Morgunblaðið - 26.09.1990, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990
15
Eðlisfræði, stjórnmál
og saga Þýskalands
__________Bækur_______________
Skúli Sigurðsson
J.L. Heilbron. The Dilemmas of
an Upright Man: Max Planck As
Spokesman for German Science.
The University of California
Press, Berkeley, Los Angeles og
London, 1986, xiii - 238 bls.
Pappírskiljuverð: $8.95. (ISBN:
0-520-06171-3).
Þýski eðlisfræðingurinn Max
Planck (1859-1947) hafði vart slitið
barnsskónum þegar Þýskaland var
sameinað undir styrkri forystu Bis-
marks um 1870. Hann upplifði tvær
heimsstyijaldir og dó fjörgamall í
sigruðu og sundruðu Þýskalandi.
Hann var í fararbroddi þýskra
vísindamanna um áratuga skeið frá
lokum keisaratímans fram á valda-
tímabil nasista.
í bókinni lýsir vísindasagnfræð-
ingurinn J.L. Heilbron ekki einung-
is störfum Plancks á sviði eðlisfræð-
innar skilmerkilega, heldur einnig
því hvernig hann var sí og æ dreg-
inn inn í hringiðu veraldarsögunnar
þvert gegn vilja sínum. Líkt og
fleiri vísindamenn leitaðist hann við
að halda sér utan við stjórnmál,
jafnvel þótt margar athafnir hans
væru mjög pólitískar. Það olli hon-
um hugarangri.
Það var ekki fyrr en um síðustu
aldamót að eðlisfræðingar vor orðn-
ir svo ijölmennir í iðnvæddum lönd-
um að mikil verkaskipting fór að
setja svip sinn á störf þeirra. Planck
var einn af þeim fyrstu sem sér-
hæfði sig í kenningasmíði gagnsætt
því að vinna jafnframt að tilraunum
líkt og áður hafði tíðkast.
Á 19. öld urðu miklar framfarir
í varmafræði og rafsegulfræði.
Planck hóf rannsóknir sínar á sviði
varmafræðinnar. Skömmu fyrir
síðustu aldamót, þegar hann var
orðinn prófessor í kennilegri eðlis-
fræði í Berlín, fór hann einnig að
huga að rafsegulfræði. Aldamóta-
árið fann hann lausn á afmörkuðu
vandmáli á mörkum þessara
tveggja greina: svokallaðri svart-
hlutargeislun rafsegulbylgna. Á
þessum'tíma rannsökuðu tilrauna-
eðlisfræðingar í Berlín þetta fyrir-
bæri af krafti. Sá áhugi átti rætur
sínar að rekja til þeirrar rafvæðing-
ar sem þá varð í Þýskalandi og um
heim allan.
Lausn Plancks markar upphafið
á þeirri grein eðlisfræði sem kölluð
er skammtafræði. Það var ekki fyrr
en kennilegi eðlisfræðingurinn Al-
bert Einstein (1879-1955) fór að
gaumgæfa lausnina nokkrum árum
síðar að eðlisfræðingar og efna-
fræðingar fóru að sinna rannsókn-
um í skammtafræði að ráði.
Planck og fleiri þýskir eðlisfræð-
ingar lögðu mikla áherslu á mikil-
vægi eðlisfræðinnar fyrir heims-
mynd nútímans. Eftir ósigurinn í
fyrri heimsstyijöldinni héldu þeir
því einnig fram að það væri helst
á sviði eðlisfræðinnar að Þjóðverjar
gætu endurheimt sína fornu frægð.
Á vissan hátt tókst þeim það, því
undir lok þriðja áratugarins var lok-
ið við smíði helstu kenningar
skammtafræðinnar og gerðist það
að töluverðu leyti á þýska menning-
arsvæðinu. Meðal þeirra sem þar
komu við sögu voru þýski eðlisfræð-
ingurinn Werner Heisenberg
(1901-1976) og Austurríkismaður-
inn Erwin Schrödinger (1887-
1961). Skammtafræðin hefur gjör-
bylt skilningi manna á innri gerð
efnisheimsins og verið grundvöllur
ótal tækninýjunga. Fyrir framlag
sitt til skammtafræðinnar hlaut
Planck Nóbelsverðlaunin í eðlis-
fræði árið 1918.
