Morgunblaðið - 26.09.1990, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Síðustu daga hefur veðuúblíða verið einstök, þannig að svo til allir starfsmenn Slippstöðvarinnar hafa drifíð sig út að mála. Þegar
haustar að mun stór hluti starfsmanna færa sig inn í skemmu þar sem hafín er smíði á nýjum skuttogara fyrir Ós hf. í Vestmannaeyjum.
Slippstöðin hf.:
Smíði á nýjum skuttogara fyrir
Os í Vestmannaeyjum hafín
SMÍÐI á nýju skipi fyrir útgerð-
arfélagið Os í Vestmannaeyjum
er hafinn hjá Slippstöðinni á
Akureyri. Skipið verður 37
metra langt og 8 metra breitt,
skuttogari með möguleika á
netaveiðum. Slippstöðin tekur
aflaskipið Þórunni Sveinsdótt-
ur VE upp í kaupin. Nýja skip-
ið verður væntanlega tilbúið
næsta sumar.
„Smíðin hefur smám saman
verið að fara í gang hjá okkur,
það er búið að stilla upp einum
skipshluta og verið að smíða
aðra,“ sagði Sigurður Ringsted
forstjóri Slippstöðvarinnar.
Margskonar viðhaldsverkefni
verða í gangi fram undir október-
lok og sagði hann að verkefni
sumarsins hefðu teygst lengur
fram á haustið en á undanförnum
árum. „Viðhaldsvertíðin nú stend-
ur lengur en við eigum að venjast
og það kemur sér vel. Að sumu
leyti kemur það til af því að okk-
ur hefur tekist að semja um að
skipin komi á þessum tíma og
einnig er ekki sami þrýstingur á
hvað varðar loðnuskipin, menn
eru búnir að sætta sig við að það
veiðist ekki loðna svo snemma
hausts," sagði Sigurður. Brátt
sér þó fyrir endann á hefðbundn-
um viðhaldsverkefnum stöðvar-
innar og verður þá af fullum
krafti farið í nýsmíðaverkefnið.
Það verkefni mun þó þegar best
lætur nýtast á milli 40-50% af
mannafla stöðvarinnar þannig að
Sigurður sagði ljóst að leita þyfti
annarra verka með. Nýsmíðin
væri kjölfestuverkefni sem nauð-
synlegt væri fyrir starfsemi Slipp-
stöðvarinnar ásamt tilfallandi
verkefnum, en jafnframt yrði
haldið áfram að fylgjast með og
bjóða i önnur verk- „Þessi nýsmíði
hefur í för með sér föst verkefni
fyrir stöðina þannig að við leggj-
um óhræddir í veturinn," sagði
Sigurður.
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs endurskoðuð:
Akureyrarbær hefur skuldbundið sig í
atvinnurekstri með hlutafjárloforðum
Útgjöld hækkuð vegna unglingavinnu, snjómoksturs og kaupa á landi
BÆJARSTJÓRN Akureyrar samþykkti á siðasta fundi sínum breytinga-
tillögur sem bæjarráð gerði við fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og Fram-
kvæmdasjóðs Akureyrar. Breytingar á endurskoðaðri fjárliagsáætlun
eru m.a. að tekjuhlið hennar hækkar um 57,5 milljónir, rekstrargjöld
um 51,5 og eignabreytingar um 8,5 milljónir króna. Útgjöld vegna
sumarvinnu unglinga, snjómoksturs og landakaupa hafa hækkað frá
upphaflegri áætlun auk fleiri atriða, en til að mæta auknum útgjöldum
hefur orðið að fresta ýmsum framkvæmdum m.a. á sviði gatnagerðar.
Félag málm-
iðnaðarmanna:
Lítiðnm
verkeftii
ogatvinna
ótrygg
ATVINNA málmiðnaðarmanna
í Eyjafirði er afar ótrygg nú á
haustdögum, lítið um verkefni
og engin stór verk fyrirsjáan-
leg. Örfáir málmiðnaðarmenn
er atvinnulausir, en nokkrir
hafa flutt búferlum af svæðinu.
Hákon Hákonarson formaður
Félags málmiðnaðarmanna sagði
að fremur dauft væri yfir varðandi
atvinnu málmiðnaðarmanna á öllu
- Eyjafjarðarsvæðinu. „Það er
óhætt að fullyrða að ástandið er
mjög ótryggt, það er lítið að gera
eins og er og ekki fyrirsjáanlegt
að það breytist mikið í vetur þar
sem engþn stór verkefni eru fram-
undan,“ sagði Hákon. Það eru
ekki margir í félaginu án atvinnu
nú, en hins vegar hafa nokkrir
flutt burtu og ég verð ekki var
við annað en þeir fari suður.“
Afinælisfagn-
aður Þórs
íþróttafélagið Þór efnir til
afmælisfagnaðar í Sjallanum á
laugardagskvöld, en félagið
varð 75 ára 6. júní síðastliðinn.
Á afmælisfagnaðinum mun
hljómsveit Ingimars Eydal leika
fyrir dansi, Galgopar skemmta,
Erla Stefánsdóttir syngur og
Bjarni Hafþór Helgason fyrrum
liðsmaður Þórs flytur gamanmál.
Miðasala og borðapantanir
verður í Hamri, félagsheimili Þórs
í kvöld, miðvikudagskvöld og ann-
að kvöld frá kl. 18-20.
