Morgunblaðið - 30.09.1990, Síða 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ
FJOLMIÐLAR SUNNUÐAGUR 30. SEPTEMBER 1990
Páll Þorsteinsson, útvarps
stjóri Bylgjunnar
Elín Hirst
Jón Ársæll
Þórðarson
Dagskrá Bylgjunnar
fær nýjan búning
DAGSKRÁ Bylgjunnar tekur töluverðum breytingum nú um mánaða-
mót, m.a. végna sameiningar fréttastofa Bylgjunnar og Stöðvar 2.
Að sögn Páls Þorsteinssonar útvarpsstjóra Bylgjunnar verður áfram
lögð mikil áhersla á dægurdagskrána frá klukkan 7 á morgnanna til 7
á kvöldin alla virka daga. Aðaláhersla verður lögð á fréttir á morgn-
ana, á milli klukkan 7 og 9, en þá verða fréttir á hálftíma fresti.
Aðalfréttatimarnir verða klukkan 12 og klukkan 17.17. Sama frétta-
stofan framleiðir fréttir fyrir bæði útvarp og sjónvarp, en Elín Hirst,
fréttamaður Stöðvar 2, verður fyrst um sinn sérstakur vaktstjóri
Bylgjufrétta. Sigurveig Jónsdóttir er hins vegar fréttasljóri hinnar
sameinuðu fréttastofu.
Síðdegis verða fréttatímar klukk-
an 14 og 17 og íþróttafréttir
verða áfram klukkan 11 og 15. Um
Þrítug
sápuópera
Þess var nýlega minnst að
30 ár voru liðin síðan elsta
sápuóperan í bresku sjónvarpi,
Coronation Street, hóf göngu
sína. Af því tilefni fékk þátturinn
hástemmt lof í afmælisfyrirlestri
eftir Roy Hattersley, sem fer
með innanríkisrmál í „skugga-
ráðuneyti" Verkamannaflokks-
ins. „Coronation Street er annáll
okkar tíma,“ sagði hann, „og
sagnfræðingar framtíðarinnar
munu ekki finna nokkra betri
leið til að fræðast um lífsvenjur
okkar ... Sýndarmennska á ekki
heima í þessum þáttum." Þætt-
imir eru sjónvarpssamsteypunni
ITV drjúg tekjulind vegna aug-
lýsinga sem þeir afla og kostnað-
ur við gerð þeirra er lítill miðað
við tekjurnar.
helgar er dregið úr fréttaútsending-
um, en þá verða tveir fréttatímar,
klukkan 12 og 17.17. Fréttum á
Stöð 2 klukkan 19.30 verður einnig
útvarpað á Bylgjunni. Eiríkur
Jónsson sér um morgunútvarp frá 7
til 9, en Jón Ársæll Þórðarson, sem
hefur störf á Bylgjunni á morgun,
verður með nýjan þátt á milli klukk-
an 17 og 18.30, sem nefnist ísland
í dag. Þessi þáttur kemur í stað
Reykjavík síðdegis. Um er að ræða
fréttatengdan þátt, auk þess sem
Jón Ársæll tekur púlsinn á þjóðinni
í ýmsum málum.
Á milli klukkan 9 og 5 á daginn
verður eins og hingað til lögð meiri
áhersla á tónlistina. Á þeim tíma
verður dagskráin í höndum Páls
Þorsteinssonar, Valdísar Gunnars-
dóttur og Snorra Sturlusonar. Dreg-
ið verður úr símaspjalli yfír daginn,
en að sögn Páls verður sérstakur
símaþáttur á milli klukkan 22 og
23 á kvöldin.
Við sameininguna nú um mánaða-
mót fer Bylgjan inn á dreifikerfi
Stöðvar 2. Þeir sem eru á þeim svæð-
um á landinu þar sem útsendingar
Bylgjunnar hafa ekki heyrst hingað
til, geta nú kveikt á sjónvarpinu og
hlustað á Bylgjuna undir stillimynd
Stöðvar 2.
