Morgunblaðið - 26.09.1990, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 26.09.1990, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990 35 Ragnheiður Þórólfs dóttír - Minning Fædd 21. október 1915 Dáin 4. septeniber 1990 Nú hefur amma mín elskuleg, Ragnheiður Þórólfsdóttir, Skipa- sundi 60, Reykjavík, verið kölluð burt úr þessum heimi. En þó ei’fitt sé að sætta sig við að hún sé ekki lengur meðal okkar, er þó huggun í því að eiga óteljandi margar og yndislegar minningar um hana sem er okkur sem eftir stöndum gott veganesti. Amma var fædd í Viðey en sá staður var henni ávallt kær, þótt hún hafi flutt þaðan aðeins 5 ára gömul. Amma kynntist afa mínum, Kristjáni J. Einarssyni húsasmíða- meistara, árið 1963, en árið áður hafði mamma misst móður sína aðeins 8 ára gömul. Mamma hænd- ist strax að Lillu ömmu, sem gekk henni í móðurstað, og var alla tíð einstaklega náið og kært samband á milli þeirra. Amma og afí störfuðu saman í mörg ár við Langholtskirkju, lögðu þau einstaka alúð og ræktarsemi í störf sín í þágu kirkjunnar. Kirkju- starfið og félagsskapurinn við presta, kór og söfnuð veitti þeim sanna gleði og lífsfyllingu. Ég fór oft með ömmu og afa í barnamessur í sunnudögum, en amma lagði metnað sinn í að kenna mér að syngja sálma og fara með nýjar bænir, enda hafði hún yndi af fallegum söng og tónlist. Við vorum ný flutt í Kleppsholt- ið, þegar ég byrjaði í skóla, átti ég alltaf athvarf hjá ömmu og afa á meðan mamma var að vinna. Hjá þeim var gott að vera, ávallt ást og umhyggja í fyrirrúmi. Hressleiki og glaðværð voru aðalsmerki ömmu, það var sama hversu niður- dreginn ég var, þegar ég kom til hennar, alltaf kunni hún ráð til þess að fá mig til að hlæja og taka gleði mína á ný. Enda voru tengsl okkar ömmu náin og sterk. Gestrisni var ömmu í blóð borin, það kom varla sá dagur að ekki kæmu gestir til þeirra í Skipasund- ið. Vinahópurinn var stór og alltaf var tekið á móti gestum með hlaðið borð af heimbökuðum kökum. Amma og afi voru mjög samrýnd og góðir félagar, fastur liður í til- veru þeirra voru árlegar utanlands- ferðir í sumar og sól. Margar góðar minningar á ég frá því þegar ég var í sumarleyfum á Ítalíu, með ömmu, afa, mömmu og Sigþóri. Ég varð þess aðnjótandi að fá að vera fjögur sumur með þeim þar, en þau fóru 11 sumur í röð þangað. Síðasta utanlandsferð ömmu og afa var til Mallorka fyrir þremur árum og fórum við með þeim þang- að. Kjarkur sá og æðruleysi sem amma sýndi í veikindastríði sínu' sl. 2 ár voru einkennandi fyrir allt hennar líf. Til síðustu stundar var það bjartsýnin og trúin á bata sem hún hafði að leiðarljósi. Þrátt fyrir að sífellt drægi af henni kvartaði hún aldrei heldur sagði að sér liði vel. Elsku ömmu vil ég að endingu þakka fyrir allt það sem hún hefur veitt mér og kennt í gegnum árin. Ég vil biðja góðan guð að varðveita hana og styrkja afa minn í hans miklu sorg og missi. Blessuð sé minning hennar. Ólafur Ragnar Eyvindsson Guðlaug Kristjáns- dóttir - Kveðjuorð Með fáum orðum viljum við minnast Guðlaugar mágkonu okk- ar, er lést í sjúkrahúsinu á Sel- fossi, þann 4. þessa mánaðar, langt um aldur fram. Lauga, en svo var hún oftast kölluð, fæddist í Villingaholti í Ár- nessýslu 26. júní 1940 og var hún næstelst