Morgunblaðið - 26.09.1990, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990
21
Reuter
44 biðu bana í eldhafí íBangkok
AÐ minnsta kosti 44 menn biðu bana og rúmlega inn ók á. Myndaðist gífurlegt eldhaf þegar gasbíllinn
100 slösuðust þegar gasflutningabíll sprakk er hann sprakk og síðan sprungu bensíngeymar bifreiðanna
ók á mikilli ferð á kyrrstæða bíla í Bangkok í gær. hver af öðrum. Slökkviliðsmenn áttu erfitt um vik
Flestir sem biðu bana voru í bílunum sem tankbíll- vegna mikils hita.
Persaflóadeilan:
Andstaða gegn Saddam
sögð vaxandi í Iraksher
Jeddah, Amman, Bagdad. Reuter, dpa.
SIÐFERÐISÞREK liðsmanna í íraska hernámsliðinu í Kúvæt fer þverr-
andi og Saddam Hussein íraksforseti nýtur ekki lengur óskoraðrar
hylli, að sögn íraskra liðhlaupa og flóttamanna frá Kúvæt. Dagblað í
Saudi-Arabíu segir að nýlega hafi íraskir hermenn neitað skipunum
um að sprengja í loft upp heimili kúvæskra andspyrnumanna. Blaðið
segir aðalástæðuna fyrir óánægju hermannanna vera þá að stjórnvöld
í Bagdad hafi látið írönum eftir umdeild landsvæði sem barist var um
í átta ár í Persaflóastríðinu er kostaði yfír milljón manna lífið.
Blaðið, sem heitir Arab News,
segir að íraksstjóm hafi komið út-
sendurum leynilögreglunnar fyrir í
aðalstöðvum heryfirvalda í Kúvæt til
að hamla gegn óánægjunni og ein-
staklingum sem ekki fylgja opinberri
stefnu stjórnvalda.
Indveijar, sem flúið hafa Kúvæt,
segja að lög frumskógarins ríki nú
í furstadæminu, rán og önnur afbrot
séu daglegir viðburðir. „Það er óþef-
ur alls staðar. Sorp er um allt, gler-
brot á götunum, sködduð hús og bíl-
ar, flugur og rottur ráða ríkjum,"
sögðu tvær systur sem komust til
Jórdaníu. Þær sögðust hafa falið sig
á heimilum sínum fyrst eftir innrás-
ina og sögðu að mikið hefði verið
um húsrannsóknir og nauðganir.
„Margir ættingjar okkar misstu allt
sitt. Sumir sögðu að ræningjarnir
hefðu verið Palestínumenn, klæddir
eins og íraskir hermenn. Þeir rifu
skartgripi úr gulli af handleggjum
og eyrum kvenna... Þeir réðust inn
í hús vinafólks okkar í Salmiya-hér-
aði. Manninum var ógnað með byss-
um meðan hermennirnir nauðguðu
eiginkonu hans sem var komin sex
mánuði á leið. Hún er nú vitskert."
Breska stjórnin hefur beðið Ind-
veija að reyna að þrýsta á Saddam
um að Alþjóða Rauði krossinn fái
„Þeir hétu því að láta okkur vita
hvort hægt yrði að ná samkomulagi
um þetta,“ sagði talsmaður friðar-
sinnanna, maltneski þingmaðurinn
Dennis Sammut, eftir viðræður send-
inefndar þeirra við stjórnvöld í
Bagdad. Robert Parry, einn þriggja
þingmanna breska Verkamanna-
flokksins sem voru í sendinefndinni,
segir að sex breskir gíslar séu alvar-
lega veikir, þar af einn dauðvona
krabbameinssjúklingur. „Eg veit
ekki betur en þeir fá læknisaðstoð,“
að fylgjast með dreifingu matvæla
er send verða til útlendinga frá Asíul-
öndum sem eru í Kúvæt og írak.