FJOLMIÐLAR
UM FJÖLMIÐLA
í FJÖLMIÐLUM
MARGIR hafa hinn mesta ími-
gust á því að fjölmiðlar fjalli um
fjölmiðla. Þeir telja að fjölmiðlar
tapi áttum við það að stara í
eigin spegilmynd. Þeir telja að
í besta falli sé snakk um fjöl-
miðla saklaus naflaskoðun. Viss-
ulega eru dæmi um miður góð
skrif af þessu tagi í íslenskum
fjölmiðlum og eru fáir þeirra
sem nálægt þessum skrifum hafa
komið með hreinan skjöld. Á
hinn bóginn má það ekki gleym-
ast að umfjöllun um fjölmiðla á
opinberum vettvangi á svo sann-
arlega rétt á sér. Fjölmiðlar
hafa nú á tímum mikil áhrif og
þeir skipta fólk máli engu síður
en skólar, aflakvótar, stjórnmál
og annað sem öllum þykir eðli-
legt að um sé fjallað á sem breið-
ustum grundvelli og það á þeim
vettvangi sem almenn umræða
um samfélagsmál fer fram, þ.e.
í fjölmiðlum. Spurningin er því
ekki hvort það eigi að fjalla um
fjölmiðla í fjölmiðlum heldur
hvernig eigi að gera það. Hér
verður gerð stutt grein fyrir
þeim forsendum sem hafa legið
fyrir þeirri umfjöllun um fjöl-
miðla sem verið hefur á þessum
vettvangi nú í nær tvö ár.
Fjölmiðlagagnfýni helgast af
mikilvægi fjölmiðla í nútíma-
samfélagi. Þeir eru mikilvægir í
fyrsta lagi vegna þess að þeir eru
áhrifamiklir og í öðru lagi vegna
þess að þeir eru
Umfjöllun um fjölmiðla helgast
af mikilvægi fjölmiðla, áhrifum
þeirra og vinsældum
Sitó\eyjarbr»ður
'elVt^-?0K Sketi'"'u'
úl bv»ö» 01 VeiU- . niiö
m»M'»h>i \ r.ntrnu
*» '‘“.’aiwií *
' tfg
v,\U b»r»u
•tfm,
-»• ~ ” ru,‘“
Magnösatk . nfjmr tv'r ?
íSSSsr:
vinsælir. Þeir eru
áhrifamiklir
vegna þess að
þeir geta komið
málum á dagskrá
ef svo má að orði
komast og þannig geta þeir flýtt
ákvörðunum. Þeir geta líka skapað
þrýsting sem haft getur áhrif á
ákvarðanir og síðast en ekki síst
hafa þeir áhrif á almenningsálit
og jafnvel á það hvar fólk setur
exið í kjörklefanum, þ.e. ef eitthvað
er að marka erlendar athuganir á
tengslum fjölmiðla og stjómmála.
Fjölmiðlar eru vinsælir, það er
varla ti! sá vestræni maður sem
hvorki !es blöð né fylgist með út-
varpi eða sjónvarpi. Þetta hefur í
för með sér að fjölmiðlar verða ein-
hverskonar menningarlegur sam-
nefnari. Sem dæmi má nefna að
ef það er hægt að segja að íslensk
BAKSVIÐ
eftir Asgeir Friögeirsson
Fjölmiðlungar verða að geta
tekið því karlmannlega að
að þeim sé vegið.
þjóð sameinist um eitthvað þá eru
það kvöldfréttir þriggja stærstu
Ijósvakamðlanna. _ Allt að eitt$
hundrað þúsund íslendingar deila
þeirra athöfn á kvöldin á milli sjö
og hálf átta að hiusta á fréttir í
útvarpi. Þannig hafa fjölmiðlar
bein áhrif á daglegt líf flestra. Að
auki er rétt að benda á hversu
mikilvægu hlutverki fjölmiðlar hafa
að gegna við að koma til móts við
þörf fólks fyrir
afþreyingu og
/ÍsSSSSsflSSif7
skemmtun.
