Morgunblaðið - 26.09.1990, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990
29
Morgunblaðið/Emilía
Eiríkur Orn Pálsson og Ríkharður H. Friðriksson.
Tónlistarhátíð ungs fólks á Norðuriöndum:
Níu Islendingar taka
þátt í hátíðinni 1 ár
TÓNLISTARHÁTÍð ungs fólks á Norðurlönduin (Ung Nordisk Musik-
fest) verður í ár haldin dagana 30 september til 7. október í Hels-
inki. Frá Islandi fara að þessu sinni á hátíðina þrír hljóðfæraleikarar
og sex tónskáld.
Af þessu tilefni heldur UNM á
íslandi tónleika í Listasafni Sigur-
jóns Ólafssonar á Laugarnestanga í
kvöld, miðvikudaginn 26. september,
kl. 20.30. Þar verða flutt sýnishom
þeirra verka sem fara á hátíðina í
Helsinki. Gefst fólki hér kostur á
að kynna sér hvað yngsta kynslóð
íslenskra tónskálda er að fást við í
dag.
Á tónleikunum munu meðlimir
Caput-hópsins, þau Jóhanna Þór-
hallsdóttir söngkona, Kolbeinn
Bjarnason flautuleikari, Guðni
Franzon klarinettleikari og Örn
Magnússon píanóleikari fiytja verk
eftir Ríkharð H. Friðriksson, Hilmar
Þórðarson, Eirík Örn Pálsson og
Helga Pétursson.
Að tónleikum loknum verða kaffi-
veitingar þar sem fólk fær tækifæri
til að hitta tónskáld og flytjendur
að máli.
Afmæliskveðja:
Sigurður Sörens-
son, Stykkishólmi
Ferðamanni, stöddum í Kerling-
arskarði á Snæfellsnesi og lítur
Breiðafjarðareyjar fyrir fótum sér,
finnst sú mynd fögur og geymir í
huga sér og grípur til, þegar rætt
er um sérstæða staði. Annað er
með þá er ólust upp í þessum eyjum
og þekkja nærmyndina og lærðu
snemma að þræða sund og strauma.
I þeirra huga er myndin samgróin
og föst í minningunni. Þeir þekkja
töfra og leyndardóma eyjanna, vita
að myndin er stöðugt á hreyfingu
og sviðið breytilegt. Boðar og sker
birtast og hverfa og hinar smáu
eyjar stækka og breiða úr. sér og
verða að löndum, en dragast saman
á næsta flóði.- Iðuköst og boðaföll
stórkostlegri en annars staðar hér
á landi og býður hana hveijum þeim
sem í þau hrekst. Á öðrum stöðum,
sviptivindar frá bröttum hlíðum og
í hveiju sundi leynist steinn. Við
ferðir um slíkt hafsvæði þarf þekk-
ingu, nákvæmni og aðgæslu meiri
en annars staðar við strendur þessa
lands. Löng leið verður ekki farin
beint.
Um þessar mundir eða nánar til
tekið 27. september verður Sigurð-
ur Sörensson, fynverandi hafsögu-
maður í Stykkishólmi, 70 ára, sem
vekur manni furðu sakir unglegs
útlits og kvikra hreyfinga. Síkátur
með bros á vör. Ræðinn og
skemmtilegur. Snyrtimenni. Opinn
fyrir hvers konar umræðu sem er
háttur sannra Hólmara.
Sem barn var hann tekinn í ferð-
ir um Breiðafjörðinn af fóstra sínum
og frænda, Oddi Valentínussyni,
þeim landskunna sæfaranda. Betri
leiðbeinanda var ekki völ, enda mun
Sigurður hafa mesta þekkingu á
krókaleiðum Breiðafj arðareyj a,
þeirra sem nú lifa.
Um árabil eða frá 1945 til 1952
hafði hann á hendi sérstaka þjón-
ustu við suðureyjabyggð Breiða-
fjarðar, það tímabil þegar dregur
úr fastri búsetu þar og henni lýkur
með öllu.
