn Eyjólfs Magnússonar hjá Siglinga- málastofnun hafði orðið vart við mikla olíulykt í Laugarnesi um fjór- um stundum fyrr. Oli Kr. Sigurðs- son forstjóri OIís segir að suða hafí gefið sig á leiðslunni og því hafi Vestmannaeyjabær tekur 115 milljóna króna lán Vestmannaeyj u m. BÆJARRAÐ Vestmannaeyjabæjar samþykkti á síðasta fundi sínum að heimila bæjarstjóra að athuga lántöku vegna 115 millj- óna króna vanskilaskulda bæjarsjóðs en allar þessar skuldir eru komnar til á árunum 1986—1990. Öll lánin hafa verið í vanskil- um og hafa því hlaðist upp milljónir króna í dráttarvexti. „Þetta er ýmislegt uppsafnað í íslandsbanka en nú ætlum við subb,“ sagði Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í samtali við Morgun- blaðið. „Bærinn skuldar 15 millj- ónir í launaskatt. Þar af er stór hluti vanskilavextir. Þá má nefna skuldir við Islandsbanka, Sparisjóð Vestmannaeyja, rikissjóð, Ríkis- ábyrgðasjóð, Hafnarbótasjóð og Bæjarveitur Vestmannaeyja. Þá hefur bærinn verið með yfirdrátt að hætta með hann og greiða upp yfirdráttinn, sem er 30 milljónir. Yfirdráttur er ekkert annað en dýrt lán og við erum að reyna að spara og ná utan um íjármál bæj- arins og þessi lántaka er einn lið- urinn í þeirri vinnu okkar,“ bætti Guðjón síðan við. Grímur olían lekið út. Leiðslan er nýleg, en hefur oft verið notuð áður án áfalla og segir Óli að engin skýring hafi enn fengist á því hvers vegna hún gaf sig nú. Dælingu var strax hætt er lekans varð vart og segir Óli að leiðslan verði þegar tekin upp til viðgerðar. Hann segir magnið sem lak í sjóinn vera óljóst þar til lokið hefur verið iosun úr skipinu, en hann giskar á að á bilinu 30 til 50 þúsund lítrar hafí runnið út. Hann segir það vera lán í óláni að veður var óvenju stillt þegar óhappið varð og því hafi menn tekið eftir olíu- flekk á sjónum, sem erfítt hefði verið að sjá í verra veðri og meira ölduróti. „Þessi hætta er alltaf fyrir hendi og úr því sem komið er vona ég bara það besta, að takist að koma í veg fyrir tjón af völdum olíunnar," sagði Óli í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann segir að óhapp sem þetta hafi ekki komið fyrir áður, síðan hann kom í Laug- arnesið sem eigandi og forstjóri Olís. Starfsmenn Reykjavíkurhafnar unnu í gær að því að úða á olíuflekk- ina efnum sem bijóta olíuna niður og gera hana hættuminni. Starfs- menn hafnsöguskrifstofu vildu í gær ekki gefa upplýsingar um hvernig því verki miðaði. Utanríkisráðherra sagði að ís- lendingum yrði það ánægjuefni að ríkjunum yrði veitt aðild að Ráð- stefnunni, en í texta ræðunnar var talað um rétt til áheyrnar á Ráð- stefnunni. Benedikt Gröndal sendi- herra hjá SÞ segir þetta hafa orðið til þess að fulltrúar nokkurra þjóða hefðu látið í ljós áhuga á málflutn- ingi Jóns Baldvins. „Hann veitir Eystrasaltsþjóðunum þarna góðan siðferðilegan stuðning," sagði Benedikt. Aðspurður um bein við- brögð við þessum orðum utanríkis- ráðherra sagði hann: „Þetta eru diplómatar hér sem hafa nef fyrir því sem þykir tíðindum sæta og gefa síðan skýrslu til sinna utanrík- isráðuneyta og ráðherra. Hvað út úr því kemur tjá þeir sig ekki um fyrr en þeir menn sem ráða stefn- unni tala sjálfir." Reuter fréttastofan sendi út frétt um ræðu Jóns Baldvins Hannibals- sonar, þar sem sagt var frá þessum ummælum hans. Einnig eru þar raktar röksemdir Jóns Baldvins, þar sem hann vísar til sögulegs réttar Eystrasaltsríkjanna til sjálfstæðis. Síðastliðinn sunnudag, daginn fyrir setningarfund Allsheijar- þingsins, átti Jón Baldvin viðtal við utanríkisráðherra Lettlands, Janis Jurkans. -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.