Stjórn Víetnams sagði í gær að
17.000 Víetnamar, þ. á m. 1.000
konur, í írak gætu orðið hungur-
morða og bað um aðstoð annarra
ríkja til að bjarga fólkinu. Stjórnin
hafði eftir yfirvöldum í Bagdad að
eftir 1. október yrði ekki hægt að
útvega fólkinu neinn mat.
sagði hann. Annar þingmaður sagði
að nefndarmenn fordæmdu „óréttl-
áta árás íraka á Kúvæt“ en teldu
að hernaðaruppbygging Vesturveld-
anna á Persaflóasvæðinu torveldaði
friðárumleitanir.
Bretarnir í nefndinni sögðust and-
vígir hugmyndinni um að taka við
hlutverki gíslanna en Sammut segir
aðra nefndarmenn, sem eru þing-
menn, menntamenn og verkalýðs-
leiðtogar frá Spáni, Möltu og Italíu,
vera henni hlynnta.
Friðarsinnar vilja
koma í stað gísla
Amman. Reuter. ^ J
UM 200 evrópskir friðarsinnar hafa boðist til þess að fara til Iraks
og verða gíslar Saddams Husseins íraksforseta í stað nokkur þúsund
karla frá Vesturlöndum. Talsmaður friðarsinnanna segir írösk stjórn-
völd hafa sýnt tilboðinu áhuga.
‘BflJ'EMSÆ'FI
í tiíefni af útgáfu 'B$J‘EMSÆcTtTJM(j,
niðjataCs Vaígerðar ÁmacCóttur og Qunn-
Caugs QuðSrancCssonar ‘Briem á QmncC,
verður cettarmót að ðíóteC ísCancCi sunnu-
cCag 30. sept. Cf. 1330.
Au(i dagskráratriða vcrðuT niðjataM sett. 'Boðinn er 10 % kynningar-
afsíáttur. Tekið er viðgreiðskikprtum.
Titkynnið þátttöku sem aíírafyrst 03 í síðasta Cagi fimmtud. Z7. sept.
'Þessir taka. viB þíttlðkutiíkynningum og gtja uppCýsingar:
AípUiður ‘Einarsdótlir ■ 62983 Asgtir %ggertsssm ■ 22894
•Eirikur Tkorsuinssm ■ 613162 QarBar 'Britm ■ 40005
Udga X ‘Einarsdóttir ■ 42534 XflnuUa Briem - 14799
Xsurtn SttOa Britm ■ 37164 Xpsttn 'Sjamadóttir ■ 15781
ÓCajtrr OtCtíssm ■ 20793 BtpgnCuHur AsgtirstCóttir ■ 30217
DCiÍjanb ts ncjnxí
Útgófaufnd
SIEMENS-gæð/
ÓDÝRAR OG GÓÐAR
ELDAVÉLAR FRÁ SIEMENS
Þessar sívinsælu eldavélar frá SIEMENS eru einfaldar í
notkun, traustar, endingargóðar og á mjög góðu verði.
HS 24020
B Breidd 60 sm
B Grill
B 4 hellur
B Geymsluskúffa
■ Verð kr. 46.300,-
HN 2602Ó
B Breidd 50 sm
B Grill
B 4 hellur
B Geymsluskúfta
H Verð kr. 39.900,-
Munið umboðsmenn okkar iríðs vegar um landið.
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs.
• Borgarnes: Glitnir.
• Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir.
• Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson.
• Stykkishólmur: Skipavík.
• Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar.
• ísafjörður: Póllinn hf.
• Sauðárkrókur: Rafsjá hf.
• Siglufjörður: Torgið hf.
• Akureyri: Sír hf.
• Húsavík: öryggi sf.
• Neskaupstaður: Rafalda hf.
• Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guðmunds.
• Breiðdalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss.
• Höfn f Hornafirði: Kristall.
• Vestmannaeyjar: Tróverk hf.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga.
• Selfoss: Árvirkinn hf.
• Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar.
• Keflavík: Ljósboginn.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
PILOT
H AFN ARSTRÆTI 1 6
SÍMI 624404
Ath:
womm ■■■■
V/SA E
BHH
Raðgreióslur
S
tJ