Morgunblaðið - 26.09.1990, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990
43
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI U-21 LANDSLIÐA
íslendingar rassskelltir í Michalovce:
Tékkar í sjöunda himni!
Morgunblaðið/Písecký
Bo Johansson leggur línuna á æfíngu a-liðsins á keppnisvellinum í gær. Frá vinstri eru Bjarni Sigurðsson, Guðni
Bergsson, Olafur Þórðarson, Anthony Karl Gregory, Sigurður Jónsson og Bo.
A-lið þjóðanna leika í dag:
„Verðum að láta
kné fylgja kviði“
- segir Milan Macala, landsliðsþjálfari Tékkóslóvakíu
ÞAÐ varléttyfir Milan Macala, landsliðsþjálfara Tékka, þegar
hann fékk fréttirnar af stórsigri 21 árs liðs Tékka gegn Islending-
um. „Nú verðum við að láta kné fylgja kviði," sagði Macala, en
landslið Tékkóslóvakíu leikur í dag í fyrsta sinn undir hans stjórn.
Macala, sem tók við starfi Jos-
eps Venglos eftir HM á ít-
alíu, er 47 ára fyrrum þjálfari
Ostrava. Tékkar tefla fram flestum
bestu leikmönnun-
um frá Ítalíu gegn
Isléndingum, en það
kom engum á óvart
hér í Tékkóslóvakíu
að Macala kallaði á Kula, besta leik-
mann Ostrava,
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
frá Kovice
í kvöld KNATTSPYRNA ísland og Austurríki leika U-18 vináttu- landsleik í knattspyrnu á Hvolsvelli í dag W' 1G' HANDBOLTI 1. dcild karla
Hafnarfjörður FH-Stjarnan Selfoss Selfoss-Valur Seljaskóli ÍII-KR 21) 20 20
Seltj.nes Grótta-Víkingur 20
Hafnarfj. Haukar-ÍBV
1. deild kvenna Hafnarfj. FH-Grótta ....18:30
Selfoss Selfoss-Valur ....18:30
Laugard.höll Víkingur-Stjarnan.. ....21:15
URSLiT
England
Deildarbikarinn, 2. umferð, fyrri leikir:
Carlisle—Derby..................1:1
Chester—Arsenal.................0:1
Crystal Palace—Southend.........8:0
Liverpool—Crewe.................5:1
Middlesbrough—Newcastle.........2:0
Plymouth—Wimbledon..............1 :o
Rochdale—Southampton............0:5
Wrexham—Everton.................0:5
Undaúrslit skoska deildarbikarsins:
Celtic—Dundee United............2:0
Körfuknattleikur
Reykjanesmótið:
Grindavík—ÍBK.................94:97
(Keflvíkingar, eru með fullt hús stiga
og eiga eftir einn leik, gegn Haukum.)
„Við munum leika til sigurs hér
í Kosice. Það er þýðingamiikið fyr-
ir okkur að byrja Evrópukeppnina
vel, því við ætlum okkur til Svíþjóð-
ar. Til þess verðum við að ná góðum
úrsljtum á heimavelli. Eg veit þó
að íslendingar verða ekki auðvéld
bráð, því að þeir eru frægir fyrir
mikla baráttu og hörku,“ sagði
Macala.
Skuhravy verður fremstur í
flokki, en við hlið hans leikur nú
Danek, sem er mjög hættulegur
markahrellir. Danek, sem leikur
með Týról í Austurríki, tekur sæti
Knoflicek frá St. Paulí, en hann er
meiddur. Danek er kominn til að
sýna styrk sinn með það í huga að
festa sig í sessi í landsliðinu, en
þess má geta að hann hefur gert
14 mörk í 12 leikjum með Týról á
keppnistímabilinu.
„Við munur leika svipað og tékk-
neska liðið gerði á Italíu með fimm
leikmenn á miðjunni og tvo frammi.
Danek og Skuhravy eiga að sjá um
að skora fyrir okkur,“ sagði Mac-
ala, þjálfari Tékka, sem munu leika
leikaðferðina 1-2-5-2.
Byijunarlið Tékka verður þannig
skipað: Stejskal (Sparta Prag á leið
til QPR) verður í markinu. Kocian
(St. Paulí) verður aftasti maður
varnar og Hipp (Nitra) og Kadlec
(Kaiserslautern) fyrir framan hann.
