Morgunblaðið - 26.09.1990, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990
37
félk í
fréttum
Morgunblaðið/Kristjana R. Ágústsdóttir
Réttað var í Gillastaðarrétt í Laxárdal sunnudaginn 16. september.
HAUSTVERK
Réttað í Gillastaðarrétt
Réttað var í Gillastaðarétt í Lax-
árdal sunnudaginn 16. septem-
ber. Um íj'ögur þúsund fjár komu í
fyrstu rétt, sem er fremur margt
miðað við undanfarin haust og það
kemur til af því hvað tíð hefur verið
hagstæð á afrétt þar til nú í septem-
ber, en aldrei neinir kuldar.
Ekki var margt fólk í réttinni, en
féð var fallegt og vel á sig komið
og bændur ánægðir miðað við að-
stæður. Kaffiveitingar voru í réttar-
skúrnum eins og venjulega og eru
það konur úr kvenfélaginu Þorgerði
Egilsdóttur sem sjá um þær .
SLYSÁVARNIR
Kynning á starfsemi SVFI
Björgunarsveitin Berserkir í
Stykkishólmi hefur unnið
mjög þarft starf á undanförnum
árum. Þeir eru fljótir til ef á
þarf að halda.
Björgunársveitin á hús í
Stykkishólmi þar sem þeir hafa
starfsemi sína. Helgina 8.-9.
september var sveitin búin að
undirbúa dagskrá í mörgum lið-
um og meðal annars kom í heim-
sókn björgunarbáturinn Henry
Hálfdanarson og fóru Berserkir
á sínum bát út á flóann á móti.
Kl. 10 á laugardag lagðist svo
báturinn að bryggju og var öllum
sem áhuga höfðu á því leyft að
skoða bátinn. Var það vel notað.
Þar á eftir var vörusýning á veg-
um Innkaupasambands SVFÍ í
björgunarstöð Berserkja. Þar á
eftir fór fram kynning á SVFÍ,
Slysavamaskóla sjómanna og
Tilkynningaskyldu íslenskra sjó-
manna.
Á sunnudag var svo fyrirhug-
að að halda ýmiskonar æfingar
en vegna roks og rigningar varð
að hætta við það, en þess í stað
var haldin samkoma í nýju kirkj-
unni, þar sem var dagskrá sem
Morgunblaðið/Árni Helgason
Björgunarbáturinn Henry Hálfdanarson leggur að bryggju í
Stykkishólmi.
nefndist: SVFÍ í máli og mynd-
um, og stóðu fyrir henni séra
Gísli H. Kolbeins og Hannes Þ.
Hafstein. Þá hafði verið ákveðið
að hafa undirbúning að stofnun
slysavamasveitar, eða vekja upp
gömlu slysavamadeildina „Ald-
an“.
- Árni
*
Morgunblaðið/Einar Falur
Norrænir kennarar sem vinna að gagnabankaverkefninu Óðni hittust á íslandi á dögunum.
UPPLY SINGAÖLD
Norræni gagnabankinn Oðinn
NÝLEGA var staddur hér á landi
hópur norrænna kennara er
hefur unnið að samnorræna verk-
efninu Óðni. Unnið hefur verið að
verkefninu, sem skólar frá öllum
Norðurlöndunum taka þátt í, í rúmt
ár og er markmið þess fyrst og
fremst að byggja upp tölvugagna-
banka. Norrænu gagnabankarnir
verða látnir vinna saman og unnin
ýmis verkefni tengd norrænum bók-
menntum, umhverfismálum o.fl.
Víða um heim er nú unnið að
gagnabankaverkefnum af þessu
tagi en norræni gagnabankinn Óð-
inn er eina verkefnið á Norðulönd-
um þar sem skólar koma við sögu.
í hópnum sem var staddur hér á
dögunum voru sautján manns,
stjórnarnefnd verkefnisins og kenn-
arar er því tengjast. Var hann hing-
að kominn til að gera upp síðasta
starfsár og skipuleggja vinnuna
fyrir næsta vetur.
Einn gagnfræðaskóli og einn
menntaskóli á hveiju Norðurland-
anna fær stuðning frá NORDINFO
til að vinna að Óðni. Þeir íslensku
skólar sem tóku þátt í þessu verk-
efni á síðasta vetri voru Gagnfræði-
skólinn á Ólafsfirði, undir leiðsögn
Þóris Jónssonar, og Verslunarskóli
íslands undir leiðsögn Magnúsar
Þorkelssonar. í vetur mun liklega
Menntaskólinn við Sund taka þátt
í verkefninu í stað Verslunarskól-
ans, einnig undir leiðsögn Magnús-
ar Þorkelssonar.
Stjórnarhópur verkefnisins kom
saman á Ólafsfirði og eftir að kenn-
ararnir komu funduðu menn í
Hjarðarskóla í Ölfusi.
COSPER
Komdu undan borðinu, Gísli, það ert þú sem átt að keyra
heim.
Matreióslumennirnir David Wallach gestur frá U.S.A.
og Guómundur I’orsson
CALIFORNIA MATUR
EINS OG HANN GERIST BESTUR
lYIatrcióslumaóurinn David Wallach
heimsækir Hard Rock Cafe
frá 20. til 30. sept. frá kl. 18 öll kvöld
Á boóstólum veróur amerískur matur meó
frönslm, ítölsku og austurlensku ívafi
SÝNIRHORN ÚR MATSEÐLI
FORRÉTTIR
SPIGY THAILOBSTER TAILS
WITH LEMON CUCUMBER SALAD
(VEL KRYDDAÐIR HUMARHALAR AÐ HÆTTI
TÆLANDS MEÐ SÍTRÓNU-GÚRKUSALATI
KR. 995,-
ADALRÉTTIR
EXOTIC WILD MUSHROOM PASTA
WITH DUCK CONFIT AND FRESH SAGE
(VILLISVEPPA PASTA MEÐ ANDARKJÖTSMAUKI)
KR. 795.-
JACK DANIELS CREME CARAMEL
(JACK DANIEL KARAMELLUBÚÐINGUR)
KR. 425.-
Elskum alla - þjónum öllum
Velkomin á Hard Rock Cafe, sími 689888