Fjöimiðlar
hafa því margvís-
leg áhrif, bein og
óbein, jafnt á
manninn sem einstakling sem og
samfélags hans. í þessu samhengi
er íjölmiðlagagnrýnin tvíþætt.
Annars vegar má ætla henni að
auka skilning lesenda eða áheyr-
enda á eðli og hlutverki fjölmiðla
og hins vegar er eðlilegt að vonast
til þess að gagnrýnin veiti fjölmiðl-
um og fjölmiðlungum aðhald. Auka
má skilning fólks á fjölmiðlum með
því m.a. að ijalla um það sem
fyrir augu ber í ljósi þróunar, í
ljósi þess sem hefur gerst, gæti
gerst og reynslu annarra og þann-
ig má vísa lesanda upp á áður
óþekkta sjónarhóla. Besta aðhald
sem hægt er að veita fjölmiðlum
er að gefa þeim fyllilega til kynna
að fylgst sé með því sem frá þeim
fer. Það er ekkert nema eðlilegt
að bera afurðir íslenskra fjölmiðl-
unga við það sem best gerist í
heiminum, því þegar öllu er á botn-
inn hvolft þá er það ekkert sem
getur réttlætt það að hlutir séu
ekki gerðir eins vel og kostur er
þótt hægt sé að finna þúsund og
eina afsökun fyrir því.
Þó svo þessi vettvangur hafi oft-
ar nýst til almennrar umíjöllunar
en beinnar gagnrýni þá er rétt að
hafa það í huga að gagnrýni hefur
alltaf neikvæða slagsíðu þó svo hún
geti bæði verið góð og vond. Mað-
ur, sem verður fyrir harðri eða
mikilli gagnrýni, fær með öðrum
orðum skömm í hattinn. Það geng-
ur ekki upp að segja að einhver
verði fyrir mikilli jákvæðri gagn-
rýni. Rétt eins og lof er jákvætt
þá hlýtur gagnrýni að snúast um
það sem miður fer. Þó svo upphaf-
leg merking gríska orðsins krités
sé að dæma þá hefur krítík lengst
af í flestum tungumálum Evrópu
þýtt það að finna galla. Á þessum
vettvangi verður það skilið þannig
og er vonast til þess að ijölmiðlung-
ar taki því karlmannlega að vera
skotmark, en á sextándu og sautj-
ándu öld gat orðið crticisme ein-
mitt þýtt það.
Fastir punktar í tilveru
Ahausti og vori verða
talsverðar breyting-
ar á dagskrá var-
panna, sjónvarps- og út- .
varpsstöðva. Þetta er að
vissu leyti eðlilegt þar sem
búst má við að öðru vísi sé
hlustað á útvarp og horft á
sjónvarp á vetri en sumri.
Þannig var það að minnsta
kosti þegar ekkert var í boði
nema gamla góða Utvarp
Reykjavík. Þá var útvarp
jafnvel svo góð afþreying að
götur voru auðar meðan
þjóðin sat við tækið í stof-
unni og hlustaði á Bör Bör-
son, spurningaþætti Sveins
Ásgeirssonar eða Sunnu-
dagskvöld með Svavari
Gests.
Nú er öldin öll önnur og
satt að segja má nota tvö
hugtök yfír útvarpsnotkun,
heyra og hlusta. Flestallir
heyra í útvarpi mestallan
tíma vöku sinnar en færri
hlusta, meðtaka útvarpsefn-
ið af athygli. Á svipaðan
hátt má nota tvö hugtök um
sjónvarpsnot, sjá og horfa.
Fjölmargir sjá ýmislegt í
dagskrá annarrar stöðvar-
innar eða beggja en þeir eru
færri sem horfa á það sem
þar sést svo það sé þeim eft-
irminnilegt. Það var til dæm-
is ekki bara séð og heyrt
heldur horft og hlustað þegar
Sjónvarpið sýndi stórtónleika
heimstenóranna þriggja í
hinu ævafoma baðhúsi
Caracalla í Róm 7. júlí. Meira
að segja svo ákaflega að
þegar tónleikarnir voru end-
ursýndir 16. september var
sagt að myndbandsspólur
hefðu selst upp í ijölmörgum
sjoppum og bensínstöðvum.