A miðjunni verða Hacek (Stras-
bourg), Bilek (Sparta Prag), Kubik
(Fiorentina), Kula (Ostrava) og
Moravick (St. Etienne). Frammi
verða svo Danek (Týról) og Sku-
hravy (Genóa).
„Mesta áfall sem ég hef orðiðfyrir," sagði
Marteinn Geirsson, þjálfari, eftir 7:0 tap
„TÉKKARNIR gerðu út um leikinn strax í byrjun, þegar þeir
greiddu okkur rothögg með því að gera þrjú mörk á rúmum tveim-
ur mínútum. Þetta er mesta áfall, sem ég hef orðið fyrir á ferli
mínum sem leikmaður og þjálfari,1* sagði Marteinn Geirsson,
eftir að hafa gengið af leikvelli í Michalovce í gær, með 7:0 á
bakinu.
SigmundurÖ.
Steinarsson
skrífar
frá Kosice
Eg er varla búinn að átta mig á
því hvað gerðist. Strákarnir
voru ekki með sjálfum sér og í hlut-
verki statista fyrstu mínúturnar.
Ég er sár, því að ég
var búinn að leggja
fyrir þá að gefa allt
sem þeir áttu til að
stöðva þá, fyrsta
stundarfjórðunginn. En því miður
tókst það ekki og því fór sem fór,“
sagði Marteinn.
Það var átakanlegt að sjá
íslenska liðið brotna saman á fyrstu
fimm mínútunum. Eftir aðeins tvær
og hálfa mínútu var Helgi Björg-
vinsson fyrir því óhappi að skora
sjálfsmark og aðeins 30 sekúndum
síðar mátti Olafur Pétursson mark-
vörður hirða knöttinn úr netinu hjá
sér, en sagan var ekki öll, því tveim-
ur mínútum síðar fór hann í netið
sömu erindagerða. Staðan var 3:0
og fimm mínútur búnar!
„Þetta var hræðilegt. Maður var
rétt byijaður að hreyfa sig á vellin-
um, þegar staðan 3:0 blasti' við á
Ijósatöflunni,“ sagði Steinar Guð-
geirsson, sem lék þrátt fyrir meiðsli
á ökkla.
„Við hreinleg réðum ekkert við
hraða Tékkanna," sagði Helgi
Björgvinsson, sem sagðist vilja
gleyina þessum leik sem fyrst.
Þjálfari Tékkanna, Ivan Kopeskí,
var aftur á móti í sjöunda himni
og sagði að þetta hefði verið
Tékkóslóvakía
—ísland 7:0
Michalovce, undankeppni EM U-21 árs
landsliða og Ólympíuleikanna, 1. riðill,
þriðjudaginn 25. september 1990.
Mörk Tékka: Helgi Björgvinsson
(sjálfsm. 3.), Penicka (4.), Necas (5.
og 63. vsp.), Majoros (28. vsp. og 89.)
Gul spjöld: Haraldur Ingólfsson (40.=.
Dómari: Buesan, frá Júgóslavíu.
Áhorfendur: 3.375.
Lið íslands: Ólafur Pétursson, Helgi
Björgvinsson, Jóhann Lapas, Þormóður
Egilsson, Kristján Halldórsson, Valgeir
Baldursson (Ríkharður Daðason 46.),
Valdimar Kristófersson, Steinar
Adolfsson, Steinar Guðgeirsson (Gunn-
laugur Einarsson 70.), Anton Björn
Markússon, Haraldur INgólfsson.
Stærsta tap Is-
landssíðan 14:2
Tap íslands fyrir Tékkum í gær var það stærsta í landsleik síðan
í 14:2 leiknum fræga gegn Dönum 23. ágúst 1967. Síðan þá
hefur Island leikið 383 landsleiki í drengja,- unglinga,- kvenna- og
karlaflokki. Stærsta tapið í þeim kom gegn Austur-Þjóðverjum á Laug-
ardalsvellinum 1987, 0:6.
Stærsta tap U-21 árs liðsins fyrir leikinn var reyndar einnig gegn
Tékkum, 4:0 á Akureyri 1986.
Verður flensa Pétri að falli?
Ovíst er hvort Pétur Pétursson
geti leikið með íslenska lands-
liðinu í dag. Flensa hefur verið að
ganga og margir leikmenn hafa
kvarta undan hálsbólgu og lasleika.
Ekki verður ljóst fyrr en í dag hvort
Pétur verður með en aðrir leikmenn
eru líklega öruggir og liðið er svip-
að og gegn Frökkum.
Bjarni Sigurðsson verður í mark-
inu. Guðni Bergsson aftastur í vörn,
Þorgrímur Þráinsson hægra megin
og Sævar Jónsson vinstra megin.
Atii Eðvaldsson fremstur í fjögurra
manna vörn og hefur gætur á Sku-
hravy.
Á miðjunni verða Rúnar Kristins-
son, sem kemur inní liðið fyrir Þor-
vald Öriygsson, Ólafur Þórðarson,
Sigurður Grétarsson, Pétur
Ormsiev og Arnór Guðjohnsen. Pét-
ur Pétursson verður eini sóknar-
maður liðsins, geti hann leikið, en
að öðrum kosti fer Ragnar Mar-
geirsson inná miðjuna og Arnór í
framlínuna.
Átta ár eru liðin síðan ísland lék
gegn Tékkum. Fjórir íslendingar
sem léku þá eru í byijunarliðinu en
enginn Tékkana í þeim leik hefur
verið í landsliði undanfarin ár.
draumabyijun. „Ég átti von á ís-
lendingunum sterkari, en mínir
menn náðu að slá þá út af laginu
í upphafi.“
Staðan var 5:0 fyrir Tékka í leik-
hléi en lokatölur urðu 7:0. íslend-
ingar fengu á sig þijú mörk úr víta-
spyrnum, þar af tveimur frekar
umdeildum. Tékkneska liðið var
allan tímann sterkara, leikmennim-
ir voru fljótir og spiluðu kantanna
á milli, en íslenska liðið virkaði
þungt á blautum vellinum og varla
heil brú í leik þess. Leikmenn voru
ragir og léku langt undir getu. Það ^
voru aðeins Anton Björn Markússon
og Ólafur Péturssön, sem spiluðu
af eðlilegri getu, enÓlafur kom í
veg fyrir enn stærra tap með góðri
markvörslu og varði m.a. víta-
spyrnu.
íÞRúm
FOLK'
■ ANTON Björn Markússon var
útnefndur besti maður U-21 liðsins
og fékk stóran leirvasa, um 70 sm
á hæð, í verðlaun. Gripurinn kemst
ekki ofan í ferðatösku, þannig að
Anton Björn verður með fangið
fullt á heimleiðinni!
■ STRÁKARNIR í U-21 liðinu
koma til Kosice í dag og horfa á
landsleikinn. Þeir eru skráðir á
sama hótel og A-liðið er á en það
verður lítið um svefn — þeir fara
héðan klukkan eitt í nótt með lang-
ferðabíl til Búdapest og fljúga það- l.
an síðan heim í gegnum Kaup-
mannahöfn.
■ HARALDUR Ingólfsson fékk
að sjá gula spjaldið fyrir harðan
leik og hann var heppinn að fá
ekki rauða spjaldið skömmu síðar,
en þá sagði Beusan, dómarinn frá
Júgóslavíu, við Harald að eftir
næsta brot fengi hann reisupas-
sann.
■ VINSÆLASTI rétturinn hjá
íslenska liðinu er spaghettí, sem
var eftirréttur í fyrstu kvöldmál-
tíðinni. „Þetta verður aðalrétturinn
fyrir leikinn,“ sagði Lárus Lofts-
son, matsveinn og aðstoðarþjálfari.
■ KAFFIMENNIRNIR miklu
• íslenska liðinu, Pétur Pétursson,
Sigurður Jónsson og Atli Eð-
valdsson eru ekki ánægðir með
kaffið, sem boðið er upp á, en það
er eins og gömul export-blanda.
Bo Johansson benti þeim á gott
ráð. „Þolinmæðin þrautir vinnur
allar. Bíðið þar til korgurinn er sest-
ur á þotninn og þá er hægt að
drekka kaffið eftir 10 mínútur.“
■ ÍSLENSKA landsliðið kom með
drykkjarvatn frá íslandi og ávaxta-
safa. En eitt gátu þeir ekki tekið
með — heita vatnið í sturturnar!
■ SIGURJÓN Sigitrðsson, lækn-
ir liðsins, er maður hjátrúarfullur.
Happatala hans er 7 og sé hún í
herbergisnúmerinu má búast við
góðum úrslitum. Hann býr á sjö-
undu hæð og þarafleiðandi í 7 í
númerinu, flugið til Prag var núm-
er 755 og í símanúmeri hótelsins
kemur talan 7 tvisvar fyrir. Spurn-^
ingin er nær ísland góðum úrslitum
eða verður Sigurjón að finna nýja
happatölu?