Fram af
kambi og
yfír á
UNGUR ökumaður slasaðist
lítilsháttar er bifreið sem
hann ók.fór nokkuð óvenju-
lega leið yfír Hálsá, en
skömmu áður en hann kom
að Hálsbrú sunnan Dalvíkur
fór hann út af og bifreiðin
rann yfir ána.
Það var skömmu fyrir há-
degi á laugardag, sem ökumað-
urinn fór út af, krapi var á
veginum og hjólför höfðu
myndast. Að sögn lögreglu
hafa þau að líkindum eitthvað
farið úr skorðum, ef til vill
vegna framúraksturs, þannig
að ökumaður missti stjórn á
bifreið sinni og flaug hún fram
af háum kambi, út í ána þar
sem hún fleyttist yfir á bak-
kann hinum megin. Ökumaður
slapp með lítilsháttar meiðsl,
en bifreiðin skemmdist mikið.
Sigurður J. Sigurðsson, formaður
bæjarráðs, sagði að nauðsynlegt
hefði verið að endurskoða fjárhagsá-
ætlun bæði'þar sem slíka endurskoð-
un þarf að framkvæma lögum sam-
kvæmt og einnig vegna margra þátta
sem upp hafa komið á þeim mánuð-
um sem liðnir eru síðan fjárhagsáætl-
un var afgreidd. Átt hafi sér stað
verulega skuldbindingar Akureyrar-
bæjar í atvinnurekstri, m.a. sam-
þykktir um aukið hlutafé í Krossa-
nesi, ístess og Útgerðarfélagi Akur-
eyringa.
„Breytingar sem gerðar voru á
fjárhagsáætlun bæjarsjóðs tóku líka
mið af þeirri staðreynd sem menn
urðu að sætta sig við í vor þegar í
ljós kom að hlutur sveitarfélaga í
staðgreiðslu hafði verið verulega of-
reiknaður á síðasta ári. Þetta þýddi
m.a. að Akureyrarbær verður að
endurgreiða um 50 milljónir króna á
þessu ári vegna skekkjunnar. Fyrir
þessu hafði að sjálfsögðu ekki verið
gert ráð og því var fjárfestingum og
framkvæmdum fyrir um 40 milljónir
króna frestað," sagði Sigurður.
Helstu breytingar á útgjöldum
urðu þær að sumarvinna unglinga
hækkaði um 17 milljónir frá því sem
áætlað hafði verið, en reynt var að
leysa vanda allra þeirra unglinga sem
ekki fengu vinnu annars staðar.
Snjómokstur varð einnig kostnaðar-
samari en búist var við, þó svo gert
hafi verið ráð fyrir ærnum tilkostn-
aði og þurfti til viðbótar áætlaðri
upphæð að bæta við 8 milljónum
króna. Landakaup hafa og orðið mun
meiri en reiknað var með og má
nefna að bærinn hefur keypt Ytra-
Krossanes og Reyki í Hálshreppi á
árinu, en hækka þurfti þennan lið
fjárhagsáætlunar um 32 milljónir
króna. Lækka varð tekjur af íþrótta-
mannvirkjum, aðallega sundlaug við
Glerárskóla, vegna ofáætlaðra tekna
og veita þurfti aukalega 13 milljón-
um króna til Verkmenntaskólans svo
hægt yrði að hefja skólastarf í nýrri
álmu í haust. Þá gerði samningur
um byggingu þjónustukjarna við
Víðilund ráð fyrir 6 milljónum meiri
fjárþörf en áætlað hafði verið.
Sigurður sagði að til að mæta
þessum útgjöldum yrði að fresta
ýmsum framkvæmdum, m.a. á sviði
gatnagerðar og eignabreytinga. Það
dugaði þó ekki til, svo lántökur munu
aukast lítillega á milli ára, eða um
15 milljónir króna og koma þar til
fasteignakaupalán.
Þá hefur bæjarráð tekið þá
ákvörðun að þau hlutabréfakaup sem
gerð hafa verið að undanförnu verði
færð á Framkvæmdasjóð og mun
hann fjármagna hlautabréfakaupin
með lántökum. Hlutafjárloforð til
Krossaness verður fjármagnað með
yfirtöku lána af rekstrinum og
skuldabréfi til 10 ára. Hlutafjáraukn-
ing í ístess hf. og Útgerðarfélagi
Akureyringa hf. er hins vegar fjár-
mögnuð með hluta af skuldabréfaút-
boði bæjarins sem fram fór í haust.
„Með þessum aðgerðum hefur Akur-
eyrarbær tryggt fjármuni til allra
sinna framkvæmda og skuldbindinga
á þessu ári. Þess ber að geta að
skuldbreyting sem bærinn gerir
gagnvart Krossanesi með yfirtöku
lána er yfirtaka þeirra lána sem tek-
in voru með fullri bæjarábyrgð á
sínum tíma. Greiðslustaða Akur-
eyrarbæjar mun verða sambærileg
um næstu áramót við þau síðustu
ef allt fer sem horfir og mikil eigna-
myndun hefur átt sér stað, þó hún
endurspeglist ekki að fullu í reikning-
um þar sem sveitasjóðir afskrifa
mikið af sínum framkvæmdum á
framkvæmdaárinu. “