Svo merkilegur var þessi við-
burður þótt vinur minn einn
benti góðfúslega á að þarna
væru bara einhverjir karlar
að syngja í eldgamalli sturtu!
Víkjum aftur að breyting-
um á dagskrá varpanna vor
og haust. Nú er ekki svo að
breytingar þessar séu aðeins
þær að fara út vetrarfrakka
í stuttbuxur, ef svo má segja,
heldur verður þess meira og
meira vart í seinni tíð að
notaður sé nýr vetrarfrakki
með nýju tískusniði og nýjar
stuttbuxur í litum og lögun
tískunnar. Þess háttar breyt-
ingar leiða óhjákvæmilega
af sér þá staðreynd að dag-
skrárliðir varpanna eiga erf-
itt með að vinna sér hefð og
festu hjá notendunum. Þegar
tiltekinn dagskrárliður er
tekinn og hringlað með hann
til og frá í dagskránni gefast
áhugasamir hlustend-
ur/horfendur á endanum upp
á eltingaleiknum.
Hlustendur útvarps og
horfendur sjónvarps vilja
geta gengið að ákveðnu efni
í varpinu sínu á ákveðnum
tímum. Næg sönnun þess er
að það tók fólk mjög langan
tíma að sætta sig við að
kvöldfréttir Ríkisútvarpsins
voru færðar frá klukkan átta
til sjö. Það olli sjónvarpshorf-
endum hugarangri þegar
styrrinn stóð um fréttatíma
Sjónvarps og Stöðvar 2 og
nú virðist sjónvarpið vera
búið að læra að fréttir þurfa
að vera á sama tíma alla
daga og veðurfréttir eru ekki
tískuvara. Það skiptir megin-
máli að hafa reglu á þessum
hlutum — notendanna vegna.
Vörpin eru nefnilega fyrir
hlustendur og horfendur en
ekki einkamál eða innanhús-
mál fárra ráðamanna.
Nú gildir sama um útvarp
og sjónvarp, talmál og tón-
list, að dagskrárliðir sem
fjalla um ákveðið efni verða
að vera reglulegir í dagskrá.
Þeir sem vilja hlusta á til-
tekna tónlist eða tal vilja
ekki þurfa sífellt að venja sig
á nýjan hlustunartíma eftir
dyntum dagskrárstjóranna.
Alvarlegast er þegar breyt-
ingar eru gerðar breyting-
anna einna vegna og varpið
lendir í stríði við sjálft sig.
Nærtækt dæmi um það er
þegar Ríkisútvarpið klauf
svæðisútvarp sitt í herðar
niður svo það ber ekki sitt
barr sem fyrr.
í fjölmiðlafári undangeng-
inna ára hefur gamla góða
Rás 1 staðið sem gamall,
traustur frændi og þar hefur
margur átt á vísan að róa
til að seðja útvarpsþörf sína.
Styrkur þess útvarps hefur
verið litlar breytingar, gam-
aldags metnaður og vönduð
vinnubrögð. Þess vegna setti
að mörgum ugg þegar spurð-
ist á síðsumri að gera ætti
andlitslyftingar á þessum
gamla heimilisvini. Vonandi
spillist Rás 1 ekki af tísku-
fári.
Franskir sjónvarpshorf-
endur urðu skelfingu lostnir
þegar fréttist í vor að elsti
sjónvarpsþáttur í heimi,
spjallþáttur um bókmenntir
sem sami stjórnandi hafði
haldið úti í fjöldamörg ár,
yrði tekinn af dagskrá. Þeir
tóku gleði sína á ný nú í
september þegar bók-
menntaþáttur bytjaði á ný
að loknu sumarleyfi — að
vísu með nýjum stjórnanda,
en sama fyrirkomulagi og á
sama tíma og alltaf áður.
Sverrir Páll
Erlendsson