Eg minnist komu Sigurðar til
Akureyjar í Helgafellssveit þegar
ég var þar barn að alast upp, stund-
um kom hann við erfiðar aðstæður
í. náttmyrkri og stormi þar sem
venjulegar leiðir voru ekki valdar,
enda lá mikið við. Það virtist honum
nægjlegt að grilla í hólma eða sker
til að vita hvar hann var staddur.
Þá sagði sjólagið sitt. Sjálfur hef
ég upplifað og þekki að vera ræstur
út að nóttu í slæmu veðri og eiga
framundan erfiða bílferð. Þá varð
mér hugsað til þeirra sem áttu sjó-
leið að fara. Á þessum árum voru
öryggistæki byggðarinnar talstöðin
og að eiga Sigurð að. Og enn minn-
ist ég öryggiskenndarinnar að vera
kominn í bát til Sigurðar. Þar fór
afreksmaður.
Og nú þegar tekur að húma að
á ævikvöldi hef ég sannfrétt að
þegar fréttum er lokið í sjónvarpi
og Dallasmyndir hefjast rísi Siggi
Sör á fætur og gangi út á Bókhlöðu-
höfðann þar sem sér best yfir suður-
eyjar Breiðafjarðar og horfi yfir
sund og eyjar. Það er sú mynd sem
honum er kærari en aðrar. í þeirri
mynd sér hann ævistarf sitt í glímu
við strauma og rastir og í stafni
glæsiskipa sem hann stýrði til hafn-
ar. Og myndir birtast af lygnum
vogum og friði sem hvergi er meiri
en í Breiðafjarðareyjum.
Ég óska vini mínum til hamingju
með daginn.
Jón Pétursson
j ■ ■ ATVINNUHÚSNÆÐI
Sérstakt tækifæri!
Til leigu er verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Hér er um að ræða hús,næði í eftirfarandi
stærðum:
Skipholt:
1. hæð 136fm = verslunarhúsnæði.
3. hæð 55 fm = skrifstofuhúsnæði.
3. hæð Ármúli: 48 fm = skrifstofuhúsnæði.
3. hæð 71 fm = skrifstofuhúsnæði.
Upplýsingar veitir Hanna Rúna í síma 82300
Frjálstframtak
Armúla 18.108 Rayk)avfc
AAalsknfstofur: Armúla 18 - Slmi 82300
Bílalyftur
Við eigum óráðstafað einni af hinum óvenju
vönduðu v-þýsku Slift 2,5 tonna 2ja pósta
bílalyftum. Mjög hagstætt verð.
__ Markaösþiönustan—
Sími: 26984.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
Kjördæmisráðið á
Suðurlandi
Fundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi verður hald-
inn í Hellubíói laugardaginn 29. september nk. og hefst kl. 16.30.
Á fundinum verður m.a. rætt um frágang framboðslista vegna næstu
alþingiskosninga. Stjórn kjördæmisráðs.
Austurlandskjördæmi
Almennir stjórnmálafundir í Austurlands-
kjördæmi verða haldnir sem hér segir:
Eskifirði, fimmtudaginn 27. þ.m. kl. 20.30
í Slysavarnarhúsinu.
Norðfirði, föstudaginn 28. þ.m. kl. 20.30 í
Safnaðarheimilinu.
Egilsstöðum, laugardaginn 29. þ.m. kl.
14.00.
Á fundina kemur Ingi Björn Albertsson,
alþingismaður, þingmenn og varaþing-
menn Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi.
IIFIMDAI.IUK
Hvað er að gerast í
húsnæðismálunum?
Heimdallur, félag
ungra sjálfstæðis-
manna i Reykjavík,
heldur opinn fund
um húsnæðismál og
hið opinbera hús-
næðiskerfi í Valhöll
fimmtudaginn 27.
september kl.
20.30.