. Hornsteinn heimsmyndar
Plancks og margra þýskra eðlis-
fræðinga snemma á öldinni voru
algild lögmál eðlisfræðinnar sem
lýstu gerð heimsins. Þeir mátu mik-
ils kenningar sem sameinuðu sem
flest náttúrulögmál. Þarna mátti
merkja ákveðinn samhljóm við
pólitíska sameiningu Þýskalands og
sterka heimspekihefð landsmanna.
Snemma á öldinni barðist Planck
því hatrammlega gegn sögulegri
efnahyggju austurríska eðlisfræð-
ingsins og vísindaheimspekingsins
Ernst Machs (1838-1916) sem af-
neitaði m.a. tilvist atóma og allri
frumspeki. Því átti Planck erfitt
með að kyngja á þriðja áratugi ald-
arinnar þegar í ljós kom að
skammtafræðin boðaði breytta tíma
innan eðlisfræðinnar. Hegðun ör-
einda var tilviljunum háð og þar
var ekki hægt að beita algildum
lögmálum heldur varð að grípa til
líkindafræðinnar. Frumspekileg
hugsjón hans hafði því beðið nokk-
urt skipbrot.
Heimsmynd Plancks varð fyrir
enn meiri áföllum eftir valdatöku
nasista í ársbyrjun 1933. Andúð og
hatur á gyðingum voru landlæg í
Evrópu. Samt höfðu margir þeirra
náð mjög langt í menntalífi og
vísindum. Nú var þeim sagt upp
störfum í þýskum háskólum og
mmargir þeirra flúðu land. Einn
þeirra var Einstein. Hann og Planck
voru nánir vinir og Planck hafði
stuðlað mikið að frama Einsteins.
Upplausn þýska vísindasamfélags-
ins var Planck þung raun og í við-
leitni sinni til að bjarga því sem
unnt var, neyddist hann sem tals-
maður þýskravísindamanna að eiga
talsverð samskipti við nasista. Þótt
hann væri andstæðingur þeirra varð
hann oft að taka ákvaðanir sem
Einstein hvorki gat sætt sig við né
fyrirgefið honum. Það olli Planck
sárum vonbrigðum.
Þótt Planck hafi dregið sig í hlé
frá opinberum störfum árið 1938
hélt hann samt áfram að boða trú
sína á heimsmynd vísindanna þar
sem tært siðferði ríkti. Það gerði
hann með fyrirlestrum fyrir al-
menning um gervallt landið á sama
tíma og samlandar hans hervædd-
ust undir forystu Adolfs Hitlers til
að hefna niðurlægingarinnar eftir
ósigurinn í fyrri heimsstyijöldinni.
Heilbron á sér fáa jafningja í því
að gera flókna ogviðburðaríka sögu
auðskiljanlega. í bókinni fléttar
hann saman sögu eðlisfræði, heims-
myndar og stjórnmála á heillandi
hátt og sýnir auk þess fram á það
að vísindasamfélagið og þjóðfélagið
sjálft eru bundin órofa böndum. Því
endurspeglast saga Þýskalands í
æviferli Plancks.
Með reglulegum sparnaði,
hæstu vöxtum, skattafslætti
og lánsrétti leggurðu Grunn
sem er sniðinn að þínum þörfum.
Grummr
Grunnur er húsnæðisreikningur Landsbankans.
Hann er bundinn í 3 til 10 ár og nýtur ávallt
bestu ávöxtunarkjara sem bankinn býður á
almennum innlánsreikningum sínum. Leggja þarf
inn á Grunn eigi sjaldnar en ársfjórðungslega.
Hámarksinnlegg á ári er nú rúm 360.000,- eða
90.000,- ársfjórðungslega. Þannig gefur til dæmls
360.000 króna innlegg 90.000 krónur i
skattafslátt.
Grunni fylgir sjálfkrafa lánsréttur að sparnaðar-
tímanum loknum, en skilyrði er að lánið sé notað
til húsnæðiskaupa eða endurbóta og viðhalds.
Hámarkslán er nú 1,8 milljónir króna.
Grunnur er þannig bæði góð sparnaðarleið fyrir
þá sem hyggja á húsnæðiskaup eða byggingu
og kjörinn lífeyrissjóður fyrir sparifjáreigendur.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna