Morgunblaðið - 26.09.1990, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Glöggskyggnin færir þér fjár-
hagslegan ávinning í dag. Þú
stendur vel að vigi í samkeppn-
inni vegna frumlegrar hugsunar
þinnar. Lifðu í sátt og samlyndi
við fjölskyldu og vini.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Innsæi þitt kemur þér vel þegar
þú þarft að glíma við skapandi
verkefni. Þú ert ósammála ráð-
gjafa þínum. í kvöld verður þú
með eindæmum eirðarlaus og
veist ekki hvað þú átt af þér að
gera.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú byijar á verkefni sem þú get-
ur unnið að heima við. Sinntu
andlegum málefnum og varaðu
þig á óhóflegri eyðslu vegna af-
þreyingar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Gamansemi þinni og tilfyndni er
við brugðið í dag. Þú áttar þig
strax á aðalatriðunum í samræð-
um við fólk. Þoldu þínum nánustu
að njóta þess sama frelsis og þú
óskar þér að njóta.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Samband þitt við ættingja þinn
batnar eftir nokkra stirðleika. Þú
gerir þér skýra grein fyrir hvað
honum gengur til. Þú átt erfitt
með að einbeita þér í vinnunni.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þér tekst frábærlega ve! að koma
hugmyndum þínum á framfæri.
Skörp hugsun og dugnaður stuðla
að árangri þínum. Þú verður ef
til vill að breyta áætlunum þínum
fyrir kvöldið.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Einkaviðræður leiða til fjárhags-
Iegs ávinnings fyrir þig. Þú verð-
ur að snúa þér að því að leysa
einhver vandamál heima fyrir.
Gestir kunna að knýja óvænt að
dyrum hjá þér í kvöld.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) ^^[0
Þú kemur fram með yfirveguðum
hætti í dag og stendur þig vel í
hópstarfi. I kvöld getur eitthvað
gerst sem leiðir til misskilnings
eða leggur þér óvæntar skyldur
á herðar.
Bogmadur
(22. nóv. - 21. desember) {& )
Hafðu hægt um þig á viðskipta-
sviðinu í dag. Taktu vel eftir öllu
í kringum þig því' að þú gætir
hagnast á því. Þér getur orðið á
í peningamálum.
Steingeit
(1%. des. - 19. janúar) &
Vinur þinn gefur þér gullvæg
ráð. Sýndu að þú verðskuldir það
traust sem þér er sýnt. Haltu þig
við hefðbundnar leiðir í viðskipt-
um því að annars gætir þú lent
á villigötum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þér tekst að snúa málunum þér
[ hag. Þig langar til að vera í
einrúmi með hugsunum þínum
og þrám hluta af deginum.
Fiskar
>4dDr>
(19. febrúar - 20. mars)
Þú ert á sömu bylgjulengd og
maki þinn, en vinur þinn gæti
komið þér úr jafnvægi með hegð-
un sinni í dag. Farðu varlega
með krítarkortið þitt.
AFMÆLISBARNIÐ á sér hug-
sjónir, en hefur augun samt opin
fyrir tækifærum sem gefast. Það
hefur gott viðskiptavit og kann
að géra sér mat úr listrænum
hæfileikum sínum. Það kann að
laðast að lögfræðistörfum eða
störfum í þágu hins opinbera, en
þyrfti að fá meira svigrúm fyrir
sköpunargáfu sína. Það er hag-
sýnt, en á til að lifa í liðnum tíma.
Það fengi notið sín í viðskiptum,
bankastarfsemi eða á sviði fram-
leiðslu.
Stj'órnusþána á aó lesa sem
dœgradv'ól. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staóreynda.
iiiiimiiiiiiimimiiiiiiiiiiimimiiniiiiminTrimiifnwTiiiiiiiiiiiimmmHiiiiiiiimimiiininniiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiii' .* ........... ' .....
GRETTIR
iiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimmTW'innimm'miiiimmnmiiniiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinmiiiimmimiiimiii .. 1 1 ' ..........
TOMMI OG JENNI
!F VOU MAD SHOESTOTIE,
YOU UJOULDN'T TMINK TMIS
Ef þú ættir skó til reima, þætti þér
þetta ekki svona fyndið.
l/UHY DON T YOU 6ET
S0ME SHOE57MICKEV M0U5E
UUEAR5 5H0E5...
Af hverju færðu þér ekki skó? Mikki
mús er í skóm ...
MICKEY MOUSE'5 5MOE5
Skór Mikka músar eru ekki með
reimum.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Vörnin er inni snemma spils,
sennilega í síðasta sinn, og þarf
að hitta á að taka réttu háspilin.
Komist sagnhafi að, vinnur hann
spilið. Slíkar stöður krefjast ná-
innar samvinnu.
Norður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ KD8
V 1083
♦ ÁKD10
♦ G107
Vestur
♦ G10952
¥K4
♦ G6
♦ K984
Austur
♦ Á76
V62
♦ 8753
♦ ÁD52
Suður
♦ 43
V ÁDG975
♦ 942
♦ 63
Vestur Norður Austur Suður
— 1 grand Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil: spaðagosi.
Austur drepUr spaðakóng
blinds og spilar sjöunni til baka
yfir á níu makkers og drottningu
norðurs. Sagnhafi hleypir
hjartatíunni og vestur á slaginn
á kóng.
Hann veit að suður á 6-lit í
hjarta og því 10 slagi ef hann
kemst að. Makker verður því að
eiga laufásinn. En það er ekki
þar með sagt að vömin fái þar
tvo slagi. Kannski er suður með
einspil í laufinu og þijá hunda
í spaða. Vestur veit ekki hvar
spaðasexan er. En kannski getur
hann spurt makker sinn með því
að leggja niður laufkóng!
Tyllum okkur nú í sæti aust-
urs. Hvað eiginlega vakir fyrir
makkr? Með ÁD í laufi er svarið
augljóst. Vestur veit greinilega
ekki hvort hann á að reyna að
taka spaðaslaginn. Úr því hann
er í vafa, hlýtur hann að eiga
fimmlit. Oruggast er því að yíir-
drepa og spila laufdrottningu.
Með ásinn, en ekki drottning-
una, myndi austur einfaldlega
kalla í litnum.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á millisvæðamótinu í Manila í
sumar kom þessi staða upp í skák
stórmeistaranna Alonso Zapata
(2.545), Kólumbíu, sem hafði hvítt
og átti leik, og Mikhail Gurevich
(2.640), Sovétríkjunum.
Báðir teflendur voru í miklu
tímahraki. Skákin var tefld í
fyrstu umferð og báðir e.t.v. verið
dasaðir eftir langt ferðalag. Lokin
voru amk. fáránleg: 38. Dxg6+?
- Kd7, 39. Df7?? - De5? (39. -
Rxh7 var mögulegt), 40. Dxd5??
— Dxd5 og nú ætlaði Zapata að
leika 41. Tf6+ og vinna drottning-
una til baka, en það er að sjálf-
sögðu ólöglegur leikur, því riddar-
inn er leppur. Zapata varð því að
gefast upp.
í staðinn fyrir þessi ósköp átti
hvitur einfaldan vinning í stöðunni
fyrir ofan: 38. Hxf8+! - Kxf8,
39. Dxg6 og svartur er óverjandi
mát.