Framsögumenn verða Þórhallur Jósepsson, formaður húsnæðismála-
nefndar Sjálfstæðisflokksins og Geir H. Haarde, alþingismaður.
Allir velkomnir.
Stjórn Heimdallar.
Reykjaneskjördæmi
Fundur verður haldinn í kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins i Reykja-
neskjördæmi miðvikudaginn 3. október kl. 20.30 i sal (þróttahússins
i Bessastaðahreppi.
Dagskrá:
1. Kosning kjörnefndar.
2. Tekin ákvörðun með hvaða hætti valdir verði frambjóðendur á
framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi við
næstu alþingiskosningar.
3. Önnur mál.
Stjórn kjördæmisráðs.
Kæru Seltirningar
Miðvikudaginn 26.
september verður
okkar fyrsti fundur
haldinn í félags-
heimili okkar á Aust-
urströnd 3 kl. 20.30.
Fundarstjóri verður
Jón Hákon Magnús-
son. Gestur fundar-
ins verður Halldór
Blöndal alþingis-
maður.
Allir velkomnir til skrafs og ráöagerða. Kaffi á könnunni.
Stjórnin og FUS, Baldur.
Kennsla
Vélritunarkennsla
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.0Ö.
Vélritunarskólinn, s. 28040.
F ÉLAGSÚF
I.O.O.F. 9 = 1729268'h =
I.O.O.F. 7 = 1729268'A =
□ HELGAFELL 59909267 IV/V-
Fjst.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
„Samfélag trúaðra". Ræðumað-
ur: Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
ÚTIVIST
GRÓFINNI1 • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVARI UiOt
Haustlitaferð
í Bása 28.-30. sept. Skipulagðar
gönguferðir um Goðaland og
Þórsmörk.
Dagsferð í Bása. Sunnudag 30.
sept. Siðasta dagsferðin á árinu.
Ath.: Söguferð á Njáluslóðir
verður frestað til 19. okt.
Myndakvöld
fimmtud. 4. okt. Sýndar myndir
úr Þórsmerkurgöngunni, grill-
veislunni og frá göngu á Þríhyrn-
ing. Eftir hlé, myndir frá skála-
byggingu Útivistar á Fimm-
vörðuhálsi. Kaffihlaðborð innifa-
lið í miðaverði. Fjölmennum á
þetta fyrsta myndakvöld vetrarins.
Sjáumst!
Útivist.
ÉSAMBAND ÍSLENZKRA
• KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssamkoma á Háaleit-
isbraut 58 í kvöld kl. 20.30.
Ræðumaður Haraldur Jóhanns-
son. Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 195331
Helgarferðir 28.-30.
sept.
1. Landmannalaugar - Jökul-
gil. Nú er komið að síðustu og
einni áhugaverðustu Land-
mannalaugaferð ársins. Frábær
gistiaöstaöa í upphituðu sælu-
húsi F.í. Ekið og gengið um hið
litskrúðuga Jökulgil og margt
fleira á dagskránni.
2. Haustlitaferð í Þórsmörk.
Það er á fáum stöðum skemmti-
legra að dvelja þegar haustar
að, en í Skagfjörösskála, Langa-
dal. Gönguferðir við allra hæfi.
Upplýs. og farm. á skrifst., Öldu-
götu 3, símar 19533 og 11798,
Haustlitir í Þórsmörk, sunnu-
dagsferð 30. sept. kl. 8. Stans-
að 2-3 klst. í Mörkinni, en á
heimleið verða Nauthúsagil og
Bæjargilið við Stórumörk skoð-
uð í haustlitum (nýttl). Allir eru
velkomnir í Ferðafélagsferðir,
en það borgar sig samt að ger-
ast félagsmaður. Hringið eða
komið við á skrifstofunni. Af-
sláttur í helgarferðir fyrir fé-
laga.
Munið haustlitaferð íÞórsmörk
5.-7. okt. (uppskeruhátíð og
grillveisla).
Ferðafélag Islands.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^tóum Moggansj__