barna þeirra sæmdar- hjóna, Grétu Svanlaugar Jónsdóttur og Kristjáns Jónssonar, er þar bjuggu. Faðir hennar lést fyrir nokkrum árum, en móðir hennar býr þar enn með sonum sinum. Lauga giftist bróður okkar, Svavari Bjarnasyni, í desember 1968 og hófu þau búskap í bý- byggðu íbúðarhúsi, er þau reistu sér í Villingaholti. Þau eignuðust þrjú börn, elst er Gréta Svanlaug, hennar maður er Guðmundur Gunn- laugsson, næst er Hafdís, maður hennar er Emil Hiimarsson og yngstur er Sigfús Bergmann, en hann dvelur enn í foreldrahúsum. Aður hafði Lauga eignast soninn Elvar Ágústsson og er hans kona Berglind Einarsdóttir. Öll bera þau börnin foreldrum sínum fagurt vitni. Lauga var af miklu hagleiksfólki komin og erfði hún þá hæfileika í ríkum mæli og mátti segja að allt léki í höndum hennar. Á yngri árum fékkst hún nokkuð við að mála og hefur hugur hennar eflaust staðið til að afla sér meiri menntunar á Leiðrétting Vegna mistaka við vinnslu minn- ingargreinar Arnljóts Björnssonar um Jóhannes L.L. Helgason er hér endurbirtur kafli úr niðurlagi grein- arinnar. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Áberandi er, hvað margt á vel við um Jóhannes í lýsingu á Helga föður hans í upphafi þessara minn- ingarorða. Jóhannes var stórvel gefinn, málamaður góður, vakandi og skyldurækinn, árrisull og stundvís. Margir geta um þetta borið, ekki síst starfsmenn Happ- drættis Haskóla íslands. Andlegur styrkur og góðar gáfur entust honum til æviloka, en fyrir um það bil áratug brást líkams- hreysti, sem hann átti mikla framan af ævi. því sviði en af því varð þó ekki. Fyrir um það bil tólf árum hófu þau hjónin búrekstur sem þau voru sam- hent um að byggja upp af miklum myndarskap til þeirrar tæknivæð- ingar sem einkennir hann nú. Hefur þar reynt á dugnað Laugu, sem ekki lá á liði sínu enda þurfti oft á því að halda, þar sem Svavar var rnikið frá heimilinu vegna vinnu sinnar í Búrfellsvirkjun. Fyrir um það bil einu ári gerði sá sjúkdómur vart við sig, sem varð henni að aldurtila. Tólf árum áður hafði henni tekist að vinna bug á sama sjúkdómi. Ótrauð lagði hún til atlögu við hann á ný, en þrátt fyrir viljastyrk hennar, sálarþrek og. hjálp lækna varð ekki við neitt ráðið. Þegar sýnt þótti að um bata yrði ekki að ræða gerði Svavar og öll fjölskyldan henni kleift að dvelj- ast heima þrátt fyrir að heilsu henn- ar hrakaði stöðugt. Guðlaug Svava, litla ömmu- og afabarnið, var þeim sannur sólargeisli á þessum þrauta- tímum. Sólríku sumri er senn lokið, þrátt fyrir þungbær veikindi fékk Lauga að njóta útiveru í garðinum sínum og horfa á blómin og trén, sem hún lagði svo mikla alúð við að rækta. Ekki er ólíklegt að henni hafí þá orðið hugsað tii þess að Iífi hennar, líkt og blómanna, kynni senn að Ijúka. Þótt hugsanir í líkingu við þetta hafi flogið um hug hennar buguðu þær ekki þrek hennar til að mæta örlögum sínum með ein- stakri rósemi. í Villingaholti sleit Guðlaug barnsskónum og dvaldi þar að mestu alla sína ævi, þar er nú einn- ig legstaður hennar, en hún var jarðsett 15. september sl., að við- stöddu miklu fjölmenni. Bróður okkar og fjölskyldunni allri vottum við innilega sarnúð, en Guðlaugu mágkonu kveðjum við og biðjum henni Guðs blessunar á æðri vegum. Jóhanna og Ólöf t Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts og jarðarfarar ALBERTS ÞORGEIRSSONAR . vélstjóra. Börn, tengdabörn, barnabörn og aðrir aðstandendur. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, Austurbergi 36, frá Glæsistöðum V-Landeyjum, verður jarðsunginn í Aðventkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 28. sept. kl. 15.00. SigríðurÓlafsdóttir Candi, Manlio Candi, Hanna Ólafsdóttir JörgensenjJffe W. Jörgensen, Ólafur Ólafsson, Marin S. Geirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, FINNUR HERMANNSSON, Vesturbergi 12, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 27. septem- ber kl. 13.30. Ágúst Finnsson, Einar Finnsson, Ásdís Finnsdóttir, Gunnar Finnsson, Bjarghildur Finnsdóttir, Svandís Eyjólfsdóttir, Áslaug Guðmundsdóttir, Kjartan Hjartarson, Helga Bjarnadóttir, Skúli Bjarnason og barnabörn. t AXEL DAVÍÐSSON frá Ytri-Brekkum, Vesturgötu 40, Keflavik, sem lést af slysförum 18. september sl. verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 28. september kl. 14.00. Guðbjörg Þórhallsdóttir, Elsa Axelsdóttir, Þórdís Þormóðsdóttir, Björk Axelsdóttir, Úlfar Þormóðsson, Þyri Axelsdóttir, Hrönn Þormóðsdóttir, Þuríður Axelsdóttir, Logi Þormóðsson, Davíð Axelsson, Anna Björg Þormóðsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, HELGI GRÉTAR HELGASON, Langholtsvegi 122, Reykjavík, verður jarðsunginn fimmtudaginn 27. septemberfrá Langholtskirkju kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er vin- samlegast bent á Krabbameinsfélag íslands. Guðrún Þorsteinsdóttir, Anna Ó. Helgadóttir, Hilmar Hákonarson, Guðlaug Þ. Helgadóttir, Stefán Hallsson, Steinunn Ásta Helgadóttir, Rúnar Steinn Ólafsson, Helgi Helgason, Sigríður Brynja Hauksdóttir og barnabörn. t Útför elskulegs sonar okkar, dóttursonar, bróður, mágs og frænda, MATTHÍASAR SKJALDARSONAR, Skriðustekk 7, sem andaðist 19. september, verður gerð frá Langholtskirkju föstudaginn 28. september kl. 13.30. Þórhildur Hólm Gunnarsdóttir, Gunnar S. Hólm, Ásthildur Skjaldardóttir, Guðbjörg Skjaldardóttir, Guðrún Viktoría Skjaldardóttir, Una Svava Skjaldardóttir, Þorgrimur Skjaldarson, Tryggvi Lúðvik Skjaldarson, Skjöldur Þorgrímsson, Birgir Aðalsteinsson, Sigurður Árnason, Chuck Rogers, Halla María Árnadóttir, og sy atkinabörn. t Útför eiginmanns míns, föður og fósturföður, tengdaföður, afa og langafa, FRÍMANNS ÍSLEIFSSONAR, Fossöldu 3, Hellu, verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. september kl. 15.00. Marta Sigurðardóttir, Sigurður ísfeld Frímannsson, Erla Sigurðardóttu, Guðrún Frímannsdóttir, Hjalti Sighvatsson, Frímann Már Sigurðsson, Tim Nuamnui, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KJARTANS GISSURARSONAR fisksala, Sæviðarsundi 38, Reykjavík, og vottuðu minningu hans virðingu við útförina. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lungnadeildar Vífilsstaða- spítala fyrir góða umönnun. Karen Gissurarson, Inga Kjartansdóttir, Guðni J. Guðnason, Gunnar Kjartansson, . Ágústa Árnadóttir, Anna Kjartansdóttir, Björn S. Lárusson, Erla Kjartansdóttir, Sigurbjörn E. Kristjánsson, Kristján Kjartansson, Stefanía K. Karlsdóttir, Sonja Kjartansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.